Morgunblaðið - 26.10.1974, Side 36
nucivsinciiR
«g,*~«22480
LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1974
r\r^ rwxiT Merkjasala
^O.vJíX I. til styrktar
laugardagur geösjúkum
28 ára gamall mað-
ur stunginn til bana
TUTTUGU og átta ára maður, Jóhannes Þorvaldsson, til
heimilis að Nóatúni 24, Reykjavfk, var stunginn til bana
í fyrrinótt á heimili vinkonu sinnar að Suðurlandsbraut
74A f Reykjavfk. Verknaðinn framdi vinkona hans,
Munda Pálína Enoksdóttir, 34 ára að aldri. Hún viður-
kenndi við yfirheyrslur í gær að hafa ráðið Jóhannes
bana með tveimur hnffum og skærum. Munda Pálfna var
úrskurðuð f gær í 90 daga gæzluvarðhald og geðrann-
sókn. Hún hefur áður verið úrskurðuð geðveik eftir að
hafa veitt öðrum áverka með eggjárni og dvaldi um tfma
á geðsjúkrahúsi. Málsatvik eru taiin upplýst, þar eð fyrir
liggur játning konunnar og framburði vitna ber saman
í meginatriðum.
LÖGREGLAN
AVETTVANG
Lögreglan fékk tilkynningu um
atburðinn klukkan 2.16 í fyrri-
nótt, og nokkrum mínútum síðar
voru rannsóknarlögreglumenn
kallaðir á vettvang. Þegar
lögreglumennirnir komu að hús-
inu Suðurlandsbraut 74A, lá karl-
maður með höfuðið á útidyra-
þröskuldi. Var hann alblóðugur
og virtist hafa verið skorinn á
háls. Maðurinn var meðvitundar-
laus, og var hann þegar fluttur á
slysadeild Borgarsjúkrahússins í
sjúkrabíl sem kallaður hafði verið
á vettvang og þar lézt hann um
klukkan 3.30 um nóttina.
Tveir piltar, 17 og 19 ára voru á
staðnum, og skýrðu þeir lögregl-
unni frá því, að móðir annars
þeirra, þess yngri, væri f herbergi
inni í húsinu. Sat konan þar á
dýnu, á nærbuxum einum fata.
Var hún öll ötuð blóði og með
áverka á höfði og sár á læri. Var
annað augað alveg sokkið og hitt
mjög blóðugt. Var þegar kölluð til
sjúkrabifreið og konan flutt á
slysadeild Borgarspltalans. Pilt-
arnir tveir voru hins vegar fluttir
í fangageymslur lögreglunnar. Að
mati lögreglumanna var konan
lítið ölvuð, en piltarnir greinilega
undir áhrifum áfengis.
SÁTU AÐ
DRYKKJU
Við yfirheyrslur kom það fram
hjá piltunum, að þau fjögur, þ.e.
piltarnir, Jóhannes og Munda,
höfðu setið saman að drykkju að
Suðurlandsbraut 74A á fimmtu-
dagskvöldið. Piltarnir ætluðu á
dansleik og fóru þeir á brott úr
húsinu skömmu fyrir miðnætti.
Þeir komust hins vegar ekki inn í
neitt danshús, og komu aftur að
Suðurlandsbraut um klukkan 2
um nóttina. Bönkuðu þeir á úti-
dyrnar, sem liggja inn í eldhúsið.
Kom Munda Pálína til dyra, eins
klædd og að framan greinir. Opn-
aði hún fyrir piltunum og hljóp
síðan inn í herbergið og greip í
leiðinni stóran brauðhníf sem Iá á
borði í eldhúsinu. Piltarnir
fylgdu fast á eftir og varð annar
þeirra, þ.e. sonur konunnar, vitni
að því að hún skar Jóhannes á
háls með hnífnum. Stökk hann
þegar til og afvopnaði móður sína.
Mikið blæddi úr sárinu og sýndist
það mjög mikið. Kallaði þá sonur-
inn á vin sinn og bað hann um að
hlaupa í næstu hús og hringja á
lögreglu og sjúkrabifreið, en eng-
inn sími var í húsinu. Hljóp pilt-
urinn af stað, en gekk erfiðlega að
finna síma. Fór hinum þá að
leiðast biðin, og hljóp hann einnig
af stað til að reyna að sækja hjálp.
Fór hann í verzlun f nágrenninu,
brauzt þar inn og hringdi í lög-
reglu og sjúkralið. Þegar hann
kom aftur sá hann að maðurinn
var kominn fram í eldhúsið, og
virtist hann mjög máttfarinn
bæði vegna blóðmissis og ölvunar.
Verður pilturinn þá vitni að
þvf, að móðir hans stingur
Jóhannes tvisvar, með litlum
vasahnif og skærum. Réðst hann
strax á móður sína, afvopnaði
hana, auk þess sem hann rak hana
f gólfið og veitti henni mörg þung
högg. Voru áverkarnir á konunni
af völdum sonar hennar. Báðum
piltunum var sleppt í gær.
SVIPAÐUR
FRAMBURÐUR
Munda Pálfna var yfirheyrð
eftir hádegi f gær. Var framburð-
ur hennar mjög svipaður og fram-
burður piltanna. Viðurkenndi
hún að hafa veitt Jóhannesi þá
áverka sem leiddu til dauða hans.
Sem fyrr segir voru áverkarnir
þrír. Langur skurður var á hálsi,
þvert yfir barkann og aftur fyrir
eyrun. Hann var mjög grunnur en
mikið blæddi úr. Stungusár var á
vinstri öxl og annað stungusár
rétt ofan við viðbein vinstra
megin. Er talið liklegt, að það hafi
valdið dauða Jóhannesar. Dánar-
orsök mun þó ekki liggja
óyggjandi fyrir fyrr en niðurstöð-
ur réttarkrufningar koma, en
réttarkrufning hefur enn ekki
farið fram.
TALDIST
GEÐVEIK
Jóhannes Þorvaldsson var
fæddur 18. júlí 1946, en Munda
Pálína Enoksdóttir er fædd 18.
desember 1939. Við yfirheyrslur
yfir Mundu kom fram, að þau
Jóhannes höfðu þekkst um 9
mánaða skeið. Jóhannes var
sjómaður að atvinnu, en bjó hjá
foreldrum sínum. Hann var barn-
laus, en Munda á 4 börn úr fyrra
hjónabandi. Hún viðurkenndi að
hafa áður stungið Jóhannes með
skærum. Gerðist það í sumar, og
Framhald á bls. 20
Verknaðinn framdi vinkona
hans, sem áður hefur verið
úrskurðuð geðveik fyrir
árásir með eggvopnum
Jóhanncs Þorvaldsson.
Hnffarnir og skærin sem notuð voru við verknaðinn.
i.josm. Mbl. Sv. Þorm.
Kæra breytingar á Lén-
harði til Rithöfundaráðs
RITHÖFUNDARAÐ hefur enn
ekki tekið til meðferðar kæru
stjórnar Félags fslenzkra rithöf-
unda á meðferð rfkisútvarpsins á
Lénharði fógeta eftir Einar H.
Kvaran, en félagið hefur kært
málið til ráðsins og andmælir
breytingum á verkinu.
Indriði G. Þorsteinsson, rithöf-
undur, formaður rithöfundaráðs,
sagði, að ráðið hefði enn ekki
tekið málið til meðferðar, þar sem
ekki hefði verið gengið frá starfs-
grundvelli fyrir ráðið á rit-
höfundaþingi. Því muni það taka
nokkurn tíma fyrir ráðið að skapa
sér starfsgrundvöll, og mun málið
ekki verða tekið fyrir fyrr en því
sé lokið.
Stjórn Félags íslenzkra rithöf-
unda vill með kærumáli þessu
verja rétt höfundar og bendir
m.a. á, að hjá ríkisútvarpinu hafi
verið stöðvaður flutningur tón-
verka, m.a. eftir Wagner og Bach,
þar sem útsetningar hafi ekki
verið eftir höfund sjálfan. Hér
hljóti að ráða sömu reglur og við-
horf.
Taxti leigubíla
hækkarum20%
VERÐLAGSNEFND heimilaði á
fundi sfnum f gær 20% hækkun á
gjaldskrá leigubifreiða og 20%
hækkun á gjaldskrá vöruflutn-
ingabifreiða, sem flytja vörur út
um land. Gjaldskrárhækkun
leigubifreiða mun koma til fram-
kvæmda um helgina. Aætlað er,
að startgjald leigubfla verði þvf
Fékk 13 högl 1 höfuðið
ÞORVALDUR Jósepsson,
bóndi f Sveinatungu f Norður-
árdal, varð fyrir þvf óhappi f
fyrradag um klukkan 14 að
verða fyrir skoti frá rjúpna-
skyttu. Fékk Þorvaldur á annan
tug hagla f andlitið. Stöðvaðist
eitt haglið við auga Þorvalds,
milli hvarmsins og augans,
annað fór gegnum eyra hans og
hið þriðja í gegnum kinn.
Morgunblaðið ræddi í gær við
Þorvald Jósepsson, sem bar sig
mjög vel. Hann sagði, að hann
hefði að vísu bólgu í auga og
sæi ekki eins vel með þvf og
áður, en hann kvaðst vonast til,
að það breyttist þegar bólgan
hyrfi. Þorvaldur sagði, að
rjúpnaskyttunni hefði orðið
mun meira um óhappið en sér.
Hún hefði ekið sér til læknis f
Borgarnesi, sem fjarlægt hefði
13 högl úr höfði sér. Þorvaldur
sagði, að eitt haglið hefði farið
inn í kinnina á sér og komið út
aftur nokkrum sentimetrum
aftar. „Rjúpan, sem skotið var á
steinlá," sagði Þorvaldur og
bætti við: „Enda var færið til
hennar mun styttra en til mín.“
Þorvaldur lýsti óhappinu
þannig: „Rjúpnaskyttan miðaði
á rjúpu, sem var að spfgspora á
hæð. Skyttan vissi ekki af mér
Framhald á bls. 20
sem næst 200 krónur. Þessi upp-
hæð er þó birt með nokkrum fyr-
irvara, þar sem útreikningar lágu
ekki endanlega fyrir hjá verð-
lagsstjóra f gær.
Viðræðum í
Bonn lokið
Bonn, 25. okt.
Einkaskeyti til
Morgunblaðsins frá AP:
VIÐRÆDUM Vestur-Þjóðverja
og tslendinga um fiskveiðirétt-
indi var hætt f kvöld, — að þvf er
virtist án þess að náðsthefði sam-
komulag. Utanrfkisráðuneytið I
Bonn sagði að báðir aðilar hefðu
ákveðið að halda efni viðræðn-
anna leyndum á meðan rfkis-
stjórnirnar athuguðu stöðuna.
Ekkert benti hins vegar til að
færzt hefðu f samkomulagsátt.
Vestur-Þjóðverjar munu enn
hafa haldið fast við kröfu sfna um
að verksmiðjuskip þeirra fái að
veiða áfram á tslandsmiðum.
Einnig snerust viðræðurnar um
takmarkanir á árlegu aflamagni.