Morgunblaðið - 19.11.1974, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1974
3
Islands
og menningarsögunni
vitni, heldur er menning-
ararfurinn að mestu leyti
bókmenntalegs eðlis. Hann
taldi þó, að of iitið heföi
verið gert úr öðrum þátt-
um, svi sem minjum, sem
bæru atvinnusögunni
vitni, og svo harðri baráttu
landsmanna við náttúruöfl-
in. Einnig kom fram, að í
örnefnum væri mikils fróð-
leiks að leita, svo sem m.a.
hefði komið fram í merku
erindi Þórhalls Vilmundar-
sonar á sögusýningunni
fyrir viku.
Sögusýningunni lýkur
sunnudaginn 24. nóvemb-
er, en hún er opin alla daga
kl. 2—11.
S.L. SUNNUDAG flutti
forseti Islands, dr. Krist-
ján Eldjárn fyrirlestur
á sögusýningunni á
Kjarvalsstöðum. Nefndist
fyrirlesturinn „Land og
minjar“. Mikill mann-
fjöldi hlýddi á fyrirlestur-
inn eins og sjá má af mynd-
inni, en aðsókn á sýning-
una þennan dag var sú
mesta á einum degi frá
opnuninni. Alls komu á
Kjarvalsstaði hátt á annað
þúsund manns, en nú
munu alls um 20 þúsund
hafa skoðað sýninguna.
I fyrirlestrinum benti
forsetinn á, að fornar
minjar hér eru að því
leyti frábrugðnar því sem
gerist víða annars staðar,
að hér eru engin stórbrotin
mannvirki, sem bera lista-
Mikill fjöldi fólks hiýddi á
fyrirlestur forsetans og
sést hér yfir hluta salarins
á Kjarvaisstöðum.
Dr. Kristján Eld-
járn flytur erindi
sitt, „Land og
minjar“.
Fjölmenni
hlýddi á fyrirlestur forseta
í
Stutt spjall
viðKristmann
í tilefni nýrr-
arljóðabókar
KOMIN er út hjá Almenna
bókafélaginu ný ljóðabók eftir
Kristniann Guðmundsson.
Nefnist hún „Leikur að Ijóð-
um“, og er 107 blaðsíður. Bók-
inni skiptir höfundur I 3 kafla.
Sá fyrsti nefnist „Æskuljóð“,
og eru 18 Ijóð I þeim kafla.
Annar heitir „Ljóð frá miðjum
aldri", alls 17 Ijóð og loks „Ljóð
frá sfðari árum“, alls 30 Ijóð. t
bókinni er þvf að finna 65 Ijóð,
og eins og kaf laheitin bera með
sér, spannar hún allan skálda-
feril Kristmanns. Elzta Ijóðið
er frá því hann var 1114 árs, og
það sfðasta er frá f sumar.
„Ég hef alltaf leikið mér að
því að yrkja, allt frá því ég var
strákur," sagði Kristmann við
blaðamann Mbl., sem heimsótti
skáldið á Tómasarhaga í
Reykjavík, þar sem það býr nú.
Og Kristmann bætti við: ,,Og
þótt mikill aldursmunur sé á
elzta og yngsta ljóðinu í bók-
inni, eru þau að mínum dómi
lík, og tek ég það til marks um
það, að ég sé ofurlítið farinn að
ynjast aftur." Og Kristmann
brosir við.
„Leikur að ljóðum" er önnur
ljóðabók Kristmanns. Fyrir
rúmum 50 árum gaf hann út
Ljóðabók sem hét „Rökkur-
söngur". Kristmann var rúm-
lega tvítugur að aldri þegar
bókin kom út, og var þetta
skömmu áður en hann hélt til
Noregs. „Það er nú horngrýti
hart, að á þeim árum var vita-
vonlaust að svæla bókinni út
fyrir 5 krónur, en nú kostar
hún ekki undir 1000 krönum ef
„Hef leikið mér að því
að yrkja
frá því ég var strákur”
hægt er að krækja í hana ein-
hvers staðar,“ segir Kristmann.
Þá má geta þess, að fyrir einum
20 árum gáfu þeir Kristmann
og Ragnar i Smára út litið ljóða-
kver sem kallað var „Krist-
mannskver". Það kom aðeins út
i 2—300 eintökum, og var gefið
vinum og kunningjum þeirra
Ragnars, en fór aldrei i bóka-
búðir.
„Þetta er að vonum taisvert
sundurleitt," sagði Kristmann
þegar hann var inntur eftir
efni bókarinnar, enda spannar
það allan skáldaferil hans, eins
og að framan greinir. „Frósinn
hefur alltaf verið mitt form, en
ljóðin hef ég fyrst og fremst ort
mér til ánægju. Þetta sem hér
birtist og það sem áður hefur
birst er ekki nema hluti af því
sem ég hef sett saman af ljóð-
um, mest af því mun aldrei
koma á prent." Og þegar Krist-
mann var að því spurður hvort
ljóð hans flokkuðust ekki undir
margar stefnur vegna þessa
langa tímabils sem þau spanna,
svaraði hann: ,,Eg hef á minum
skáldaferli sé fylgt þeirri einu
stefnu, að sá ekki eitri i þær
sálir sem lesa bækur eftir mig.
Ég vil frekar gefa fegurð og
auka hugrekki. Þetta er min
eina stefna, og hún kemur skir-
ast fram i skáldsögum niinum.
Ég hef alltaf verið á öndverðum
meiði við þá sem skrifa klúrt
um lifið. Eftir sölunni að
dæma, hafa nokkrar milljónir
manna lesið bækur eftir mig,
og það væri slæmt ef ég hefði
sáð illgresi og óþverra í þær
sálir.“.
Kristmann hefur ekki látið
deigan siga þótt aldurinn hafi
færzt yfir, og hann vinnur nú
kappsamlega að því að þýða
yfir á islenzku þær bækur sem
gefnar voru út eftir hann á
norsku á sinum tíma. Er ætlun-
in, að þær verði flestar gefnar
út í nýjum flokki bóka sem Al-
menna bókafélagið ætlar að
gefa út í tilefni 75 ára afmæli
skáldsins, sem er eftir tvö ár. I
þessum flokki verða einnig
gefnar út eldri bækur Krist-
manns orðnar nálægt 30 að
tölu, og auk þess liggja eftir
hann 50—60 smásögur, auk
ljóðabókanna sem að framan
greinir. „Það er erfitt starf að
vera skáld, en jafnframt
heillandi. Ég hef haft yndi af
öllum mínum ritstörfum ''
Kristmann Guðmundsson var
oft hart dæmdur, af misjafn-
lega heiðvirðum gagnrýn-
endum. Kannski hefur hann
þess vegna samið þetta litla
ljóð, sem hann nefnir „And-
svar", og er að finna á bls. 55 í
hinni nýju ljóðabók hans
„Leikur að ljóðum". Á þessu
litla Ijóði sínu lýkur spjallinu
við skáldið.
Lof og last
lítilla karla
er mér sem vad í vindi.
Lygar varmenna,
lap og slúður,
nfð og nag,
er mér sem kríudrit á hatti
mfnum
— þornar í sölskini,
þvæst af í næstu regnskúr.
Sögusýningin:
„Eldur í Heimaey” sýnd í
kvöld vegna fjölda áskorana
MJÖt; góð aðsókn var að Sögu-
sýningunnl um helgina. Hafa nú
alls 20 þúsund manns séð sýning-
una. Henni lýkur n.k. sunnudag,
og er ástæða til að hvetja fólk til
aö nota þessa sfðustu sýningar-
daga vel. Þeir, sem sótt hafa
sýninguna, hafa yfirleitt verið
mjög ána'gðir með hana.
Sýningarstjórninni hafa borizt
mjög margar óskir þess efnis, að
mynd feðganna Ösvalds og Vil-
hjálnis Knudsen, „Eldur í Ileima-
ey“, verði sýnd oftar á sýning-
unni. Hefur Osvaldur orðið við
þessum beiðnum, og verður
myndin sýnd á Kjarvalsstöðum í
kvöld klukkan 21.
Ösvaldur Knudsen
Fundur um
Á almennum fundi Félags sjálf-
stæðismanna í Nes- og Melahverfi
fjalla alþingismennirnir Albert
Guðmundsson og Sverrir
llermannsson um takmörkun
Keflavíkursjónvarpsins, íslenzkt
litasjónvarp og möguleika ís-
lenzkra sjónvarpsáhorfenda til
þess að komast í samband við
útsendingar erlendra sjónvarps-
stöðva utn alþjóðleg fjarskipta-
kerfi.
Fundurinn verður haldinn á
fimmtudag, 21. nóveniber í Átt-
hagasal Hótel Sögu og hefst kl.
20.30. Fundurinn er opinn öllum,
sjónvarpsmál
sem áhuga hafa á fundarefninu
og er fólk hvatt til að fjölmenna.
EKIÐ Á BÍL
Laugardaginn 16. növ. var ekið
á bifreiðina V-5375, milli kl. 15 og
16,30 þar sem hún stóð á bifreiða-
stæðinu norðaustan við Mennta-
skólann við Hamrahlíð. Bifreið
þessi er Saab 99, græn að lit. Var
hægra afturbretti dældað. Þeir
sem geta einhverjar upplýsingar
gefið, eru beðnir að hafa samband
v i ð rannsókna rlögreg 1 u na.
I