Morgunblaðið - 19.11.1974, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.11.1974, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. NÖVEMBER 1974 Islandsfnótið 3. deild ÍA - Víðir 24:17 Fyrsti leikurinn í Suðurlandsriðli 3. deildar keppninnar I hand- knattleik fór fram um fyrri helgi. Léku þá Akurnesingar og Víðir úr Garði i Iþróttahúsinu í Hafnarfirði. Lauk leiknum með sigri Akur- nesinga 24—17, eftir að þeir höfðu haft yfir 10—4 í hálfleik. Um fyrri helgi átti einnig að fara fram leikur milli Ungmenna- félags Njarðvikur og Aftureldingar úr Mosfellssveit, en sá leikur féll niður þar sem Njarðvikingar mættu ekki til leiks. Leiknir — UMFA 32:25 Einn leikur fór fram í 3. deild karla nú um helgina. Þá mættust í Hafnarfirði Afturelding og Leiknir. Margir hafa orðið til að spá Leikni sigri í 3. deild, og margt virðist benda til að svo fari. Liðið hefir á að skipa mörgum kunnum fþróttamönnum, svo sem Hermanni Gunnarssyni, sem er þjálfari auk þess að vera leikmaður, Hafliða Péturssyni, Guðgeiii Leifssyni og Jóni Ölafssyni, sem allir eru kunnir knattspyrnumenn. Ef til vill mun keppnisreynsla þess- ara manna gera það að verkum, að Leiknir sigri í deildinni. I leiknum á sunnudag áttu þeir Leiknismenn þó lengi í erfiðleik- um með hið unga lið Aftureldingar. I hálfleik hafði Afturelding t.d. yfir 14 mörk gegn 13 Leiknis. I síðari hálfleik tóku Leiknismenn þegar afgerandi forystu, sem entist þeim til leiksloka. Leiknir sigraði sem sagt með 32 mörkum gegn 25. Það, sem einkum gerði útslagið á sigur Leiknis, var hin góða líkamsþjálfun, sem hinir þrautreyndu iþróttamenn ráðayfir. Það er þó trúa undirritaðs, að liðið ráði yfir mun meiri handknattleiksgetu en þarna sást. Lið Aftureldingar hefir yfir nokkrum góðum leikmönnum að ráða, en breiddin er vart nægjanleg. Það segir sina sögu, að það voru þrír leikmenn, sem skoruðu öll mörkin nema þrjú i leiknum gegn Leikni. Þá er markvarzla liðsins gjörsamlega í molum. Markhæstir: Leiknir: Hermann 9, Hafliði og Guðgeir 7 hvor. Afturelding: Sigurión 8, Ríkharður og Lárus 7 hvor. Sigb.G. George Kirby. Kirby með Skaga- menn SKAGAMENN hafa nú gengið frá samningum við enska þjálfarann George Kirby um að hann þjálfi knattspyrnulið þeirra næsta keppnistimabil. Sem kunnugt er þjálfaði Kirby lið lA á liðnu keppnistfmabili og náði mjög góðum árangri með það, þar sem það hlaut Islandsmeistaratitilinn og komst f úrslit f bikarkeppn- inni. Var mikil ánægja bæði hjá leikmönnum liðsins og forystu- mönnum ÍA með störf Kirbys og hann var einnig ánægður á Akra- nesi og hefur borið heimafólki þar vcl söguna f viðtölum við ensk blöð. Sem kunnugt er mun Gfsli Magnússon þjálfa lið ÍBV á næsta keppnistfmabili, en önnur félög hafa ekki gengið frá samningum við þjálfara enn. Er talið mjög Ifklegt, að þeir Jóhannes Atlason og Guðmundur Jónsson þjálfi Framliðið, en Framarar eru eina liðið í 1. deild, sem ekki hefur sýnt verulegan áhuga á að fá er- lcndan þjálfara. Þá hafa Keflvík- ingar leitað eftir samningum við Joe Hooley, þann er þjálfaði liðið á kcppnistfmabilinu 1972—1973, og vitað er, að KR-ingar hafa mik- inn hug á því að fá Tony Knapp aftur tii sfn, og Víkingar munu einnig hafa áhuga á að ná samn- ingum við Sanders, þann er þjálf- aði lið þcirra sl. sumar. — Erla Framhald af bls. 19 framhald á þessum sam- skiptum á komandi árum.“ Reykjavíkurmótinu f handknattleik kvenna er enn ólokið. Ármannsstúlk- urnar eiga þar mikla mögu- leika á sigri. Islandsmótið er þegar hafið, og hafa Ár- menningar leikið einn leik, sem þær sigruðu með miklum mun. „Já, svo sannarlega stefnum við á toppinn, bæði f Reykjavfkurmótinu og Is- landsmótinu. Ég minnist þess ekki, að við höfum haft eins sterku liði á að skipa eins og í ár. Auk þess er andinn innan liðsins mjög góður, og hvf skyldum við ekki sigra?" Já, hví skyldu Ármanns- stúlkurnar ekki sigra? Þær hafa lengi verið stórt spurn- ingarmerki f handknatt- leiknum. En úr því mun framtfðin ein skera. — Read Framhald af bls. 19 kappakstursmenn f slíkum keppnum. Margir hafa orðið til að segja, að menn, sem leggja líf sitt að veði f kappakstri á mótorhjólum, hljóti að gera það cinvörðungu pening- anna vegna. Þessu neitar Phil Read algerlega. „Áð vfsu höfum við ágætis laun, en enginn okkar er í þessu vegna peninganna. Kapp- akstursmenn þurfa að hafa til að bera mikla dómgreind, áræði og styrk. Þeir, sem iengst eru komnir, eins og ég t.d„ hafa þetta til að bera, auk þess er kappaksturinn og sú spenna, sem honum fylgir, orðinn okkar annað líf.“ Phil Rcad elskar þessa íþrótt og a-tlar sér að halda áfram f mörg ár í viðbót. Hann er þcgar farinn að kenna þremur sonum sfnum til verka, sem eru á aldr- inum þriggja til níu ára. Þess má og geta, að móðir hans, sem er 72 ára, ekur um á mótorhjóli, þannig að segja má, að akstur á mótor- hjóli sé ættgengur í Read- fjölskyldunni. 23 f leiknum við Aftureldingu. Halldór Sigurðsson skorar eitt marka Leiknis IS VANN ÞROTT AN ERFIÐLEIKA REYKJAVÍKURMÓTIÐ í blaki hófst um síSustu helgi. Þrjú lið taka þátt i mótinu aS þessu sinni, ÍS, Þrótturog Víkingur. Nú verður i fyrsta sinn keppt i kvennaflokki og eru það Víkingur og Þróttur, sem senda liö til keppninnar. Fyrsti leikurinn i karla- flokki var á laugardaginn og léku þá ÍS og Þróttur. ÍS hafði greinilega yfirburði og sigraði 3—0. 1. HRINA: Þróttur byrjaði með boltann og var jafnt framan af og sýndu bæði liðin ágætis blak. Indriði og Friðrik áttu góð smöss úr uppspili Halldórs Torfasonar, sem átti góðan leik. Hjá Þrótti var uppspilið ekki upp á marga fiska og árangurinn eftir því en Valdimar vann þó vel úr slæmum boltum og Gunnar átti góðar laumur. Þróttur hafði yfir 9—8 en þá misheppnuðust hjá þeim uppgjafir hvað eftir annað og IS sigldi framúr og sigraði 15—9. Hávörnin hjá ÍS var góð enda er liöið með marga hávaxna menn I sfnum röðum og baggerslag er mjög gott hjá öllu liðinu. 2. HRINA: Stúdentar voru nú komnir f stuð og hófu leikinn með miklum hamagangi og fyrr en varði var staðan orðin 13—1 ÍS í vil. Þróttarar voru alveg á núlli i getu og hávörnin var mjög gloppótt, upp- spilið hörmulegt og uppgjafir tókust varla nema endrum og eins. Skyndi- lega var eins og allt færi ! baklás hjá ÍS þegar Gunnar Árnason sendi upp- gjöf beint f gólfið hjá þeim og Þrótt- arar gengu á lagið og unnu nú fjögur stig i röð. ÍS tók þá leikhlé til að átta sig á hvað væri að gerast, en það dugði ekki til þvf áfram héldu Þrótt- arar að hala inn stig eða tiu á móti einu hjá ÍS og er staðan var orðin 14—11 fékk ÍS loks boltann og tókst að ná þessu eina stigi, sem vantaði og sigra i hrinunni 15—1 1. Hjá Þrótti kom Frfmann Sturluson mest á óvart og sýndi hann ásamt Valdimar mjög góðan leik en aðrir léku miður. Stúdentar gerðu mikið af klaufavitleysum á þessum kafla og hvað eftir annað fór boltinn f gólfið fyrir misskilning leikmanna. Indriði átti sem fyrr mörg frábær smöss og einnig sýndi Halldór Jóns- son góðan leik fyrrihluta hrinunnar sem og reyndar allt liðið. 3. HRINA: Eftir þennan kipp sem Þróttarar tóku bjuggust menn nú við að þeir myndu veita ÍS harða keppni þvf nú var að duga eða drepast. Stúdentar mættu i þriðja skiptið til leiks án þess að gera breytingar á liðinu og ætluðu sér greinilega að tryggja sér sigur f leiknum. Það gerðu þeir lika því allt púður var nú úr Þrótturum og sættu þeir sig við ósigur i leiknum. Hinir reynslulitlu nýliðar hjá þeim þoldu ekki álagið og hinir reynslumeiri áttu lélegan dag. Úrslitin urðu þvf 1 5—6 fyrir ÍS. ÍS liöiS virkaði sterkt enda hafa þeir æft vel ! haust og liðið er að mestu skipað þeim sömu og i fyrra og hitteðfyrra svo samæfingin ætti að vera góð. Liðið er með gott „baggerslag" góða hávörn og upp- spilið hjá Halldóri og Helga var ágætt. Indriði er mjög góður „smass- ari" og hefur mikinn stökkkraft. Halldór stjórnaði liði sinu eins og hans var von og visa ágætlega. Hjá Þrótti er uppspilið aðal höfuð- verkurinn og vantar mikið til að það verði gott. Valdimar var sá eini, sem sýndi sitt rétta andlit, þvi Gunnar og Guðmundur Pálsson léku báðir mjög undir getu. Nýliðarnir eru flestir efni- legir og er þeir öðlast meiri keppnis- reynslu verða þeirgóðir. í gærkveldi léku Vfkingar og Þrótt- ur og verður nánar greint frá honum seinna. Á föstudaginn verður leik- urinn i kvennaflokki og hefst hann kl. 19:30 í íþróttahúsi Háskólans. Á laugardaginn verður úrslitaleikurinn i Reykjavikurmótinu milli Víkings og ÍS. Sá leikur fer einnig fram i íþróttahúsi Háskólans og hefst hann kl. 14:00. pól. — Axel Axelsson Framhald af bls. 17 Axelssonar vita, þá var frábær samvinna niilli hans og Björgvins Björgvinssonar í Framliðínu, og færði hún liðinu ótalin mörk. Við spurðum Axel hvort hann hefði nokkurn Björgvin hjá Danken- sen. — Nei, sagði Axel, — það er ekki til nema einn Björgvin Björgvinsson, og það kemst enginn meó tærnar þar sem hann hefur hælana. Björgvin ætti örugglega mikla möguleika í Þýzkalandi og gæti gengið beint inn í gott lið þar, ef hann hefði áhuga. Hjá Dankensen höfðum við reyndar einn góðan línumann, en sá er að ljúka lögfræðinámi og hefur því ekki getað verið eins mikið með og æskilegt hefði verið. Hann leikur ekki með okkur nema erfiðustu leikina. Björgvin Björgvinsson var vió- staddur þegar við ræddum við Axel, og var hann að því spurður, hvort hann hefði ekki áhuga á því að fara utan og reyna sig. Lét Björgvin lítið yfir þvi. — Eg held að ég eigi ekki við það a.m.k. ekki að svo stöddu, sagði hann. Annars sagði Axel áberandi, að þýzku liðin vantaði fleiri skyttur. Þannig væri t.d. hjá Dankensen, að það væru raunar ekki nema hann og tveir aðrir, sem gætu skotið langskotum. Ef eitthvað kænii fyrir þá gæti liðið orðið illa á vegi statt. Axel Axelsson sagði, að það væri stór verksmiðja, sem stæði að baki félaginu, og framleiddi hún ýmsar vörur, m.a. hina þekktu kaffipoka „Melitta". Starfar Axel hjá þessari verk- smiðju, og sagði hann starf sitt aðallega fólgið í þýzkunámi. Þegar hann væri búinn að ná góðu valdi á þýzkunni stæði sér til boða að fara I nám hjá fyrir- tækinu. Kynnast öllurn hliðum reksturs þess, og þá einkuni sölu- mennsku, inn- og útflutningi þess. Tekur slikt verzlunarnám um tvö og hálft ár. — Eg hef mikinn áhuga á því að fara í þetta nám, sagði Axel, en er þó ekki ráðinn í hvort af verður. Verði ég eins ánægður þarna og ég er núna, tel ég þó líklegt, að ég verði þarna áfram. Þegar Axel var að því spurður hvort urn hreina atvinnumennsku væri að ræða i þýzka handknatt- leiknum, sagði hann að svo væri alls ekki, og raunar tæpast hægt að tala um að leikntennirnir væru hálfatvinnumenn, hvað þá nteira, þegar á heildina væri litíð. Það kom hins vegar frani hjá Axel. að hann hefði það mjög gott hjá félaginu, og hefði t.d. fengið nýja og góða íbuð og nýjan bíl. Hann sagði að handknattleiksáhuginn væri gífurlega mikilll. Varla væri rætt urn annað á matstofum og veitingahúsum en íþróttir og vel- gengni Dankensen að undanförnu hefði lyft mjög undir áhuga og umræður. Gerðu flestir sér vonir um, að Dankensen yrði i úrslitum Þýzkalandskeppninnar i ár, en liðið á þó marga erfiða leiki eftir, m.a. við þau lið, sem margir telja sterkust: Wellinghofen og Gummersbach. — En handknatt- leiksáhuginn þarna er svo rnikill að auk unglingaflokka er leikið í einum sjö deildum, þar af er ein, sem skipuð er leikmönnum, sent við myndum kalla „Old boys". Þaó er ntjög algengt, að ntenn i þessum liðum séu kornnir vel á fimmtugsaldurinn, og t.d. er einn 52 ára í ,,01d boys" liði Danken- sen. — Það þarf ekki að óttast þarna að ungir menn hætti íþróttaiðkunum, vegna þess að þeir fari að byggja, eins og hér- lendis, sagði Axel. — Menn gleyma að hafa áhyggjur af sliku. unz þeir eru komnir á fimm- tugsaldurinn. eða vel það. Að lokum kvaðst Axel vilja þakka Morgunblaðinu verðlaun þau, er hann hlaut. og nota tæki- færið til þess að árna öðrum verð- launahöfum blaðsins til ham- ingju. •Mjl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.