Morgunblaðið - 19.11.1974, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.11.1974, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. NOVEMBER 1974 Magnús Torfi átti ekki að vera með í RÆÐU, sem Gylfi Þ. Gíslason, formaöur þingflokks Alþýöu- flokksins, hélt viö setningu flokksþingsins sl. föstudag, greindi hann frá þvi, að ekki heföi verið fyrirhugað, aö Samtök frjálslyndra og vinstri manna ættu aðild að þeirri vinstri stjórn, sem Ólafur Jóhannesson reyndi að mynda sl. sumar. En Samtökin tóku þátt i stjórnarmyndunarvið ræðunum ásamt framsóknar- Síldveiði Höfn, Hornafirði, 18. nóv. 1 GÆR fengu eftirtaldir bátar sfld: Vísir 21 tunnu, Jóhannes Gunnar 22 tunnur, Anna 85 tunn- ur og Sigurvon 81 tunnu. 1 dag fengu Vfsir 104 tunnur, Jóhannes Gunnar 60 til 70 tunnur, Anna 100 tunnur, Steinunn 70 tunnur og Akurey 89 tunnur. — Elfas. og flokknum, Alþýðuflokknum Alþýðubandalaginu. Orðrétt sagði Gylfi Þ. Gíslason um þetta atriði: „Rétt er að það komi Iika fram hér, að ekki er fyrirhugað, að Samtök frjáls- lyndra og vinstri manna ættu beina aðild að nýrri ríkisstjórn undir forsæti Öiafs Jóhannesson- ar, ef mynduð yrði. Ástæðan var sú, að Samtökin höfðu sundrast fyrir kosningar og hluti þeirra tekið saman við hópa úr Fram- sóknarflokknum, sem sagt höfðu skilið við hann og beitt sér mjög gegn honum i kosningunum. Þrátt fyrir samvinnu leifanna af Samtökunum og hreyfingarinnar, sem kenndi sig við Möðruvelli, galt þetta kosningabandalag mik- ið afhroð i kosningunum. A hinn bóginn var gert ráð fyrir, að þing- menn samtakanna hlytu að styðja rikisstjórn, sem Ólafur Jóhannes- son myndaði, ef tilraun hans tæk- ist.“ Tveir menn í gæzluvarðhaldi: Hafa játað að hafa stolið 7 hrossum TVEIR menn sitja nú f gæzlu- varðhaldi í Hafnarfirði vegna hrossaþjófnaða. Hafa þeir játað að hafa stolið 7 hrossum, en grun- ur leikur á, að þeir hafi jafnvel fleiri hrossaþjófnaði á samvizk- unni. Rannsóknarlögreglan f Hafnarfirði vinnur að rannsókn þessa máls, og hefur hún fengið vitneskju um hvarf 25—30 hrossa á Suð-Vesturlandi sl. 2 ár. Er nú f rannsókn hvort mennirnir eru valdir að hvarfi fleiri eða færri Jón Kristinsson skák- meistari Islands 1974 Vinningar í skyndihapp- drœtti Sjál/stœðisfíokksins SL. laugardagskvöld var dregið f skyndihappdrætti Sjálfstæðis- flokksins hjá borgarfógetanum f Reykjavík. Upp komu eftirtalin vinningsnúmer: 48007 Toyota Carina 1600 4368 Lynx útvarpstæki kassettu. 10398 Lynx kassettu, 10451 Lynx kassettu, 12700 Lynx kassettu 18249 Lynx kassettu, með útvarpstæki með útvarpstæki með útvarpstæki með útvarpstæki með 22772 Lynx kassettu, 31307 Lynx kassettu, 33264 Lynx kassettu, 45458 Lynx kassettu, 57381 Lynx kassettu. útvarpstæki með útvarpstæki með útvarpstæki með útvarpstæki með útvarpstæki með Eigendur ofantaldra vinn- ingsmiða framvfsi þeim í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins, Laufásvegi 46 Reykjavík. (Birt án ábyrgðar). JÓN Kristinsson varð skák- meistari Islands árið 1974 og er þetta annað sinn, sem Jón vinnur titilinn. Hann vann hann fyrst 1971. Jón þreytti einvígi við Ingvar Asmundsson um titilinn og skildu þeir jafnir, hlutu báðir tvo vinninga og vann Jón titilinn á hlutkesti. Á lslandsþinginu um sfðastliðna páska urðu Jón og Ingvar jafnir, báðir með 8,5 vinn- inga. Jón sagði i viðtali við Mbl. að þetta fjögurra skáka einvígi hefði verið nokkuð jafnt og teflt hefði verið af hörku. Allar skákirnar hefðu farið í bið. Hann kvað ein- vígið hafa tafizt og þar eð langt hafi verið um liðið frá því er það átti að fara fram, hafi áhugi á því dofnað. Því hafi verið ákveðið fyrirfram, að skákirnar yrðu að- eins fjórar og ef keppendur þá yrðu jafnir, réði hlutkesti. Venju- legast kvað Jón sex skákir i slíku einvígi. Ingvar Ásmundsson vann fyrstu skák einvígisins, önnur varð jafntefli, en hina þriðju vann Jón og fjórða skákin varð jafntefli. Þegar þannig var komið bauð skákstjórinn Hermann Ragnarsson keppendum að draga milli tveggja umslaga. í öðru stóð „Skákmeistari Islands 1974“, en hitt var tómt. Ingvar Ásmundsson dró tóma umslagið. Ingvar Ásmundsson tefldi sams konar einvígi í fyrra um islands- meistaratitilinn í skák við Ólaf Magnússon, sem vann það einvigi, fékk 4 vinninga, en Ingvar 2. Verðlaunaafhending fer fram 1. desember næstkomandi í sam- komusal Hreyfils við Grensásveg, en þá fer fram um leið loka- umferð i deildakeppni Skáksam- bands islands með öllum þátt- takendum. Karpov-Korchnoj-einvíglð: Urslitaskákin tefld í gær Eldri mjólk um helgar? MJÓLKURSAMSALAN hefur sótt um það til heilbrigðisyfir- valda í Reykjavík að fá að selja mjólk, sem pakkað er 1 pappa- hyrnur, einum degi síðar en reglugerð hefur kveðið á um hingað til. Leyfilegt hefur verið að selja mjólk tveimur dögum eftir pökkun rúmhelga daga og þremur dögum eftir pökkun eftir helgar. Sótt er um fjóra daga um heigar. Oddur Helgason, sölustjóri Mjólkursamsölunnar, sagði að vandamál hefðu orðið vegna laugardagslokunar i sumar og þyrfti því að fá þessari reglugerð breytt. Inn í kjarasamninga hafi verið sett það ákvæði að mjólkur- búóir yrðu lokaðar á laugardög- um og hefði þessi ákvörðun verið tekin án samráðs við borgar- læknisembættið. Mál þetta hefur enn ekki verið afgreitt endanlega. I GÆRKVÖLDI var tefld úrslita- skákin að margra dómi f einvfg- inu milli Karpovs og Korchnojs í Moskvu. Þegar til þessarar skákar kom hafði Karpov 3 vinninga, en Korchnoj 2. Hinn sfðarnefndi átti að hafa hvftt og var því sýnt að hann myndi tefla mjög stfft til vinnings, ef hann átti að eiga nokkra möguleika f rétt til áskor- unar á heimsmeistarann Robert Fischer. I sfðustu skák einvfgis- ins hefur því Karpov hvftt. Morgunblaðið leitaði f gær álits nokkurra íslenzkra skáksérfræð- inga á einvíginu, en taka ber fram, að rætt var við þá áður en úrslit voru kunn í skákinni, sem tefld var í gærkvöldi eins og raun- ar kemur fram í umsögn þeirra. Jón Kristinsson, sem nýlega er orðinn íslandsmeistari f skák sagði, að Karpov væri að visu með einn vinning yfir Korchnoj og ætti því Karpov mun meiri mögu- leika. Hins vegar sagði Jón: „Ég er ekki viss nema Korchnoj takist að jafna metin, þótt það hljóti óneitanlega að vera erfítt að vinna upp einn vinning i aðeins tveimur skákum, sem eftir eru.“ Jón sagðist hafa á hvorugum þessara keppenda mikla trú, er þeir mættu núverandi heims- meistara, ef Fischer væri jafn- sterkur og hann var í Reykjavík um árið. Friðrik Ölafsson stórmeistari sagði að hann hefði í upphafi búizt við því að Karpov ynni eða þá að viðureign þeirra lyktaði með jafntefli og síðari möguleik- inn væri nú ef til vill orðinn lik- legri sérstaklega eftir að Karpov Ógæftir Siglufirði, 18. nóvember ÓGÆFTIR voru hjá Siglufjarðar- bátum í síðustu viku. Aðeins tveir bátar fengu afla, Tjaldur 7,5 tonn og Sæunn 4 tonn. Þá skal þess getið, að 11 giftar konur vinna hér við beitningu, en áður hafði verið skýrt frá því, að einsdæmi væri, að konurynnu við beitingu í Bolungarvík. — Matthfas. fór að tapa og er hann greinilega orðinn þreyttur — sagði Friðrik. „Mér finnst ólíklegt," sagði Friðrik Ólafsson, „að Korchnoj vinni báðar skákirnar, en hugsan- lega gæti hann unnið aðra. Áreiðanlega verður Korchnoj harður á endasprettinum og því getur maður kannski gefið honum herzlumuninn í lokaátökunum." > Friðrik sagði að hann teldi að Karpov yrði harðari af sér en Korchnoj gegn Fischer — ef Karpov ynnist tími til góðs undir- búnings. Korchnoj kvað hann mistækari og ef til vill siður heppilegan sem keppinaut Fischers. Úthald Karpovs væri og vandamál. „Mér finnst ólíklegt að þessum mönnum tækist að sigra Fischer, ef hann er í svipuðu formi og hann var síðast. Menn reikna með því að Fischer sé það, þar eð hann virðist ekki þurfa að tefla til þess að halda sér í æfingu, skák er hans daglega líf. Guðmundur Sigurjónsson sagði f gær að hann gerði ráð fyrir því að Karpov ynni einvígið, þótt hagur Korchnojs hefði vissulega vænkað að undanförnu og ætti hann því möguleika. Hvor þeirra Rússanna, sem ynni einvígið, þá sagðist Guðmundur telja, að Fis» her ynni einvígi um heimsmeist- aratitilinn. Þó kvað hann Karpov áreiðanlega vera óþægilegri and- stæðing fyrir Fischer, þar sem hann þekkti Karpov lítið en gjör- þekkti aftur á móti Korchnoj. þessara hrossa, eða hvort hvarf þeirra eigi sér einhverja aðrar orsakir. Mennirnir tveir hafa verið úrskurðaðir f allt að 30 daga gæzluvarðhald á meðan rannsókn málsins stendur yfir. Annar þeirra er úr Reykjavfk, hinn af Kjalarnesi. Upp komst um mennina fyrir nokkru, þegar þeir komu til Hvammstanga og buðu sláturhús- inu þar 3 hesta til slátrunar. Þóttu ferðir þeirra dularfullar, og varð fátt um svör þegar óskað var eftir nánari upplýsingum um hestana. Við yfirheyrslur játuðu mennirnir, að hafa stolið hestun- um. Hafa þeir siðan verið í stöð- ugum yfirheyrslum hjá rannsókn- arlögreglunni í Hafnarfirði, og hafa þeir játað á sig þjófnaði á fjórum hestum til viðbótar. Tveimur þeirra voru þeir búnir að slátra. Gerðu þeir það sjálfir i Hafnarfirði. Hinir hestarnir tveir munu vera á lífi, en ekki geta þeir félagar bent á hvar þeir eru niðurkomnir nú. Hestarnir þrír, sem boðnir voru til sölu á Hvammstanga eru allir komnir i leitirnar. Olíuleki með skrúfuás ÞEGAR verið var að lesta frosinn fisk um borð f Brúarfoss, þar sem skipið var statt á Raufarhöfn í gær, kom skyndilega í ljós að olía lak um stefnisrör, þar sem skrúfuásinn liggur um og aftur úr skipinu. Leikur ásinn þar um og er lokaður af með pakkningum bæði að innan og utan. Er olíu dælt 1 rörið. Ytri pakkningin hefur bilað og kom það í ljós er kafari hafði farið niður og skoðað hvað lekan- um olli. Hefur vír farið í pakkn- inguna og skemmt hana. Sagði Viggó Maack skipaverkfræðingur Eimskips f gær, að vonandi væri ekki um alvarlega bilun að ræða og myndi skipið koma til Reykja- víkur þar sem reynt verður til að lagfæra bilunina. Brúarfoss er eitt frystiskipa Eimskipafélagsins og var að lesta frystan fisk til Bandarikjanna, svo og ost. Höfuðkúpubrot- inn eftir slys GANGBRAUTARSLYS varð á Hringbraut um klukkan 18 1 gær, gegnt Smáragötu. 76 ára gamall maður frá Stokkseyri var á leið yfir Hringbrautina að Umferðar- miðstöðinni, þar sem hann ætlaði að taka sér far með áætlunarbif- reið. Var hann rétt kominn út á gangbrautina þegar hann lenti fyrir bfl. Maðurinn var fluttur í slysa- deild Borgarspftalans, en sfðan 1 gjörgæzludeild. Er Mbl. spurðist þar fyrir ui hann f gærkvöldi leið honum ei ir aðstæðum og var með meðvitund. Hann var höfuð- kúpubrotinn, handlcggsbrotinn og fótbrotinn. Mótmælir ályktun Heimdallar Fjögur reykvfsk ungmenni efndu til hlutaveltu nýlega til styrktar Hjálparstofnun kirkjunnar. Söfnuðu þau samtals 7.259 krónum og var myndin tekin, þegar börnin afhentu fjárhæðina. A myndinni eru: Jórunn Halldórsdóttir, Guðmundfna Kolbeins- dóttir, Kristinn Hallbergsson og Guðmundur Hallbergsson. MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi athugasemd frá Lindu Rós Michalesdóitur, sem á sæti í stjórn Heimdallar: „Vegna ályktunar þeirrar, er birtist í Mbl. þann 15. þ.m. frá stjórn Heimdallar, vil ég taka eftirfarandi fram. Ég var ekki viðstödd fundinn, er tillaga þessi var borin undir atkvæði. Ég er í einu og öllu mótfallin þvf, að samið verði við V-Þjóð- verja á grundvelli tillagna þeirra, er komið hafa frá þeim. Ég lýsi mig því undanþegna allri ábyrgð á ályktanargerð þessari." Virðingarfyllst, Linda Rós Michaelsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.