Morgunblaðið - 19.11.1974, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 19.11.1974, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. NÖVEMBER 1974 37 J Evelyn Anthony: LAUNMORÐINGINN Jöhanna v Kristjönsdöttir þýddi , 52 og þrýsti handlegg Dallas. — Þú getur ekki trúað því, hvað mér þótti leiðinlegt að trufla ykkur Huntley. En ég átti engra kosta völ. Eg varð að gera það. Ég bið þig að reyna að trúa mér. — Það er ekki neitt. Dallas horfði á hana og tókst vel að leyna því að þessa afsökunarbeiðni tók hún ekki hátiðlega. Þaó er nú líklegt, hugsaði hún með sér. Þú þurftir bara að koma í veg fyrir að hann væri með mér, vegna þess að þú vilt hrifsa alla peningana hans. Og hvað ætli þér þyki það leiðinlegt... haha. — Ég trúi þvi sem þú segir, sagði Dallas. — En ég er í vanda stödd... hún hikaði og sagði til- gerðarlega. — Ég hélt kannski þú gætir hjálpað mér — væri þér sama Elizabeth þótt þú leyfðir mér að tala við þig um það sem angrar mig? — Auðvitað. Elizabeth fann mjög til með henni. Hún gat ekki skilið, hvernig stúlkan gat sætt sig vió taumlausa duttlunga frænda hennar og varð að sæta auðmýkingu og lítillækkun hvenær sem honum bauð svo við að horfa. — Þú mátt reiða þig á að ég skal gera allt sem í mínu valdi stendur til að hjálpa þér, sagði hún. — Eg þekki hann frænda minn, Dallas. Ef þú þarft á vini að halda máttu trúa því, að ég stend með þér. Fáein andartök var Dallas á báðum áttum. Hún fékk ekki bet- ur séð en Elizabeth væri einlægn- in sjálf. En það gat allt átt sér stað. Eddi King hafði sagt að hún væri andstæðingur og hann hlaut að vita það. — Heyrðu, sagði hún. — Mér finnst óþægilegt að tala hérna. Komdu niður að sundlauginni með mér. Þar getum við verið i ró og næði. Við getum fengið okkur sundsprett og ég segi þér hvað amar að. Viltu gera þaó fyrir mig, Elizabeth, að koma meó mér þangað þegar þú ert búin að drekka? — Ég er búin, sagði Elizabeth. — Og ég hefði ekkert á móti því að fara i laugina. Ég svaf ekki vel í nótt. Ég býst ekki við þú hafir sofið mikið heldur. Veslings Dall- as. En hafðu engar áhyggjur, vió skulum finna lausn á þessu sem hrjáir þig. — Ég kem aftur eftir fimm mín- útur, sagði Dallas. Hún ætlaði ekki að hætta á neitt. — Við skul- um verða samferða niður að laug- inni. Þetta var opin laug. Huntley vildi ekki sjá innanhússlaug og hafði leyst málið með því að láta hita vatnið í lauginni og umhverf- is hana var hár veggur. Hitakerfi sem var stjórnað frá sérstakri stöð sá um að þarna var alltaf hæfilega heitt, hvort sem var um sumar eða vetur. Og í rigningu mátti renna glerþaki yfir laugina. Þarna voru búningsherbergi, bar og útigrill og gufubaðstofa, sem hann hafði látið koma fyrir ný- lega. Elizabeth og Dallas gengu sam- an niður og þegar þær komu að lauginni var Dallas ekki enn búin að setja saman söguna, sem hún hafði sagt Elizabethu að hún þyrfi að segja henni. Hún ákvað að reynda að'draga þetta á langinn. — Við skulum fara ofan í fyrst, sagði hún. — Síðan gætum við fengið okkur heitt kaffi og romm eða eithvað og þá getum við talað saman í ró og friði. Ég ætla að biðja um að það verði komið með kaffi til okkar. Hún gekk inn á barinn og tók upp símann. — Tvo stóra bolla af kaffi, sagði hún. — Eftir svona tíu minútur. Og kökur með. Þökk fyrir. Hún kallaði til Elizabethar sem hafði teygt úr sér á dýnu vió laugina. — Ég ætla að fara i sundfötin vina. Kaf fið kemur bráðum. Elizabeth stóð á fætur og heyrði þá símann hringja. Það var hlið- vörðurinn. — Fyrirgefið að ég trufla ung- frú Cameron, en hér er maður, sem segist vera vinur yðar. Peter Mathews. Er í lagi að hann komi inn. Viljið þér gefa leyfi til þess? Elizabeth studdi sig eit andar- tak og greip andann á lofti. Og leitaði eftir einhverju til að styðja sig við. Því miður hér er hvert sæti skipað eins og þér sjáið. VELVAKAIMCJI Velvakandi svarar í slma 10-100 kl. 10.30 — 1 1.30, frá mánudegi til föstudags. % „Eiga börnin að fjarlægjast foreldrana og heimilin og flytjast í skólana?“ Þannig spyr “Húsmóðir f Vesturbænum“ og skrifar siðan: „Ég spyr svona, af því að ég sé tekið þannig til orða í fyrirsögn á frétt I. blaði í dag, að til þess að hægt sé að framkvæma grunn- skólafrumvarpið, sé það skilyrði, að nemendur fái mat í skólunum. í fréttinni er eftirfarandi haft eftir fræðslustjóra Reykjavíkur- borgar: „Það er eitt frumskilyrði þess, að hægt sé að halda uppi sam- felldri skóladvöl í samræmi við grunnskólafrumvarpið, að nem- endur fái næringu í mat, á meðan þau sitjayfir skólabókunum." Komist grunnskólafrumvarpið einhvern tíma óbreytt til fram- kvæmda, er greinilega gert ráð fyrir stórminnkandi uppeldis- áhrifum foreldra og heimila. Þessi mikilvægi þáttur I þjóðlíf- inu, uppeldi barna og tengsl við fullorðna, er lagður í auknum mæli á herðar kennara á vegum hins opinbera, ríkisvaldsins, og vixlverkandi uppeldisáhrif barna og unglinga hvert á annað hljóta að stóraukast. (Það þýðir, að freku börnin móta áhrifagjörnu börnin frá morgni til kvölds á mikilvægasta þroskaskeiði ævi- ferilsins). % Ctjöfnunarárátta eða jafn- aðarmennska? Ekki nóg með það, heldur skilst mér, að byggja eigi lestrar- stofur við skólana, þannig að heimanám sé óþarft. Þetta þýðir auðvitað I framkvæmd, að for- eldrar og börn hittast aðeins í bezta falli við morgunverðarborð og kvöldmatarborð. Eftir kvöld- mat þurfa unglingarnir svo að sjálfsögðu að hittast einhvers staðar úti. Það hefur ekki farið leynt, að ýmsir ungir kennarar, oft reynslulitlir, hafa smitazt af kenningum um það, að heimanám með aðstoð foreldra sé af hinu illa. Aðstaða á heimilum til hjálp- ar við kennslu sé svo misjöfn, að með heimanámi sé verið að ýta undir og viðhalda ójöfnuði í þjóð- félaginu, jafnvel að festa „stéttir" í sessi kynslóð eftir kynslóð. Jafnaðarmennskan eða út- jöfnunaráráttan er svo mikil hjá sumum, að betri námsárangur hjá sumum nemendum en öðrum er óhæfa, megi rekja hann að ein- hverju leyti til aðstoðar föður eða móður. Er nú ekki kominn tími til þess að staldra við og hugleiða málið, áður en lengra er haldið? % Rfkisuppeldi Til hvers getur of mikið ríkisuppeldi leitt? Til dæmis til þess, að hin mikilvægu tengsl for- eldra og barna, sem verið hafa óslitin frá upphafi mannkyns, fara að slitna og rofna með ófyrir- sjáanlegum afleiðingum, en næstum áreiðanlega skaðlegum. Að minnsta kosti er hér um svo mikið mál að ræða, að ekki má rasa að neinu, og sízt af öllu gera börnin okkar að eins konar til- raunadýrum í sambandi við ný- móðins kenningar, sem verið er að byrja að reyna að framkvæma á örfáum stöðum I heiminum með mjög umdeildum árangri. Keppi- keflið með framkvæmd þessara kenninga virðist vera það að gera börnin sem líkust hvert öðru, út- slétta mismun, svo að þau falli betur inn í kerfið, passi nákvæm- lega inn I ríkismaskínuna. Austur-þýzkur menntamálafröm- uður skrifar I grein, sem ég las í norskri þýðingu, að það sé mjög mikilvægt, að hið opinbera annist uppeldi og fræðslu barna frá upp- hafi. Þau verði betri og nýtari borgarar, samfélagskennd þeirra verði svo sterk þegar á unga aldri, að yfirgangssöm einstaklings- hyggja nái aldrei að festa rætur. Foreldrar séu mjög misjafnlega fallnir til uppeldisstarfs, og megi börnin ekki gjalda þess. Hitt sé miklu betra, að sérfræðingar f uppeldi mismunandi aldurs- flokka, sérmenntaðir kennarar, sálfræðingar og þjóðfélagsfræð- ingar sjái um börnin meginhluta sólarhringsins fram að þeim aldri, er þau fara út á vinnumarkað þjóðfélagsins. Þetta geri það líka að verkum, að foreldrarnir verði mun frjálsari og geti nýtt líf sitt miklu betur en ella væri kostur. Móðirin verði ekki lengur „bleiuþvottaambátt og eldhús- kerling", heldur geti hún unnið úti við, komið þjóðfélaginu að meira gagni, aflað meiri tekna handa sjálfri sér og þjóðarbúinu, öðlazt áður óþekkta ,,lífsfyllingu“ með ræktun andlegra áhugamála og hvers kyns hugðarefna. Hún verði loks frjáls kona, en ekki dæmd í lífstíðaránauð við barna- uppeldi og heimilisstörf, sem hún hljóti að hafa mismikinn áhuga á og getu til. Maðurinn gekk svo langt að lokum að fullyrða, að sálræn vandamál borgara, sem aldir væru upp undir ríkisum- sjón, væru miklu sjaldgæfari og auðlæknanlegri en hinna, sem aldir væru upp með „happa- og- glappa-aðferðinni“ heima hjá for- eldrum sínum. % Á að stjórna öllu frá ein- um stað? — Já, sjálfsagt er auðveld- ara að stjórna þjóðfélagi þar sem allir hugsa eins og vinna glaðir fyrir ríkið alla ævi. Ég tala nú ekki um þegar þeir verða orðnir lausir við alls konar pabba og mömmur og eiga sér aðeins einn alvisan ríkisföður uppi I stjórnar- ráði. Ég treysti mér ekki til að fara að halda fram neinum ákveðnum skoðunum um þetta, af þvf að til þess eru þessi mál alltof flókin, vandasöm og viðkvæm. En kannski vakna einhverjir mér vit- urri til umhugsunar um það, sem hér á að fara að gera við börnin okkar. Þó vil ég varpa fram einni hugsun rnihni: Hvernig fer ef skólayfirvöld á einhverjum tíma væru með fastákveðnar pólitískar skoðanir og hefðu nægan mann- afla í kennaraliði þjóðarinnar til þess að læða þeim leynt eða ljóst inn í börnin okkar? Eða bara, að nógu margir kennarar með áhuga gerðu það, þegar þeir hafa fengið þetta nýja og mikla vald yfir barnssálunum? Hvað má þá til varnar verða? Ætli heimilin verði þá ekki orðin máttlítil til mót- vægis þegar börnin verða þar aðeins til að sofa og borða tvær máltiðir? Húsmóðir 1 Vesturbænum." Eins og bréfritari tekur fram er hér um viðameira og vandasam- ara mál að ræða en svo að hægt sé að setja fram fastmótaðar kenn- ingar um það með tilliti til fram- tíðarskipunar. — En hvað viðkemur máltiðum skólabarna í skólanum sjálfum, þá virðist það vera alveg útilokað- ur möguleiki, sem siður var hér áður fyrr, sem sé, að krakkarnir hefðu með sér bita heiman að. I okkar ungdæmi var skylda að hafa með sér smurt brauð — mátti undir engum kringumstæð- um vera franskbrauð — og mjólk eða annan hollustuvökva. Nú virðist þetta vera aflagður siður, en hvers vegna? 0 Almennings- salerni of fá í borginni Kona hafði samband við okkur og vildi koma á framfæri þeirri skoðun sinni, að almenn- ingssalerni I borginni væru alltof fá. T.d. sagðist hún undrast það mjög hvers vegna þetta þarfaþing væri ekki haft á Hlemmi, þar sem umferð fólks væri stanzlaus svo að segja allan sólarhringinn. Síðan sagði hún: „Nýlega var ég að bíða eftir strætisvagni á Hlemmi, og var ég í fylgd með útlendingi. Þá sáum við mann, sem að vísu var eitthvað undir áhrifum áfengis. Hann lét sig hafa það að athafna sig uppi við vegginn á biðskýlinu. Þarna var fjöldi fólks, sem horfði á þetta leiðindaatvik. Það má sjálfsagt virða þessum manni það til vorkunnar, að á þessum slóðum er ekkert almenningssalerni, — það nálægasta er niðri í Bankastræti. Það er ekki hægt að ætlast til þess að fólk fari alla leið niður i Bankastræti. Mér finnst þetta mesta ómenning, og lágmarks- krafa hlýtur að vera að almenn- ingssalerni séu á fjölförnum stöðum, eins og t.d. Hlemmi." Borg hlaut verðlaunin 18 ARA tennisleikmaður, Björn Borg, hlaut gullverðlaun þau sem Sænska dagblaðið veitir árlega þeim er það tilnefnir „Iþrótta- mann ársins“ 1 Sviþjóð, en verð- laun þessi þykja mjög eftir- sóknarverð 1 Sviþjóð og helzti heiður sem iþróttamönnum þar- lendis getur hlotnazt. Tilnefningunni er þannig háttað, aó fyrri verðlaunahafar og blaðamenn blaðsins kjósa þann er verðlaunin skal hljóta eftir sér- staka tilnefningu ákveðins hóps sem til greina kemur við verð- launaveitinguna. Að þessu sinni var kosið á milli Björns Borg, Tomasar Magnusson (skiða- manns), Ulriku Knape (dýfinga- konu), Rolf Elding (knattspyrnu- manns), Ingemars Stenmarks og Andersar Gærderud (frjáls- iþróttamanns). STIGAHLÍÐ 45-47 SÍMI 35645 folaldabuff folaldagúllas folaldahakk folaldakarbonade folaldabjúgu saltað folaldakjöt reykt folaldakjöt Úrvals kjötvörur a/veg eins og þér vi/jid hafa þær. VANDERVELL Vé/afegur BENSÍNVÉLAR Austin Bedford Vauxhall Volvo Volga Moskvitch Ford Cortina Ford Zephyr Ford Transit Ford Taunus 1 2M, 1 7M, 20M Renault, flestar gerðir. Rover Singer Hilman Simca Skoda, flestar gerðir. Willys Dodge Chevrolet DIESELVÉLAR Austin Gipsy Bedford 4—6 cyl. Leyland 400, 600, 680. Land Rover Volvo Perkins 3, 4, 6 cyl. Trader 4, 6 cyl. Ford D. 800 K. 300 Benz, flestar gerðir Scania Vabis Þ. Jönsson & co. Skeifan 17 — Sími 84515—16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.