Morgunblaðið - 19.11.1974, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLÁÐÍÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19, NÓVEMBER 1974
Israelski herinn verður
áfram í viðbragðsstöðu
Tel Aviv, 8. nóvember.
AP.NTB. Reuter.
SPENNAN á landamærum tsra-
els og Sýrlands minnkaði 1 dag en
mótmælaaðgerðir Araba á vestur-
bakka Jórdan færðust 1 aukana og
þrlr ísraelskir fallbyssubátar réð-
ust á palestfnskar flóttamanna-
búðir á strönd Líhanons vegna
meintrar tilraunar skæruliða til
þess að ráðast inn í Israel.
Eorseti ísraelska herráðsins,
Mordechai Gur hershöfðingi,
sagði að ísraelski herinn yrði
áfram f viðbragðsstöðu þar til
Sýrlendingar samþykktu að
lengja starfstfma friðargæzluliðs
Sameinuðu þjóðanna í Golanhæð-
um þar sem við lá að strfð brytist
út um helgina.
Starfstími gæzlusveitanna
rennur út um mánaðamótin og
Gur varaði við þvi að nóvember
yrði órólegur mánuður i Miðaust-
urlöndum. Seinna var haft eftir
góðum heimildum í Kaíró að Sýr-
lendingar mundu vera reiðubúnir
að fallast á lengingu starfstíma
gæzlusveitanna.
Að sögn israelsku herstjórnar-
innar var skotmark fallbyssubát-
anna bækistöð skæruliða skammt
frá Rashidiye-flóttamannabúð-
unum og hún segir að árásin hafi
borið góðan árangur og neitar því
að bátarnir hafi orðið að hörfa
fyrir stórskotahríð Líbanons-
manna.
Herstjórnin sagði að tveir
hryðjuverkamenn frá búðunum
hefðu synt til strandar ísraels í
gær og haft með sér vopn, hand-
sprengjur og sprengiefni á
prömmum. Þeir hafi ætlað að ráð-
ast á „fjölmenna staði" í stórum
bæjum, en israelskir hermenn
hafi handsamað þá á ströndinni
og fellt annan þeirra en tekið
hinn til fanga.
Á vesturbakkanum breiddust
út mótmælaaðgerðir og óeirðir,
sem hafa geisað í tvo daga, til
Betlehem og fleiri bæja í dag.
Rúmlega 200 arabískir nemendur
og flóttamenn í úthverfi Jerúsal-
em hrópuðu slagorð gegn Israel
og grýttu bíla þar til lögreglan
rak þá burt.
Jafnframt hefur sovézka frétta-
stofan Tass tilkynnt að beitiskip,
tundurspillir og kafbátur komi í
heimsókn til sýrlenzka hafnar-
bæjarins Latakia 20. nóvember.
Yfirmaður Svartahafsflota Rússa,
Nikolai Khvorin aðmíráll, verður
yfir flotadeildinni og heimsóknin
er talin opinber staðfesting á
stuðningi Rússa við Sýrlendinga.
Áður hafði Yitszhak Rabin, for-
sætisráðherra Israels, staðhæft að
sovézk herskip væru í Latakia og
varað Sýrlendinga við einhliða
aukningu vígbúnaðar í framhaldi
af miklum vopnasendingum frá
Sovétrikjunum. Ummæli hans
voru túlkuð þannig í Moskvu að
hann vildi reyna að réttlæta árás
á Sýrland.
Israelsmenn fyrirskipuðu tak-
markað herútboð en sögðu að það
væri aðeins varúðarráðstöfun.
Gripið var til viðbúnaðarins
vegna fregna um að sýrlenzka
hernum hefði verið skipað að
vera í viðbragðsstöðu og vera við-
búinn hugsanlegu stríði, sam-
kvæmt heimildum í ísraelska
hernum.
Sýrlendingar svöruðu með
ásökunum um að ísraelsmenn
væru að búa sig undir styrjöld og
sögðu að öllum árásum yrði
hrundið.
Spennan minnkaði þegar
stjórnir Bandaríkjanna og Sovét-
ríkjanna sendu stjórnum Egypta-
lands og Sýrlands orðsendingar
eftir ákafar tilraunir diplomata
og ráðherra til þess að varðveita
friðinn.
Stríðsóttinn komst fyrst á alvar-
legt stig á föstudagskvöld þegar
Henry Kissinger utanríkisráð-
herra lét í ljós ugg um að ekki
reyndisl unnt að hafa stjórn á
ástandinu vegna ögrana, víg-
búnaðar og landamæraátaka.
Einum sólarhring síðar til-
kynnti Shimon Peres landvarnar-
ráðherra að takmarkað herútboð
hefði verið fyrirskipað vegna vafa
sem léki á fyrirætlunum Sýrlend-
inga, en þá hafði hafði dregið úr
spennunni.
Lax í Thames
LAX HEFUR veiðzt í Thames í
fyrsta skipti í 141 ár.
Starfsmenn orkuvers veiddu
laxinn um 40 km fyrir neðan
London Bridge. Hann vó rúm
átta pund.
Milljónum punda hefur verið
varið til þess að hreinsa
Thames i tvo áratugi og
mengunarsérfræðingar telja
veiði laxins sýna að þessum
upphæðum hafi ekki verið eytt
tileinskis. 1
Þeir taka ekki mark á stað-
hæfingu manns frá Tilbury,
Lou Yallop, sem segir að laxinn
sem veiddist sé lax sem hann
fleygði í ána til þess að striða
laxveiðimönnum.
Yallop kveðst hafa fleygt lax-
inum þar sem hann hafi verið
úldinn eftir eins árs geymslu í
frystikistu.
Fisksérfræðingur náttúru-
minjasafnsins segir að laxinn
sem veiddist hafi aldrei verið í
frysti. Hins vegar er ekki hægt
að fullyrða hvað hann hefur
lengi verið dauður.
Lík Evu
komið úr
Peron er
útlegðinni
Buenos Aires,
17. nóvember. Reuter.
SMURT lík Evu Peron, eftirlætis
argentínskra verkamanna, er
komið aftur til Argentinu, tæþum
12 árum eftir að hermenn sem
steyptu manni hennar, Juan
Peron, smygluðu því úr landi.
Líkið var flutt frá Madrid, þar
sem það hefur legið í þrjú ár, með
Sjávarútvegur Breta
biður uin 10 millj. pund
FORYSTUMENN sjávarútvegs-
ins f Bretlandi hafa beðið rfkis-
stjórnina um 10—20 milljón
punda styrk á ári til þess að af-
stýra því að margir sjómenn verði
gjaldþrota.
Austen Laing, framkvæmda-
stjóri sambands togaraeigenda,
sagði að erfiðleikar sjávarútvegs-
ins ættu rætur í hækkun olfu-
verðsins í heiminum og mánaðar-
legum lækkunum á fiskverði
sfðan f apríl.
Hann sagði að ef engin aðstoð
yrði veitt mundu togaraeigendur
tapa 10.000 pundum á hvern
togara í rekstrarútgjöldum tii 30.
september 1975. Ef einnig væri
reiknað með afskriftum mundi
hallinn aukast í 45.000 pund.
Laing sagði að fiskverð mundi
stórhækka ef engin aðstoð yrðí
veitt. Aukinn innflutningur
mundi að visu vega upp á móti
Framhald á bls. 39
leiguþotu af gerðinni Boeing 707.
Forseti Argentínu, Maria
Estela Peron, seinni kona Perons,
tók á móti líkinu. Aður hafði hún
kallað Evu „andlegan leiðtoga
argentínsku þjóðarinnar".
Kistan með líki Evu Peron var
flutt frá flugvellinum til forseta-
hallarinnar þar sem það mun
hvilá á viðhafnarbörum 'við hlið
lik Juan Peron sem lézt 1. júli.
Örfáum mínútum áður en lík
Evu Peron kom til Buenos Aires
fannst líkkista með líki Pedro
Aramburu fyrrverandi forseta —
þess manns sem bar ábyrgðina á
því að lík Evu var smyglað úr
landi.
Líki Aramburus var stolið úr
kirkjugarði í Buenos Aires 15.
október. Likræningjarnir voru
félagar í borgarskæruliðahreyf-
ingunni Montoneros.
Montoneros höfðu tilkynnt að
þeir mundu skila líki Aramburus
þegar jarðneskar leifar Evu væru
aftur komnar
grund.
á argentínska
Hermenn umkringdu flugvöll-
inn áður en vélin með kistu Evu
Peron lenti. Strangar öryggis-
ráðstafanir voru einnig gerðar á
leiðinni frá flugvellinum.
Þúsundir manna söfnuðust saman
meðfram Ieiðinni sem ekið var
um.
Líki Evu Peron var smyglað frá
Argentinu skömmu eftir fall
Perons 1955 og grafið á laun i
Mílanó á italíu. Aðeins örfáir her-
foringjar vissu hvar likið var
grafið og Aramburu var bráða-
birgðaforseti þegar því var
smyglað úr landi.
Jarðneskar leifar Evu voru
sendar Peron hershöfðingja þar
sem hann dvaldist í útlegð í
Madrid síðla árs 1971 að skipan
Alejandro Lanusse forseta sem þá
hafði hafið samninga við hinn
aldna leiðtoga.
Melina Mercuri og
Mikis Theodorakis
féllu
Aþenu, 18. nóvember
AP — Reuter.
GRÍSKA leikkonan Melina
Mercuri og tónskáldið Mike
Theodorakis féllu bæði í kosn-
ingunum í Grikklandi á sunnu-
dag. Þau voru í framboði í
Pirreus, Mercuri fyrir Sam-
grísku sósíalistasamtökin, flokk
Andreas Papandreous og
Theodorakis fyrir flokk Sam-
einaðra vinstrimanna, sem
stofnaður var út úr griska
kommúnistaflokknum. Sá
flokkur fékk aðeins 9,20%
greiddra atkvæða og 10 menn
kjörna, en flokkur Mercuri,
13,64% og 12 menn kjörna.
Melina Mercuri var svipt ríkis-
borgararétti sínum er herfbr-
ingjarnir komu til valda og var
hún ákafur gagnrýnandí her-
foringjastjórnarinnar allan
tímann, sem hún var í útlegð.
Melina Mereuri
EBE vill skýrslu Norð-
manna um landhelgismálið
Brussel, 18. nóvember
NTB.
FRAMKVÆMDARÁÐ
Efnahagsbandalags Evr-
ópu hefur sent norsku
ríkisstjórninni spurninga-
lista varðandi áætlun
Norðmanna um aó friða
viss hafsvæði undan N-
Noregi fyrir togveiðum og
Jafntefli
Moskvu, 18. nóv. Reuter.
KORCHNOI og Karpov gerðu
jafntefli eftir29 leiki f23. skák
sinni f einvíginu um réttinn til að
skora á Bobby Fischer ög verður
Korchnoi nú að sigra f 24. skák-
inni ef hann á að hafa nokkra von
um að fá að skora á Bobby Fisch-
er og verður Korchnoi nú að sigra
f 24. skákinni ef hann á að hafa
nokkra von um að fá að skora á
Fischer. Karpov hefur 3 vinninga
en Korchnoi 2 en nái Korchnoi
einum vinningi í viðbót verður
varpað hlutkesti um hvor fær
áskorunarréttinn.
útfærslu fiskveiðilögsög-
unnar. Eru spurningarnar
30 talsins, að því er heim-
ildir innan norsku sendi-
nefndarinnar í Bríissel
herma.
Ráðið og EBE-löndin líta þessar
áætlanir Norðmanna mjög óhýru
auga og kemur það glöggt fram í
spurningunum aö sögn þeirra,
sem þær hafa séð. Viss skilningur
er þó sagður ríkja á nauðsyn
verndunarráðstafananna, en ef-
ast um að bannsvæði fyrir tog-
veiðum sé rétta lausnin. Beðið
verður svars norsku stjórnarinn-
ar áöur en endanleg afstaða verð-
ur tekin og þá jafnframt hvort
gripið verður til einhverra að-
gerða gegn Norðmönnum.
Jens Evensen ráðuneytisstjóri
og helzti samningamaður Norð-
manna i fiskveiðilögsögumálum
kom ásamt fylgdarmönnum til
Varsjá í dag til að skýra pólskum
yfirvöldum frá hinum fyrirhug-
uðu bannsvæðum. A morgun fara
þeir sömu erinda til A-Þýzka-
lands. Síðar í vikunni fer Evensen
svo til V-Þýzkalands og Bretlands.
Reglugerðin um bannsvæðin á að
taka gildi 1. janúar nk.
Ný stjórn í
Tyrklandi
Ankara, 18. nóv. Reuter.
SEXTÍU daga stjórnarkreppu f
Tyrklandi er lokið með myndun
rfkisstjórnar óháðra þingmanna
og embættismanna undir forsæti
Sadi Irniak öldungadeildar-
manns.
Irmak var falin stjórnarmynd-
un á miðvikudag í sfðustu viku
þegar tilraunir foringja stjórn-
málaflokkanna til þess að mynda
nýja rfkisstjórn höfðu farið út
um þúfur.
Aðeins fimm ráðherrar af 22
eru flokksbundnir stjórnmáia-
menn. Ilinir eru óháðir öldunga-
deildarmenn og emba-ttismenn,
þar á meðal átta prófessorar.
Utanríkisráðherra er Melih
Esenbel, sendiherra í
YVashington.