Morgunblaðið - 19.11.1974, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.11.1974, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1974 — Rætt við Jón Zoéga Opnar umrœður oglýð- rœðisleg vinnubrögð blómlegu flokksstarfi eins og skipulagi flokksins var áður háttað. Margir bæjarhlutar i Reykjavík eru nú talsvert stærri en stærstu sveitarfélög landsins utan Reykjavíkur og má i því sambandi sérstaklega nefna Breiðholtshverfið. Það var óhjákvæmilegt að efla starfsemi flokksins í ein- stökum hverfum borgarinnar. Flestum var orðið Ijóst að erfitt var að halda uppi almennri félagsstarfsemi á svo stóru svæði sem Reykjavíkurborg spannar nú yfir. Ég hygg, að flestir séu einnig sammála um það, að þessi breyting hafi náð tilgangi sínum og orðið til þess að efla til muna starfsemi Sjáif- stáfeðisflokksins. — En er þetta ekki alltof flókið kerfi? Jón Zoéga, lögfræðingur Fyrir skömmu urðu starfs- mannaskipti hjá fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna I Reykja- vfk. Jón Zoéga, lögfræðingur, sem verið hefur framkvæmda- stjóri fulltrúaráðsins nokkur undanfarin ár lét af því starfi en við tók Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson. Jón Zoéga tók við framkvæmdastjórnastarfi full- trúaráðsins vorið 1971. Hann hafði þá um áraraðir starfað 1 þeirri stóru sveit, sem vinnur að kosningaundirbúningi fyrir Sjálfstæðisflokkinn ( Reykja- vfk. A sl. vori vann Sjálfstæðis- flokkurinn glæsilega sigra bæði 1 borgarstjórnakosningun- um og slðar í alþingiskosning- unum. En undirbúningsstarfið mæddi eins og einatt áður á fulltrúaráðinu og starfsfólki þess. Mbl. hefur átt viðtal við Jón Zoéga og fer það hér á eftir. — Hvaða verkefni hefur full- trúaráð sjálfstæðisfélaganna hér I Reykjavík helzt haft með höndum meðan þú gegndir þar framkvæmdastjórastarfi? — Megináherzlan, segir Jón, hefur á þessu tímabili verið lögð á skipulagsbreytingar á sjálfstæðisfélögunum og starfi þeirra hér í Reykjavík. Öhætt er að segja, að flokksstarfið hér í Reykjavík hafi tekið miklum breytingum í samræmi við vöxt borgarinnar. Þegar ég tók við störfum hjá fulltrúaráðinu hafði ég um nokkurt skeið átt sæti I stjórn hverfasamtaka og mér var Ijóst, að reynslan af starfi þeirra hafði gefið góða raun. Ég ásetti mér þvi þegar ég tók við þessu starfi, ef ég fengi þar einhverju áorkað, að vinna að þvi að hverfafélögun- um yrði sniðinn ákveðinn stakkur I fiokksskipulaginu, þannig að þau gætu orðið lif- andi einingar í starfi sjálf- stæðismanna hér í borginni. Ég lagði mikla áherzlu á að vinna að framgangi þessara skipulagsbreytinga, enda tel ég, að þær hafí haft mikla þýðingu fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Allar slíkar breytingar kosta mikla undirbúningsvinnu og hún var vel af hendi leyst og þar lögðu margir góðir sjálfstæðismenn hönd á plóginn. — En í hverju er þessi breyt- ing helzt fólgin? — Þessi breyting er I því fólgin, að samtökum sjálf- stæðismanna í einstökum hverfum borgarinnar var breytt í flokksfélög. Þessi félög hafa full réttindi eins og hver önnur sjálfstæð félög innan flokksins. Með þessu var einnig gerð veruleg breyting á skipu- lagi og hlutverki Landsmála- félagsins Varðar. Vörður er nú samnefnari allra þessara hverfafélaga, eins konar sam- tök hverfafélaganna og hvert þeirra tilnefnir fulltrúa í stjórn Varðar, auk þeirra manna, sem kjörnir eru á aðalfundi félags- ins. Hin almennu flokksfélög í Reykjavík eru þvi orðin 12. — Var nauðsynlegt að gera þessar breytingar og fjölga svo verulega flokksfélögunum i borginni? — Já, ég held að þetta hafi verið nauðsynleg breyting og raunar öhjákvæmileg. Reykja- víkurborg hefur vaxið svo ört á undanförnum árum og nær nú yfir svo stórt svæði, að erfið- leikum var háð að halda uppi — Kerfið er í sjálfu sér ekk- ert flóknara heldur en áður var. En vitaskuld er það miklu umfangsmeira eftir að ellefu ný félög hafa bætzt við innan Reykjavíkursvæðisins. Flokks- starfið verður umfangsmeira en ekki flóknara og það er einn- ig rétt að leggja á það áherzlu, að með tilkomu hverfafélag- anna hafa komió nýir menn til forystustarfa og með þessu móti hefur þvi verulega verið unnið að valddreifingu innan flokksins. Þá er einnig rétt að leggja á það áherzlu, að starfsvettvang- ur Varðar og fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna er glöggt að- greindur, þannig að engin hætta er á, að árekstrar verði þar á milli. Starfsemi Varðar miðast að mestu leyti við al- menna félagsmálastarfsemi. Fulltrúaráð sjálfstæðisfélag- anna sér á hinn bóginn um kosningaundirbúning og gegnir því sama hlutverki og kjör- dæmasamtök eða kjördæmaráð í öðrum kjördæmum landsins. — Hvernig hefur svo gengið að sameina krafta þessara mörgu eininga i kosningar- starfi? — Það er víst óhætt að segja, segir Jón, að reynslan í tveimur siðustu kosningum gaf mjög góða raun. Á sl. sumri unnum við stærstu sigra, sem Sjálf- stæðisflokkurinn hefur unnið í Reykjavík. Og ég verð að fá að skjóta því hér inn í, að sjálfur er ég ákaflega þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í þessum sigrum flokksins með þeim stóra hópi fólks, sem þar lagðí hönd á plóginn. Bæði í borgarstjórnar- kosningunum og alþingis- kosningunum sl. sumar kom í ljós, að hverfafélögin hafa orð- ið aflvaki í Sjálfstæðisflokkn- um. Þau stóðust sína eldraun i kosningabaráttu með mikilli prýði. Hverfafélögin eru hin nýja framvarðarsveit Sjálf- stæðisflokksins i Reykjavik. Ég hygg að velgengni flokks- ins megi einnig þakka þeim lýð- ræðislegu og opnu starfsaðferð- um og vinnubrögðum, sem við- höfð eru i starfi flokksins. Þar má nefna prófkjör og óbundnar kosningar helztu forystumanna og opnar umræður um þau mál, sem eru í deiglunni hverju sinni. Það hafa orðið miklar breyt- ingar á því tímabili, sem ég starfaði hjá flokknum á starfs- aðstöðu hans hér i Reykjavik. Við fluttum úr Valhöll, þar sem sjálfstæðisfélögin i Reykjavik höfðu áóur haft skrifstofur sín- ar I kjallarann i Galtafelli. Það þrengdi því óneitanlega að húsrýminu, en sjálfstæðismenn hafa þrátt fyrir það náð góðum árangri í starfi sínu. En nú stendur þetta allt til bóta með tilkomu hins nýja sjálfstæðis- húss. Það var ákveðinn söknuð- ur að því að missa Valhöll. Þangað höfðu þúsundir manna lagt leið sína í starfi fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. En nú bindum við miklar vonir við nýja húsið og vonum, að það verði upphaf nýrra átaka. Ég er ekki viss um, að sjálfstæðismenn geri sér al- mennt grein fyrir hversu um- fangsmikið hið daglega starf er á skrifstofum flokksins. En flokkurinn hefur átt góðu starfsfólki á að skipa og flestir hafa unnið þar við erfið skil- yrði miklu meira en unnt er að ætlast til í venjulegu starfi. Hörður Pálsson, Akranesi: Hugleiðing um áfengis- og unglingavandamál á Akranesi FYRIR röskum fjórum árum var sent bréf til bæjarstjórnar Akra- ness, þar sem beðið var um leyfi til að opna vínbar á hótelinu á staðnum. Leitað var álits áfengisvarna- nefndarinnar um umrædda beiðni, og var hún algerlega and- víg því, að barinn væri opnaður og færði rök fyrir afstöðu sinni. Á þau rök var ekki hlustað og bar- inn opnaður með pomp og prakt. Fyrst í stað bar ekki svo ýkja mikið á að drykkjuskapur ykist, en þegar frum i sótti, jókst drykkjuskapur stöóugt á barnum, og tiðari og tíðari voru gistingar í fangageymslunni. Ástandið versnaði stöðugt og endaði með því, að barnum var lokað, eftir að hann hafði verið opinn í tæp 3 ár. Kannski er það kaldhæðni ör- laganna, að fyrsta samþykkt ný- kjörinnar bæjarstjórnar nú i sum- ar var að leyfa opnun barsins að nýju. Ekki leið á löngu, þar til aftur fór að siga á ógæfuhliðina eins í fyrra sinnið. Ogþarkom, að voða- verk var framið skamml undan dyrum þessa húss, sem bæjar- stjón hefur í tvigang látið óátalið, að gert yrði að musteri Bakkusar og gróðaþræla hans. Þykir nú venjulegu fólki mælirinn fullur, enda löngu ljóst, að rök áfengis- varnanefndar gegn vínveitinga- húsi eru óræk. Þá má geta þess, að unglingar yngri er, 18 ára eiga nú ekki í neitt hús að venda til að skemmta sér, því að þeim á lögum samkvæmt að meina aðgang að vínveitingahúsum. Væri þarfara, að starfað yrði að því að breyta hótelinu í áfengislausan skemmti- stað, þar sem fólk á öllum aldri gæti komið saman til að gera sér dagamun. En kannski er þar til of mikils mælst. Það virðist svo, að fólki líðist að hundsa allar reglur, sem lögleg yfirvöld setja um meðferð áfengis. Mér kemur í því sam- bandi í hug atvik, sem nýlega gerðist hér I Borgarfirði: Sem kunnugt er tók nýr skólastjóri við stjórn Samvinnuskólans að Bif- röst nú í haust. Er þaé Haukur Ingibergsson, ungur maður og einarður, sem virðist sjá og skilja, hve hætta ungu fólki er búin af neyslu áfengis. Hann hefur bann- að alla áfengisneyslu í skóla sín um og varðar brottrekstri, ef út af er brugðið. — Um daginn komu nemendur úr Verslunarskólanum í Reykjavik i heimsókn í Bifröst. Samvinnuskólanemendur voru búnir að undirbúa móttökurnar. Settust gestirnir inn og drógu áfengi upp úr pússi sínum. Stóðu þá heimamenn á fætur og gengu á dyr. — Um kvöldið var fyrirhug- uð skemmtun með dansi. Þegar gestunum varð ljóst, að bannaó var að fara með áfengi inn á dans- leikinn, héldu þeir á fund skóla- stjóra og báðu hann leyfis að mega hafa þar vín um hönd. Skólastjori neitaði að brjóta þær reglur, sem hann hafði sjálfur sett. Héldu þá gestirnir, nemend- ar og kennari eða kennarar til bíla sinn og óku á brott hið bráðasta. Sýndu kennarar Versl unarskólans með þvi áþreifan- lega, hverjir það eru sem stjórna og eru fyrirmyndir i ýmsum skól- um nú á dögum. — En því hærra ber afstöðu Hauks Ingibergssonar og nemenda hans, og þykir Borg firðingum gott að vita af slíkum skólamanni i héraði sínu. Mættu allir þeir, sem einhver mannaforráð hafa, bæði hér á Akranesi og annars staðar, draga nokkra lærdóma af afstöðu hins unga skólastjóra. Yrðu þá fljót- lega færri vinveitingahús á land- inuennúeru. Hörður Pálsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.