Morgunblaðið - 05.01.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1975
3
Sjöundu hljómleik-
ar Sinfóníunnar
7. reglulegu tónleikar
Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands og jafnframt þeir
næstsíðustu á fyrra misseri
verða haldnir í Háskólabíói
fimmtudaginn 9. janúar og
hef jast kl. 20.30.
nr. 8 eftir Sjostakovitsj, sem flutt
verður í fyrsta sinn hérlendis.
Cristina Ortiz hóf píanóleik á
barnsaldri og hlaut fyrstu verð-
laun sin í pianókeppni i Rio de
Janeiro aðeins fimmtán ára
gömul. Meðal ótal annarra verð-
launa sem hún hefur síðar hlotið
má nefna Van Cliburn pianó-
keppnina árið 1969, þar sem
Cristina Ortiz fór með sigur af
hólmi. í kjölfar þess hefur hún
verið eftirsóttur einleikari í stór-
borgum Evrópu, Bandaríkjunum
og Suður-Ameríku.
Sjónvarpslaust
Leiðrétting
um orðið fyrir á þessu ári eru:
1. Verðhækkanir á oliu og
bensini.
Vetrarríki er mikið á Austurlandi og landið allt hvítt. En fagurt er í þessum
vetrarham, meðan bjart er í lofti milli hryðjanna og tunglskin, eins og þegar þessi
mynd var tekin á Egilsstöðum um áramótin. Ljósm. Friðþjófur.
PRENTVILLA varð í grein
Davíðs Schevings Thorsteins-
sonar, formanns Fél. isl. iðn-
rekenda, sem birtist í áramóta-
blaðíhu 31. des. undir fyrirsögn-
inni „Hvað segja þeir um ára-
mót“. Þar segir: „Helztu utanaó-
komandi breytingar, sem við höf-
2. Verðhækkanir á hráefnum
iðnaðarins.
3. Verðhækkanir á innfluttum
iðnaðarvörum.
4. Verðhækkanir á mörgum
helstu útflutningsvörum okkar“.
Prentvillan er í fjórða tölulið.
Þar á að standa verðlækkanir.
Cristina Ortiz
pfanóleikari
Stjórnandi verður VLADIMIR
ASHKENAZY og einleikari
CRISTINA ORTIZ, pianóleikari
frá Brasilíu, sem leikur í staðinn
fyrir André Previn, sem forfallað-
ist vegna veikinda.
Flutt verður: Forleikurinn að
óperunni Khovatchina eftir
Mussorgsky, Paganini rapsódfa
eftir Rachmaninoff og Sinfónía
Leiðrétting
Barnabókahöfundarnir Jenna
Jensdóttir og Hreiðar Stefánsson
kenna f Langholtsskóla — ekki
Vogaskóla, eins og sagt var f blað-
inu f gær.
á Eskifirði
SJÓNVARPSLAUST hef-
ur verið á Eskifirði öll jólin
og sagði Georg Halldórsson
á Eskifirði, sem hafði sam-
band við Mbl. í gær, að þar
væri blíðuveður og kvaðst
hann ekki trúa því, að ekki
væri unnt að gera við
Gagnheiðarstöðina, þótt
hún stæði hátt uppi í f jalli.
Georg kvað mikið rætt
um það manna á meðal á
Eskifirði, að menn þar
eystra tækju sig saman og
neituðu að greiða afnota-
gjöld sjónvarps. Kvað hann
fleiri Austfirðinga eflaust
myndu taka undir þau mót
mæli.
Þessi mynd var tekin rétt fyrir áramót af Botnsá f Hvalfirði. Segja má að
myndin sé táknræn fyrir veður undanfarið. — Ljósm.: H. Stefánsson.
Alfabrenna í Kópavogi
Litlu munaði að hlaupið
færi yfir Meðallandið
Hnausum, Meöallandi,
3. jan. —
TtÐ hefur verið hér heldur
risjótt og kom hér mjög mikill
snjór fyrir jól, en hann tók allan
upp f fyrrinótt, er gerói mikla
vestan hláku. Nú hefur aðeins
snjóað aftur. Okkur hér eystra
fannst heldur óhuggulegt, þegar
hlaupið kom úr Skaftá ofan f all-
an þennan snjó, en skemmdir
urðu furðu litlar. Helzt er að tjón
hafi orðið á girðingum, en litlu
munaði að flóðið færi ekki austur
úr miðri sveitinni. Munaði þar
ekki nema hálfu feti og stöðvaði
vegurinn vatnið af.
Ohemjumiklar jakahrannir eru
f árfarveginum eftir þetta hlaup.
Jólatrésskemmtanir hafa verið
hér á svæðinu milli sanda. Hér í
meðallandinu var ein slík haldin í
gær og önnur á Kirkjubæjar-
klaustri á milli jóla og nýárs. Eitt-
hvað af fólki kom úr Reykjavík og
svo hittist Á, að örninn, sem verið
hefur hér frá þvf veturinn 1967 til
’68, kom nú um jólin. Þetta sýnist
alltaf vera sami fuglinn.
— Vilhjálmur.
Tómstundaráð Kópavogskaup-
staðar hefur haft forgöngu um að
halda að þessu sinni álfabrennu f
Kópavogi, sunnudaginn 5. jan.
n.k. og er það nýlunda í bæjarlff-
inu.
Tómstundaráð hefur fengið í lið
með sér ýmis íþrótta- og æsku-
lýðsfélög, sem leggja munu fram
krafta sína til að gera atburð
þennan sem eftirminnilegastan.
Dagskráin hefst kl. 17.00 með
skrúðgöngu frá Vallargerðisvelli.
Hestamenn úr hestamanna-
félaginu Gusti munu fara fyrir
göngunni og verður gengið niður
á Smárahvammsvöll við Fífu-
hvammsveg, þar sem álfabrennan
fer fram.
Auk brennunnar sjálfrar verð-
ur sitthvað til skemmtunar.
Hornaflokkur Kópavogs leikur
álfalög. Félagar úr þjóðdansa-
félagi Reykjavíkur skemmta. Hin-
ir óviðjafnanlegu Halli og Laddi
koma fram. Jólasveinarnir Aska-
sleikir og Stekkjastaur verða
þarna á ferðinni og félagar úr
Gerplu annast álfadans og álfa-
leiki.
Mönnum er i fersku minni stór-
kostleg flugeldasýning á þjóð-
hátíðinni í sumar í Kópavogi í
umsjá hjálparsveitar skáta. Sömu
aðilar munu standa fyrir flug-
eldasýningu.
Almennur söngur verður undir
stjórn Egils Bjarnasonar, sem
jafnframt verður kynnir.
Þeir, sem að þessari álfabrennu
standa, vænta þess, að þessi þátt-
ur i bæjarlífinu vekji áhuga
ungra og gamalla og verði árviss
liður í framtíðinni.
Siglufjörður:
Félagsleg umsjá
1 stað brauðs
Siglufirði, 3. jan.
STALVlK landaði hér f dag þrem-
ur tonnum eftir þriggja daga
veiði, en báturinn var sex daga á
sjó. Bátar eru á sjó f dag eftir
nokkurra daga landlegu.
1 dag er hér gott veður. Flugvél
frá Vængjum sótti hingað tvo
sjúklinga f gær og gekk ferðin
ágætlega.
Nú hefur það gerzt, að rekstri
eina bakarfsins hér á Siglufirði
hefur verið hætt. Sambandið rak
bakarfið, en það var auglýst til
sölu nýlega, þar eð bakarinn tók
að starfa sem fþrótta- og æsku-
lýðsfulltrúi.
Siglfirðingar fá því brauð sitt
frá Akureyri, en þaðan eru ferðir
tvisvar f viku.
— Matthfas.
Hafði nær misst
af leiknum ytra
ÓVEÐRIÐ, sem gengið hefur yfir
landið undanfarna daga, hefur að
nokkru leyti lamað flug hér
innanlands og þeir eru margir,
sem hafa orðið að bfða lengi eftir
þvf að komast á áfangastað.
Einn þeirra er Ásgeir Sigur-
vinsson, hinn góðkunni knatt-
spyrnumaður frá Vestmannaeyj-
um, sem nú leikur með belgíska
liðinu Standard Liege. Hann
dvaldi heima í Eyjum yfir áramót-
in sér til hvíldar og hressingar en
til Belgíu átti hann að vera kom-
inn um þessa helgi, þvi í dag,
sunnudag, á lið hans að leika. En
Asgeir gat sig hvergi hreyft og
var heldur betur farinn að ókyrr-
ast. En í fyrrinótt gat vél frá
Vængjum brotizt til Eyja og
komst Ásgeir til Reykjavíkur og
tók svo áætlunarvél út i gærmorg-
un. Hann ætti því að geta leikið
með liði sínu í dag, en ekki mátti
það tæpara standa. í ferð sinni
hingað hefur Ásgeir verið minnt-
ur á það óþyrmilega, að hann er
frá landi óveðranna.
Haustsýningu
r
Asgrímssafns
að ljúka
I dag lýkur sýningu þeirri i
vatnslitamyndum sem opnuc
var í Ásgrímssafni á s.l. hausti
Safnið verður lokað um tím:
meðan komið er fyrir hinn:
árlegu skólasýningu þess.
Nokkrar vatnslitamyndannc
eru nú sýndar í fyrsta sinn.
Ásgrfmssafn, Bergstaða
stræti 74, er opið í dag frá kl
1,30—4.