Morgunblaðið - 05.01.1975, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANUAR 1975
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
TS 21190 21188
LOFTLEIÐIR
® 22*0-22-
RAUÐARÁRSTÍG 31
V_______________/
/£5bílaleigan felEYSIR CAR RENTAL -«.24460 Æ 28810 PIOMEEXÍ Útvarp og stereo kasettutæki
tel 14444 •25M5
IBÍLALEIGA car rental
BÍLALEIGA
Cár Rental
SENOUM
41660-42902
Einangrun
Góð plasteínangrun hefur hita-
leiðnisstaðal 0,028 til 0,030
kcai/mh. °C, sem er verulega
minni hitaleiðni, en flest önnur
einangrunarefni hafa, þar á
meðal glerull, auk þess sem plast
einangrun tekur nálega engan
raka eða vatn í sig. Vatnsdrægni
margra annarra einangrunarefna
gerir þau, ef svo ber undir að
mjög lélegri einangrun. Vér
hqfum fyrstir allra hér á landi,
framleiðslu á einangrun úr plasti
(polystyrene) og framleiðum
góða vöru með hagstæðu verði.
Reyplast hf.
Ármúla 44 — simi 30978.
Sr. BOLLI
GÚSTAFSSON
í Laufási:
Friður
ótt langt sé um liðið, þá
gleymi ég seint atviki, sem
gerðist á Ráðhússtorginu á
Akureyri snemma sumars við
styrjaldarlokin árið 1945. Á
torginu miðju stóðu þá nokkrar
hávaxnar bjarkir á hringl'aga
grasfleti innan vírnetsgirðing-
ar. Það gerðist skömmu eftir
hádegi og margt fólk saman
komið á torginu. Uppi í trján-
um hafði verið komið fyrir
trektlaga hátölurum, sem stóðu
út úr laufþykkninu eins og
básúnur. Allt í einu hrökk ég
við, þvf úr gjallarhornum þess-
um kvað við orð, sem hljómaði
um allan miðbæinn, og orðið
var endurtekið með innilegum
fagnaðarhreim: Friður! Friður!
— „Hver er þetta?“ spurði ég,
hnokki á stuttum buxum, aldur-
hniginn og lotinn verkamann,
sem stóð fyrir framan gömlu
verzlun Akureyri eða „Hótel-
systur“, eins og hún var oft
nefnd. Maðurinn brosti í gegn-
um tárin og sagði hægt: „Þetta
er forsetinn okkar, hann
Sveinn Björnsson. Nú ávarpar
hann alla þjóðina, því striðinu
er lokið.“ Enda þótt þetta gerð-
ist norðan við stríð, á þeim ár-
um, þegar mjólkinni var ekið
heim til fólks á hvítmáluðum
hestvagni með bláu kaupfélags-
merki, já, einmitt á vettvangi
skáldsögunnar „Norðan við
stríð“, þá lagði skugga þessa
harmleiks yfir norðlægar
byggðir. Vopnaðar sveitir setu-
liðsmanna höfðum við jafnan
fyrir augum, sandpokavirki og
ömurlegar braggaþyrpingar.
Sennilega höfum við börnin átt
erfiðast með að trúa friðarboð-
skapnum, vegna þess að frétt-
irnar um ógnir þessa voðalega
stríðs höfðu fylgt okkur allt frá
því við, sem fæddumst um miðj-
an fjórða áratuginn, fórum
fyrst að fylgjast með. Við þráð-
um að kynnast öðrum víðari og
bjartari heimi. Við ólumst upp í
þeirri trú, að Hitler og hirð
hans væru verri en myrkra-
höfðinginn og árar hans, og
óvinaþjóðirnar væru gerspiilt-
ar og ættu sér ekki viðreisnar
von. Já, við kynntumst snemma
því logandi hatri, sem jafnan
fylgir strlði. — En nú var mikil
stund upp runnin, og þótt loftið
væri þungbúið á Norðurlandi
þennan hátíðisdag, fór
fagnaðaralda um torgið, orð
forsetans, er bárust þangað
norður yfir f jöll á öldum ljós-
vakans komu eins og vekjandi
sólargeislar. Aldrei myndu
mennirnir endurtaka þessi
hræðilegu mistök; svo dýru
verði var friðarstundin keypt.
Hér eftir myndi engum nýjum
Hitler takast að blekkja sið-
menntaðar þjóðir. Það var
raunar ekki rétt að tala um
friðarstund, heldur upphaf
friðareilífðar á jörðu. Mann-
kynið myndi aldrei lifa aftur
stund milli stríða eins og þá,
sem skáldið Jón úr Vör kvað
um á stríðsárunum:
„Það ár, sem ég fæddist,
var friður saminn,
er fávísir menn settu grið.
En áfram var haldið og
barizt og barizt
og búið við vopnaðan
frið.
Og vestur á fjörðum
var friðnum slitið,
og fátækir daglaunamenn
börðust þar fyrir
betri heimi
— og berjast
þar sumir enn.
Mín ævi er aðeins
stund milli stríða.
— Nú stríða þeir enn.
Ég bíð
og trúi á heiminn
og fegurð og frelsi
og friðinn — og
þetta stríð.“
(Stund milli striða. Utg. 1942)
Við þurfum ekki að rekja sög-
una frá stríðslokum með
nákvæmni, til þess að komast
að raun um, hve oft heimsfriðn-
um hefur verið teflt á tæpasta
vað. Við áramót hefur ósjaldan
verið sagt: Það má undur heita,
ef sú ófriðarblika, sem hvílir
yfir þessu eða hinu svæði jarð-
ar, er ekki undanfari tor-
tímingarstrfðs, er ná mun til
alls heimsins. Heimsfrægir rit-
höfundar hafa lýst þeim
skelfingarógnum, sem því
myndu fylgja, biðinni uggvæn-
iegu, þegar dauðaskýið breidd-
ist hægt yfir jörðina. Og spá-
konur haf a nóg að gera að rýna
nætur og daga í glerkúlur, spil
og kaffikorg, því taugaveiklun
gerir menn hjátrúarfulla og
kvíðið mannkyn spyr: Hvað
gerist nú? Hvað gerist, ef nýtt
stríð hefst fyrir botni
Miðjarðarhafs? Og síðan er
spurt um kreppu og atvinnu-
leysi, þvf allir eru svo góðu van-
ir. Menn uggir, að daglauna-
menn þurfi aftur að berjast
blóðugum hnefum fyrir betri
heimi, eins og skáld Þorpsins
minnist frá kreppuárum vestur
á fjörðum. Þessar raddir ráð-
villtra manna eru svo háværar,
að þær yfirgnæfa hógværa
rödd, sem segir: „Frið læt ég
eftir hjá yður, minn frið gef ég
yður; ekki gef ég eins og heim-
urinn gefur.“
Sjálfbirgingar, sem segjast
setja manninn í öndvegi og full-
yrða, að heimurinn gefi allt,
sem máli skipti honum til lífs
og hagsældar, lýsa þetta kristna
friðarhjal blekkingu, ópíum
handa arðrændum mönnum og
aumingjum. — En hver er hann
þá þessi friður Jesú Krists?
Þeir segja hann verri en alla
dulspeki, sem sé fremur mein-
laus borin saman við þverlynda
ýtni kristninnar. 1 aldanna rás
hefur friður Krists birst vfðs-
vegar um jörðina. Birtu þess
friðar hefur stafað af ásjónum
þúsunda píslarvotta á ýmsum
tímum; hann hefur jafnvel sett
bjart mót sitt á samfélög innan
þykkra, saggaðra múra
fangelsa og birt kraftaverk
undursamlegs þolgæðis.
Rúmenski presturinn Richard
Wurmbrand segist aldrei geta
lýst fegurð hinnar ofsóttu
neðanjarðarkirkju í
kommúnistaríkjunum. Hann
segir m.a. um þá stofnun:
„Einatt eru kristnir menn tekn-
ir eftir leynilegar guðsþjónust-
ur og sendir í fangelsi. Þar bera
þeir hlekki með sömu gleði og
brúður ber dýrmætan gimstein
frá unnusta sínum. Vötnin eru
hljóð í fangelsinu... Sannglaða
kristna menn hefi ég hvergi
hitt nema í Bibliunni, neðan-
jarðarkirkjunni og f fangelsi."
(Neðanjarðarkirkjan,“ bls93).
Án friðar Jesú Krists nær
mannkynið aldrei þeim sáttum,
sem það þráir innst inni. Það er
gagnslaust að trúa á heiminn og
friðinn og frelsið, ef Kristur er
lokaður úti og hógvær rödd
hans borin ofurliði af háværu
glamri oflátunga, sem segja
manninn þess umkominn að
frelsa sjálfan sig. Erfitt er að
hlýða boði um barnslegt traust
og auðmýkt, fyrir hvern þann,
er reiðir þá vizku í þverpokum,
sem albúinn er að tefla fram
litríkum og safamiklum rökum
og fsmeygilegum afsökunum
gegn fórnarkröfu Jesú Krists.
Hégóminn er sterkt afl, sem
lætur ekkert okkar ósnortið og
hégómagirndin sviptir menn
friði. Minnumst þess við upp-
haf nýs árs, er við gjörum fram-
tíðaráætlanir, að þrátt fyrir all-
ar vangaveltur um stríð og frið,
um kreppu og hagsæld, að þá er
eitt nauðsynlegt til þess að við
getum fagnað friði, sem varir
að eilífu. 1, Samfélagi við Jesúm
Krist finnum við þann frið. Guð
blessi árið, sem gengið er f
garð, honum séu þakkir fyrir
handleiðslu og vernd á liðinni
tfð.
Islenzki vinsældalistinn
Nr. Heiti lags
1 (1) Killer Queen
2(3) A kránni
3 (5) Far Far Away
4 (4) Days of Joy
5 (8) Tell him
6 (2) Hey Mr. Christmas
7 (—) I can be with you
8 (7) Only You
9 (—) Reinforcements
10 (—) Hæ Gudda gættu þfn
Ný lög á lista:
111 need a woman
12 Lucy in the sky with diamonds
13 Lay down you sorrows
14 Sad sweet dreamer
Flytjandi vikur á lista stig
Queen 4 97
Mánar 2 89
Slade 6 77
ómar Óskarss. 2 53
Hello 3 50
Showaddy waddy 3 38
Change 1 34
Ríngo Starr 3 26
Sparks 1 25
B. G og Ingibjörg 1 24
Jóhann G. Jóhannsson
Elton John
Johnny Winter
Sweet Sensation
Dnidge
FRÁ BRIDGEFÉLAGINU ÁSARNIR í KÓPAVOGI.
16. desember sl. var sfðasta spilakvöldið á árinu 1974. Var spiluð
jólahraðsveitakeppni og sigraði sveit Rúnars Lárussonar. Um helgina fer
fram firmakeppni félagsins, sem jafnframt er einmenningsmeistara-
keppni. 13. janúar hefst svo sveitakeppnin að nýju.
00O00
Reykjavfkurmótið — sveitakeppnin hefst 14. janúar nk. og verður þá
spiluð fyrsta umferð. Enn er hægt að láta skrá sig f keppnina — eða til
10. janúar. Væntanlegir þátttakendur hafi samband við formenn Reykja-
vfkurfélaganna eða stjórn Bridgesambands Reykjavfkur.
A.G.R.