Morgunblaðið - 18.02.1975, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 18.02.1975, Qupperneq 1
38. tbl. 62. árg. ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRUAR 1975 PrentsmiSja Morgunblaðsins. Palme og Sorsa ræddu hlutleysi Nordfoto — símamynd FLUGVALLARFUNDUR Kalevi Sorsa, forsætisráðherra Finnlands, og Olof Palme, starfsbróóir hans frá Svíþjóó, ræða hlutleysisstefnu Svía á skyndifundi á Kastrup-flugvelli í gær. Annar ráðherrann var að koma frá Norðurlandaráðsþing- inu í Reykjavík, hinn á leiðinni á það. Kissinger lagði nýjar tillögur fyrir Gromyko Kaupmannahöfn 17. febrúar — NTB OLOF Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Kalevi Sorsa, for- sætisráðherra Finnlands, áttu með sér óvæntan fund á Kastrup- flugvelii f Kaupmannahöfn f dag, er sá fyrrnefndi var á ieið heim frá Norðurlandaráðsþinginu í Reykjavfk, en sá sfðarnefndi á leið á þingið. Ræddu þeir norræna samvinnu og hlutleysis- stefnu Svfa í utanrfkismálum, og undirrótin talin vera áhyggjur þær sem gætt hefur f Finnlandi og Sovétrfkjunum vegna vopna- sölu Svfa. Að þvf er næst verður komizt vildi Palme fullvissa hinn finnska starfsbróður sinn um að þessi stefna væri óbreytt. Gagnrýnin á stefnu Svía kom síðast fram f almennum umræð- um á Norðurlandaráðsþinginu um helgina er finnski jafnaðarmaður- inn Erkki Tuomioja réðst harka- lega á sænsk stjórnvöld fyrir að vera reiðubúinn til að selja fjór- um NATO-löndum — Belgiu, Danmörk, Hollandi og Noregi — herþotur og þar með taka á sig skuldbindingar á stríðstimum. Áður hafði blað jafnaðarmanna, Demari, lagt til að taka ætti Sovét- Vorster 1 friðarferð Höfðaborg 17. febr.—Reuter JOHN Vorster, forsætisráðherra Suður-Afríku, staðfesti f kvöld að hann fór til Lfberfu f fyrri viku til viðræðna við William Tolbert, forseta landsins, og er þetta talið mikilvægt skref í stefnu Suður- afríku til að koma á friði við afrfska blökkumenn. Ferðin til Líberfu er talin sérstaklega mikilvæg vegna þess að Líberfu- menn hafa verið einna harðastir f gagnrýni á aðskilnaðarstefnu Suður-Afrfkustjórnar f kynþátta- málum. ríkin inn í norrænt samstarf. Þessu var visað á bug af sænskri hálfu. í sænskum fjölmiðlum hafa ásakanir Finna vakið mikla at- hygli og þar hefur verið undir- strikað að hlutleysisstefnan eigi allt undir því að erlend ríki beri traust til hennar. Að afloknum hinum stutta fundi forsætisráð- herranna á Kastrup vildi Sorsa ekkert tjá sig um hann, en Palme sagði að gagnrýni Finna og Sovét- manna hefði ekki valdið sér áhyggjum. ,,Maður verður að geta vanizt svona hlutum," sagði hann. Enn loftárás- ir á Erítreu Addis Ababa 17. febrúar Reuter — NTB FLUGHER Eþíópíu hóf að nýju sprengjuárásir á skæruliðabúðir f Eritreu I dag og herstjórnin sendi enn frekari liðsauka til héraðs- ins. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum vörpuðu herþotur af bandarískri gerð sprengjum á bæ einn í tvo tíma samfleytt í dag aðeins 20 kílómetrum frá hafnar- borginni Massawa, þar sem sveit- ir frelsishreyfinganna stöðvuðu skipalest sem var með olíu- og bensínbirgðir fyrir höfuðborg héraðsins, Asmara, s.l. laugar- dag. Herstjórnin i Addis Ababa hefur hafið rannsókn á þvi hvort einhver fótur sé fyrir orðrómi um fjöldamorð er meir en 1000 skæruliðar og glæpamenn brutust út úr tveimur fangelsum í Eritreu s.l. föstudag. Heimildir innan hersins hafa skýrt frá því að meir en 1000 fallhlífahermenn hafi verið sendir á vettvang, og sam- kvæmt fregnunum eiga þessir hermenn að hafa drepið eða sært flesta flóttamennina. Genf, London 17. febrúar AP—Reuter HENRY Kissinger, utanrfkisráð- herra Bandaríkjanna, lagði fram nýjar, leynilegar tillögur um tak- mörkun kjarnorkuvopna og um viðskipti Sovétrfkjanna og Banda- rfkjanna f viðræðum sfnum við Andrei Gromyko, utanrfkisráð- herra Sovétrfkjanna, f dag. Eftir tveggja daga viðræður f Genf við Gromyko hélt Kissinger f kvöld til London til fundar við Harold Wilson, forsætisráðherra, og James Gallaghan, utanrfkisráð- herra, sem fyrr f dag undirrituðu samkomuiag f mörgum atriðum við Sovétstjórnina. (sjá frétt á bls.38). % Bandarfskir embættismenn sögðu f kvöld að Kissinger hefði farið f smáatriðum inn á leiðir til að koma endanlegu formi á kjarn- orkuvopnasáttmálann. Var frétta- mönnum tjáð, að hugsanlega yrði sáttmálinn, sem lögð voru drög að á Vladivostokfundi Fords og Brezhnevs og gilda f 10 ár, tilhúin til undirritunar þegar Brezhnev kemur á toppfund f Washington í júnf. 1 sáttmálanum yrði fast- bundinn ákveðinn fjöldi kjarn- orkuflauga. Ifins vegar kann ósamkomulag um viss atriði að seinka komu Brezhnevs til Wash- ington þar til f september. I lokayfirlýsingu að afloknum viðræðunum í Genf segja Gro- myko og Kissinger að þeir hafi skuldbundið sig ,,til að halda áfram áköfum tilraunum til að koma á viðunandi samkomulagi til langframa á þessu ári“. Báðir utanríkisráðherrarnir notuðu orð- ið ,,árangursríkur“ til að lýsa fundi þeirra í Genf. Skýrt var einnig frá því, að Kissinger hefði hafið máls á þvi 'við Gromyko hvort möguleiki væri á þvi að gera nýjan við- skiptasamning milli landanna í stað samkomulagsins frá 1972, sem Sovétmenn höfnuðu i síðasta mánuði. i lokayfirlýsingunni skuldbinda löndin tvö sig til að vinna áfram i anda ,,detente"-stefnunnar og friðar. Fjórða höfuðmálið í við- ræðunum var ástandið i Mið- austurlöndum, og í yfirlýsingunni segir að löndin tvö muni vinna saman að iausn deilnanna í þeirn heimshluta ,,þar sem tekið er tillit til hagsmuna allra þeirra sem búa á þessu svæði, þ.á m. palestinsku þjóðarinnar og réttur allra ríkja til sjálfstæðis virtur". Er mælt með því að friðarráðstefnan i Genf hefjist „bráðlega". Virðist þar með sem Sovétmenn hafi sleg- ið af kröfurn sínum um tafarlaus- ar viðræður i Genf og veitt Kiss- inger stuðning í persónulegunt til- raunum hans til að koma á sam- komulagi milli leiðtoga landanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Neitar Karpov að mæta í Manila? — Fjárhagskröggur FIDE ástœðan fyrir valinu? Amsterdam 17. feb. — AP % MANILA, höfuðborg Filips- eyja, var f dag útncfnd keppnis- staöur fyrir heimsmeistaraein- vfgið í skák milli Bobby Fischers og Sovétmannsins Anatoly Karpovs, en tilkynn- ingin varð ekki til að lægja óróaöldurnar f skákheiminum undanfarið, heldur þvert á móti til að ýfa þær enn. Ekki var varaforseti Alþjóða skák- sambandsins, FII)E, Kanada- maðurinn J.G. Prentice, fyrr búinn að skýra frá þvf á blaða- mannafundi f dag, að Manila, sem bauð fimm milljónir doll- ara f verðlaunafé, hefði orðið fyrir valinu, en sovézki skák- fulltrúinn mótmælti og kvað ákvörðunina óviðunandi af formlegum ástæðum. Það var Fischer sem óskaði eftir Manila sem keppnisstað. 0 Sovézki fulltrúinn, Nikolai Ryndin, benti á, að val Fischers á Manila hefði verið tilk.vnnt FIDE af Ed Edmondson hjá bandaríska skáksambandinu, en ekki Fischer sjálfum og undirskrift hans hefði vantað á skjalið, en slfkt væri algert skilyrði samkvæmt reglum FIDE. „I slfku tilviki," sagði Ryndin, „hefði áskorandinn átt að fá forgangsrétt, en hann sendi svar sitt f fuliu samræmi við reglur FIDE.“ Hann bætti þó við, að yfirlýsing sfn væri ekki opinber mótmæii, og sovézka skáksambandiö í Moskvu myndi taka ákvarðanir um frekari aðgerðir. Karpov hafði mælt með Mflanó á ttalfu, sem bauð 440,000 dollara f verð- laun. Framhald á bls. 38 Fischer — vildi Manila Karpov — kaus Mflanó

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.