Morgunblaðið - 18.02.1975, Síða 7

Morgunblaðið - 18.02.1975, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRUAR 1975 7 Liðsmenn úr stjórnar- her Kambódíu í bar- áttu við skæruliða. ATBURÐIR í Kambódíu hafa mótazt af brjálsemi stríðsins — eins og þegar kunningi yfirmanns hers- ins, Sosthene Fernandez hershöfðingja, spurði hann í móttökuveizlu nýlega hvað hann hygðist gera ef Bandaríkjaþing fram- kvæmdi áætlun sína um að minnka verulega aðstoð við Kambódiu, þá brosti hann aulalega, stikaði þvert yfir herbergið og rétti upp hendurnar eins og í uppgjöf og sagði: „Ég mun gera þetta." Var honum alvara? Enginn Þetta er vonlaust algerlega vonlaust” sem var i veizlunni taldi að svo væri. En á hinn bóginn gæti verulega minni aðstoð orðið hinni spilltu og áhrifa- litlu ríkisstjórn að falli. Enn- fremur hefur striðið gegn kambódískum skæruliðum undir forystu kommúnista, sem hefur staðið í nærri fimm ár, raskað mjög hegð- um manna svo að nú er aldrei hægt að sjá fyrir hver viðbrögð þeirra verða. Það sem snýr upp snýr stundum niður fyrir þeim. Óvinurinn er stundum gamall skólafélagi þeirra og oft á tíðum frændi þeirra. Fernandez var ef til vill aðeins með skrípalæti til að fela sannleikann. Kaldhæðni hjálpar manni við að sætta sig við hinar óeðlilegu aðstæður hér — þar sem rikisstjórnin keppist við að prenta seðla til að hafa undan verðbólgunni, sem er 300% á ári minnir Kína áður en kommúnistar tóku völdin; íbúar Kambódíu eru sjö milljónir, en stór skörð eru höggvin í þá tölu, þar sem a.m.k. 300 manns eru drepnir eða særðir á hverjum degi. í kjölfarið siglir ýmislegt einkennilegt og viðbjóðslegt, sorglegt og sársaukafullt eins og ég komst að raun um í þriggja vikna heimsókn ný- lega. Þegar Lon Nol marskálkur, forseti Phnom Penh ríkis- stórnarinnar, var 61 árs þann 13. nóvember birtu fréttastofur árnaðaróskir frá aðeins þrem þjóðhöfðingjum — Chiang Kai-shek forseta Formósu, Nguyen Van Thieu forseta Suður-Víetnam og Demetrio Lakas forseta Pan- ama. Háðskir stjórnarstarfs- menn hér veltu því hástöfum fyrir sér hvort þetta boðaði styrjöld eða skiptingu á landi hinna grunlausu Panama- búa. „Þetta er vonlaust, algjör- lega vonlaust," sagði hrein- skilinn bandarískur stjórnar- starfsmaður i hádegisverðar- boði nýlega. ,,Það eina sem I [ ^eUrJJorkShne^ eftir SYDNEY H. SCHANBERG þeir geta gert til að bjarga málunum er að taka alla starfsmenn hallarinnar og skjóta þá. Þeir þurfa að losna við þessa spilltu leiðtoga og reyna einhverja nýja menn, — alveg sama hverja. Senni- lega er þetta orðið of seint, en eina leiðin er að reyna það." Það eru betlarar alls staðar í Phnom Penh. Einn þeirra, sem er blindur, situr á hverjum degi á gangstéttinni fyrir utan La Taverne veit- ingahúsið, beint á móti póst- húsinu, og spilar á kambó- dískan sltar. Söngvar hans hafa breytzt með framþróun styrjaldarinnar eins og við- skiptavinirnir, þeir eru ekki lengur gamlir franskir ný- lendustarfsmenn heldur Bandarikjamenn. Nú hefur hann bærilegar tekjur af þvi að spila „In the Mood", „Beautiful Day" og „Alexand- ers Ragtime Band". Miðborg Phnom Penh er lifandi dæmi óhamingju. Lo Leand, 33 ára gamall kenn- ari, getur ekki séð fjölskyldu sinni farborða með launum sinum, sem eru 9 dollarar á mánuði svo hann ekur leigu- hjóli í frístundum sinum og vinnur sér inn 30 sent á dag þegar bezt lætur. Hann seg- ist alltaf vera svangur og að hann borði lotus-grænmeti, sem Kambódiumenn notuðu áður sem andafóður. „Ég á bágt, ég á bágt," endurtekur hann i sífellu. Um það bil 20 metra í burtu hanga tötraleg flótta- börn við matsölustað og tina upp kjúklingabein, sem við- skiptavinirnir henda frá sér og naga þau og sjúga þang- að til ekkert er eftir. Kambódíumenn eru stolt og sjálfstætt fólk og þótt stríðið hafi neitt marga þeirra til að þiggja ölmusu og jafn- vel til þess að betla þá sviður þá sárt. I þorpi eirru við vesturjaðar Phnom Penh var fimm manna fjölskylda að svelta i hel. Hvorki húsbóndinn, hús- freyjan eða nokkurt barn- anna gat fengið vinnu. I næsta húsi bjó ekkill, sem ræktaði svín og var vel stæð- ur. Hann fór að veita þvi athygli að maturinn, sem hann skildi eftir fyrir svínin var tekinn að hverfa. Honum varð Ijóst að hinir örvænting- arfullu nágrannar hans lædd- ust yfir á nóttunni og tóku svínamatinn til að halda í sér lífinu. Ekkillinn hafði mikla sam- úð með þeim en vildi ekki særa þau. Eftir að hafa hugs- að vandlega það sem hann hugðist segja hélt hann dag nokkurn þegar heimilisfaðir- inn var í burtu til húss þeirra og sagði við konuna, að allir i Kambódiu ættu erfitt þessa dagana en að hann væri svo heppinn að eiga afgang. Síð- an bað hann hana að vera svo góða að þiggja 10,000 ríala til að kaupa mat. Konan grét af skömm þeg- ar hún tók við peningunum. Síðan fór hún út og keypti hrísgrjón og fisk, en skömm- in var meiri en hún gat þol- að. Hún keypti líka eitur. Sama kvöld eitraði hún mat- inn og stytti þannig sjálfri sér og allri fjölskyldunni aldur. (Þýð. J.Þ.Þ.). Brotamálmur Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. staðgreiðsla. Nóatún 2 7 Sími 25891. Buxur Terylene dömubuxur úr góðu tery- lene. Einnig tækifærisbuxur. Fram- leiðsluverð. Saumastofan Barmahlíð 34, sími 14616. Rennilásar og hnappar í miklu úrvali. Haraldur Árnason Heildverzlun Sími 1 5583. Springdýnur Tökum að okkur að gera við springdýnur samdægurs. Sækjum og sendum ef óskað er. Opið til 7 alla daga. KM springdýnur, Helluhrauni 20, Hafnarfirði. Simi 53044. Milliveggjaplötur vorar eru nú aftur fyrirliggjandi. Athugið að nákvæmni i stærð og þykkt sþarar pússningu. Steypistöðin hf., simi 33603. Tilboð óskast í 6 tonna frambyggða trillu, einnig gráselppugirnisnet 3 elliðaraf- magnsrúlur o.fl.. Upplýsingar í sima 69-71 487. Gólfhersluefni í sérflokki THORO STÁLGÓLF 8 litir P. & W. GÓLFHERÐIR Stálflögumerblandaðíblautasteyp- Settur á gólfin, eftir að þau hafa una. Margfaldar slitþol gólfsins. KThordI verið steypt. Slitþol þrefaldast og Eykur höggstyrkinn um 50%. höggstyrkur eykst um 25.% Ómissandi á iðnaðar- og vinnusali. Veljið THORO á gólfin. ÞÚSUNDIR FERMETRA HAFA ÞEGAR SANNAÐ GÆDIN. IS steinprýði I BORGARTÚNI 23 SÍMI 2 8290 Sér hæð 140 ferm. sér hæð með góðum bílskúr við Háteigsveg til sölu eða í skiptum fyrir minni íbúð. SKIPA & FASTEIGNA- MARKAÐURINN Idilstrcti S Midbzjarmirkidinum simi 17215 heimasimi 12457 Ibúðir Höfum kaupendur að ýmsum stærðum íbúða í austur og vesturborginni með góðri útborgun, sérstaklega vantar 90—100 ferm. íbúðir. SKIPA & FASTEIGNA- MARKADURINN Adalstrsti 9 Midbsjarmarkadinum simi 17215 heimasimi 82457 Raðhús — Keflavík Til sölu endaraðhús við Norðurgarð. Selst múr- húðað að utan, glerjað og með útihurðum. Einnig tvær 3ja herb. íbúðir við Háaleiti 1, sem seljast tilbúnar undir tréverk. Fast verð. Til afhendingar 1. nóv. 1 975. Híbýlaval h / f, Hafnargötu 38, Keflavík. Sími 2 79 7. 0STRATFORD E N S K I R PENINGASKÁPAR þjófheldir — eldtraustir heimsþekkt — viðurkennd framleiðsla. E. TH. MATHIESEN H.F. STRANDGÖTU 1 —3, HAFNARFIRÐI. — SÍMI 51919

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.