Morgunblaðið - 18.02.1975, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRUAR 1975
11
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins:
Ný frysti-
aðferð reynd
Tor Aurell með rækju, sem kemur úr freon-frystingunni,
hörð, hvlt og með sama lagi og áður en hún fór i vökvann
Með hinni nýju frystiaðferð kemur varan á færibandi, fellur
I freonvökvann og snarfrystist og úðarar sprauta á hana á
leiðinni gegnum vélina og út. Tor Aurell við frystivélina,
sem Sameinuðu þjóðirnar hafa lánað Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins.
j RANNSÓKNASTOFNUN fiskiðnað-
arins er verið að gera tilraun með
| nýjung ! frystingu, þ.e. frystingu
með freon-vökva, sem hefur ýmsa
kosti fram yfir venjulega frystingu,
þar sem frystingin verður mjög hröð.
Það sem frysta á, heldur sama lagi
og frýs ekki saman, missir ekki
vökva eins og tftt er ! frystingu og
heldur þv! þyngd, en krystallarnir
verða smærri og gæðin meiri á mat-
vælunum hvað snertir ilm, útlit og
gerð.
Sænskur frystisérfræðingur frá
Sameinuðu þjóðunum, Tor Aurell,
verður hér ! þrjá mánuði með eina
slíka frystivél, en þetta er veitt sem
tækniaðstoð við fsland frá UNITO i
Vinarborg. Hann sýndi fréttamanni
Mbl. þessa vél I rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins, skýrði hvernig fryst-
ingin fer fram og veitti upplýsingar.
En farið er að nota þessa frystingu á
40 stöðum ! heiminum fyrir við-
kvæmari og verðmætari matvæli;
mest ! Bandarikjunum, á 2 stöðum i
Sviþjóð, þar sem m.a. er einmitt
fryst rækja, einum stað ! Noregi
og á Bretagne i Frakklandi er
þessi frysting notuð á skelfisk, fisk-
flök og heilan silung. En hér er nú
verið að gera tilraunir með freon-
frystingu á rækju, humri og skelfiski.
í frystihúsi eru vélar fyrir eitt tonn
á klst. en þessi sem Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins hefur fengið
að láni, tekur 50 kg á klst. Hún er
aflangur tankur með þremur færi-
böndum. Rækjan kemur volg inn I
annan endann, fellur ! freonvökv-
ann, þar sem hún frýs á 30—40
sekúndum f 30 stiga frosti. Beltin
bera hana svo áfram og rækjan er
vætt með úðurum til lokafrystingar
og rennur út hinum megin. Hún er
alveg hörð, heldur laginu og er hvit,
en ef vill má fá á hana gljáa með þv!
að láta hana fara gegn um úða á leið
út. Bitarnir frjósa ekki saman I
klump með þessu móti, en eru lausir
og þykir það mikill kostur. Þessi
aðferð þykir einkum hpntug fyrir
matvæli, sem vanda á til og eru i
dýrari flokki, svo sem ávextir á borð
við jarðarber og melónusneiðar,
laukhringir og korn á stönglum og af
sjávarafurðum rækja, humar og skel-
fiskur.
Þessi frystiaðferð er tiltölulega ný.
Dupond-fyrirtækið byrjaði með þetta
á árinu 1967 og hefur einkaleyfi á
aðferðinni. En öðrum fyrirtækjum
var fengin framleiðslan. Þau eru nú
Frigo Scandia ! Svíþjóð og Lewis-
frysting ! Bandaríkjunum. Þessar
upplýsingar veitti Aurell sem svar
við spurningu okkar en vandlega
var límt yfir framleiðslumerkin á vél-
inni, þar sem SÞ vilja ekki reka
áróður. Sjálfur byrjaði Tor Aurell að
vinna fyrir sænska fyrirtækið I
Bandarikjunum, en er nú tæknilegur
ráðunautur hjá Sameinuðu þjóðun-
um.
Matvælaeftirlit Bandarlkjanna,
sem hefur mjög strangt eftirlit með
matvælum, gaf 1969 leyfi til fryst-
ingar með freon, og siðan hafa 11
lönd gert það sama. Bandarikjamenn
lita ekki á freon sem aukaefni, en
Sviar gera það og settu þvi það
skilyrði að ekki sé meira en 100 ppm
i fæðunni þegar hennar er neytt, en
hafa síðan fært mörkin upp i 300
ppm. En Tor Aurell sagði, að freonið
væri langt fyrir innan þessi mörk,
þegar fæðan kemur á matborðið.
Fyrstu 24 tfmana eftir frystingu hyrfi
það að mestu. Þetta hefur farið i
gegnum prófanir i Bandarikjunum.
Siðastliðin tvö ár hafa verið gerðar
tilraunir með að gefa rottum og
hundum þetta efni i 300 ppm
skammti á dag, og eru þannig fengn-
ar rannsóknir á fimm kynslóðum af
rottum, en ekkert hefur fundist, sem
geti gefið til kynna að það sé skað-
legt. . Freonið. sem notað er, er
hreinsað F 12 eða Dichlorodifluor-
methane og hefur 99,97% hrein-
leika. Það hefur verið notað i 40 ár
og talið öruggt til frystingar.
Það er samsagt ekki á nokkurn
hátt skaðlegt i fæðunni, að sögn
Aurells. Einnig á það að vera skað-
laust á vinnustað og ekki að stafa af
þvi brunahætta. Efnið er alveg
lyktarlaust, en þar sem það er eðlis-
þyngra en loft, eru á vinnustöðum
Matvælin
halda útliti,
vökva og
bragði
viftur niður við gólf, sem soga það
út.
Þessi aðferð við frystingu er aðal-
lega notuð við matvæli, sem erfitt er
að frysta og fremur verðmæt mat-
væli, sem fyrr er sagt. Sagði Aurell
að almennt mætti segja að það borg-
aði sig að nota það, þar sem varan
væri dýrari en freonið. Verðið á þvi
er nú um 168 kr. á kg og er sami
vökvinn notaður lengi. Hann gufar
upp i vélinni og verður loftkenndur,
en þéttist við snertinguna við kalda
kælispirala og verður aftur að vökva.
Þó tapast eitthvað af honum við
hreinsun á vélinni eða 1—3%. Og
reiknað með að 1—3 kg fari á móti
100 kg. En þar sem freon-vökvinn er
þyngri en vatn, fljóta drasl og
óhreinindi, sem vera kynnu i mat-
vælunum, ofan á. Og þar sem efnið
er loftkennt og kælt i vélinni, þá fara
óhreinindin ekki með vökvanum i
kælitankinn, en sitja eftir.
Frysting með þessari aðferð þykir
hafa ýmsa kosti, sem fyrr er sagt.
einkum þá að varan tapar ekki vökva
og heldur sér óbreytt og að auki
sparast bæði starfsfólk og rými i
frystihúsinu.
Tor Aurell verður hér i 3 mánuði
og mun kynna þessa aðferð við fryst-
ingu, sýna hana skólafólki og fólki úr
frystiiðnaðinum, sem boðið verður
til sýninga á Rannsóknastofnuninni.
Þar verður árangurinn lika kannaður
með' tilraunum og verður hann ráð-
gefandi um það. Að lokum mun hann
skila tæknilegri og fjárhagslegri
skýrslu til íslenzku rikisstjórnarinn-
ar, þvi þó slikt reynist vel annars
staðar. verður alltaf að gera tilraunir
á staðnum með viðkomandi efni,
eins og hann segir.
Ef góð reynsla fæst af þessu,
skiptir það miklu fyrir vörur eins og
skelfiskinn, þvi hann er i flokki mat-
væla. sem mikið er notaður sem
lúxusfæða, svo sem kokteilbita í
Bandarikjunum og verður útlitið þá
að vera óbreytt og fallegt.
— E.Pá.
SWBU smún
Isleazkt Hugvit
ag Haeúverk
Ifeiztu
m Mri lausn ?
á þeim vanda, sem upp kemur þegar skipta þarf
stórum herbergjum, eða þegar skilja þarf á milli
herbergja, án þess að nota fasta, heila veggi?
STUÐLA-SKILRÚM leysir ekki aðeins þennan
vanda, heldur opnar jafnframt ótal mögu-
leika. STUÐLA-SKILRÚM er léttur veggur,
sem samanstendur af stuðlum, hillum og /
skápum, allt eftir þörfum á hverjum stað.
STUÐLA-SKILRÚM henta einnig sem /
hillur upp við vegg. STUÐLA-SKILRÚM /
sem eru að öllu leyti úr viði, eru fáan- ^ /
leg í öllum viðartegundum, og einnig / J*
. « ... y AV /V AV
/
/ ______________________________/
SVERRIR HALLGRÍMSSON
Smíðastofa,
Trönuhrauni 5.
Simi: 51745.