Morgunblaðið - 18.02.1975, Síða 14

Morgunblaðið - 18.02.1975, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRUAR 1975 „Þörf á langtíma efnahagslegum varnaraðgerðum,” j Anker Jörgensen, forsætisráðherra Danmerkur: Verði grundvöllur efnahagslífsins skekinn steðiar hætta að lýðræðinu Anker Jörgensen, forsætisráö- herra Danmerkur, talaði við al- mennu umræðurnar á sunnudag og sagði meðal annars, að hjá því yrði ekki komizt, að þeir erfið- leikar, sem síðasta ár hefðu ein- kennt efnahagsþróunina, sérstak- lega á Vesturlöndum, settu svip sinn á þetta þing Norðurlanda- ráðs. Að vfsu hefðu menn nú náð sér eftir það skyndilega áfall, sem leiddi af orkukreppunni, en ekki hefði nema að takmörkuðu leyti verið viðurkennd sú aðlögun efnahagskerfisins sem ástandið krefðist. Væri augljóst, að þar gætu komið til meiri háttar breyt- ingar, með vfðtækum afleiðing- um. I þessu sambandi sagði Jörgen- sen nauðsynlegt að gera sér ljóst hversu heimsmynd okkar hefði breytzt síðastliðin þrjátíu ár. Um þetta væri ástandið innan Sameinuðu þjóðanna ljóst dæmi. Þar væru ný ríki f meirihluta, sem í vaxandi mæli létu í ljós aðrar skoðanir og annan hugsunarhátt en við hefðum vanizt: Þau vildu ekki viðurkenna forsendur vestrænna rikja og við því væri ekki að búast, því að vestræn sjónarmið hefðu til þessa verið alisráðandi í þeirri heims- mynd, sem við hefðum gert okk- ur. Af þessum sökum mætti nú á alþjóðavettvangi heyra skoðanir, sem væru í grundvallaratriðum andsnúnar hugmyndum vest- rænna manna og af þvi leiddi meiri háttar erfiðleika i vestræn- um þjóðfélögum. Jörgensen sagði, að Norður- landabúar hefðu alltaf leitazt við að stuðla að jafnari skipan heims- mála, en upplausnin f alþjóða- kerfinu á sviði efnahagsmála, stjórnmála og félagsmála hefði einnig áhrif á þá. Hann minnti á hvernig Norðurlandaþjóðirnar hefðu brugðizt við efnahags- örðugleikunum fyrr á öldinni, þá hefði verið lagður grundvöllur að velferðarþjóðfélaginu, sem Norðuriandabúar byggju við. Þá hefði einnig komið í ljós vilji þjóðanna til að lifa af og bægja frá öllum árásum á þjóðstjórnina, þannig að þau öfl, sem hefðu vilj- að einræði, hefðu ekki náð yfir- höndinni eins og í stórum hlutum Evrópu. Kæmi aftur til þess hins vegar, að grundvöllur efnahags- lffsins væri skekinn steðjaði lýð- ræðinu hætta af því. Nú væru þjóðir heimsins enn tengdari hver annarri en fyrr á öldinni og því yrði erfiðara til dæmis að halda Norðurlöndum utan við heimskreppu. A hinn bóginn lét hann í ljós þá von, að samstarf þjóðanna, sem einnig væri svo miklu nánara en áður, bæði norr- ænt, evrópskt og alþjóölegt, fengi unnið bug á erfiðleikunum, áður en þeir yrðu of miklir. Síðan tók Anker Jörgensen undir þær áhyggjur af lýðræðinu, sem Ragnhildur Helgadóttir, for- seti Norðurlandaráðs lét í ljós I ræðu sinni á laugardag og þá hug- mynd hennar, að innan Norður- landaráðs yrði athugað, hvað hægt væri að gera til að styrkja og bæta pólitíska starfsemi 1 þjóð- félaginu og efla þar með lýðræðið. ári væri mjög óvissar og víða mætti sjá alvarleg kreppumerki og stjórnmálalegan óstöðugleika og þjóðfélagslegan óróa ásamt efnahagslegri hnignun og sá sem vildi mála framtíðarhorfurnar dökkum litum ætti sældardaga. Hins vegar væri hættulegt og óþarft, að leggjast í svartsýni, því að margt benti til, að á þessu ári myndu hlutirnir snúast til hins betra í alþjóðlegri þróun efna- hagsmála. I mikilvægum löndum, eins og Kanada, Bandarikjunum, V- Þýzkalandi og Bretlandi hefði vörn verið snúið í sókn, atvinnu- leysi og efnahagsleg hnignun hefði verið orðin svo mikil, að stjórnirnar hefðu orðið að breyta stefnu sinni og gera ráðstafanir. Sagði hann að Norðurlandaþjóð- irnar yrðu að standa fyrir aðgerð- um á alþjóðasviði, til að tryggja fullan atvinnurekstur. Þá benti hann á að svo virtist sem hækkun hráefnisverðs hefði náð hámarki sínu og viðnámsaðgerðir iðnaðar- þjóðanna gegn verðbólgu hefðu borið árangur og slegið á verð- hækkanirnar á heimsmarkaðnum. I þriðja lagi væri svo að greiðslu- halli OECD-landanna virtist nú vera að snúast við á betri veginn. Hins vegar yrði að gæta þess vel, að samvinna væri um lausn mál- anna á alþjóðlegum vettvangi til þess að tryggja að þróun snerist i rétta átt til jafnrar og stöðugrar efnahagsþróunar. Að lokum sagði Palme, að Norðurlandaþjóðirnar hefðu á ýmsu mikilvægum sviðum valið ólíkar leiðir, en engu að síður stöðugt þróað og aukið samstarf sitt. Hann sagði það trú sina, að þetta samstarf væri ástæðan fyrir þvi að þróunin á Norðurlöndun- um hefði að mörgu leyti orðið hagstæðari en hjá öðrum iðnaðar- þjóðum, því að í heild væri ástandið á Norðurlöndunum bjartara en annars staðar. sagði Trygve Bratteli forsœtis- ráðherra Noregs í rœðu sinni TRYGVE Bratteli, forsætisráð- herra Noregs, lagði í ræðu sinni mikla áherzlu á stofnun Norræna fjárfestingarbankans. Ráðherr- ann sagði að á fundi ráðherra- nefndar Norðurlandaráðs I janúarlok hefði verið ákveðið að það legði sem allra fyrst fram tillögu um stofnun bankans. Sagði Bratteli að ekki þyrfti frek- ari skýrslugerðir um þörf og starfssvið slíks banka, slfkt lægi þegar fyrir eftir kannanir, sem gerðar hefðu verið. Ráðherrann sagði að samvinna á fjármálasviðinu hefði verið með Norðurlöndunum um árabil, en án þess að vera innan ramma sér- stakrar stofnunar. Minnti hann í því sambandi á lán, sem hin Norð- urlöndin hefðu fengið hjá Svíum eftir heimsstyrjöldina siðari og þá hefðu lán til skipakaupa verið Norðmönnum mjög mikilvæg. Siðar hefði sænskt fjármagn verið fengið til að fjármagna upp- byggingu orkumála í Noregi. Hann minnti á Norræna iðnþró- unarsjóðinn og samning seðla- banka Norðurlandanna um gagn- kvæman skammtíma gengisstuðn- ing, sem nú væri i endurskoðun. Hins vegar væri hér um takmörk- uð sérsvið að ræða. Bratteli lagði áherzlu á, að fjár- mögnunarmál myndu aukast mjög að mikilvægi á ýmsum svið- um efnahagsmála á næstu árum og fjármögnunarverkefnin verða miklu stærri en gerst hefði hing- að til. Bankar og peningamark- aöir, sem hefðu verið hin hefð- bundna fjármögnunarleið, myndu ekki valda þeim verk- efnum, sem iðnaðarþjóðirnar stæðu frammi fyrir. Stór þáttur vandans væri hinn feikna óhag- stæði greiðslujöfnuður, sem iðnaðarþjóðirnar myndu þurfa að búa við næstu ár vegna olíuverðs- hækkunarinnar og nefndi Dan- mörku sérstaklega í því sam- bandi, sem ætti engar eigin orku- lindir. Sagði ráðherrann að þörf væri á langtíma „varnaraðgerð- um“ til að fjármagna greiðsluhall- ann, til að iðnaðarþjóðirnar gætu haldið uppi fullnægjandi fjárfest- ingu og fullri atvinnu. Aðgerðir væru nú hafnar til að beina olíu- gróða olíusöluþjóðanna aftur til iðnaðarþjóðanna I formi lána og fjárfestinga. Norrænn fjárfest- ingarbanki þyrfti að vera tilbúinn til að taka þátt í slíku starfi. Þá vék ráðherrann að orkumál- um og sagði að á því sviði hefði Noregur sérstöðu Norðmenn byggju yfir verulegum vatnsorku- lindum, olíu og gasi. En þetta legði Norðmönnum einnig á herðar þá ábyrgð að koma þeim náttúruauðlíndum, sem eru um- fram þarfir Norðmanna i gagnið. Norðmenn hefðu áhuga á að gera sem fyrst upp möguleikana á framtíðarsölu gass og ollu til ann arra landa á grundvelli breiðs samstarfs á sviði iðnaðar og orku- mála. Ráðherrann sagði að það magn, sem umfram væri þá samn- inga, sem þegar væri búið að gera yrði þó ekki til afgreiðslu fyrr en að 4—5 árum liðnum. Bratteli sagðist vel skilja þær vonir, sem Norðmenn og menn utan Noregs byndu vió hina nýju . olíu og gasfundi á landgrunni Noregs, en sagði að dæmið væri ekki svo einfalt að hægt væri að sækja oliuna þangað, sem vitað væri að hún væri. Engin örugg , vissa væri fyrir því að það væri hægt, undirbúningur tæki langan tima og kostaði gifurlegt fjár- magn. Væri gert ráð fyrir að fram til 1980 myndu fjárfesting í rann- sóknum og vinnslu á landgrunn- inu nema alls um 35 milljörðum norskra króna. Nú væri unnið að nákvæmri rannsókn á öllum orku- málum þjóðarinnar og efnahags- legri þróun í sambandi við þau og yrði skýrsla um þau mál lögð fram i Stórþinginu innan skamms. Þrír forsætisráðherrar sem komu á þing Norðurlandaráðs, úti fyrir Þjóðleikhúsinu I gær: Olof Palme, Anker Jörgensen og Trygve Bratteli. Tveir þeir fyrrnefndu héldu heimleiðis I gærkvöldi. „Hættulegt og óþarft að leggjast 1 svartsýni,” sagði Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar 1 RÆÐU sinni á Norðurlanda- rððsþinginu fjallaði Olof Palme, forsætisráðherra Svfþjóðar, um útlit og horfur f efnahagsmálum þjóða heims á þessu ári og sagði að atvinnuleysi, mikill greiðslu- halli og verðbólga ylli miklum áhyggjum manna og gerðu miklar kröfur til stjórnvalda. Hann sagði að mikilvægast væri, að aftur mætti takast að koma á jafnvægi hjá iðnaðarþjóðunum, þvf að án þess væri grundvelli kippt undan raunhæfu þróunarsamstarfi. Hann sagði að horfurnar á þessu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.