Morgunblaðið - 18.02.1975, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRUAR 1975
15
Fyrirspurnir, skýrslur og
tillögur afgreiddar í gær
STÖRF Norðurlandaráðsþingsins
f gær hófust kl. 9 árdegis með
fundum sendinefndanna og sfðan
hófust nefndarfundir kl. 9.30 og á
sama tfma hófst einnig sameigin-
legur fundur forsætisnefndar
þingsins og samstarfsráðherr-
anna. Kl. 10.30 hófst svo fundur
fjármálanefndar og samstarfsráð-
herranna. Héldu þessir aðiijar
fund með fréttamönnum rétt
fyrir hádegið, þar sem skýrt var
frá helztu umræðuatriðum, en
engin mál voru afgreidd. Ræddu
fundarmenn m.a. fjárhagsáætlun
ráðsins og skýrslu lögfræðinefnd-
ar um norræna samvinnu.
Almennur fundur hófst síðan
kl. 15.00 að loknu matarhléi og
var byrjað á fyrirspurnartíma.
M.a. var spurt um samræmdar
sótthreinsunaraðgerðir á hundum
á Norðurlöndum, sem Paavo
Varynen bar fram og Svante
Lundquist svaraði. Fyrirspurn til
sænsku ríkisstjórnarinnar um
starfssvið norrænna málakenn-
ara, sem Lena Hjelm-Wallén svar-
aði. Spurning frá Per Olaf Sund-
man um styrk til færeyskra bók-
mennta, sem Bjartmar Gjerde
menntamálaráðherra svaraði,
spurning til finnsku ríkisstjórn-
arinnar varðandi sjúkrahúsasam-
starf í Tordnedalen, sem Jan-Ivan
Nilsson bar fram og Seija
Karkinen heilbrigðismálaráð-
herra svaraði og spurning til
sænsku ríkisstjórnarinnar um að-
stöðu sígauna í Finnlandi og Sví-
þjóð, sem Lars Lindemann bar
fram og Anna-Greta Leijon svar-
aði.
Að spurningatímanum loknum
voru teknar fyrir skýrslur um
ýmis mál og því næst tillögur.
M.a. var borin fram tillagan um
farþega- og bílaferju milli
Norðurlandanna, Færeyja og Is-
lands. Tillaga um leiðir til að
auka ferðalög ungmenna um
Norðurlöndin og tillaga um
skyldu fótgangandi til að bera
endurskinsmerki. Litlar umræður
urðu um tillögurnar og voru þær
allar samþykktar. Var fundi síðan
MAGNUS Kjartansson mælti I
gær fyrir tillögu samgöngumála-
nefndar Norðurlandaráðs um að
ráðherranefndin láti fara fram
nauðsynlega könnun á möguleika
á rekstri áætlunarferju, sem flutt
gæti bæði farþega og bíla milli
íslands, Færeyja og hinna
Norðurlandanna, með það fyrir
augum að slíkar áætlunarferðir
geti hafizt sem fyrst.
Magnús bar tillögu þess efnis
upphaflega fram á þingi Norður-
Eskifirði, 17. febrúar.
1 GÆR um hádegi vildi það til um
borð I togaranum Hólmanesi, er
hann var á veiðum útaf Austur-
landi, að sjór braut inn kýrauga I
borðsal skipsins. Svo mikiil kraft-
ur var á glerbrotunum, að þau
spýttust inn í vegg andspænis og
stóðu sum þeirra í gegnum skáps-
hurðir. Nokkrir menn voru í borð-
salnum er þetta vildi til og varð
einn þeirra fyrir glerbrotum og
skarst hann illa í andliti. Hólma-
nes hélt þegar til lands og kom
hingað til Eskifjarðar um sjö-
leytið f gærkvöldi og gerði
slitið og hefst hann I dag kl. 14.30
á ný, en nefndarfundir hefjast kl.
09.00. Á almenna þingfundinum á
morgun verður m.a. fjallað um
orkumál og hafréttarmál.
landaráðs 1972, en er spurt var
um málið á þinginu í fyrra hafði
ekkert verið unnið í málinu, þar
eð ráðherranefndin taldi tillög-
una hafa verið of almenns efnis
og bað um að samgöngunefndin
semdi ákveðna tillögu. Var það
gert og hún borin fram i gær. Við
atkvæðagreiðsluna var tillagan
einróma samþykkt með 65
atkvæðum, en 17 fulltrúar voru
fjarverandi. Mun nú væntanlega
verða byrjað á að kanna tækni- og
fjármálahlið tillögunnar.
læknirinn hér að sárum manns-
ins.
1 gærkvöldi skall hér á mjög
hvöss vestanátt. Stóð rokið i um
tvo tíma en datt þá niður aftur.
Voru sumar hviðurnar geysilega
harðar og var varla stætt úti. Litið
var um skemmdir af völdum
veðursins, en eitthvað mun þó
hafa fokið af þakjárni. I dag er
aftur á móti sól og biíða.
Nú hafa borist hér á land 17.800
lestir af loðnu. Næst verður tekið
á móti eftir hádegi á miðvikudag.
— Ævar.
Samþykkt að kanna
ferjumöguleikana
Slys um borð í Hólmanesi
A þingi Norðurlandaráðs:
Olíuleitin undan Noregs-
strönd tengd öryggismálum
ÞESS varð greinilega vart I al-
mennum umræðum á þingi
Norðurlandaráðs um helgina,
að ágreiningur er milli Finna
annarsvegar og Norðmanna og
Svía hinsvegar að því er orku-
málunum viðkemur. Á þetta
bæði við um það með hverjum
hætti auðlindir Norðmanna,
olía og gas, verði unnar og sam-
skipti Norðmanna og Svla við
alþjóðlegu orkustofnunina,
IEA. Þetta kom meðal annars
fram I orðaskiptum, sem hér
verðu getið lltillega, milli
finnska sósíaidemókratans
Erkki Tuomioja og Svlans
Alans Hernelius úr Moderata
Samlingspartiet.
Tuomioja sagði i upphafi
máls síns, að um þessar mundir
bryddi á nýjum þróunarþáttum
í pólitískum stefnumiðum
Norðurlanda, sem hvorki væri
auðvelt að greina né skilgreina.
Taldi hann fyrst til í því sam-
bandi aðild Danmerkur að
Efnahagsbandalagi Evrópu og
því næst olíuvinnsluna I
Norðursjó, sem fleiri lönd en
Noregur ættu aðild að og væri
þegar tengd öryggismálum, en
yrði það enn frekar, þegar
vinnslan hæfist norðar, i
norska Barentshafinu, því þá
yrði gengið allnærri einum af
meginstöðvum Sovétríkjanna.
Hann kvað það hagsmuni
allra heimskautahéraðanna á
Norðurlöndum, að olíuleitin
undan Noregsströndum gæti
farið fram án aukningar
hernaðarlegrar spennu. Þvi
væri eðlilegt, að rikin, sem réóu
þessum slóðum þar á meðal
Sovétrikin, sameinuðust um að
efla velferð ibúanna þar og
jafnframt öryggi Evrópu í
heild, en Finnar óskuðu aó sjá
Sovétríkin sem ' eðlilegan
samstarfsaðila Norðurlanda
annars staðar en i Finnlandi. 1
Noregi sagði hann hinsvegar,
að fram hefði komið sú skoðun,
að öryggispólitisku jafnvægi
yrði bezt náð með þvi aó gera
ráð fyrir því, að Bandaríkin
yróu á einhvern hátt tengd oliu-
vinnslunni. Þetta sagði hann
leifar af hugsunarhætti kalda
stríðsins.
Þá kom Tuomioja að Svíþjóð
og sagði, að tilteknir atburðir
þar í landi hefðu vakið furðu í
Finnlandi. Þaðan hefði frétzt,
að sænska stjórnin hefði gefið
fjórum NATO-rikjum, sem
hefðu til athugunar kaup á
Viggen-flugvélum, tryggingar
fyrir birgðum, jafnvel á striðs-
timum. Sagði Tuomioja eðli-
legt, að slikt vekti áhuga og
jafnvel áhyggjur í Finnlandi,
þar sem menn spyrðu sjálfa sig,
hvernig þetta gæti samræmzt
hlutleysisstefnu Svia. Sama
áhuga kvað hann hafa vakið í
Finnlandi þá ákvörðun Svia, að
taka þátt í samstarfi oliuinn-
tlutningslandanna innan
ramma alþjóðlegu orkustofn-
unarinnar.
Þá rakti Tuomioja, hvernig
Norðurlöndin væru farin að
fara hvert sína leið við at-
kvæðagreiðslur á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna, þar sem
ríkt hefði hefðbundin norræn
samstaða. Nú væru löndin klof-
in og bæri að horfast í augu við
þá staðreynd; ástæðulaust væri
að reyna að þvinga fram sam-
stöðu, þar sem grundvallar-
hagsmunir væru frábrugðnir.
Þetta ætti sérstaklega við um
Finnland, sem til dæmis hefði
tekið aðra afstöðu til átakanna
fyrir botni Miðjarðarhafs en
hin Norðurlöndin, sem hefðu
skipað sér á bekk með öðrum
vestrænum rikjum. Tuomioja
minnti loks á hugmyndir
Kekkonens um kjarnorku-
vopnalaust svæði á Norðurlönd-
um og sagði þær tímabærar
aftur nú, þrátt fyrir samninga
um bann við dreifingu kjarn-
orkuvopna.
Hernelius reifaði þessi mál
næst á eftir Tuomioja og lagði
til grundvallar svipaðar skoðan-
ir, sem fram hefðu komið í rit-
stjórnargrein i finnska dagblað-
inu Demari, málgagni finnskra
sósíaldemókrata. Sagði
Hernelius, að bæði samstarf
Svia við IEA og sala Viggen-
flugvélanna yrðu framkvæmd
innan ramma hlutleysisstefnu.
Sömuleiðis sagði Hernelius, að
norrænt samstarf gengi ekki og
hefði ekki gengið út frá þeirri
forsendu, að með rikjunum
væri pólitísk eining, Norður-
lönd hefóu ekki verið pólitisk
eining frá þvi á dögum Kalmar-
sambandsins. Samvinna þeirra
byggðist fyrst og fremst á
Framhald á bls. 39
Skildi „vin”sinn eftir
Uggjandi í blóði sínu
A SUNNUDAGSKVÖLDIÐ var
lögreglan kölluð að verzluninni
Domus við Laugaveg, en þar lá
starfsmaður fyrirtækisins I
blóði sinu, meðvitundarlitill.
Hafði hann verið barinn niður,
hirtir af honum peningar og
lyklar. Einn lyklanna gekk að
peningaskáp í verzluninni og
þaðan voru teknar 20—30 þús-
und krónur í skiptimynt.
Maður. nokkur var handtekinn
vegna árásarinnar. Viður-
kenndi hann brot sitt og var
honum sleppt i gærkvöldi.
Málavextir eru þeir, að um-
ræddur starfsmaður fór á há-
degisbarinn á Hótel Borg á
sunnudaginn. Varð hann brátt
mjög ölvaður. Á barnum hitti
hann mann nokkurn og tóku
þeir tal saman. Þegar barinn
lokaði kl. 15 urðu þeir ásáttir
um að fara upp i Domus. Fóru
þeir inn i kaffistofuna i
verzluninni og héldu áfram
drykkjunni. Að sögn „gestsins"
fór hann nokkru sióar burt i
heimsókn til bróður síns en
starfsmaðurinn varð eftir og
sofnaði. Hjá bróður sinum hélt
maðurinn áfram drykkjunni og
kom að því að drykkjarföng
þraut. Fór hann því niður i
Domus aftur og barði á dyrnar.
Starfsmaðurinn rankaði vió
sér, kom út að dyrunum og
hleypti „gestinum“ aftur inn. vegi.
Skarst í odda með þeim litlu
síðar og lyktaði viðskiptum
þeirra á þann veg að „gestur-
inn“ lamdi starfsmann verzlun-
arinnar þrisvar í andlitið og
nefbraut hann m.a. Að því
búnu settist hann klofvega á
hann, tók hann kverkataki í þvi
augnamiði að stöðva blóðrásina
til heilans og svæfa manninn
þannig. Tókst honum ætlunar-
verk sitt, og má reyndar telja
mestu mildi, að ekki skyldi verr
fara. Að þessu loknu hirti hann
peninga, og ýmislega muni af
manninum, t.d. kveikjara, og
lyklana sem að framan er getið.
Að því búnu hélt hann á brott
heim til annars bróður síns.
Þegar þangað kom fór hann að
hafa áhyggjur af því, að
kannski væri maðurinn i lifs-
hættu. Fór hann því niður i
Domus að nýju ásamt bróður
sínum og gekk sú ferð vel, enda
maðurinn með alla lykla að
fyrirtækinu. Starfsmaðurinn lá
þá á bakinu, og var greinilega
lifsmark með honum, en til
vonar og vara veltu þeir honum
á magann. Fór nú bróðirinn
heim og hringdi til lögregl-
unnar og tilkynnti um mann-
inn, en árásarmaðurinn fór á
ball i Glæsibæ, og þar var hann
tekinn um kvöldið og settur í
steininn. Um starfsmanninn er
það að segja, að hann er á bata-
Slgs og árekstrar
á Hellisheiðinni
MIKIL hálka og slæmt skyggni
voru á Hellisheiði og í nágrenni
skiðaskálans i Hveradölum á
sunnudaginn, og urðu tveir
harðir árekstrar á þessum slóð-
um og ein bílvelta þann dag.
Slösuðust 6 manns í þeim.
Fyrsta slysið varð kl. rúmlega
10 um morguninn þegar fólks-
bíll valt á Hellisheiði. Öku-
maðurinn var einn í bílnum og
slapp hann að mestu ómeiddur.
Hann mun hafa verið við skál.
Svo var það klukkan rúmlega
14 að fjórir bílar lentu i
árekstri við efri brekkuna við
skíðaskálann. í þessum árékstri
slösuðust þrir, og voru þeir
fluttir á sjúkrahús. Skemmdir
uróu miklar á bilum. Loks
lentu tveir bílar saman við
veginn út að Kolviðarhóli,
fólksbill og sendibíll. Þrennt
sem var í fólksbílnum slasaðist,
og var fiutt á slysavarðstofuna,
og bílarnir eru stórskemmdir.
Ok tvisvar gfir
sama manninn
ÞAÐ slys vildi til á Grettisgöt-
unni aðfararnótt s.l. laugar-
dags, aó bifreið ók yfir ristina á
manni sem þar var á göngu.
ökumanninum brá svo mikið
við þetta, að hann setti bilinn i
bakkgír og ók aftur á bak.
Vildi þá ekki betur til en svo
að hann ók aftur yfir rist
mannsins þar sem hann lá i
götunni. Þvínæst setti hann í
kraftgírinn og hvarf af vett-
vangi, en náðist skömmu síðar.
Mun hann hafa smakkað eitt-
hvað áfengi. Hinn maðurinn
slapp furðulega vel, var aðeins
marinn á ristinni.
Þjófnaður og skemmd-
arverk í Helgakjöri
BROTIZT var inn I verzlunina
Helgakjör, Hamrahlfð 25, um
helgina. Þaðan var stolið 50
lengjum af vindlingum, að
verðmæti nærri 60 þúsund
krónur á gamla verðinu, vindl-
um, eggjum og 12 kartonum af
tyggigúmi.
Þvi næst lá leið þjófanna á
lager verzlunarinnar. Þar var
varningi rutt úr hillum niður á
gólf, fryst matvæli tekin úr
frystikistum og þeim raðað á
gólfið og til að fullkomna
verkið var innihaldinu úr
þriggja pela tómatsósuflösku
skvett yfir vettvanginn. Mál
þetta er óupplýst.
INNBROTI
HÁ TEIGSKIRKJU
INNBROT var framið I
Háteigskirkju um helgina,
skemmdarverk unnin og stolið
úr samskotabauk kirkjunnar.
Sá eða þeir sem innbrotið
frömdu lögðu fyrst leið sína i
sakrastíu kirkjunnar og unnu
þar skemmdir með því að
henda inn í hana grjóthnull-
ungum. Því næst brutu þeir
litað gler í kirkjunni, einnig
með steinum. Engu stálu þeir,
enda þótt ýmis verðmæti væri
þarna að finna og jafnvel
messuvinið var látið i friði. I
anddyrinu var hins vegar ráðizt
til atlögu við samskotabauk
með heljarmiklum skærum og
hann ristur í sundur og
innihald hans tekið. Ekki er
vitað hve miklir peningar voru
i bauknum. Málið er óupplýst.