Morgunblaðið - 18.02.1975, Side 16

Morgunblaðið - 18.02.1975, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRUAR 1975 jmMtafeifr hf. Árvakur, Reykjavík Haraidur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sfmi 10 100. Aðalstræti 6, simi 22 4 80. Áskriftargjald 600,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 35,00 kr. eintakið. Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn Auglýsingar Þegar ákvörðun var tekin um gengislækk- un í síðustu viku valdi rík- isstjórnin milli tveggja kosta, gengisbreytingar eða skattahækkunar og millifærslu m.ö.o. stór- felldrar hækkunar skatta til þess að standa undir uppbótakerfi i sjávarút- veginum. Enginn vafi er á því, að ríkisstjórnin valdi rétta leiö og í ræðu, sem Geir Hallgrímsson forsæt- isráðherra flutti á Alþingi í síðustu viku gerði hann grein fyrir því hvað ráóiö hefði valinu. Hann sagði: „í fyrsta lagi áherzlan á fulla atvinnu sem megin- markmió efnahagsstefn- unnar og nauðsyn þess, ef hún á að haldast til fram- búðar, aö staða þjóðarbús- ins út á við sé tryggð. í öóru lagi veldur gengis- lækkun almennri hækkun tekna útflutningsgreina án mismunar, en mismunur- inn er fylgifiskur flestra annarra leiða. Jafnframt bætir gengislækkun sam- keppnisstöðu allrar inn- lendrar atvinnustarfsemi gagnvart innflutningi, örv- ar innlenda framleiðslu og dregur úr innflutningi. í þriðja lagi felur valið i sér, að vió viljum halda fast við þá fríverzlunarstefnu, sem þessi ríkisstjórn hefur gera ráðstafanir til að tryggja hagstæðan jöfnuö í fjármálum opinberra aðila en forðast jafnframt óhóf- lega aukningu erlendra skulda. Til að ná þessu markmiði mun hún beita sér fyrir því, að dregið verði úr útlánafyrirætlun- um fjárfestingalánasjóða og útgjaldaáformum hins opinbera, en fyrir aukinni innlendri fjáröflun að því leyti sem þetta hrekkur ekki til.“ Með þessum orðum hef- ur forsætisráóherra lýst því ákveðið yfir, að í kjöl- far gengislækkunar muni ríkisstjórnin draga úr út- gjöldum hins opinbera og Almenningur krefst niðurskurðar fylgt og vill fylgja og er ein meginforsenda álits okkar og lánstrausts á alþjóða- vettvangi. Við hljótum því að hafna haftastefnu og freista þess að leysa efna- hagsvandann með almenn- um aógerðum. Þetta mun, er til lengdar lætur, reyn- ast farsælasta lausnin.“ Síóan vék forsætisráð- herra aó ýmsum hliðarráð- stöfunum, sem ríkisstjórn in mun beita sér fyrir, og i því sambandi sagói hann: „Vegna rýrnunar þjóðar- tekna og erfiðrar greiðslu- stöóu út á við telur ríkis- stjórnin nauðsynlegt að þá væntanlega fyrst og fremst ríkissjóðs, en sjálf- sagt er, að sveitarfélögin fylgi í kjölfarið, og einnig verði dregið úr útlánum fjárfestingalánasjóða. Eng- inn vafi er á því, að þetta er rétt stefna. Öllum er ljóst, að við núverandi að- stæður er ekki til nægilegt fjármagn til þess að standa undir þeim framkvæmdum og útgjöldum, sem ráðgerð höfðu verið á þessu ári, ákvarðanir teknar um, þeg- ar viðhorfin voru allt önn- ur og betri. Þessum fjár- skorti er ekki hægt aó mæta nema með tvennum hætti. Annað hvort með al- mennum skattahækkunum auk gengisbreytingar eða niðurskurði á útgjöldum og framkvæmdum að ein- hverju leyti. Á síðustu misserum hefur allur al- menningur orðið fyrir um- talsverðri kjaraskerðingu og framfærslukostnaður á enn eftir að aukast mjög vegna gengisbreytingar- innar. Þess vegna er það krafa almennings í land- inu, aó niðurskurðarleiðin verði valin en ekki verði umtalsverðar skattahækk- anir í kjölfar gengislækk- unarinnar. Um helgina tilkynnti rík- isstjórnin hækkun á inn- flutningsgjaldi af bifreið- um, svo og hækkun á áfengi og tóbaki. Við þess- um hækkunum á munaðar- vörum er ekkert að segja. Hvorki áfengi né tóbak telst til almennra nauð- synja og þegar harðnar í ári verða menn að gera það upp við sig sjálfir, hvort þeir eyða stórfé í þennan munað eða ekki. Telja verður vafasamt eftir gengisbreytinguna og hækkunina á innflutnings- gjaldi bifreiða, að bifreiða- innflutningur verði jafn mikill og stjórnarvöld gera ráð fyrir. Líklegra er, að stórkostlegur samdráttur verði í honum og ólíklegt, að bifreiðasala verði mikið umfram þær óseldu bif- reiðar, sem nú eru í land- inu. Þegar tillit er tekið til hins gegndarlausa bílainn- flutnings á siðasta ári er þetta þó ekki óeðlileg ráð- stöfun. En allar skatta- hækkanir umfram þetta eru hæpnar, þótt að sjálf- sögðu verói að gera sér- stakar ráðstafanir til fjár- öflunar vegna snjóflóð- anna á Norðfirði. Um margra ára skeið hefur ekki verið jafn mikill og sterkur hljómgrunnur i landinu fyrir almennum niðurskurði á útgjöldum og framlögum til fram- kvæmda hins opinbera. Það er vissulega rétt, sem Þórarinn Þórarinsson seg- ir í sunnudagshugleiðing- um sinum í Tímanum í fyrradag, að ekki má ganga svo langt á þessari braut, að til atvinnuleysis komi. En áreiðanlega er svigrúm ið mikið til niðurskurðar áður en sú hætta vofir yfir. Að svo miklu leyti, sem nið- urskurður kemur niður á verklegum framkvæmd- um, verður að vanda valið vel. T.d. er fáránlegt að tímum orkukreppu að láta hitaveituframkvæmdir stöðvast eins og gert hefur veriö. Fjármálaráðherra, Matthías Á. Mathiesen, hefur lýst því yfir, að í ráðuneyti hans sé nú unnið aö tillögugerð um niður- skurð á ríkisútgjöldum og raunar munu valkostir liggja fyrir um slikan nið- urskurð. Ríkisstjórnin get- ur verið þess fullviss, að hún mun njóta almenns stuðnings fólksins í land- inu viö slíkan niðurskurð. annað eftir JÓHANNES HELGA ar ógnandi verur á ferli í myrkrinu, eru því miður al- gengar myndir í Vín. „Þriðji maðurinn" varpar enn skugga á borgina og Harry- Lime — þrá- stefið, ógn þess, er enn við lýði undir glaðlegu yfirbragði borg- arinnar. 1 hinu alræmda hverfi „Zweite Bezirk", á hinum bakka Dónár, þar sem bæki- stöðvar rússneska setuliðsins þarf ekki að nafngreina; ljósa- skiltin leyna ekki á sér. Þó ætla ég að tilgreina einn vegna stað- setningar hans. Hann er ágætt dæmi um hvernig andstæðun- um ægir saman á yfirborði Vínarborgar. 1 skugga einhvers fegursta barrokk-listaverks jarðarinnar, Péturskirkjunnar, fast við helgidóminn, er nætur- klúbbur í kjallara. Iburðar- miklar auglýsingar mynd- DAGAR í VIN II 1 kvöldverðarboði sem ég sat eitt sinn dansaði og söng sjö ára telpa, dóttir gestgjafanna, að máltíðinni lokinni. Og nú átti hún að fara í háttinn. Og þá sagði litla Vínartelpan þessi orð sem ég get ekki gleymt og enn ljómar af vegna þess hve þau eru táknræn fyrir andann í Vin: En mamma, má ég ekki vera aðeins lengur á fótum. Ég er nefnilega ekki búin að hlæja nóg í dag. Og blómin! Hvergi í veröld- inni hef ég séð jafnmikið af blómum í einni borg og jafn- marga blómasala. Vínarbúar elska blóm — og allt sem fallegt er. Ungir og gamlir, hin- ir mörgu fátæku og fáu ríku, allir kaupa þeir blóm árstíð- anna — „Blaue Veilschen, Weisse Flieder“ (Bláar fjólur, hvitur yllir) heim í stofurnar! Já, Vín er vissulega hrífandi og indæl borg: „Im Prater bliih’n wieder die Báume, in Sievering griint schon der Wein...“ (1 Prater dafna trén á ný, i Siever- ing grænkar vínviðurinn brátt... ). Götusalarnir eru gildur þátt- ur í líflegu og litríku borgarlíf- inu. Þá er alstaóar að finna og selja allt mögulegt: pylsusalar sem einnig hafa á boðstólum marga smárétti og svaladrykki á vægu verði, möndlusalar við ilmandi steikarofna, ávaxta- og súkkulaðikonurnar með nýj- ar vörur i mörgum litum, ullar- og vafnaðarsalar með hlý föt og skó til sölu, búðir með eldhúss- áhöld og sápur, bækur, pappír, póstkort o.s.frv. Hjá götusölun- um getur maður bókstaflega keypt allar nauðþurftir. Og á öllum hátióum, jólum, nýjárs- dag, föstudaginn langa, á pásk- um og aðra hátíðisdaga falbjóða götusalarnir það sem við á þá daga: helgigripi, kerti, luktir, skraut, spil og leikföng. + + + + Vínarbúar bera allt sitt á torg í miklu ríkari mæli en ég hef orðið vitni að i öðrum borgum. Og þar verður sorgin á vegi manns ekkert síður en ham- ingjan. Neyðin, sorgin og upp- gjöfin sem skín úr sumum and- litum síðan i seinni heimsstyrj- öld, ég minnist þess ekki að hafa staðið augliti til auglitis við svo nístandi sársauka á Norðurlöndum. Og andstæð- urnar magna hvor aóra. Hér blóm og valsar, þarna neyð og einmanaleiki. Betlarar í tötr- um, örkumla menn og Ijósfæln- voru eftir stríðið, er vissara að vera á verði í hinu ljúfa lífi eftir að dimma tekur. Við Praterstrasse, á torginu þar sem sjóhetjan Tegetthoff gnæfir og í illa lýstum hliðar- götum þar út frá, eru útlifaðar vændiskonur og alfonsar á hverju horni. Og í óteljandi skúmaskotum, kaffihúsum, vertshúsum og I vafasömum smáhótelum sem hafa opið til klukkan f jögur á morgnana eru á stjái fjárhættuspilarar, eitur- lyfja- og svartamarkaðssalar, dreggjar mannfólksins. Inn- brotum, líkamsárásum og öðr- um afbrotum er þó haldið nokk- urnveginn í skefjum, og það er þvi að þakka að Vinarlögreglan hefur á að skipa óvenjulega du'glegu og öflugu lögregluliði. Einkennis- og óeinkennis- klæddir lögreglumenn eru á ferli allan sólarhringinn og tiðni ferðanna um hverfið er mun hærri en i öðrum borgum þar sem ég þekki til. Hér hefur margur ölvaður útlendingur glatað fjármunum sinum, úri sinu — og sjálfsvirðingu. Svo eru finni staðir og þá skreyttar greina frá glæsileg- um stúlkum frá mörgum lönd- um innan dyra, kvenfólki sem biður nakið eftir yður. Þúsund ára gömul kirkja Sankti-Péturs og Bar Orientals hlið við hlið, nokkur skref á milli. .. Eitt af mörgum sérkennum Vinarbúans er málið. I öllu Austurríki er málið — það er að segja framburðurinn — tals- vert frábrugðið þeirri þýsku sem töluð er i Þýskalandi. Austurrikisbúinn gerir grín að hinum harða framburði há- þýskunnar. Mállýskurnar í Tyrol, Kárnten, Steiermark o.s.frv. eru nokkuð frábrugðnar hver annari, en framburðurinn í Vín er sérstæðastur og stund- um illskiljanlegur. Vinarbúar rækta sitt heima- tilbúna mál og mismunurinn á hljómi þess og öðrum austurisk- um mállýskum er talsvert meiri en á Kaupmannahafnardönsku og jósku. Málið í Vín er ekki fallegt, en orðin eru notaleg og framburðurinn spaugilegur og orðatiltæki eru í hávegum höfð, sum skringileg. Frans Jósef var frægur fyrir sín. En háskóla- menntaðir menn hafa að sjálf- sögðu jafnframt vald á al- mennilegri þýsku. + + + + Eyrað er furðufljótt að venj- ast þessum smáskrýtnu mál- lýskum og fyrir útlending er aðalatriðið að flestir tala og skilja þýzku i einhverjum mæli, þótt þeir vilji gjarnan komast hjá því. Hinn iðni og sjálfum- glaði herra Schulse frá Þýska- landi er ekki vel séður gestur i hinu glaða Austurriki, að ekki sé talað um Prússa sem eru álíka velkomnir i Austurriki og í Rínarlöndum. Utlendingur kemst jafnan á snoðir um heilmikið í fari þjóð- ar með því einu að gaumgæfa algengustu orðin og setningarn- ar í málinu. 1 Austurríki er t.d. algeng þessi athugasemd, sem menn láta sér um munn fara með því að yppta öxlum og brosa hrif- andi: Da kann man nichts machen! (Við þessu er ekkert að gera). Ef eitthvað fer úrskeiðis, ef Framhald á bls.37

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.