Morgunblaðið - 18.02.1975, Side 20

Morgunblaðið - 18.02.1975, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRUAR 1975 2. DEILD KA — Þróttur 21-21 MIKIL spenna rikti meSal Akureyringa fyrir leik KA og Þróttar i 2. deildar keppni íslandsmótsins i handknattleik á laugardaginn. KA varð að vinna sigur til að eiga möguleika á sigri i deildinni, en með tapi missti liðið af lestinni i toppbaráttunni. Þróttarar gátu hins vegar mætt tiltölulega afslappaðir til leiks, vitandi það, að þrátt fyrir tap væru þeir enn meðal efstu liðanna og ættu möguleika á sigri. Eitt er þó víst, að Þróttararnir hafa ekki vanmetið KA-liðið. minnugir tapsins fyrir þvi í Laugardalshöllinni fyrr í vetur. Og ekki siður eftir vonbrigðin i fyrra þegar Þróttur heimsótti KA og tapaði með 8 mörkum og missti þar með forystuna í deildinni til Gróttu, sem siðan komst upp f 1. deild. Þróttur byrjaði vel á laugardag og var yfir allan fyrri hálfleikinn, mest 4 mörk, 2:6 um miðjan hálfleikinn. KA-liðið var hins vegar hikandi i aðgerðum sinum og sóknarleikurinn fálmkenndur. Staðan i leikhléi var 6:9 fyrir Þrótt. Siðari hálfleikurinn var mun líflegri en sá fyrri, mörg falleg mörk voru skoruð og gifurleg spenna varð á áhorfendapöllunum. Vörn Þróttar, sem verið hafði geysisterk, tók að gliðna og leikmenn KA virtust vakna úr móki þvi sem yfir þeim var framan af. Jafnt var í fyrsta skipti f leiknum á 41. minútu er staðan var 12:12. Siðan mátti sjá 13:13 og 14:14 á markatöflunni, en þá komu tvö Þróttarmörk í röð, staðan varð 14:16. KA tókst samt að jafna aftur á tölunni 17:17, og komst siðan tveimur mörkum yfir, 19:17, og var það í fyrsta skiptið í leiknum sem KA hafði yfir. Voru þá aðeins 5 mínútur til leiksloka og Þróttararnir tóku að örvænta. En dómarar leiksins virtust fyrirfram ákveðnir i þvi hvort liðið ætti að sigra. Þeir vísuðu Haraldi Haraldssyni KA útaf i 2 mínútur og dæmdu að auki vítakast, þegar einn Þróttarinn ruddist á Harald í horninu. Skömmu siðar fékk Þróttur innkast, þegar einn Þróttari sló knöttinn út fyrir hliðarlínu. Með mikilli aðstoð dómaranna komst Þróttur aftur inn i leikinn, en þegar 1 mín. var eftir af leiktimanum hafði KA eitt mark yfir, 21:20. Bjarni Jónsson jafnaði siðan úr vitakasti, 21:21. Lokaminútuna reyndu KA-menn allt sem þeir gátu til að skora og vinna þar með leikinn. Glufa myndaðist á lokasekúndunum og Jóhann Einarsson stökk inn úr hægra horninu. Brotið var gróflega á honum og vitakast virtist sjálfsagður dómur. Tveir menn voru ekki á sama máli og þar sem það voru dómararnir lauk leiknum með jafntefli, og KA er svo gott sem vonlaust um efsta sætið i 2. deild. Miðað við leikinn gegn Þrótti á liðið þó skilið að vera með í baráttunni, því þótt leikurinn væri jafn og spennandi voru heimamenn betri aðilinn og verskulduðu sigur. Þróttur hagnaðist á mjög slælegri dómgæzlu þeirra Ólafs Steingrimssonar og Georgs Árnasonar. Var frammistaða Ólafs sýnu verri, og vakti almenna hneyksl- un, þvi hann hefur hingað til ekki gert sig sekan um svo alvarleg mistök. En það breytir þvi ekki að Þróttarliðið er mjög sterkt og hefur á að skipa mörgum ágætum handknattleiksmönnum. Bjarni Jónsson var að venju harður í vörninni, en var í sókninni i sérstakri gæzlu Harðar Hilmarssonar og hélt sig að mestu við miðlínu. Halldór Bragason stóð sig mjög vel í leiknum og var ásamt Trausta Þorgrimssyni jafnbeztur Þróttaranna. Friðrik Friðriksson var daufur i fyrri hálfleik, en sótti sig þegar á leikinn leið. Einnig var Konráð Jónsson góður í seinni hálfleik og gerði þá þýðingarmikil mörk. ( leik KA-manna voru mikil kaflaskipti eins og reyndar oft áður. Framan af var Það aðeins góð markvarzla Magnúsar Gauta og allgóður varnarleikur sem hélt liðinu á floti. Þegar betur fór að ganga í sóknarleiknum opnaðist vörnin illa og það á miðjunni, þar sem hún hefur verið sterkust áður. Áður hefur verið minnst á þátt dómaranna, Ólafs Steingrímssonar og Georgs Árnasonar i leiknum. Sem dæmi um misræmi í dómum má nefna það, að fjögur mörk voru dæmd af KA vegna þess hve fljótir þeir voru að flauta. En hinum megin var beðið i lengstu lög til að sjá hvort Þrótturum tækist ekki að skora. Mörk Þróttar: Trausti Þorgrímsson 5, Halldór Bragason 4, Friðrik Friðriksson 3, Konráð Jónsson3, Sveinlaugur Kristjánsson 3, Bjarni Jónsson 3 (2 v). Mörk KA: Halldór Rafnsson 7 (5 v), Hörður Hilmarsson 5, Þorleifur Ananías- son 4, Jóhann Einarsson 2, Geir Friðgeirsson 2, Hermann Haraldsson 1. háhá Þór — Þróttur 17-22 FJÖLBRAGÐAGLÍMA var eina orðið yfir þá iþrótt sem sást á sunnudag f leik milli Þórs og Þróttar i 2. deildar keppninni í handknattleik. Var furðulegt hvað dómarar leiksins létu leikmenn komast upp með af bolabrögðum og fautaskap. Upphafið var þannig að dómgæzlan var Þrótti mjög i hag og liðið náði góðri forystu i leiknum. Hvort tveggja fór i taugarnar á skapmiklum Þórsurum og þeir tóku að ganga allóþyrmilega í skokk á leikmönnum Þróttar. Þegar það var látið gott heita tóku Þróttarar vel á móti og útkoman var mjög grófur leikur sem liktist samblandi af hnefaleikum og fjölbragðaglímu, frekar en handknattleik. Annars var gangur leiksins þannig að Þór skoraði fyrsta markið og var það i eina skiptið sem heimamenn voru yfir. Leikurinn var jafn fyrstu 10 mínúturnar, en þá breyttist staðan á 7 minútum úr 3—4 í 4—10. Var Friðrik Friðriksson aðaldriffjöður i leik Þróttar þennan góða kafla. Næstu minútur skiptust liðin á að skora og var staðan að hálf leiknum loknum 9—15. Það var gjörbreytt Þórslið sem hóf siðari hálfleikinn. Bjarni Jónsson var „tekinn úr yfirfrakkanum" sem hann hafði á sér i fyrri hálfleik. í þess stað þéttu Þórsarar vörnina og léku sóknina yfirvegað. Munurinn tók að minnka og á 40. mínútur var hann kominn niður í þrjú mörk, 14—1 7. Um miðjan hálfleikinn var staðan 14—19, en þá kom góður kafli hjá Þór, þrjú mörk i röð og staðan varð 17—19, þannig að allt virtist geta gerst. Þá fékk Árni Gunnarsson knöttinn i góðu færi og hafði möguleika á að minnka muninn í eitt mark. En aldrei þessu vant mistókst Árna, skotið fór i stöng. Við þetta efldust Þróttarar en að sama skapí dofnaði yfir Þór. Síðustu 10 minútur leiksins voru aðeins gerð 3 mörk og öll af leikmönnum Þróttar, þannig að úrslit leiksins urðu Þróttarsigur 1 7—22. Þar með eru Þórsarar búnir að missa möguleikann á að endurheimta 1. deildar sætið. Að visu voru þeir ekki bjartsýnir á árangurinn i vetur, en hafa verið með í toppbaráttunni allt til þessa. Sú ráðstöfun Hreiðars Jónssonar, þjálfara Þórs, að láta taka Bjarna Jónsson úr umferð gaf ekki góða raun. Þórsliðið hefur yfirleitt leikið það góðan varnarleik, að það hefur ekki þurft að gripa til þess að taka menn úr umferð, enda opnaðist vörn liðsins illa i fyrri hálfleik, þegar „senterinn" vantaði til að trufla sóknarleik andstæðinganna. f siðari hálfleik var vörnin hins vegar mjög góð, að visu alltof harðleikin, en er það ekki ágæt regla að leika alltaf jafn fast og dómararnir leyfa? Aðalsteinn Sigurgeirsson var beztur Þórsara í leiknum, rólegur og yfirvegaður leikmaður og jafnan beztur þegar mest á reynir. Þorbjörn Jensson er alltaf hættulegur, en að þessu sinni var miðið ekki alveg í lagi og fóru mörg skota hans forgörðum. Árni Gunnarsson og Gunnar Gunnarsson börðust vel á línunni, stundum um of að manni fannst. Úskar Gunnarsson var og góður i sókn og vörn, en getur mun meira en hann hefur sýnt í vetur. Friðrik Friðriksson átti beztan leik i liði Þróttar á sunnudaginn, ákaflega lipur leikmaður með óvenjulega snögg skot. Bjarni Jónsson átti og mjög góðan leik i vörn og einnig i sókn, þar sem hann naut frelsisins í seinni hálfleiknum. Þá var Halldór Bragason góður í fyrri hálfleik, en hvarf i þeim siðari, og Kristján Sigmundsson markvörður vakti athygli fyrir góðar hreyfingar. Er þar mikið efni á ferð. Leikinn dæmdu þeir Ólafur Steingrímsson og Georg Árnason. Er erfitt að lýsa frammistöðu þeirra með orðum, en vist er að þeir eru ekki og verða sennilega ekki ofarlega á vinsældalista Akureyringa á næstunni. Mörk Þróttar: Bjarni 7 (4v), Friðrik 6, Halldór 4, Gunnar Gunnarsson 2, Björn Vilmundarson 1, Jóhann Frimannsson 1, Trausti Þorgrimsson 1. Mörk Þórs: Aðalsteinn 5 (2v), Árni 3, Þorbjörn 3, Gunnar 2, Óskar 2, Benedikt 1, Jón Sigurðsson 1. ha.há Armann setti óvænt strik í reikninginn EFTIR úrslitin f leik Ármanns og Vals f 1. deildar keppni Islands- mótsins í handknattleik f fyrra- kvöld er óhætt að sláþví föstu að allt virðist geta hent f yfirstand- andi móti. Ármenningar voru hinir öruggu sigurvegarar leiks- ins. Höfðu f honum forystu svo að segja frá byrjun, og leiddu með fimm mörkum þegar um 5 mfnút- ur voru til leiksloka. Þó svo að Valsmenn „keyrðu á útopnuðu“ þessar sfðustu mfnútur, megnuðu þeir ekki að gera annað en að höggva örlítið í forskot Armenn- inganna. 19:16 urðu úrslit leiks- ins — þau óvæntustu f mótinu til þessa, jafnvel þótt leikur lR og FH á dögunum sé meðtalinn. Að undanförnu hefur Valsliðið fengið mikið hrós fyrir leiki sína, og flestir hafa verið sammála um að þar væri á ferðinni bezta liðið i 1. deildar keppninni. Á sunnu- dagskvöldið komberlegaíljós að veldi Valsmanna stenður ekki á eins traustum grunni og margur hafði haldið. Það réð úrslitum að Ólafur H. Jónsson virtist aldrei finna sig í leiknum, og þar með var ekki nema hálfur kraftur í Valsliðinu, og mikið um mistök. Þegar þetta fór saman við það að Ármenningar náðu nú sinu allra bezta, gátu úrslitin ekki orðið nema á einn veg. Eftir að Björn Jóhannesson, sá leikmaður Ármannsliðsins sem hefur verið helzta kjölfesta þess í vetur, fingurbrotnaði á æfingu fyrir skömmu og var þar með úr Ieik, áttu fæstir von á því að Ár- mannsliðið myndi gera eftir það miklar rósir í mótinu. Raunar mátti liðið vel við sinn hlut una þegar, þar sem margur hafði orð- ið til þess að spá því í mótsbyrjun að það yrði að berjast á botninum. En i leiknum í fyrrakvöld sýndu Ármenningar það, að þeir verð- skulda alveg eins að berjast um Islandsmeistaratitilinn. Liðið, sem var að langmestu leyti skipað kornungum leikmönnum, lék prýðisgóðan handknattleik, og vörn þess varð eins og hún hefur verið bezt i vetur, og þar með markvarzla Ragnars, sem virðist vera í réttum hlutföllum við bar- áttu varnarinnar. Valsliðið sem boðið hefur upp á tiltölulega fjöl- breyttan og skemmtilegan sóknar- leik komst hreinlega ekkert áleið- is gegn Ármannsvörninni, og má vel vera að skýringin á því að Óiafur H. Jónsson komst aldrei í gang hafi verið sú, að strax i upp- hafi gættu Ármenningarnir hans sérstaklega vel, án þess þó að taka hann úr umferð. Og allan tímann barðist Ármannsvörnin af sama krafti og dugnaði. Þar var aldurs- forseti liðsins, Hörður Kristins- son, fremstur í flokki, en það var ekki oft í þessum leik, sem honum urðu á mistök. Sóknarleikur Ármenninga er einnig orðinn miklu kraftmeiri en hann var. Kemur þar til að leik- menn eins og Hörður Harðarson og Jens Jensson eru að öðlast meiri leikreynslu og trú á getu sina. Stundum fannst manni þó um oftrú að ræða, sérstaklega hjá Jens, sem taldi afar oft nauðsyn- legt að reyna skottilraun þegar hann var með knöttinn. En hvað um það. Piltinum heppnaðist oft það sem hann ætlaði sér, tókst að snúa á Valsvörnina og skoraði lag- leg mörk. Hörður hefur aftur á móti meiri yfirvegun. Hann er mjög kraftmikiil, og getur skotið með ólíkindum fast. Var ekki nema að vonum að Valsmenn tóku hann úr umferð i seinni hálf- leiknum. Við það komst nokkurt los á Ármannsliðið, en eftir nokkra stund náði það þó að róast, og eftir það var ekki að sjá að það Einar Magnússon er þarna kominn f uppáhaldsskotstellingu sína og andartaki síðar hafnar knötturinn i Frammarkinu. Pálmi (nr. 13) oe Pétur (nr. 8) eru til varnar. Jens Jensson f baráttu við Valsvö honum, en bak við Jens eru þeir hefði mikið að segja þótt Hörður fengi yfirfrakka. Aðrir tóku þá til við að skora. Sem fyrr greinir virðist það sem háði Valsliðinu fyrst og fremst í þessum leik, að Ólafur H. Jónsson var ekki í sínum bezta ham. Hann reyndi töluvert að skjóta til að byrja með, en bæði var að hann hitti illa og Ármanns- vörnin náði skotum hans um leið og þau riðu af. Það var því ekki fyrr en 4 mínútur voru til leiks- loka að Ólafur skoraði sitt fyrsta mark í þessum leik, sem teljast verður óvenjulegt. Þá loksins var tónninn gefinn, og Valsmenn náðu upp krafti sínum. En það var bara um seinan. Nú hefur það verið þannig, þeg- ar Ólafur hefur verið tekinn úr umferð í leikjum Vals, þá hafa aðrar skyttur liðsins magnast og skilað hlutverki sinu meó ágæt- um. Að þessu sinni fylgdu þeir Gisli Blöndal og Guðjón Magnús- Víkini; og sig, Þegar saman fer góður varnar- leikur og slakur sóknarleikur f handknattleik er þess varla að vænta að margt sjáist sem gleður verulega augað. Svo var heldur ekki f leik Víkings og Fram í 1. deildar keppninni á sunnudags- kvöldið f Laugardalshöllinni. Lengst af kom leikur þessi fyrir sem hálfgert hnoð og meiri hluti markanna sem í honum voru skoruð kom eftir mikil umbrot og átök. Höfðu Vfkingarnir betur í þessari viðureign og halda því enn stöðu sinni á toppnum í 1. deildinni, hafa tapað einu stigi minna en það lið sem næst kem- ur, FH. Og eftir tap Valsmanna fyrir Ármenningum á sunnudags- kvöldið er ekki þvi að neita að Víkingarnir eru mjög sigur- stranglegir I mótinu að þessu sinni, þó að enn sé reyndar það mikið eftir af því að óhugsandi sé að spá neinu um úrslit. Eiga Vík- ingar t.d. bæði eftir að leika við Val og FH og það verða sennilega mjög erfiðir leikir fyrir liðið — miklu erfiðari en lcikurinn við Fram var á sunnudagskvöldið. Þvi verður ekki á móti mælt að bæði Víkingur og Fram léku mjög góðan varnarleik að þessu sinni. Baráttan var mikil, og hættuleg- ustu sóknarmannanna gætt hvert fótmál. Það var aðeins einstöku sinnum sem Framarar slökuðu á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.