Morgunblaðið - 18.02.1975, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRUAR 1975
21
rnina. Jóhann Ingi kemur á móti Hörður Kristinsson. Á lfnunni gætir Ölafur H. Jónsson að Jóni
Jón Pétur, Stefán Gunnarsson og Astvaldssyni.
son Ólafi niður í öldudalinn. Gisli
var nokkuð friskur til að byrja
með, en tók svo allt i einu upp á
því, sem hann hefur stundum ver-
ið gagnrýndur fyrir, að leika of
mikið inn í vörnina, en út úr þvi
kom sjaldnast annað en það að
Valsmenn fengu aukakast. Stefán
Gunnarsson var eini Valsmaður-
inn sem barðist af sama krafti og
áður i þessum leik, og reyndi stöð-
ugt að „blokkera“ fyrir skytturn-
ar. Greinilegt var þó að Ármenn-
ingar vissu vel hvað til stóð og
gáfu fyrirfram ákveðin svör. Við
raunir Valsmannanna bættist svo
að markverðir liðsins, Ólafur
Benediktsson og Jón B. Ólafsson
voru hvorugur i góóu formi, gagn-
stætt þvi sem var með Ragnar
Gunnarsson í Ármannsmarkinu,
sem varði oft með miklum ágæt-
um, sérstaklega þegar mest á
reyndi. Þegar Valur hafði t.d.
minnkað muninn niður í tvö mörk
og 13 mínútur voru til leiksloka,
lokaði Ragnar markinu og varði
hin erfiðustu skot hvað eftir ann-
að, á meðan félagar hans skoruóu
þrjú mörk i röð á Val. Þar með
mátti segja að gert væri út um
leikinn.
Með þessum sigri eygir Ármann
smámöguleika á verðlaunasæti i
mótinu og víst er að ekkert lió
getur bókað sér sigur á móti lið-
inu fyrirfram. Þó svo að Ármenn-
ingar hljóti ekki verðlaun að
þessu sinni, er óhætt að gera því
skóna að þetta lið muni blanda
sér alvarlega í toppbaráttuna þeg-
ar á næsta keppnistímabili, ef
piltarnir sem það skipa, halda
jafnvel saman og þeir gera nú.
Það hlýtur alla vega að vera dýr-
mætt veganesti fyrir liðið, að vera
búið að fá sönnun þess að það
getur staðið beztu íslenzku hand-
knattleiksliðunum á sporði — og
velþað. — stjl.
LIÐ ÁRMANNS: Ragnar Gunnarsson 4, Stefán Hafstein 2,
Gunnar Traustason 1, Hörður Harðarson 3, Pétur H. Ingólfsson
2, Jón Ástvaldsson 2, Jens Jensson 3, Hörður Kristinsson 3,
Kristinn Ingólfsson 2.
LIÐ VALS: Ölafur Benediktsson 2, Bjarni Guðmundsson 1,
Jóhann Ingi Gunnarsson 1, Gísli Blöndal 2, Steindór Gunnars-
son 1, Gunnsteinn Skúlason 2, Stefán Gunnarsson 3, Agúst
Ögmundsson 1, Ölafur H. Jónsson 2, Jón P. Jónsson 2, Guðjón
Magnússon 2.
iar héldu sínu striki
ruðu Framara 17-15
árvekni sinni gagnvart Einari
Magnússyni, og var þaó þeim
mjög afdrifaríkt. Einar kann vel
að notfæra sér það frelsi sem
býðst og í þessum leik var það
hann sem réð úrslitum með fall-
egum mörkum sinum í fyrri hálf-
leik og i byrjun seinni hálfleiks.
Sóknarleikur Vikinganna virk-
ar hins vegar ekki eins lifandi og
ógnandi um þessar mundir og
hann var fyrst i haust. Má vera að
það stafi af því að Stefán Hall-
dórsson nær ekki uppi sama
kraftinum og verið hefur að und-
anförnu, en hann hefur haldið
spili Víkingsliðsins vel í gangi,
ásamt Páli Björgvinssyni, sem var
einnig óvenjulega daufur i þess-
um leik. Á móti kom hins vegar að
Viggó Sigurðsson, sem lítið hefur
leikió með Vikingunum vegna
farvista úr borginni í vetur, kom
með ágætum frá leiknum og
þjarmaði vel að Framvörninni. Þá
var Jón Sigurðsson einnig hættu-
legur Fram í þessum leik, en jafn-
framt því að standa sig vel í sókn-
arleiknum voru þeir bræóur
Viggó og Jón veikustu hlekkirnir
í annars mjög góðri vörn hjá Vík-
ingunum. Sá varnarleikmaður
sem mesta athygli vakti hjá Vik-
ing í þessum leik var hinn há-
vaxni Magnús Guðmundsson.
Hann kann með ágætum að leika
vörn, og þegar þessi piltur hefur
lært jafnvel á sóknarleikinn og
öðlast meiri líkamlegan þroska,
ætti hann að geta komist i
fremstu röð handknattleiks-
manna.
Framarar eiga greinilega vió
einhver vandamál aó strióa um
þessar mundir, og léku t.d. ekki
tveir af hinum föstu leikmönnum
liðsins i vetur, Guðjón Erlendsson
og Guómundur Sveinsson með að
þessu sinni, einhverra hluta
vegna. Hins vegar var Sigurberg-
ur Sigsteinsson nú með eftir
nokkrar fjarvistir vegna meiðsla
og þótt hann ætti engan stjörnu
leik að þessu sinni, er ekki að efa
að hann mun styrkja verulega
Framliðið á næstunni.
Þetta ár verður sennilega að
teljast millibilsár hjá Fram, enda
varla von á öðru eftir þær miklu
breytingar sem orðið hafa á liðinu
frá því í fyrra. Nýir leikmenn eru
að koma inn, og sumir þeirra gefa
ágæt fyrirheit, eins og t.d. Kjart-
an Gislason gerði í þessum leik.
Hann var einna atkvæðamestur
Framaranna í leiknum og sýndi
mikla harðfylgni í sókn og vörn.
Þeir piltar sem hafa skorað mest
af mörkum fyrir Framliðið í und-
angengnum leikjum: Stefán Þórð-
arson og Hannes Leifsson voru
hins vegar í daufara lagi, enda
fengu þeir lítinn frið fyrir
ákveðnum varnarmönnum Vík-
inganna. Þegar á heildina er svo
litið var spil Framliðsins of
þröngt i þessum leik,— það var of
mikið ofan í vörninni hjá and-
stæðingunum og slikt gaf tilefni
til óþarfa umbrota og átaka. Þeg-
ar slíkt verður er erfitt að dæma
leiki, og verður ekki sagt að þeir
Magnús V. Pétursson og Óli Olsen
hafi sloppiö vel frá því hlutverki
að þessu sinni. 1 stað þess að
greiða úr flækjunni hertu þeir
einungis á hnútnum, og margir
dómar þeirra orkuðu mjög tví-
mælis. Ekki verður þó sagt að
mistök þeirra hafi bitnað á öóru
liðinu hinu fremur, en slíkt er
auðvitað aðalatriðið í dómgæzlu.
LIÐ VlKINGS: Sigurgeir Sigurðsson 3, Magnús Guðmundsson 3,
Jón Sigurðsson 2, Einar Magnússon 3, Skarphéðinn Öskarsson 2,
Sigfús Guðmundsson 1, Páll Björgvinsson 2, Erlendur Her-
mannsson 2, Stefán Halldórsson 1, Þorbergur Aðalsteinsson 2,
Viggó Sigurðsson 3.
LIÐ FRAM: Jón Sigurðsson 1, Stefán Þórðarson 2, Sigurbergur
Sigsteinsson 2, Pétur Jóhannesson 2, Arnar Guðlaugsson 2,
Guðmundur Þorbjörnsson 2, Kjartan Gíslason 3, Þorgeir Pálsson
2, Pálmi Pálmason 2, Hannes Leifsson 2.
UBK - KR 20 -23
KR-ingar áttu fullt f fangi með Breiðablik, er liðin mættust I 2. deildar
keppni Islandsmótsins 1 handknattleik í Iþróttahúsinu Asgarði í Garða-
hreppi á sunnudaginn. Allan fyrri hálfleikinn var Breiðablik sterkari
aðilinn í leiknum og hafði forystu 1 mörkum (11—10), en þegar skammt
var liðið af seinni hálfleiknum náði KR sfnum langbezta kafla í leiknum,
lék þá með miklum ágætum bæði i sókn og vörn og tryggði sér sigurinn
með þvf að skora sex mörk f röð. I þessum leikkafla sínum sýndu
KR-ingar að þeir bæði kunna og geta leikið góðan handknattleik ef sá
gállinn er á liðinu, en hins vegar virðist of mikið óöryggi vera f leik
liðsins. Má vera að það hafi að þessu sinni stafað af þvf að þeir hafi talið
sér sigur f þessum leik algjörlega vfsan, og mótspyrnan komið þeim á
óvart.
Það verður að teljast næsta furðulegt að Breiðabliksliðið skuli ekki
hafa hlotið nema tvö stig f 2. deildar keppninni til þessa. Liðið leikur
bærilegan handknattleik.og f þvf eru sterkir einstaklingar, enginn þó eins
og Hörður Már Kristjánsson, sem er bráðefnilegur piltur, skotfastur f
meira lagi, og vel skotviss'. Reyndist hann KR-ingum erfiður f þessum leik
og skoraði 8 mörk. Bar hann af f Breiðabliksliðinu, en auk hans áttu þeir
Diðrik Ölafsson, Kristján Gunnarsson og markvörðurinn, Marteinn Árna-
son, góðan leik.
KR-liðið var ekki upp á marga fiska til að byrja með, og gerði hver
mistökin af öðrum. Eftir að betur fór að ganga náði liðið hins vegar meiri
yfirvegun, og sannaði að það getur leikið vel. 1 þvf eru leikreyndir
handknattleiksmenn, og slíkt getur orðið notadrjúgt þegar á þarf að
halda. Haukur Ottesen var bezti einstaklingur KR-liðsins í þessum leik,
en auk hans er einnig ástæða til þess að hrósa Pétri Hjálmarssyni
markverði og Birni Blöndal, sem gerði stundum Ijómandi laglega hluti f
leiknum.
Mörk UBK: Hörður Már Kirstjánsson 8 (1 v), Kristján Gunnarsson 3,
Magnús Steinþórsson 2, Páll Eyvindsson 2, Diðrik Ölafsson 2, Valdimar
Bergsson 1, Valdimar Valdimarsson 1, Steinþór Steinþórsson 1.
Mörk KR: Haukur Ottesen 6 (1 v), Hilmar Björnsson 5 ( 4 v), Þorvarður
Guðmundsson 4, Björn Blöndal 3, Bogi Karlsson 2, Ævar Sigurðsson 1,
Ingi Steinn Björgvinsson 1, Ingólfur Óskarsson 1.
Þórir Ulfarsson og Ingvar Viktorsson dæmdu leikinn vel.
— stjl.
Guðmundur Ingvason reynir markskot í leik Stjörnunnar og Fylkis.
Fylkir — Stjarnan 23-16
Líklegt má telja að dagar Stjörnunnar úr Garðahreppi í 2. deild karla
séu taldir eftir tap gegn Fylki á sunnudagskvöld. Það er þó staðreynd að
Stjörnunni hefir farið mjög fram eftir að þeim skapaðist æfingaaðstaða
með tilkomu hins nýja íþróttahúss f Garðahreppi, Ásgarðs.
1 fyrri hálfleik hafði Fylkir ávallt yfir, þó tókst þeim aldrei að stinga
Stjörnuna alveg af. I leikhléi var staðan 10 mörk gegn 8 fyrir Fylki.
Krafturinn f Fylki var mun meiri í síðari hálfleik. Þeir náðu fljótt
yfirburðastöðu, t.d. var staðan 19—11 þegar um 15 mín. lifðu af leiknum.
Lyktirnar urðu síðan þær að Fylkir skoraði 23 mörk gegn 16 Stjörnunnar.
Það má raunar segja það sama um Fylki og Stjörnuna að liðinu liefir
farið mjög fram frá í haust. Liðið er mjög jafnt, engir veikir hlekkir og
baráttan í góðu lagi. Sem fyrr eru það þó Einararnir, Einarsson og
Ágústsson sem standa upp úr. Þá er Sigurður Símonarson og mjög
vaxandi leikmaður.
Eins og fyrr getur hefir lið Stjörnunnar tekið miklum framförum.
Flestum leikmönnunum hefir vaxið mjög kunnátta og leikni. Það fer þó
ekki á milli mála að Gunnar Björnsson er sá sem af ber. Þar fer
leikmaður sem flestum liðum gæti að gagni komið.
Leikinn dæmdu Eysteinn Guðmundsson og Kjartan Steinbaek og gerðu
það vel.
Mörkin. Fylkir: Einar Einarsson 9, Sigurður Símonarson og Einar
Ágústsson4 hvor, Steinar Birgisson og Birgir Guðjónsson 3 hvor.
Stjarnan: Gunnar Björnsson 11 (3 v), Jón Jörundsson 3, Guðfinnur
Sigurðsson 2 og Arni Árnason eitt mark. Sigb. G.
2. DEILD