Morgunblaðið - 18.02.1975, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRUAR 1975
Rækjumálið:
Verjandinn krefst þess
að dómendur víki sæti
Sjávarútvegsráðherra ekki kvaddur fyrir dóminn
RÉTTAHALDI I rækjumálinu
svonefnda var framhaldið í gær I
húsakynnum bæjarfögetaem-
bættisins I Hafnarfirði. Þar var
kunngerður úrskurður dómenda f
málinu þar sem synjað er að
verða við kröfu verjenda um að
sjávarútvegsráðherra verði
kvaddur fyrir döminn sem vitni.
Að ósk Benedikts Blöndal hrl.
hefur hann verið leystur undan
þvf að verða áfram verjandi
ákærða f málinu, þ.e. Ámunda
Grétars Jónssönar skipstjóra á
m.b. Nökkva HU 15, og hefur Ott-
ar Yngvason hdl. verið skipaður
verjandi I hans stað.
Verjandinn, Ottar Yngvason,
hefur kært til Hæstaréttar form-
lega meðferð úrskurðar dómenda
og efnislega niðurstöðu hans, þ.e.
úrskurðarins um að ráðherra
verði ekki kvaddur fyrir dóminn.
Þá kom fram sú krafa verjanda
við réttarhaldið í gær, að dómend-
ur vikju sæti I málinu. Munu dóm-
endur kveða um það úrskurð í
dag, þriðjudag, hvort þeir skuli
víkja sæti í málinu eða ekki, að
sögn Sigurðar Halls Stefánssonar,
setudómara í málinu. Ef niður-
staða dómendanna verður sú, að
þeir víki ekki, getur verjandinn
einnig kært þann úrskurð til
Hæstaréttar, og verður réttar-
höldum í málinu þá ekki fram-
haldið fyrr en úrskurður Hæsta-
réttar liggur fyrir.
Sem fyrr segir er Sigurður Hall-
ur Stefánsson settur dómari í mál-
inu, en meðdómendur Guðmund-
ur Guðmundsson og Þorsteinn
Einarsson báðir fyrrverandi skip-
stjórar. Við réttarhaldið í gær
voru einnig viðstaddir Þórður
Björnsson, saksóknari ríkisins, og
verjandinn Ottar Yngvason.
Loðnuveiðin:
Börkur NK í efeta sæti
SAMKVÆMT skýrslum Fiskifé-
lags Islands fengu 98 skip afla I
vikunni og nam vikuaflinn sam-
tals 57.927 lestum. Vitað er að 102
skip hafa fengið einhvern afla frá
byrjun vertlðar og var heildar
aflinn s.l. laugardagskvöld orðinn
samtals 152.883 lestir.
I síóustu viku urðu þau leiðu
mistök í tilkynningu landaðs
magns loðnu á Raufarhöfn að
niður féllu af skýrslu samtals
4.979 lestir og hefur það nú verið
leiðrétt.
A sama tíma i fyrra var heildar-
aflinn samtals 241.205 lestir og þá
höfðu 133 skip fengið einhvern
afl a.
Aflahæsta skipið í vikulokin
var m/b Börkur NK 122 með sam-
tals 4.273 lestir. Skipstjórar eru
bræðurnir Sigurjón og Hjörvar
Valdimarssynir.
Loðnu hefur verið landað á 17
stöðum á landinu auk bræðslu-
skipsins Nordglobal. Mest hefur
verið landað í Vestmannaeyjum
eða samtals 26.027 lestir.
Meðfylgjandi er skýrsla yfir
þau skip er fengið höfðu 1000
lestir eða meira svo og skýrsla
yfir löndunarstaði:
NAFN SKIPS ' MAGN (lestir)
Börkur NK 4273
Gísli Árni RE 4132
Sigurður RE 4056
Helga Guðmundsdóttir BA 3630
Ásberg RE 3505
Rauðsey AK 3448
Eldborg GK 3334
Pétur Jónsson KÓ 3310
Súlan EA 3147
Loftur Baldvinsson EA 3091
Asgeir RE 3021
Guðmundur RE 3005
Gullberg VE 2999
Þorsteinn RE 2984
Fífill GK 2934
Örn KE 2804
Hilmir SU 2789
FaxaborgGK 2786
Grindvíkingur GK 2774
Óskar Magnússon AK 2755
Reykjaborg RE 2694
Jón Finnsson GK 2680
Héðinn ÞH 2662
Hrafn Sveinbjarnarson GK 2454
Heimir SU 2433
Magnús NK ' 2200
Albert GK 2182
Skírnir AK 2181
Höfrungur III AK 2169
Þórður Jónasson EA 2151
Sæberg SU 2123
Harpa RE 2069
Náttfari ÞH 2034
Dagfari ÞH 2028
Halkion VE 1958
Óskar Halldórsson RE 1905
JárngerðurGK 1856
Isleifur VE 1840
Myjld Sigurgeir
LOÐNAN — Ásgeir, RE 60, siglir
inn á Vestmannaeyjahöfn með
vænan slatta af loðnu.
Bjarni Ólafsson AK 1827
JónGarðarGK 1727
Sveinn Sveinbjörnsson NK 1564
Svanur RE 1535
Sigurbjörg ÓF 1515
Sandafell GK 1406
Víðir NK 1382
Helga II RE 1372
Keflvíkingur KE 1302
Ljósfari ÞH 1297
Ólafur Sigurðsson AK 1287
Hafrún ÍS 1268
Árni Magnússon SU 1205
Skógey SF 1203
Ársæll KE 1162
Arsæll Sigurðsson GK 1161
Álftafell SU 1048
Faxi GK 1041
Víóir AK 1032
Þjóðleikhúsið
í Aratungu
Skálholti 17. feb.
LEIKFLOKKUR Þjóðleikhússins
sýndi leikritið Hvernig er
heilsan? eftir Kent Anderson og
Bengt Bratt I Aratungu sl. föstu-
dagskvöld. Verkið er margslung-
ið, bitur og markviss þjóðfélags-
ádeila, alvarleg en þó skopleg,
gefur áhorfandanum ótal um-
hugsunarefni, sem hægt væri að
skrifa um langt mál. Meðferð
leikaranna I hlutverkum sínum
er slík snilld, að leikhúsgestum
hlýtur að renna til rifja að sjá
þetta blessaða, volaða fólk á geð-
veikrahælinu. Leikstjórn Sig-
mundar Arnar Arngrlmssonar er
bæði frumleg og glæsileg. Að
leikslokum voru þessir kær-
komnu gestir hylltir lengi og
ínnilega.
I gærkvöldi sýndi svo Leikfélag
Selfoss Sjö stelpur og fyrir stuttu
voru hér tvær leiksýningar,
Hrunamenn með Húsfreyjuna i
Hruna eftir Gunnar Benediktsson
og Gnúpverjar með gamanleikinn
Saklausa svallarann. Að makleg-
heitum hefur þetta áhugafólk og
leikstjórar, sem leggur nótt við
dag til að allt megi takast sem
bezt, fengið mjög góða dóma og
allgóða aðsókn.
— Björn.
Stofnuð ísafjarðardeild
Félags einstœðra foreldra
N.K. laugardag, þann 22. febrúar,
verður stofnuð Isafjarðar deild
Félags einstæðra foreldra og
verður stofnfundurinn haldinn í
Húsmæðraskólanum Ósk kl. 5 sið-
degis. Einstæðir foreidrar á Isa-
firði, Súðavík og I Bolungarvík og
nágrannabyggðum hafa rétt til
aðildar. Sömuleiðis eru þeir sem
félagsskapinn vilja styrkja með
þvi að gerast styrktarfélagar vel-
komnir á fundinn. Jóhanna
Kristjónsdóttir, form. Félags ein-
stæðra foreldra, mun koma á
stofnfundinn.
Unnið hefur verið að undir-
búningi félagsstofnunarinnar um
hríð og var fyrir nokkrum dögum
haldinn kynningarfundur og var
þátttaka góð og áhugi mikill.
Mættu þar um 25—30 manns, en á
þessu svæði eru að líkindum um
50 einstæðir foreldrar með for-
ræði barna sinna.
Að undirbúningi hafa unnið
Ásthildur Þórðardóttir, Bjarndís
Friðriksdóttir, Bára Guðmunds-
dóttir og Þyri Simonardóttir.
Batnandi sambúð
Breta ogRússa
eftir för Wilsons
Moskvu, 17. febrúar.
AP. Reuter
HAROLD Wilson forsætisráð-
herra sagði að loknum fimm
daga viðræðum við sovézka
ráðamenn i dag að nýtt timabil
væri hafið I samskiptum Breta
og Rússa en þau hafa verið
kuldaleg sfðan Bretar ráku úr
landi rúmlega 100 sovézka
sendiráðsmenn fyrir rúmum
þremur árum.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum er líklegt að Leonid
Brezhnev flokksforingi komi til
Bretlands á næstunni og endur-
gjaldi heimsókn Wilsons en
enn er ekki vitað hvenær af
þeirri heimsókn getur orðið.
Foringi sovézka kommúnista-
flokksins hefur aðeins einu
sinni heimsótt Bretland, en það
var þegar Nikita Krúsjeff kom
þangað í fylgd með Bulganir.
forsætisráðherra 1956.
Wilson, Brezhnev og Alexei
Kosygin forsætisráðherra und-
irrituðu i dag fimm samninga,
þar á meðal saming um að leið
togar Breta og Rússa hittust
reglulega til skrafs og ráða-
gerða. Þar með komast sam-
skipti Breta og Rússa á sama
grundvöll og samskipti Rússa
við Bandaríkjamenn, Vestur-
Þjóðverja og Frakka.
Samningar voru einnig gerðir
um aukin viðskipti og Wilson
sagði á blaðamannafundi, að
þeir gætu markað þáttaskil á
því sviði, hin mestu sem hann
vissi um. I lokayfirlýsingu var
lýst yfir þeim ásetningi að auka
viðskipti landanna.
Gert er ráð fyrir samvinnu i
vísindum og tækni og í efna-
hagsmálum og iðnaðarmálum í
tveimur samningum sem voru
gerðir og eru líkir samningum
sem Rússar hafa gert við
Frakka og Itala. Jafnframt var
undirrituð yfirlýsing um stuðn-
ing við samninginn um bann
við útbreiðslu kjarnorkuvopna
og framkvæmd hans.
1 hádegisverðarboði sem Wil-
son hélt sagði Kosygin að þetta
hefði „svo sannarlega verið
söguleg heimsókn“ í sambúð
Breta og Rússa.
A blaðamannafundi sínum
sagði Wilson að víðtækur lána-
samningur sem hefði verið
gerður mundi auka atvinnu í
Bretlandi. Lánin nema tæpum
einum milljarði punda og eru
til fimm ára.
Fréttaritarar segja að Rússar
hafi talið Breta hafa minni
áhuga á batnandi sambúð aust-
urs og vesturs en aðrar vest-
rænar þjóðir en Wilson hafi
breytt þessari skoðun sovézkra
ráðamanna.
I lokayfirlýsingunni segir, að
„virkar og ákveðnar tilraunir
allra rikja“ séu forsenda batn-
andi sambúðar. Hvatt er til þess
að öryggisráðstefna Evrópu
verði kölluð saman sem fyrst.
Bæði rikin telja að friðarráð-
stefna Araba og Israelsmanna í
Genf eigi að koma aftur saman
sem fyrst.
Sadatá leiðtoga-
fund í Jórdaníu?
Kairó 17. febrúar.Reuter
ANWAR Sadat, Egyptalands-
forseti, mun í þessari viku fara
í fyrstu heimsókn egypzks for-
seta til Jórdaníu i þeim til-
gangi að sameina Arabaríkin I
afstöðunni til friðarumleitana I
Miðausturlöndum, að því er
áreiðanlegar heimildir í Kairó
hermdu I dag. Er búizt við, að
Sadat muni hvetja Hussein
konung til að mæta I Genf ef
friðarráðstefnan kemst í gang á
ný, ásamt fulltrúum Palestínu-
manna, en hingað til hefur
Hussein ekki viljað viðurkenna
þátttökurétt þeirra. Herma
heimildir að til fundarins I
Jórdaníu kunni að koma Assad,
Sýrlandsforseti, og leiðtogar
frá Irak, Kuwait og hugsanlega
Saudi-Arabíu.
Þá er búizt við, að fundurinn
muni ræða landamæradeilur
íraks við Iran, Kuwaits og
Saudi-Arabíu. Heimildir i
Beirut sögðu, að Sadat væri
væntanlegur til Amman á
fimmtudag og yrði i Jórdaníu i
fjóra daga. Dagblað í Beirut
sagði hins vegar að hann yrði
aðeins einn dag i Amman, en
myndi síðan halda til Bagdad í
fyrstu heimsókn egypzk forseta
til höfuðborgar Iraks. Sadat
mælti í gær með því að frióar-
ráðstefnan í Genf hæfist að
nýju.
Kambódíuher hörf-
ar frá Mekonganni
Phnom Penh,
17. febrúar — AP.
HERSVEITIR Kambódíu-
stjórnar hafa algerlega vfir-
gefið allar vfgstöður sfnar við
meðri bakka Mekong-árinnar,
um 40 mflum suðaustur af
Phnom Penh og f bili hætt við
tilraunir til að opna umferð um
ána að nýju, að þvf er heimildir
innan hersjns segja. 1 sfðustu
viku hóf stjórnarherinn við-
tækar heraðgerðir á þessu
svæði, en beið mikið afhroð.
Hernaðarsérfræðingur einn
segir að úr þvf sem komið er
ráði stjórnin tæpast yfir þeim
herafla sem þarf til að opna
umferð um ána að nýju. Mek-
ong-áin er afar mikilvægur
hlekkur f öryggi höfuðborgar-
innar Phnom Penh.
Þrátt fyrir það, að hernaðar-
staða stjórnarinnar sé nú erfið
hefur henni ekki tekizt að
vekja áhuga almennings á þörf
fyrir aukinn mannafla í herinn.
Framhald á bls. 39
AP-mynd
Innan við 200 mílur ...
Þessi sovézki togari innbyrðir
afla sinn utan 12 milna mark-
anna undan New York. Gufu-
strókurinn bendir til þess að
verið er að vinna að fiskinum.