Morgunblaðið - 18.02.1975, Síða 40
fll0rgfttI>M>i}>
nucivsincnR
22480
fWörstmi'lníiib
RUClVSinCflR
^-«22480
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1975
Færeysk samninga
nefnd væntanleg
Atli Dam lögmaður formaður nefndarinnar
FRÉTTAMAÐUR færeyska út-
varpsins á fundi Norðurlandaráðs
f Reykjavfk, Jogvan Arge skýrði
Morgunblaðinu svo frá f gær-
kvöldi, að á miðvikudaginn þ.e.
á morgun kæmi til Reykjavfkur 9
manna samninganefnd til þess að
semja við Islendinga um fiskveið-
ar færeyskra togara innan 50
mflnanna hér við land. Arge
fréttamaður sagði, að Færeying-
um væri fyllilega ljðst, að
samningar þeir sem nú fara f
hönd við tslendinga væru mjög
mikilvægir fiskveiðum Færey-
inga og til þess að undirstrika það
hefði nú verið ákveðið, að sjálfur
Atli Dam, lögmaður Færeyinga,
yrði formaður samninganefndar-
innar.
Aðrir í nefndinni, sem Jogvan
Arge nefndi, eru þeir Pétur Rein-
ert, sem er landsstjórnamaður í
fiskveiðimálum, Erlendur Paturs-
son, lögþingsmaður, sem er for-
maður markaðsmálanefndar lög-
þingsins, Paul Jákúb Olsen, sem
er formaður fiskivinnunefndar
lögþingsins. Aðrir nefndarmenn
eru embættismenn, fiskifræðing-
ur og skipstjórar.
Álagning ákveðin
A FUNDI verðlagsnefndar f gær-
morgun var tekin ákvörðun um
áfagningu f smásölu og heildsölu
f framhaldi af gengisfellingunni.
Verður álagningin ðbreytt f
krðnutölu en við bætast 30% af
hækkunum vegna gengisbreyt-
ingarinnar. Þessi háttur hefur
venjulega verið viðhafður við
gengisbreytingar undanfarin ár.
Ljósmynd Sv. Þorm.
SKIPBROTSMENN af Járngerói við komuna til Reykjavíkur í gærkvöldi. Birgir
Guðjónsson skipstjóri er þriðji frá hægri. Á litlu myndinni leggur Járngerður í
síðustu veiðiferð sína. Sigurgeir í Eyjum tók hana þegar báturinn sigldi út úr
Vestmannaeyjahöfn.
r
Matthías A. Mathiesen í viðtali við Morgunblaðið:
Hækkun innflutningsgjalds
bifreiða stuðlar
að bættri gjaldeyrisstöðu
r
Islendingum boðið að
halda svœðamót í skák
UM HELGINA tók rfkisstjðrn-
in ákvörðun um hækkun inn-
flutningsgjalds af bifreiðum og
hækkun á áfengi og tóbaki.
Morgunblaðið átti í gær stutt
viðtal við Matthías Á. Mathie-
sen, fjármálaráðherra, og innti
hann fyrst eftir því, hvers
vegna þessar hækkanir hefðu
komið til framkvæmda. Fjár-
málaráðherra svaraði:
— Innflutningsgjald af bif-
reiðum er hækkað til þess að
stuðla að hagstæðum áhrifum á
gjaldeyrisstöðuna og til að bæta
greiðslujöfnuð þjóðarbúsins út
á við. Bílainnflutningur á síð-
Friðrik Ólafs-
son verður með-
al þátttakenda
SKAKSAMBAND Islands barst í
gærmorgun bréf frá alþjððaskák-
sambandinu (FIDE), þar sem Is-
lendingum er boðið að sjá um eitt
af fjðrum svæðamótum f skák
sem haldin verða f Evrðpu á
þessu ári, en svæðamðtin eru
fyrsti áfanginn á leiðinni til
heimsmeistaratitils. A mðtinu
sem tslandi er boðið að halda
verða þátttakendur 16 talsins, þar
á meðal Friðrik Ólafsson. Einnig
verða þar bezti skákmaður Dana,
Ifklega Bent Larsen, bezti skák-
maður Tékka, líklega Hort, og
bezti skákmaður Hollendinga, Ifk-
lega Timman, auk margra minni
spámanna.
Að sögn Gunnars Gunnarssonar
forseta Skáksambandsins mun
stjórn sambandsins íhuga þetta
tilboð gaumgæfilega á næstunni
og reyna að tryggja fjárhagslegan
grundvöll mótsins, en töluverður
kostnaður fylgir því að halda mót
sem þetta, enda þótt Skáksam-
bandið þurfi aðeins að sjá kepp-
endum fyrir uppihaldi. Ferðir
greiða þeir sjálfir. Mótið á að
halda á tímabilinu maf—septem-
ber.
Sem fyrr segir eru svæðamótin
fjögur að tölu f Evrópu, og er
mótið sem okkur er boðið að
halda auðkennt með bókstafnum
A. Ákveðið er að B-mótið verði
haldið á Spáni í október og lfklegt
er talið að C-mótið verði haldið I
Austurríki, en þar verður Guð-
Framhald á bls. 39
Danir vilja
kaupa regn-
bogasilunginn
frá Laxalóni
DANSKT fiskiræktarfyrirtæki,
Silver cup, ritaði fyrir nokkru
bréf til Skúla Pálssonar á
Laxalðni og falaðist eftir regn-
bogasilungi hans.
I bréfinu segir, að fyrirtækið
hafi komizt á snoðir um, að Skúli
fái ef til villekki leyfitil aðhalda
áfram ræktun á regnbogasilungi
Framhald á bls. 39
asta ári var óvenjumikill og
verður að teljast óæskilegur á
svo skömmum tfma og við þær
aðstæður, sem verið hafa í
gjaldeyrismálum. I stað þess að
setja hömlur á bifreiðainn-
flutning er eðlilegt að hækka
innflutningsgjaldið og draga
með því móti úr innflutningi.
Þess vegna er ekki gert ráð
fyrir, að þessar ráðstafanir hafi
í för með sér tekjuauka fyrir
ríkissjóð.
Hækkunin á tóbaki er nánast
til samræmis við hækkun á er-
lendum kostnaði en gera má
ráð fyrir, að hækkun áfengis
Matthfas A. Mathiesen
auki að einhverju leyti tekjur
rikissjóðs.
— Má búast við frekari
skattahækkunum?
— Fjármálaráðherra, hver
sem hann er, getur aldrei gefið
yfirlýsingar um það fyrirfram,
hvort nauðsynlegt verði að
auka álögur. Hitt get ég sagt, að
ríkisstjórnin hefur á þessari
Framhald á bls. 39
— sagði Birgir Guðjónsson skipstjóri á Járngerði, sem sökk í fgrradag
LOÐNUSKIPIÐ Járngerður GK
477 frá Grindavfk sökk skammt
undan Jökulsá á Breiðamerkur-
sandi f fyrrakvöld, en þá höfðu
skipverjar yfirgefið skipið fyrir
nokkru eftir að hafa árangurs-
laust reynt að rétta það við, er
mikill halli kom að skipinu fyrr
um daginn. Skipverjum var
bjargað yfir í Þorstein frá
Reykjavík og fór Þorsteinn með
skipbrotsmennina til Seyðisfjarð-
ar, þaðan komu þeir svo til
Reykjavíkur um kl. 20.30 í gær-
kvöldi, allir f þeim fötum sem
þeir voru f er hallinn kom að
skipinu, Við komuna til Reykja-
vfkur náðum við tali af skipstjðra
skipsins, Birgi Guðjðnssyni, og
spurðum hann nánar um at-
burðinn.
„Við vorum á leið til Austfjarða
með 170—180 tonna afla, sem við
fengum austan við Ingólfshöfða.
Við vorum f samfloti með Þor-
steini frá Reykjavík og þegar við
vorum búnir að sigla í SA þrjá
stundarfjórðunga hallaði skipinu
skyndilega á stjórnborða og eftir
það rétti það sig aldrei. Þegar
þetta gerðist vorum við á móts við
Hrollaugseyjar og ætluðum
okkur alltaf að fara innan við
þær.‘‘
— Veistu hver ástæðan var fyr-
ir þessum skyndilega halla?
„Ekki með vissu, en að líkind-
um hefur eitthvað bilað í lestinni,
sem tók um 200 lestir, ef hún var
full.“
— Var hallinn mikill í upphafi?
„Ekki mjög mikill, sennilega
20—30 gráður. Við reyndum strax
að rétta skipið af en það gekk
ekki og jókst hann stöðugt. Þegar
hann var orðinn um 45 gráður
nam sjórinn við brúarvænginn og
þá þorðum við ekki annað en að
yfirgefa skipið."
— Hvernig gekk það?
„Það gekk ágætlega að fara í
gúmmíbjörgunarbátana og eftir
skamma stund vorum við komnir
um borð I Þorstein, þar sem vel
var tekið á móti okkur. Þegar við
komum um borð í Þorstein hefur
sennilega verið liðin klukkustund
frá því að skipið fór á hliðina.
Guðbjörn Þorsteinsson skipstjóri
á Þorsteini hélt skipi sínu nálægt
Járngerði í nokkurn tima, en þá
gerði skyndilega versta veður af
vestri og komst vindhraðinn vfst í
ein 12—14 vindstig. Það siðasta,
sem við sáum til Járngerðar, var
að skipinu hallaði orðið yfir 70
gráður í stjór.“
A Járngerði var 13 manna
áhöfn og við spurðum Birgi hvort
þeir væru farnir að hugsa eitt-
hvað um hvað væri framundan.
Hann sagði að ekki hefði gefizt
tími til þess enn, en bað Mbl. að
koma þakklæti þeirra á framfæri
til skipstjóra og áhafnar á Þor-
steini og þeirra skipa, sem héldu
sig í nánd við Járngerði.
Björgunarskipið Goðinn fann
Járngerði snemma í gærmorgun,
þar sem skipið var sokkið úti fyrir
Breiðamerkursandi. Járngerður
var smíðuð í Austur-Þýzkalandi
árið 1959 og var 230 tonna stál-
skip eða einn af „tappatogurun-
um“ svonefndu. Skipið var áður
gert út frá Dalvík og hét þá Björg-
úlfur.
Núverandi eigandi skipsins var
Hópsnes hf. í Grindavík og þess
má geta að þetta sama útgerðar-
fyrirtæki varð fyrir því öhappi að
missa annað skip sitt í innsigling-
unni f Grindavík eigi alls fyrir
löngu.
Misstu 15
millj. kr.
loðnunætur
SKÖMMU eftir að Járngerður
sökk undan Breiðamerkur-
sandi f fyrradag skall á ofsa-
veóur að vestan og þeir loðnu-
bátar sem þá voru úti með
næturnar, áttu f mestu erfið-
leikum með að hemja þær, og
þeir sem voru nýbúnir að
kasta misstu megnið af sfnum
nótum. Hér er um gffurlegt
tjðn að ræða, þvf ný loðnunðt
kostar nú um 15 millj. krðna.
Eftir þvf sem bezt er vitað
urðu hið nýja fiskiskip Hug-
inn frá Vestmannaeyjum og
Örn frá Reykjavík fyrir mestu
tjðni, er þeir náðu aðeins
litlum hluta veiðarfæra inn
fyrir borðstokkinn. Aðrir
Framhald á bls. 39
„Bilun 1 lestinni”