Morgunblaðið - 22.03.1975, Page 1
32 SIÐUR
66. tbl. 62. árg.
LAUGARDAGUR 22. MARZ 1975
PrentsmiSja Morgunblaðsins.
Sókn skæruliða í S-
Víetnam þyngist enn
Saigon 21. mar&AP.
HERSVEITIR skærulida „þjóð-
frelsishreyfingarinnar" og
Norður-Víetnamar hertu enn
sókn sína á fjölda mörgum stöð-
um í Suður-Víetnam í dag og hef-
ur sókn þeirra nú verið lfkt við
Tet-sóknina árið 1968 og aftur
vorið 1972. IVIjög harðar árásir
eru á hina fornu keisaraborg Hue
Sprenging!
Belfast 21. marz AP.
ÖFLUG sprengja sprakk í dag
f kaffistofu í Belfast um há-
degishilið, þegar mikil ös var
inni í veitingasalnum. Vitað
er, að 38 manns særðust og þar
af voru mörg börn.
og f miðhálendinu eiga herir
Saigonstjórnarinnar í vök að verj-
ast í Q'uang Duc-héraðinu. Myndi
það verða níunda héraðið í land-
inu, sem skæruliðar ná á sitt vald,
ef það fellur. Þá hafa skæruliðar
einnig náð á sitt vald Duc Hue,
sem er stöð skammt frá landa-
mærum Kambódíu og i aðeins 30
mflna fjarlægð frá Saigon.
Á næstum öllum vegum lands-
ins eru hópar flóttamanna. sem
hafa orðið að yfirgefa heimili sín,
en þeirra athvörfum fækkar
óðum vegna sóknarþunga skæru-
liða.
Hanoiútvarpið sagði frá þvi í
dag, að Víet-Cong-menn hefðu á
aóeins tveimur vikum náð á sitt
vald um það bil fjórðungi alls
Suður-Vietnams og þar byggju
um ein milljón manns. Þessum
fréttum ber ekki saman við yfir-
lýsingar Saigonstjórnarinnar.
Frá Kambódíu berast þær
fregnir, að Lon Nol hafi i dag
skipað nýja rikisstjórn, en von-
brigðum hafi valdió að margt
bendi til, að hún muni ekki starfa
á breiðari stjórnmálalegum
grundvelli en sú fyrrverandi og
því sé borin von til þess að hún
geti samið við skæruliða um frió.
Eldflaugaárásum var haldið
áfram á Phnom Penh í dag en
bandarískar vélar, sem flytja mat-
væli og vistir til borgarinnar, gátu
þó lent, þótt hlé væri gert á flutn-
ingunum i eina klukkustund.
Diplómatiskar heimildir í
Washington kváðust hafa það fyr-
ir satt í kvöld að Lon Nol myndi
segja af sér fljótlega, ef til vill
innan tveggja vikna.
Portúgal:
Verður Miðdemökrata-
flokkurinn leystur upp?
Lissabon 21. marz.NTB.
DIGO Fredtas do Amaral, formað-
ur miðdemókrata í Portúgal,
sagði í dag, að svo kynni að fara,
að flokkurinn yrði leystur upp
vegna þess, að kosningar til næsta
þjóðþings landsins í apríl verði
ekki haldnar við lýðræðisleg skil-
yrði. Þegar er andróður hafinn
gegn fiokknum og sömuleiðis er
ljóst, að Lýðræðislegi þjóðar-
flokkurinn mun eiga undir högg
að sækja.
Hins vegar er Miðdemókrata-
flokkurinn eini hægri flokkurinn,
sem hefur fengið leyfi byltingar-
ráðsins til að taka þátt í kosning-
unum. Formaðurinn sagði, að
ýmsir af forsvarsmönnum hans
hefðu oróið fyrir óþægindum og
beinum ofsóknum.
Gaf do Amaral til kynna að tek-
in yrði ákvörðun um það á fundi
miðstjórnar flokksins, sennilega á
morgun, hvort flokkurinn ætli að
taka þátt í kosningunum.
Keisaradæmi
aflagt í Eþíópíu
Addis Abeba 21. marz AP.
BYLTINGARRÁÐ Eþíópíu til-
kynnti f dag afnám keisaraveldis-
ins í landinu, en Eþfðpfa er talin
hafa 300 ára gamla keisarahefð.
Var frá þvf skýrt að þjóðinni yrði
fljótlega gefinn kostur á að kjósa
sér þjóðhöfðingja og stjórn.
í tilkynningunni var og getið,
að Asfa krónprins, sonur Haile
Selassie, sem hefur haldið titli
sinum fram að þessu, yrði nú
sviptur honum svo og allir aðrir
titlar aflagðir sem tíðkazt hefðu á
keisaratimanum. Ekki var vikið
að því hvenær og hvernig þjóð-
höfðingi yrði kjörinn, en nú fer
Teferi Benti, hershöfðingi, með
það starf. Né heldur var skýrlega
frá því sagt hvernig staðið yrði að
kosningum. Innan hersins hafa
heyrzt raddir um stuðning við
eins flokks kerfi, eins og er viða i
Afríkuríkjum. Þá var og óljóst
hvort núverandi byltingarráð
hefði i hyggju að afsala sér ein-
hverjum valda sinna í bráð.
Ovissa ríkir á Haf-
réttarráðstefnunni
Genf, 21. marz.
Einkaskeyti til Mbl.
frá Þór Vilhjálmssyni.
MIKIL óvissa er ríkjandi á Haf-
réttarráðstefnunni hér í Genf í
fyrstu viku starfsins að þessu
sinni. Þegar fundir hófust á
mánudaginn var ákveðið að mest
skyldi unnið á lokuðum fundum
til að forðast langar ræður, endur-
teknar yfirlýsingar og tilgangs-
lausar stælur. Hinar þrjár aðal-
nefndir ráðstefnunnar hafa síðan
þingað fyrir luktum dyrum, en
margar vinnunefndir eru einnig
að störfum. 1 ljós hefur komið að
gamalkunnar deiiur um atriði,
sem hafa verið þrautrædd hafa
haldið áfram og fulltrúar virðast
enn ekki reiöubúnir til að semja
um niðurstöður um atriði, sem
verulega þýðingu hafa.
í fyrstu nefnd er farið yfir til-
lögur um námavinnslu á hafs
þotni og ber enn mikið á milli
iðnaðarrikjanna og þróunarland-
anna og litil merki um samkomu-
lag sjáanleg. i annarri nefnd er
farið yfir vinnuskjal i 243 grein-
um, sem er árangur þinghaldsins
i Caracas sl. sumar. Koma þar
fram helztu sjónarmið um land-
helgi, siglingar um sund, land-
grunnið, efnahagslögsöguna, út-
hafió. landlukt og grunnlukt riki,
eyriki, innhöf og fleiri atriði.
Jafnhliða umræðu um þetta skjal
sem að verulegu leyti snýst um i
hve ríkum mæli það endurspegli
tillögur ýmissa ríkja situr hin svo-
kallaða Evensen-nefnd á rökstól-
um. Dag hvern er vonast til að
tillögur hennar um efnahagslög-
söguna verði tilbúnar innan tiðar.
I þriðju nefnd er fjallað um
mengun hafsins í framhaldi af
Framhald á bls. 18
„Ungir Grænlend-
ingar” hef ja bar-
áttu gegn Dönum
Kaupmannahöfn 21. marz
Einkaskeyti til Mbl.
frá Jörgen Harboe
SÁRGRAMIR ungir Grænlend-
ingar hófu í dag fjársöfnun í
Kaupmannahöfn til að standa
straum af væntanlegri baráttu við
Danmörku. Einn fulltrúi samtak-
anna „Ráð ungra Grænlendinga"
vildi ekki vísa þeim möguleika á
bug, að gripið yrði til vopnaðrar
andstöðu við Danmörku.
Bein orsök þessara aðgerða er,
að dönsk þingnefnd hefur veitt 21
oliufélagi leyfi til að bora eftir
olíu við Grænlandsstrendur.
Landsráó Grænlands hefur gefið
vilyrði fyrir þessu. Engu aó siður
telja hinir ungu Grænlendingar
Framhald á bls. 18