Morgunblaðið - 22.03.1975, Síða 19

Morgunblaðið - 22.03.1975, Síða 19
* MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1975 19 — Stefnan Framhald af bls. 14 sambandi við það, sem gera þarf, 3.850 millj. kr. Gjöldin yrðu þessi: Aukin skattalækkun kostaði rikis- sjóð 700 millj. kr. Hækkun tekju- tryggingar og hækkun ellilauna mundi kosta um 860 millj. kr. Gera má ráð fyrir, að laun rikisstarfs- manna hækki um 800 miltj. kr. Af- gangs yrðu þá tæplega 1500 millj. kr , sem hægt yrði að lána launa- greiðendum til þess að gera þeim kleift að greiða nauðsynlega hækkun láglaunabóta. Það mundi, lauslega áætlað kosta 1400—1500 millj. kr. að brúa það bit, sem nú er á milli tilboðs atvinnurekenda og krafna launþega. sé miðað við dag- vinnuna, það er þvi augljóst að unnt yrði að ná endum saman með þess- um hætti. Allar þessar tölur eru miðaðar við heilt ár og yrðu því lægri á þessu ári. Þeim atriðum hugmyndanna, sem lúta að sparnaði hjá rikisfyrirtækjum og sveitarfélögum, einföldun i opin- berum rekstri, lækkun fyrningar- heimilda hjá fyrirtækjum og þvi. að láta hlutlausan aðila ákveða launa- kjör alþingismanna, er fyrst og fremst ætlað að vera tákn viður- kenningar þess, að á erfiðum timum á hið opinbera ekki aðeins að segja við borgarana: Nú verðið þið að herða að ykkur ólina. heldur ganga sjálft á undan með góðu fordæmi og draga saman seglin. Sömuleiðis á ríkisvaldið að knýja fyrirtækin til aukinnar hagræðingar og hagsýni. Fyrsta atriðið um. að rikisstjórn og Seðlabanki lýsi þvi yfir, að gengi krónunnar skuli nú haldast stöðugt um fyrirsjáanlega framtið, er nauð- synlegt til þess, að það traust skapist i viðskiptum. sem er undir- staða þess. að um varanlegar fram- farir geti orðið að ræða. Þessar hugmyndir eru settar hér fram til þess að sýna að það er unnt að stuðla að samningum og koma í veg fyrir þá þjóðarógæfu, sem al- menn verkföll hlytu nú að teljast. Ollum mönnum, sem gerla þekkja til, hlýtur að vera Ijóst, að tillögur þær, sem felast í frumvarpi þvi, ' sem rikisstjórnin lagði fram i dag, eru algjörlega ófullnægjandi til þess að stuðla að lausn vinnudeilunnar. En það er hægt að gera það, sem þarf til þess að jafna ágreininginn. Þessar hugmyndir eru settar fram i þvi skyni að benda á færar leiðir að þvi marki. Alveg á næstunni verður aðfást úr þvi skorið, hvort launþegar og vinnu- veitendur geta náð samkomulagi. Takist það ekki verður Alþingi að gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess, að úr þvi ranglæti verði bætt, sem láglaunafólk hefur orðið fyrir með óbærilegri kjaraskerðingu og að áframhaldandi atvinna og vinnu- friður verði tryggður. Ég tel mig hafa sýnt fram á. að þetta er hægt. Þjóðarheildin á mikið undir því, að þeir, sem völdin hafa hér á Alþingi, reynist nú vanda sin- um vaxnir. Þeir hafa heill al- mennings í hendi sér. Nú er nauðsyn á fullum skilningi á þvi, að undanfar- ið hafa stórir hópar launafólks orðið fyrir órétti. Þörf er þeirrar stjórn- festu og þess góðvilja á vinnumark- aðnum, að kjör láglaunafólks batni og full atvinna haldist. öllum islend- ingum til góðs og heilla. — Fum og fálm Framhald af bls. 14 komin á það stig að samninganefnd Alþýðusambandsins hefur skorað á verkalýðsfélög að boða verkfall viku af april. Orsök kjaradeilunnar er gengislækkun ríkisstjórnarinnar frá i haust, sem verkalýðshreyfingin taldi tilefni til samningsuppsagnar. Úr þvi að svo er i pottinn búið, er enn meiri ástæða en ella til að rikis- stjórnin leggi sig fram um að greiða fyrir samkomulagi samningsaðila, og hefði hún mátt hefjast handa fyrr en svo er komið að við er búið að vinnufriður rofni. Alls er lika ósýnt, af athugasemdum með frumvarpinu að dæma, hvort rikisstjórnin gerir sér nokkra grein fyrir að tillögur hennar hafi áhrif á stöðuna i kjara- samningunum, og þvi siður hver þau áhrif kynnu að verða. Tillögurnar um skattabreytinqar eru svo margbrotnar og flóknar að ekki er unnt að ætlast til að nokkur maður átti sig á þeim til fulls, hvað þá taki afstóðu til þeirra, á þeim fáu klukkutimum sem við stjórnarand- stæðingar höfum haft til umráða. En i heild virðast þær ekki vega þungt, nema fyrir fjölskyldur af tiltekinni stærð á afmórkuðum tekjubilum. En það stingur strax i augun, að með þessum tillögum er enn verið að gera breytingar á sömu atriðum skattalaga og breytt var fyrir réttu ári siðan i kjölfar kjarasamninga sem þá voru gerðir. Ég tel það vera um- hugsunarefni, bæði fyrir okkur al- þingismenn og þá sem semja um kaup og kjör, hvort það sé heppilegt að breytingar á skattalögum gerist ár eftir ár með þessum hætti. Er það í rauninni æskilegt verkefni fyrir verkalýðshreyfinguna, að láta kjara- samninga snúast um það öðrum þræði að kaupslaga við rikisstjórn á hverjum tima um skattheimtureglur fyrir landsmenn alla? Og er það æskilegt fyrir þá, sem annars vegar eiga að setja skattalög og hins vegar framfylgja þeim, að skattkerfið verði samningsatriði hvenær sem uppgjör fer fram á vinnumarkaði? Ég fyrir mitt leyti svara báðum spurningum neitandi. Mér virðist einsýnt að þessi háttur torveldi beinlínis mótun heildar- stefnu um skattheimtu sem staðið gæti til nokkurrar frambúðar. Endur- skoðun skattheimtu rikisins hefur lengi verið á döfinni, og er allra mál að verkefnið sé brýnt. En árangurinn lætur enn á sér standa. Skattheimta jafnharðan og tekjur falla til er hagsmunamál skattgreið- enda jafnt og hins opinbera, en fram- kvæmdin vefst enn fyrir mönnum. Söluskattur er rokinn upp í tuttugu stig. Miklir kostir væru þvi samfara að breyta honum i virðisaukaskatt, en allt situr við sama ár eftir ár. Afskrifta- og fyrningarreglur sem nú gilda og reglur um endursölu- gróða, gera fyrirtæki tekjuskattslaus þótt hagur þeirra standi i raun og veru með blóma, en þyngir að sama skapi skattheimtu á launafólki. Þar á ofan er þetta fyrirkomulag óflugur hvati til verðbólgubrasks. Tillögur um úrbætur biða heildarendurskoð- unar skattkerfisins, sem dregst og dregst. Málgögn beggja stjórnarflokka, Morgunblaðið og Timinn, hafa i þessari viku vakið i forustugreinum máls á þvi. hróplega misrétti sem komist hefur inn i skattkerfið með sérfrádrætti af atvinnutekjum giftra kvenna, og orðið hefur til þess að heimili þar sem fyrirvinnur eru tvær búa við stórum léttari skattbyrði en heimili þar sem fyrirvinnan er ein eða»einhleypir skattgreiðendur. Hefði nú mátt aéka að samhljóða skrif beggja helstu stjórnarblaðanna um þetta mál yrðu til þess að á þvi yrði tekið, þegar ríkisstjórnin setur fram tillögur um skattalagabreytingar. En það er nú eitthvað annað. í frum- varpinu með langa nafnið eru þessu atriði engin skil gerð. Skal þá látið útrætt um þau ákvæði frumvarpsins sem tekjuskatt varða. en vikið að kafla sem fjallar um söluskattinn. Þar er sá galli á gjöf njarðar, að ekki er um að ræða skýlausa ákvörðun um afléttingu þessa háa neysluskatts f nokkurri grein. Það er á valdi fjármálaráð- herra, hvort og að hve miklu leyti söluskatti verður aflétt af einstökum matvörum eða matvöruflokkum, og virðist af athugasemdum að þar komi einkum til greina kornvörur og brauð, kjöt og kjötvörur, grænmeti og feitmeti. En þá er eftir rúsinan i pylsuend- anum. Rikisstjórnin óskar eftir að Alþingi veiti heimild til að fella niður tolla af nokkrum ávaxtategundum, sem upp eru taldar i 18. grein frum- varpsins, en siðan kemur undarleg romsa. Rikisstjórninni er nefniiega líka umhugað um að fjármálaráðu- neytinu verði heimilað að afnema tolla af svinafeiti og alifuglafeiti, og tekið er fram að það skuli gilda hvort heldur þetta feitmeti er brætt eða pressað. En þetta er bara byrjunin. Siðan fylgir upptalning sem of langt yrði að rekja, en þar bregður fyrir mörgum fáseíðum varningi, svo sem geitafeiti, sem vera má hvort heldur óbrædd, brædd eða pressuð. nú ellegar i einhverri mynd sem ekkert heiti hefur á íslensku en ber alþjóða- heitið „premier jus.". Ekki nóg með þetta. þvi nú tekur við svinafeitis- terin, óleósterin. svinafeitiolia og tólgarolia, sem þó má hvorki vera jafnblönduð, blónduð né unnin á annan hátt. til þess að rikisstjórnin sækist eftir að fella niður toll af henni. En meiri tólg er stungin. Næst vikur sögunni að ullarfeiti, lanólini, beinafeiti, klaufafeiti og úrgangs- efnafeiti. Þetta er orðin löng skrá, en þó er að minnsta kosti annað eins ónefnt. Þarna eru úrræði ríkisstjórnarinnar lifandi komin. Þegar hún loks hefst handa og lætur frá sér heyra svo um munar, vegna þeirra dýrtiðarhol- skeflu sem gerðir hennar jafnt og aðgerðaleysi hafa steypt yfir þjóð- ina, þegar vinnufriður hangir á blá- þræði fyrir hennar sjálfrar tilverknað og samningaumleitanir á vinnumark- aði eru á viðkvæmu stigi. hyggst rikisstjórnin bæta fyrir sér með þvi að afla heimildar til að sjá landslýðn- um fyrir tollfrjálsri geitatólg. klaufa- feiti og úrgangsefnafeiti, ef vel liggur á henni. Það er grátlegt að sjá ríkisstjórn íslands fást við svo fánýta iðju á alvörutimum. Það sem þjóðin þarfn- ast er ekki toilfrjáls ullarfeiti. ólivu- olia. sólrósarolia. rapsolia, colzaolia né mustarðsolia, svo enn sé gripið niður i 18. grein „Frumvarps til laga um ráðstafanir i efnahagsmálum og fjármálum til þess að stuðla að jafn- vægi i þjóðarbúskapnum og treysta undirstoðu atvinnu og lifskjara." Þessi varningur er vafalaust allur saman þarflegur til sinna nota. en að bjóða hann fram, þó tollfrjáls sé. i frumvarpi undir þvi yfirlætislega nafni sem ég var að hafa yfir. er að rétta fólki steina fyrir brauð. Menn ætlast til þess af ríkisstjórn að hún beri fram markaða stefnu, bendi á færa leið úr vanda sem að höndum ber. Það hefur núverandi rikisstjórn ekki tekist enn sem komið er. Verk hennar hafa mikinn part reynst fum og fálm, þvi miður. Og mér er alvara, þegar ég segi þvi miður. Hvort sem menn styðja þessa stjórn eða ekki, er meira i húfi en svo að meinfýsi eigi nokkurn rétt á sér. Tvo háseta vana netaveiðum vantar á m/b Vestra BA 63 Patreksfirði sem er á netaveiðum. Uppl. gefur Karl Jónsson í síma 94-1 209 og 1311. Einkaritari framkvæmdastjóra Stórfyrirtæki í Reykjavik óskar eftir að ráða einkaritara fram- kvæmdastjóra sem fyrst. Nauðsynlegt er, að viðkomandi hafi hraðritunarkunnáttu (enska). Til greina kemur erlendur einkaritari með starfs- reynslu á íslandi. í boði eru há laun auk hlunninda. Tilboð merkt „Executive 7552'sendist blaðinu fyrir 1. apríl 1975. Bankastörf. Banki óskar eftir að ráða stúlkur til almennra bankastarfa. Reynsla í bankastörfum æskileg. Um- sóknir, er greina aldur, menntun og fyrri störf, sendist Morgunblaðinu fyrir 26. þ.m. merkt Banki 7180. 2. vélstjóra og háseta vantar á 200 tonna netabát frá Patreks- firði. Uppl. í síma 94-1 332. Hraðfrystihúsið Skjöldur h.f. Patreksfirði óskar að ráða háseta á neta- báta fyrirtækisins. Uppl. í síma 94-1 305. Óska eftir að ráða vana raflínumenn eða aðra verkamenn til starfa úti á landi. Upplýsingar í síma 30126. Skrnstofumaður óskast nú þegar Verzlunar- eða Samvinnuskólamenntun æskileg. Bókhaldskunnátta nauðsynleg. Upplýsingar um menntun og fyrri störf, sendist blaðinu íyrir 1. apríl n.k. merkt: „skrifstofumaður 7 1 87". Vana menn vantar á 64 tonna bát sem rær með net'. Uppl. í síma 52820. Stúlka óskast til gjaldkerastarfa. Tilboð sendist Mbl. fyrir mánudagskvöld merkt: „Traust 7190". Tvo háseta vantar á 250 tonna netabát frá Patreks- firði. Góð kjör fyrir vana menn. Uppl. í síma 94-1 261. Atvinna óskast Þrítugur maður með góða menntun óskar eftir atvinnu strax. Allt kemur til greina. Svar sendist Mbl. merkt: „W — 9703" Háseta vantar á netabát, sem rær frá Þorlákshöfn. Upp- lýsingar í símum 99-3208 og 3256. Hraðfrystihús Stokkseyrar H.F.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.