Morgunblaðið - 22.03.1975, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.03.1975, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1975 Piltur og stúlka ur alvörusvipur sé á brúöinni. Er nú gengið í kirkju og undan vígslu sunginn 309. sálmurinn í Nýju bókinni og þegar komiö er í seinasta versið, leiðir djákninn brúóhjónin til bekkjar; en að því búnu tekur prestur að þylja vígsluræðuna, og hafði hann tekið sér til umtalsefnis: „Efndanna er vant, þó heitin sé góð!“ Ekki þóttust menn vita þess nokkur dæmi, að heilagur andi hefði nokkurn tíma áður talað með þvílíkum krafti og áhrifum fyrir munn þjónustumanns síns, Tómasar prests; öll fram- kirkjan að norðanverðu flaut í tárum; i kórnum var þurrt og framkirkjunni sunnanverðri, en þó var þar margur hraustur drengur, sem hitnaði um hjarta. Sigríöur sat með samanlagðar hendur á brúöar- bekknum, og virtist mönnum hún harla föl útlitum og áhyggjumikil; en af Guómundi datt ekki né draup; ekki táraóist hann, en endur og sinnum sáu menn varir hans bærast, en fingur kvika; þeir, sem HÖGNI HREKKVÍSI Fljótur maður hertu þig------- þekktu lundarfar Guðmundar, gátu þess síðar til, að fremur mundi honum hafa það skipti flogið í hug að telja saman jarðarhundruð Sigríðar og landskulda- vættir en aö hann væri aó hugfesta það, sem prestur sagði um kristilegt hjúskaparhald. Að lokinni ræðu tekur prestur, eins og vant er, að spyrja brúðhjónin lögspurninga þeirra, sem standa í handbókinni. Guð- mundur svaraði þeim öllum vel og einarðlega, enda er það lítill vandi að svara þeim rétt; því reglan er sú að segja allajafna já til hvers, sem að er spurt. Að svo búnu snýr prestur sér til brúðarinnar og segir: SÖmuleióis aðspyr ég yður, virðulega yngisstúlka Skarfarnir frá Útröst þegar þetta nálgaðist, þá voru það bara þrír skarfar, sem sátu á rekaviðardrumb, og um leið þaut bátur- inn framhjá þeim. Enn sigldi hann lengi, og var nú orðinn svo svangur, þreyttur og þyrstur, aö hann vissi ekkert hvað til bragðs skyldi taka og dottaði við stýrið, en allt í einu kenndi báturinn grunns. Þá var ísak ekki seinn að opna augun. Sólin braust gegnum þokuna og skein yfir yndislegt land, frá sjónum voru lágir, hallandi ásar, iðjagrænir allt upp á brún, og ísak fann svo mikinn blómailm, að ekkert líkt hafði hann áóur fundið. „Guói sé lof, nú er ég hólpinn þetta er Útröst,“ sagði ísak við sjálfan sig. Beint fyrir framan hann var byggakur, og hafði hann aldrei séð eins stór og bústin öx, og upp miðjan akurinn lá mjór stígur upp að húsi með grænu torfþaki, og uppi á þekju hússins var hvít geit að bíta, og hafði gyllt horn, og júgur svo stór sem stærstu kýr. Fyrir utan húsið sat lftill bláklæddur maður á meis og reykti pípu. Hann hafði skegg svo mikið, að það náði honum langt niður á brjóst. „Velkominn að Útröst, ísak,“ sagði hann. „Þökk sé þlr, faðir góður,“ svaraði Isak. „Þekk- irðu mig þá?“ „O, ætli það ekki,“ sagói karlinn, „þig langar til að fá að vera í nótt.“ „Já, ef ég fengi það, þá myndi mér þykja vænt um,“ sagði ísak. „Þaö er verst með syni mína, þeir þola ekki lykt af DRÁTTHAGI BLÝANTURINN í skrifstofu blöórufyrir- tækisins Blaðran — óvænt atvik. Var þaó erfiður dagur á bílaverkstæóinu, Jón minn? Þaó er ekki hægt aó fá úr því skorió hvað það er sem hrjáir yður maður minn, — fyrr en aó lok- inni skurðaðgeró. Ég er hræddur um að tennurnar mínar séu farnar aó gefa sig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.