Morgunblaðið - 28.06.1975, Side 1
24 SIÐUR OG LESBOK
143. tbl. 62. árg.
LAUGARDAGUR 28. JÚNl 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Kenyskur lögregluvörður stendur á verði við rússneska bílalest sem er á leið til
Uganda. Fregnir hafa borizt um vopnaflutninga Sovétmanna til Amins forseta
Uganda.
Beirut 27. júní Reuter
SKOTHRtÐ og sprengingar
kváðu við vfða um Beirut í allan
dag og er vitað að tfu manns til
viðbótar hafa látið lifið sfðasta
sólarhringinn f þessum bardóg-
um. Svo virtist sem ögn friðvæn-
legra væri f kvöld í borginni.
Suleiman Franjieh kvaddi
sendiherra Saudi-Arabíu, Egypta-
lands og Kuwait á sinn fund í dag
til að ræða hið alvarlega ástand
sem ríkir i landinu, og síðan átti
hann fund með Karami, sem
hefur reynt að mynda starfhæfa
ríkisstjórn í landinu síðustu fimm
vikur. Karami hefur reynt að
sætta hin strfðandi öfl, það er
falangista og sósíalista, en lítið
orðið ágengt.
Bardagarnir í dag voru sagðir
mjög harðir í ýmsum úthverfum
borgarinnar og eldsprengjum var
varpað hvað eftir annað í grennd
við bækistöðvar Falangistaflokks-
ins. Mjög mikil ókyrrð er í borg-
inni, að sögn Reuters, og eru
borgarar uggandi um sinn hag. Er
lítil mannaferð á götum og bila-
umferð í lágmarki.
Fjöldahandtökum er haldið
áfram í Indlandi
Engin skipulögð andstaða virðist
vera gegn aðgerðum Indiru Gandhi
Nýju Delhi 27. júnl Reuter. Ntb.
AÐ MINNSTA kosti tvö hundruð
manns til viðbótar hafa verið sett-
ir f fangelsi f Indlandi f dag og
hefur Indira Gandhi forsætisráð-
herra þá látið handtaka alls um
900 manns á einum sólarhring,
eða sfðan hún lýsti herlög f gildi f
landinu. Talsmaður rfkisstjórnar-
Amin hœttir við
Hitlersstyttu
London 27. júní Reuter
IDI Amin Úgandaforseti hefur
hætt við að reisa styttu af
Adolf Hitler f vesturhluta
landsins, að því er útvarpið
þar skýrði frá í dag. Gerði
hann það eftir að sovézki
sendiherrann í Kampala hafði
sagt honum að Hitler hefði
drepið meira en 50 millj.
manna í stríðinu. Gaf sendi-
herrann Amin bók um hryðju-
verk Hitlers. Amin fagnaði að
hafa fengið sannar fréttir um
óeðli Hitlers, segir í fréttum.
innar skýrði frá handtökunum og
sagði að þriðjungur þessara nfu
hundruð væru starfsmenn póli-
tfskra flokka. Hinir hafa verið
handteknir til að varðveita fríð-
inn, sagði talsmaðurinn.
Indira Gandhi sagði í dag að hún
hefði skipað sérstaka nefnd til að
fjalla um neyðarástandslögin i
landinu og er sagt hún hafi ákveð-
ið þá nefndarskipan til að kveða
niður þann orðróm að ekki væri
eining ríkjandi innan stjórnarinn-
ar með þær ráðstafanir sem for-
sætisráðherrann hefur gripið til.
Hún sagði ennfremur að full-
kominn ritskoðun mundi ríkja í
landinu um óákveðin tíma og að
hún hefði öruggar heimildir fyrir
því að öfl, andstæð stjórn hennar,
hefðu fengið ýmis konar hvatn-
ingu erlendis frá. Forsætisráð-
herrann sagði mesta hættu stafa
frá öfgasinnuðum öflum til hægri
og vinstri og líkti slikum samtök-
um við nasista, að því er ind-
verska útvarpið sagði í kvöld.
Svo virtist sem forsætisráð-
herrann hefði tögl og hagldir og
hafa allir helztu stuðningsmenn
hennar innan Kongressflokksins
lýst fylgi við aðgerðir hennar, svo
og kommúnistaflokkur landsins,
sem fylgir Moskvulínunni. I bi-
gerð var að efna til skyndiverk-
falla i Bombay til að mótmæla
aðgerðunum en mjög lítil þátt-
taka var i þeim að sögn frétta-
stofa.
Blöð í Indlandi sögðu að lífið
gengi að öllu leyti sinn vana gang
og ekki væri útlit fyrir að um
neina andstöðu yrði að ræða.
Kínverska fréttastofan for-
dæmdi i dag aðgerðir Indiru
Gandhi og sagði að stjórnin í
Indlandi hefði sýnt lýðræði og
frjálsri hugsun hina örgustu fyrir-
litningu, og þessar aðgerðir sýndu
það eitt hversu staða Indiru
Gandhi hafi verið orðin veik,
fyrst hún taldi sig verða að gripa
til slikra ráða.
Opinberir aðilar I Islambad í
Pakistan neituðu í dag að tjá sig
um neyðarlögin i Indlandi og
sögðu að það væri „innanrikis-
mál“ Indverja, sem þeir mundu
engin afskipti hafa af.
íhaldsflokk-
urinn vann
sæti 1 auka-
kosningum
London 27. júní NTB. Reuter.
tHALDSFLOKKURINN bar sig-
ur úr býtum f aukakosningum f
kjördæminu Vestur-Woolwich f
London f dag og úrslit kosninga
þessara hafa þær afleiðingar að
Verkamannaflokkurinn hefur nú
ekki meirihluta f Neðri málstof-
unni enda þótt veldi flokksins sé
ekki talið í hættu, m.a. vegna
stuðningsatkvæða frá ýmsum
smáflokkum.
Litið er á niðurstöður í þessum
aukakosningum sem mikinn per-
sónulcgan sigur fyrir Margaret
Thatcher, leiðtoga lhaldsflokks-
ins, en þetta eru fyrstu aukakosn-
ingar sem fram fara til Neðri
málstofunnar eftir að hún tók við
forystu Ihaldsflokksins. Thatcher
beitti sér verulega í kosningabar-
áttunni. lhaldsflokkurinn jók
fylgi sitt f kjördæminu um 7,6%.
Þetta var þriðja tilraun fram-
hjóðandans Peter Bottomley til
að komast á þing.
Litið er á úrslitin sem verulega
gagnrýni á efnahagsstefnu
stjórnarinnar, en bent er á að það
gerist iðulega f slfkum aukakosn-
ingum að stjórnarflokkur tapi
þingsætum
Uaanda:
Sovétnjósnarar handteknir í USA
Washington 27. júní NTB.
TVEIR menn, sem báðir eru
lfbanskir að uppruna, hafa verið
handteknir af bandarfsku alríkis-
iögreglunni, grunaðir um að hafa
stundað njósnir f þágu Sovétrfkj-
anna, að þvf er skýrt var frá í dag.
Annar mannanna var handtek-
inn i New York og er hann sagður
hafa ljósmyndað leyniskýrslu um
þá hlekki, sem hvað veikastir
væru innan Atlantshafsbanda-
lagsins, og sent hana til Sovét-
manna. Er sagt að hann hafi af-
hent hana fulltrúum Sovétmanna
hjá Sameinuðu þjóðunum. Getur
hann átt yfir höfði sér dauðarefs-
ingu eða ævilangt fapgelsi. Hinn
maðurinn er grunaður um að hafa
verið í vitorði með félaga sínum
og ekki skýrt frá því sem hann
vissi um njósnirnar. Fyrir slíkt
má dæma í allt að ellefu ára
fangelsi í Bandaríkjunum.
Fregnir um
handtökur á
fjölda-
Bretum
Nairobi 27. júní Reuter NTB.
tJTVARPIÐ f Úganda skýrði frá
þvf f dag að margir brezkir
borgarar hefðu verið handteknir í
landinu og yrðu þeir leiddir fyrir
herdómstóla eins og Dennis Hills,
en hann á að taka af Iffi 4. júlf
n.k., ef ekki verður hugarfars-
breyting hjá Amin forseta.
Talsmaður utanrfkisráðuneytis-
ins í London upplýsti f dag að
Jems Hennessy, fulltrúi brezku
stjórnarinnar f Kampala, hefði
ekki getað staðfest þessar fréttir,
en hann væri að rannsaka málið.
Nixon vfirhevrður um Watergate
Washington 27. júnl NTB. Reuter.
RICHARD Nixon fyrr-
verandi Bandaríkjafor-
seti ræddi nú í vikunni
við tvo rannsóknamenn
Watergatemálsins og
sagði í orðsendingu frá
héraðsdómstóli Washing-
ton, að Nixon hafi ekki
verið kvaddur fyrir rétt,
heldur hafi hann skýrt
mál sitt af fúsum vilja og
fjallað um ýmis atriði,
sem séu í tengslum við
Watergatemálið.
Ekki var nánar upplýst um
hvað viðræða þessi hefði snúizt,
en vitað er að lagt er kapp á að
komast að þvf, hvernig að hefur
borið, að segulband með 18
mínútna viðtali hefur verið
fjarlægt frá öðrum upptökum
og ekki sést síðan.
Þetta er í fyrsta skipti að
Nixon hefur talað við rann-
sóknamenn i Watergatemálinu.
Hann var kvaddur sem vitni i
málum þeirra Haldemans,
Michells og Ehrlichmanns, en
læknar hans töldu hann of
sjúkan til að mæta til yfir-
heyrslu. Yfirheyrslan nú fór
fram á heimili hans í Kali-
forniu, 23. og 24. júni og frá
henni skýrt nú að ósk Nixons.
I fréttum útvarpsins sagði að
sumir þeirra Breta sem hafa verið
handteknir í dag hefðu gerzt sek-
ir um miklu verri glæpi en
Dennis Hills, en ekki var skil-
greint nánar í hverju þeir glæpir
væru fólgnir.
Amin hefur ekki sinnt siðasta
kalli frá Harold Wilson forsætis-
ráðherra, en hann hefur ftrekað
að Callaghan utanríkisráðherra
muni fara til Úganda, jafnskjótt
og Amin hafi náðað Dennis Hills.
Talið er að um það bil sjö
hundruð Bretar séu í Úganda. 1
Reuterfréttum segir að Amin for-
seti hafi tvívegis talað við
Kenyatta forseta Kenya í síma í
dag og hafi sá síðarnefndi stungið
upp á þvi að Amin sendi sér-
stakan sendimann til Kenyatil að
ræða „sameiginleg hagsmuna-
mál“. Talið er öruggt að Kenyatta
hafi i samtölum þessum reynt að
fá Amin til að hætta við ógnar-
aðgerðir á hendur Bretum í
Úganda.
Mikil ólga
er í Beirut