Morgunblaðið - 28.06.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JUNÍ 1975
3
ffEg byrjaði
áöur en ég
draga til
að teikna
lærði að
stafs ”
NESTOR fslenzkra listmálara,
Eyjólfur Eyfells, opnar í dag
málverkasýningu að Kjarvals-
stöðum. Er hér um að ræða
yfirlitssýningu á verkum hans
og er hún haldin í tilefni þess
að listamaðurinn varð 89 ára 6.
þessa mánaðar. Eru það af-
komendur Eyjólfs sem að
sýningunni standa. Á henni eru
125 verk, hið elzta málað 1908.
Myndirnar eru allar í einka-
eign og er sýningin ekki sölu-
sýning.
Við brugðum okkur að Kjar-
valsstöðum í gær og hittum
hina gömlu kempu að máli, þar
sem hún sat og sötraði sinn
uppáhaldslíkjör, Drambui. ,,Ég
byrjaði sem natúralisti og enda
líklega sem slíkur", sagði
Eyjólfur er hann gekk með
okkur um salinn. „Ég byrjaði
að teikna áður en ég lærði að
draga til stafs og líklega var ég
farinn að teikna fyrir alvöru
þegar ég var 10 ára, jarð-
skjálftaárið mikla, 1896, en
helgaði mig málaralistinni
algerlega árið 1914 og er því
búinn að vera við í 61 ár og yfir
80 ár eru frá þvi að ég fékk
fyrstu kveikjuna". Þegar ég var
22 ára gekk ég í teikniskóla hjá
Stefáni Eiríkssyni hinum odd-
haga í Reykjavík og var þar í
þrjá vetur og svo stundaði ég
listmálaranám hjá próf. E.O.
Simonson í Dresden í Þýzka-
landi á árunum 1923—24.“
Við spurðum Eyjólf hvort
hann væri farinn að hægja
ferðina því að ekki var á honum
að sjá eða heyra að aldurinn
háði honum nokkuð. ,,Ég mála
ékki lengur á hverjum degi, hef
ekki gert það siðustu árin, en
ég vinn alltaf eitthvað í hverri
viku og stundum koma tarnir
og ég mála upp í þrjár myndir á
dag. Ég get ekki annað
helmingnum af þvi sem fólk
biður mig um og ég er alltaf að
rekast á fólk á förnum vegi sem
er að biðja mig um myndir.
— Nú ert þú mikill spíritisti,
hefur það komið fyrir að þú
hafir fundið fyrir einhverju
slíku í listsköpun þinni?
— Já, ég hef upplifað ýmis-
Lístamaðurinn við eitt verkasinna, Tröllakirkju.
legt. Eitt sinn sat ég við að mála
á Listasafnsloftinu, við
Matthías þjóðminjavörður
vorum góðir vinir og hann lét
mér í té aðstöðu þar, og
kunningi sat hjá mér. Allt í
einu þýtur pensillinn úr hendi
mér langt í burtu og kunningi
minn spyr, hversvegna ég sé að
grýta penslinum frá mér. Ég
sagði honum að ég hefði ekki
hent honum, en að þetta kæmi
oft fyrir mig. Sfðan gerðist það,
að eitt sinn er ég var á miðils-
fundi hjá Hafsteini, að Haf-
steinn, sem ekkert kann í þýzku
fer að tala til min reiprennandi.
Eg spyr hvort þarna sé á
ferðinni prófessor Castelli og
því er játað. Ég spurði hann þá
hvort það væri hann sem slægi
af mér pensilinn, og sagði hann
svo vera. Hann sagðist fylgjast
með mér og liklega hefur hann
ekki verið ánægður með það
sem ég var að gera“, sagði
Eyjólfur að lokum.
Sýningin á Kjarvalsstöðum
verður opin til 6. júlí frá kl.
16—22 virka daga og 14—22 um
helgar.
Grafið í rústum
frá víkingatíma
I SUMAR á að ljúka við uppgröft-
inn í Miðbænum í leit að fornum
minjum. Aður var lokið upp-
greftri í Aðalstræti 14 og 18 en í
sumar er haldið áfram vinnu í
Suðurgötugrunninum. Sænski
fornleifafræðingurinn Elsa
Nordahl stjórnar verkinu, eins og
hún hefur alltaf gert, en með
henni vinna íslenzkir nemar í
fornleifafræði og jarðfræðingur,
Margrét Karlsdóttir, Byrjaði
hópurinn vinnu í byrjun júní, en
fyrstu vikurnar fóru í að hreinsa
grunninn af því sem mokað var
ofan á í fyrrahaust.
Fréttamaður Mbl. hitti Elsu
Nordahl við vinnu sína í grunnin-
um við Suðurgötu í gær. Hún
sagði að þessi uppgröftur væri að
því leyti athyglisverður að þarna
væri komið niður á minjar frá
tíma, sem ekki væri þekktur áður
og þarna er m.a. elzti vísir að
Ianghúsi. Ekki vildi hún tímasetja
nákvæmlega, en sagði að þarna
væru minjar frá því um 800—900.
Minjarnar við Suðurgötu eru mun
flóknari en á hinum stöðunum
tveimur við Aðalstræti, þar sem
aðeins var um einn bæ að ræða á
hvorum stað og e.t.v. annan í
Aðalstræti 14. En við Suðurgötu
hefur hvert húsið verið byggt of-
an í annað og liggja hvert ofan i
öðru. Nú er komið niður á vík-
ingatíma. En á þessum stað hefur
sýnilega alltaf verið búið. Hvort
þarna er bær Ingólfs Arnarsonar
sjálfs er ekki hægt að svara, en
bær hefur þar verið frá svipuðum
tíma. Þarna í grunninum hefur
m.a. fundizt öxi og glerperlur frá
víkingatíma.
Meðfram Suðurgötunni, þar
sem verið er að vinna, má sjá
langhúsið frá elzta tíma, en ofan á
því voru mörg vistlög. Meðfram
langhúsinu í miðjum grunninum
eru leifar af þykkum torfvegg,
sem Elsa Nordahl sagði að ekki
væri vitað hvað hefði verið. En
"Vv'-Xí' v
Else Nordahl fornleifafræðing-
ur stjórnar uppgreftrinum og
er þarna við vinnu sína.
austar eru leifar af smiðju og
fleira. Þar í horni fannst í fyrra
bygg. En frú Nordahl sagði að
verst væri að ekki væri nú hægt
að halda áfram uppgreftri þarna
vegna bygginga beggja megin við.
Margrét Karlsdóttir jarðfræðingur og nemar í fornleifafræði x ið uppgröftinn við Suðurgötu. Þau eru
þarna að hreinsa frá eldstæði frá \ íkingatíma.
f A U - ..."
W æ í jppH
Bœjarstjórn Kópavogs:
Sigurður Helgason
lætur af störfum
Á FUNDI bæjarstjórnar Kópa-
vogs í gær baðst Sigurður Helga-
son, fráfarandi forseti bæjar-
stjórnar, lausnar frá störfum sem
bæjarfulltrúi í Kópavogskaup-
stað, með tilvísun til 23. gr. bæjar-
málasamþykktar kaupstaðarins.
Fyrsti varafulltrúi Sjálfstæðisfl. i
bæjarstjórn Kópavogs er Bragi
Mikkelsen.
Sigurjón Hilarfusson (SFV)
sagði efnislega: Er Sigurður
Helgason, fráfarandi forseti
okkar, lætur af störfum bæjar-
fulltrúa sjáum við á bak einum af
hæfustu bæjarfulltrúum, er hér
hefur setið í bæjarstjórn. Ég vil
sérstaklega þakka honum heil-
brigt samstarf við okkur, sem
skipum minnihluta bæjarstjórn-
ar, og sérstakan drengskap og
háttvísi f forsetastörfum. Sam-
starf við slíkan mann sem Sigurð
Helgason gerir hvern og einn að
betri manni.
Magnús Bjarnfreðsson (F)
þakkaði Sigurði frábær forseta-
störf og ánægjulegt samstarf í
samvinnu Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks innan bæjar-
stjórnar Kópavogs. Allt starf hans
í bæjarstjórn hefur einkennst af
sáttfýsi og samstarfsviðleitni um
hagsmunamál bæjarfélagsins. A
þá viðleitni hefur aldrei fallið
neinn blettur. Ég þakka honum
farsælt og frábært starf í bæjar-
stjórn, sagði Magnús Bjarnfreðs-
son.
Axel Jónsson (S) sagði 13 ára
samstarf við Sigurð Helgason, í 20
ára sögu kaupstaðarins, hafa
verið á einn og sama veginn, i
senn farsælt og ánægjulegt.
Mikill missir væri að slíkum
drengskaparmanni úr bæjar-
stjórn Kópavogs. Þetta samstarf
vildi hann þakka nú, en bæjar-
Afhending próf-
skírteina við HÍ
AFHENDING prófskírteina til
kandídata fer fram við athöfn í
hátiðarsal Háskólans í dag,
laugardag, og hefst kl. 14 Þar
mun Guðlaugur Þorvalnsson
háskólarektor ávarpa kandfdata
og deildarforsetar afhenda pröf-
skirteini. Frú Ruth Magnússon
syngur nokkur lög við undirleik
Ólafs Vignis Albertssonar, segir i
frétt frá Háskóla tslands.
fulltrúastarf Sigurðar Helga-
sonar, sem fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, yrði þakkað á öðrum
vettvangi.
Ólafur Haraldsson (A) sagðist
taka undir töluð orð í garð fráfar-
andi forseta. Hann sagðist sér-
staklega minnast þess hve, hlý-
lega Sigurður hefði tekið sér sem
nýliöa I bæjarstjórn fyrir rúmu
ái'i síðan. Afstaða Sigurðar. sem
Sigurður Helgasoíi. iráfarandi
forseti hæjarst jórnar Kópavogs.
forseta og bæjarfulltrúa í meiri-
hluta bæjarstjórnar, til tillagna
og málflutnings þeirra minni-
hlutamanna hefði verið til fyrir-
myndar, sem þakka bæri sérstak-
lega.
Björn Olafsson (K), sagðist
vart viðbúinn því, að þakka Sig-
urði Helgasyni sem vert væri.
Hann vildi þó taka undir öll orð,
sem til hans hefðu verið mælt við
þetta tækifæri. Sigurður hefði
reynst drenglyndur pólitískur
andstæðingur, sem unnið hefði af
heilindum i bæjarstjórn og
stuðlað að góðu samstarfi í bæjar-
stjórninni.
Forseti bæjarstjórnar Kópavogs
var síðan kjörinn Jóhann H.
Jónsson (F), 1. varaforseti Ólafur
Jónsson (K) og 2. varaforseti
Axel Jónsson (S).
I bæjarráð Kópavogs voru
kjörnir: Stefnir Ilelgason (S),
Rfkharður Björgvinsson (S>,
Magnús Bjarnfreðsson (F),
Björn Ólafsson (K) i>g Ólafur
Harahíss.in (A).