Morgunblaðið - 28.06.1975, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JUNl 1975
II
F
*Sk 22 022
RAUÐARÁRSTÍG 31
Ferðabílar
Bílaleiga, simi 81260
Fólksbílar — stationbílar —
sendibílar — hópferðabílar.
BÍLALEIGAN
MIÐBORG hf.
sími 19492
Nýir Datsun-bilar.
Hjartanlega þakka ég ykkur öll-
um sem glöddu mig með heim-
sóknum, blómum, gjöfum, skeit-
um og simtölum á 80 ára afmæli
minu þann 24. þ.m.
Bið Guð að blessa ykkur og
launa.
Sa/ómon
Mosdal
Sumar/iðason.
Varar við
eyðingu dýra
NATTURUVERNDARÞING var-
ar við hvers konar ráðstiifunum
er miða að þvf að fækka óhóflega
eða eyða dýrategundum (t.d.
fugli eða sel), öðrum en villi-
mink.
Sé um óeðlilega fjölgun að ræða
í stofni einhverrar dýrategundar,
svo að tjón kunni að hljótast af að
dómi Náttúruverndarráðs, skal
hugsanlegt tjón ítarlega kannað.
Ef fækkunaraðgerðir þykja æski-
legar að lokinni slfkri könn-
un, skal leitazt við að finna orsak-
ir fjölgunarinnar og miða
fækkunaraðgerðir við þær orsak-
ir ef kostur er. Jafnframt skal
þess gætt, að fyrir liggi álit sér-
fróðra manna, er ráðið viður-
kennir eða tilnefndir á því, hver
verði áhrif einstakra eyðingar-
aðferða á samhengi lífs á
viðkomandi svæði.
Náttúruverndarþing 1975 skor-
ar á Alþingi að veita fé á næstu
fjárlögum til visindalegra rann-
sökna á tjóni af völdum svart-
baks, hrafns, villiminks og refs og
til athugunar á hvaða ráðstafanir
skuli gera að þeirri rannsókn lok-
inni.
Seldi 40
UM tvö þúsund manns komu á
sýningu Guðmundar Karls á
Kjarvalsstöðum, sem lauk um síð-
ustu helgi. Fjörutíu málverk seld-
ust.
Svartsengishá-
tíð um helgina
SVARTSENGISIlATlÐIN við
Grindavik verður haldin um helg-
ina. Hátíðin hefst kl. 14 á laugar-
dag með þvi að svæðið verður
opnað mótsgestum. Á laugardags-
kvöldið leika svo Júdas og Haukar
fyrir dansi frá kl. 20—02. A
sunnudaginn hefst hátíðin með
því, að létt músík verður leikin
frá kl. 11—14, en þá hefjast ýmis
skemmtiatriði. Fyrst verður júdó-
sýning, þá karatesýning, Róbert
bangsi skemmtir börnunum,
Spilverk þjóðanna verður með
þjóðlagasöng, smellin atriði úr ís-
lendingaspjöllum verða flutt,
Halli og Laddi skemmta og Bald-
ur Brjánsson sýnir töfrabrögð.
Síðan verður leikin létt músik frá
kl. 18—19 en frá þeim tíma verð-
ur dansleikur, sem stendur til kl.
01.
Útvarp Reykjavlk
HORGUNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00.
Morgunhæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Geir Christensen les
söguna „Höddu“ eftir Rachel
Field (6).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Óskalög sjúklinga kl. 10.25:
Kristfn Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
SIDDEGII)
14.00 Á þriðja tfmanum
Páll Heiðar Jónsson sér um
þáttinn.
15.00 Miðdegistónleikar:
Sumartónleikar frá Astralfu
Sinfóníuhl jómsveitin f
Sidney leikur.
Einsöngvarar: Pearl
Berridge og Ronal Jaekson.
Stjórnendur: Charles
MacKerras, Henry Krips og
Patrick Thomas.
15.45 I umferðinni
Árni Þór Eymundsson
stjórnar þættinum.
(16.00 Fréttir. 16.15 Veður-
fregnir).
16.30 1 léttum dúr
Jón B. Gunnlaugsson sér um
þátt með blönduðu efni.
17.20 Nýtt undir nálinni
Örn Petersen annast dægur-
lagaþátt.
Laugardagur
28. júnf 1975
18.00 Iþróttir
Umsjónarmaður Ömar
Ragnarsson.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.30 Nýandlit
Áhugafólk um leik og söng
frá ýmsum stöðum á landinu
flytur ýmiss konar efni.
Meðal flvtjenda eru söng-
flokkurinn „Ekki neitt“ frá
Keflavfk, Bræðrakvartettinn
frá Akranesi, ölafur Ingi-
mundarson úr Reykjavfk og
Revnir Örn Leósson frá
Akurevri.
Kynnir Erna Einarsdóttir.
Umsjónarmaður Tage
Ammendrup.
21.10 Fjölleikahúsið
(The Greatest Show on
Earth)
Bandarfsk bfómynd frá árinu
1953.
Leikstjóri Cecil B. De Mille.
Aðalhlutverk Charlton
Heston. Betty Hutton og
JamesStewart.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
Myndir lýsír lífinu í stóru
fjölleikahúsi, þar sem ásta-
mál og afhrýðisemi bfandast
keppninni um frægð og vin-
sældir.
23.30 Dagskrárlok
L4UG4RD4GUR
18.10 Sfðdegissöngvar. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVOI.DH)
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Hálftíminn
Ingólfur Margeirsson og
Lárus Öskarsson sjá um þátt-
inn, sem fjallar um þjóðar-
stoltið 17. júnf.
20.05 Hljómplöturabb
Þorsteinn Hannesson bregð-
ur plötum á fóninn.
20.50 „Heimkoma,“ smásaga
eftir Martin A. Hansen
Sigurður Guðmundsson rit-
stjóri fslenzkaði. Þorsteinn
Gunnarsson leikari les.
21.20 Pfanóleikur
Rawicz og Landauer leik.
sfgilda dansa.
21.45 Dönsk Ijóð
Hannes Sigfússon skáld les
úr þýðingum sfnum.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Danslög
23.55 Fréttir f stuttu máli.
Dagskrárlok.
ER H0 5ÍH T3
Laugardagskvikmyndin
FJÖLLEIKAHÚSIÐ
I-4/2XQ ER HB HEVRRT3
Laugardagskvikmynd-
in i sjónvarpinu í kvöld
heitir Fjölleikahúsió, og
það er einmitt það sem
hún sýnir. Ef manni þyk-
ir gaman að fjölleikasýn
ingum, þá kann maður að
meta þessa miklu fjöl-
leikasýningu blandaða
ástarævintýri, sem Cecil
B. Mille felldi eðlilega
inn í myndina, segir í
einni kvikmyndabókinni
okkar. Þeim, sem þykir
gaman að sirkussýning-
um, kann samt að leiðast
svolítið, þegar þessar
glæsilegu sýningar víkja
strax í upphafi myndar
að nokkru fyrir fremur
hversdagslegum ástar-
vandræðum, þar sem
Betty Hutton, Cornel
Wilde, James Steward,
Dorothy Lamour og
Charlton Heston koma
við sögu. Þetta eru allt
leikarar sem lengi voru
hæst á stjörnuhimninum
í Hollywood, og margir
hafa sjálfsagt gaman af
að sjá enn einu sinni.
Myndin er gerð árið
1952, og Cecil B. Mille,
kvikmyndajöfurinn
mikli, hafði allt frá því
hann byrjaði í upphafi
aldarinnar ávallt sér-
staka tilfinningu fyrir
þeim viðhorfum sem ríkj-
andi voru í þjóðfélaginu
hverju sinni, og lag á að
sveigja viðfangsefni sín í
kvikmyndagerð til sam-
ræmis við það. Allt til
æviloka 1959 hélt hann
þessum hæfileika og lík-
lega hefur íburðarmikil
glansmynd eins og „The
Greatest Show on
Earth“, eins og Fjölleika-
húsið heitir á frummál-
inu, fallið vel að and-
rúmsloftinu um 1950.
Enda varð hún býsna vin-
sæl.
Æringinn Betty
Hutton er ein aðal-
stjarnan í laugar-
dagskvikmyndinni,
sem gerist í fjöl-
leikahúsi, og þarna
er hún í einni sirk-
ussýningunni.
Þorsteinn Hannesson
ætlar í hljómplötu-
rabbi sínu í kvöld að
byrja aö leika Ástar-
dúettinn fræga úr Faust
eftir Gounod, og nú ætlar
hann að leyfa útvarps-
hlustendum að heyra
hann sunginn af sex mis-
munandi söngvurum, í
gömlum og nýjum upp-
tökum, einni frá 1955 og
annarri frá 1905 og þeirri
þriðju frá 1910 og verður
gaman að bera saman
túlkunina. Allt eru þetta
frægir söngvarar erlend-
ir, sem syngja. Enginn
íslenzkur söngvari hefur
sungið þennan dúett á
plötu. Við reyndum að fá
Þorstein til að segja okk-
ur hverjir söngvararnir
væru, en hann færðist
undan því að taka púðrið
úr sínum eigin skýring-
um í þættinum, en sagði
ósennilegt aö hann kæmi
með þennan dúett án
þess að uppáhalds söngv-
ararnir hans, Caruso og
John McCormack, kæmu
við sögu. Úr því hann var
byrjaður með ástardúett,
þá mun hann í þættinum
í kvöld halda áfram að
leika ástardúetta.
Þorsteinn er búinn að
vera með hljómplöturabb
í útvarpinu meira og
minna í 10—15 ár, við
miklar vinsældir, en
neyðist til að taka sér fri
frá því öðru hverju, eins
og hann orðaði það við
okkur. Guðmundur Jóns-
son hefur stöku sinnum
leyst hann af. Og nú ætl-
ar Þorsteinn að halda
áfram hljómplöturabb-
inu í sumardagskránni.