Morgunblaðið - 28.06.1975, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JUNl 1975
7
„Alþýðublað-
ið” í Portúgal
og á íslandi
Blaðadauði, sem herj-
að hefur á frjálsa skoð-
anatjáningu í okkar
heimshluta, hefur verið
og er lýðræðissinnum
áhyggjuefni. Stöðvun á
útgáfu málgagns jafnað-
armanna f Portugal, sem
herforingjaklíka og þar-
lendur kommúnista-
flokkur standa að með
ofbeldisaðgerðum, er
annars eðlis, þótt hættu-
boði sé öngvu að síður.
Sama máli gegnir um
bann við frjálsri blaðaút-
gáfu og flokkastarfsemi
[ öllum rfkjum, sem lúta
kommúnískri stjórn.
Þjóðviljinn, sem græt-
ur krókódilstárum yfir
erfiðleikum hérlends
dagblaðs, Alþýðublaðs-
ins, sem rambar á barmi
rekstrarstöðvunar vegna
fjárhagserfiðleika, fagn-
ar hinsvegar þeim þjóð-
félagsháttum, þar sem
einn flokkur stýrir og
stjórnar öllum fjölmiðl-
um; sjónvarpi, útvarpi
og dagblöðum og al-
menningur á ekki völ
annars fréttaefnis en
þess, sem áróðursverk-
smiðja viðkomandi
kommúnistaflokka mat-
reiðir. Af þessum sökum
er þróunin i Portúgal
Þjóðviljanum ógeðfelld.
„Óskalandið, Sovét is-
land, hvenær kemur
þú?"
Alþýðublaðið
og Þjóðviljinn
I Viðavangi Timans i
gær er fjallað um að-
stöðumun Alþýðublaðs-
ins og Þjóðviljans á vett-
vangi islenzkrar blaðaút-
gáfu. Á sama tima sem
framhald útgáfu Alþýðu-
blaðsins er vafabundin,
vegna fjárhagserfið-
leika, byggir Þjóðviljinn
útgáfuhöll. Þetta gerist
að sögn Timans þó vitað
sé, að rekstur Þjóðvilj-
ans gangi á brauðfótum,
svo naumast byggir
blaðið höll sína með af-
gangstekjum, sem öngv-
ar eru. Auk hallarinnar i
Reykjavik er Alþýðu-
bandalagið á Akureyri
að flytja inn i veglegt
húsnæði, sem innréttað
hefur verið með ærnum
kostnaði. og á að vera
félagsmiðstöð flokks-
starfs og blaðaútgáfu
þar nyrða. Á Sauðár-
króki keyptu kommún-
istar og hótelbyggingu
undir starfsemi sina og
fyrirhugaða prent-
smiðju. Og fleiri munu
dæmi fjármagns og riki-
dæmis „flokks öreig-
anna".
OgTiminn spyr: Hvað-
an koma Alþýðubanda-
laginu fjármunir til að
standa straum af allri
þessari fjárfestingu?
„Hingað til hefur Þjóð-
viljinn staðfastlega mót-
mælt þvi, að þeir fái
peningasendingar frá
vinum sinum austan
járntjalds." „Það skyldi
aldrei vera, að Alþýðu-
bandalagið sé komið i
hóp þeirra, sem Þjóðvilj-
inn hefur með vandlæt-
ingu kallað braskara-
flokka og flokka fjár-
málaspekúlanta?"
Jafnvel
Þjóðviljinn
gerir sitt gagn
Siðan segir Timinn:
„Það er ekki að sjá, að
það riki neitt kreppu-
ástand hér á landi, þeg-
ar fjárvana stjórnmála-
flokkur eins og Alþýðu-
bandalagið hefur tugi
milljóna til ráðstöfunar
til byggingarfram-
kvæmda." „En sitji
Þjóðviljinn við sinn keip
og haldi áfram kreppu-
skrifum sinum, er
Alþýðubandalagið boðið
velkomið i hóp braskara-
flokkanna, þvi það er
útilokað að tala um
kreppu og byggja sam-
timis fyrir tugmilljónir,
nema þá að fjármagnið
komi að austan," segir
Timinn að lokum.
Hér skal engum get-
um leitt að fjármagns-
austri Alþýðubandalags-
ins. Hins vegar er ekki
óeðlilegt að þessi mál
vekji ýmsar spurningar,
sem almenningur leitar
svara við i huga sinum.
Skortur rauðagulls virð-
ist aldrei hafa verið
starfsemi Alþýðubanda-
lagsins fjötur um fót.
Efnahagskreppan, sem
þrengt hefur að fólki og
fyrirtækjum, virðist fara
fyrir utan garð i fjárfest-
ingu Þjóðviljamanna.
Alþýðublaðið er gam-
alt og gróið blað. Morg-
unblaðið hefur oftar en
hitt verið málefnalega á
öðrum meiði en Alþýðu-
blaðið, þó stundum hafi
leiðir legið saman. Engu
að siður ber að harma
rekstrarerfiðleika blaðs-
ins og.láta i Ijós vonir
um að úr þeim rætist.
Ein af höfuðstoðum lýð-
ræðisins er, að ólik þjóð-
málaviðhorf eigi greiðan
aðgang að almenningi
til ihugunar, enda slikt
forsenda eðlilegrar og
frjálsrar skoðana mynd-
unar og tjáningar. Jafn-
vel Þjóðviljinn gegnir
sínu hlutverki í islenzk-
um blaðaheimi. Heiðar-
leg og drengileg blaða-
mennska fær aukið gildi
í augum almennings ef
nauðsynlegur saman-
burður við hið gagn-
stæða er fyrir hendi.
Smám saman hefur fengist
nokkuó góð yfirsýn um stærð,
stöðu og rás hins nýja auðmagns
oliuframleiðslurikjanna — svo-
kallaðra petrodollara. Þó eru enn
ýmis atriði óljós.
Heildartekjur meðlimaríkja
OPEC, bandalags olíuframleiðslu-
ríkja, af olíusölu s.l. ár námu sem
næst 110 milljörðum dollara. Til
samanburðar má geta þess að
áætlaðar brúttóþjóðartekjur í
Bandaríkjum Norður-Ameríku á
Tafla I
Oliutekjur meölimaríkja bandalags olíuframleiðenda, OPEC, og
innflutningur sömu áriö 1974.
3 s's 3-B
s O eö U 3 tuo c
— a £ O Inn- flutn c tP.2 C ®":©
Saudi Arabía 25 6 25
Kuwait 10 2 20
Líbía 10 5 50
Alsír 6 5 90
Persía 22 11 50
Venezuela 10 6 60
Nígería 7 5 70
Indónesía 5 4 80
Önnur OPEC lönd 15 6 40
Samtals 110 50 45
Hvað varð um
olíuauðmagnið?
liðnu ári námu 1300—1400
milljörðum dollara.
Árið 1973 voru sambærilegar
tekjur þessara olíuframleiðslu-
ríkja 30 milljarðar dollara.
Á töflu I eru tekjurnar sundur-
liðaðar eftir löndum og sýnt, hve
miklum hluta sömu tekna viðkom-
andi lönd hafa varið til innflutn-
ings á vörum og þjónustu á sama
tímabili. Allar eru tölur þessar
eftir Braga
Kristjónsson
eftir því sem næst verður komist,
en nokkur frávik má þó telja
hugsanleg.
Árið 1974 voru nettótekjur oliu-
framleiðsluríkjanna þannig sem
næst 60 milljarðar dollara. Meira
en helmingur þessa auðmagns
rann til þriggja ríkja: Saudi Ara-
bíu (19 mia), Persíu (11 mia) og
Kuwait (8 mia).
Það hefur þótt mjög forvitni-
legt meðal fréttaskýrenda og í
alþjóða fjármálaheiminum að
fylgjast með hvernig þessi ríki
hafa ráðstafað hagnaðinum af
oliuvinnslunni. Sérstaklega hefur
það þótt eftirtektarvert að fylgj-
ast með fjárfestingu þeirra á
Vesturlöndum, t.d. allmiklum
kaupum þessara aðilja á hluta-
bréfum í þýsku fyrirtækjasam-
steypunum Krupp og Daimler
Benz.
Eins ■'g sjá má á meðfylgjandi
teikningu er þó aðeins um að
ræða mjög óverulegan hluta
heildarhagnaðarins, sem enn hef-
ur verið varið til hliðstæðra að-
gerða.
Því sem næst 40% af heildinni
var sett í umferð á Euro-
gjaldeyrismarkaðnum, aðallega í
formi skammtímalána og nær ein-
göngu ídollurum. Helmingurþess
fjármagns, sem leitað hefur til
Bandaríkjanna, fór til kaupa á
ríkisskuldabréfum, en hinn helm-
ingurinn hefur verið lagður þar á
banka. Auk þess hafa fjármagns-
eigendurnir keypt í Bandaríkjun-
um hlutabréf i fyrirtækjum fyrir
um 100 milljónir dollara og lika
Framhald á bls. 8.
Alþjóða- gj*ld
Kuro- eyrls- AAstod
Banda- gjald- Evröpa sJAdur/ til
eyrls- Brel- og AlþJ. þróunar-
rlkin markadur land Japan banki rfkja Annaó
24% 3«% 12% 8% 4% 4% 10%
S 23 mia
$ 7 mia
$ 5 mia
______
$2 mia
I
$2 mia
1
16 mia
+
Auglýsing
frá sóknarnefnd Gaulverjabæjarsóknar:
Vegna fyrirhugaðrar kortlagningar og lagfæringar á kirkjugarði Gaul-
verjabæjarkirkju, eru hér með allir þeir er eiga ómerkt leiði vanda-
manna sinna í kirkjugarðinum, og ekki hafa haft samband við
umsjónarmann kirkjugarðsins, Sigurð Pálsson á Baugstöðum, minntir
á að gera það hið allra fyrsta eða eigi síðar en hinn 1 5. ágúst 1 975.
1. júní 1975.
f.h. sóknarnefndar Gaulverjabæjarsóknar.
Gunnar Sigurðsson.
Seljatungu.
Rowentdk
15 bolla
kaffivél
(KG 24)
Hellir uppá á 5 —10
mínútum.
Heildsölubirgðir:
Halldór Eiríksson & Co.
Simi 83422
FLESTAR STÆRÐIR
HJÓLBARÐA
Vörubila-
Fólksbila-
Vinnuvéla-
Jeppa-
Traktorsdekk
Vörubiladekk á
Tollvörugeymsluverði
gegn staðgreiðslu
ALHLIÐA HJOLBAROAÞJONUSTA
OPIÐ 8 til 7
HJÓLBARÐAR HÖFOATÚNI 8 Simi 16740
Véladeild Sambandsins Simi 38900
MARKHANI Sturtuvagnar
Burðarmiklir hjólbarðar 10.00 x 16 8 strigalaga
Stálpallur og 43 cm há stál skjólborð.
Sérstaklega hentugir vagnar fyrir verktaka og bæjarfélög.
Eru nú fyrirliggjandi á mjög hagstæðu verði aðeins kr. 247 þús.
Hafið samband við sölui enn okkar sem fyrst.
I
Globus?
Lágmúla 5. Sími-81555