Morgunblaðið - 05.07.1975, Page 7

Morgunblaðið - 05.07.1975, Page 7
7 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLI 1975 Mao og Þjóðviljinn Bersýnilegt er, að skriffinnar Þjóðviljans hafa ekki kynnt sér nægilega vel stefnu og markmið Maos for- manns og stjórnar hans í Peking i alþjóðamálum. í gær segir Þjóðviljinn: „ . . . stefna Mao i utan- rikismálum og tilraun hans til vinsamlegra samskipta við Vestur- lönd miða fyrst og fremst að þvi að ná góð- um tengslum við EBE- rikin og ná Vestur- Evrópurikjunum sem bandamanni gegn yfir- gangi beggja risaveld- anna í austri og vestri. Markmið Kínverja i ut- anríkispólitík stefnir í þá átt, að Sovétríkin og Bandarikin einangrist. en Kína, EBE. Japan og fleiri uppvaxandi veldi geti breytt núverandi stöðu." j þessari tilvitnun i Þjóðviljanum felst grundvallar misskilning- ur. Megináhyggjur Pek- ingstjórnarinnar vegna stöðu Kina stafa af hinni gifurlegu hernaðarupp- byggingu Sovétrikjanna i námunda við norður- landamæri Kina. Þar stendur nú ein milljón sovézkra hermanna, grá- ir fyrir járnum, og skýr- ingin á því getur ekki verið nema ein. Þess vegna var það á árinu 1972, sem Kínverjar buðu Nixon, þáverandi Bandarikjaforseta, i heimsókn til Peking. Þeir buðu ekki forustu- mönnum Efnahags- bandalagsrikjanna eða Japan af þeirri einföldu ástæðu, að þeir eru raunsæismenn og þeim er Ijóst, að ekkert þess- ara ríkja hefur hernaðar- afl til þess að skapa mótvægi gegn Sovét- rikjunum. Eina rikið i heiminum. sem hefur afl til þess, er Bandarikin. En jafnhliða vinsamlegri samskiptum við Banda- ríkin hafa Kinverjar ber- sýnilega leitað eftir nán- ari samskiptum við NATO-rikin og Efna- hagsbandalag Evrópu. Sú viðleitni stefnir öll að sama marki, að skapa mótvægi gegn veldi Sovétrikjanna, en slíkt mótvægi væri ekki til staðar, ef það væri rétt hjá Þjóðviljanum, að Kinverjar vildu einangra Bandarikin. Þessu til viðbótar hefur það að Mao lekur á móti Marco forseta Filippseyja í Peking. Marco hefur verift dyggasti leppur ltandarikjanna i Sa-Asiu. sjálfsögðu vakið mikla eftirtekt i kjölfar falls Vietnam, Kambódiu og Laos að Kínverjar hafa á mjög augljósan hátt gef- ið I skyn, að þeir teldu illa farið, ef Bandarikja- menn drægju sig of skjótlega til baka frá öðrum bækistöðvum i Suðaustur-Asiu, þar sem það mundi gera Sovét- rikjunum kleift að ryðj- ast inn i það tómarúm, sem á þann veg mundi skapast. Heimsókn Markosar til Mao Þessi afstaða Peking- stjórnarinnar kom mjög glögglega i Ijós fyrir nokkru. þegar Markos forseti Filippseyja fór i heimsókn til Peking og átti þar m.a. viðræður við Mao formann, en i filefni þeirrar heimsókn- ar flutti einn af helztu valdamönnum í Kina ræðu. sem vakið hefur heimsathygli, en I þeirri ræðu lét hann mjög ber- lega i Ijós þá skoðun, að óhyggilegt væri að Bandaríkjamenn drægju sig með of skjótum hætti í hlé i Suðaustur- Asíu. þ. á m. frá bæki- stöðvum þeirra i Filipps- eyjum. Afstaða Þjóðvilj- r.ans í þessum deilum hinna miklu kommún- istavelda Sovétríkjanna og Kína er hins vegar alveg Ijós. Þjóðviljinn hefur að sjálfsögðu skip- að sér mjög eindregið i fylkingu með Moskvu- mönnum og sést það t.d. á meðfylgjandi mynd og myndatexta, sem birtist með tilvitnun þeirri, sem hér var birt úr Þjóðviljanum í gær, en myndin sýnir Mao taka á móti Markos. for- seta Filippseyja, og i myndatexta er þess sér- staklega getið, að Mark- os hafi verið „dyggasti leppur Bandarikjanna i Suðaustur-Asiu." Af þessu má glögglega ráða, að Þjóðviljanum hugnast ekki hin auknu tengsl milli Peking- stjórnarinnar og NATO- ríkjanna og gefur það til kynna, að heimsvalda- stefna Sovétrikjanna og stuðningur við hana sé þeim Þjóðviljamönnum hjartafólgnari en viðun- andi samstarf NATO- rikjanna og eins mesta sósíalistaveldis I veröld- inni. Hugo Hegeland, prófessor: Fíntað framleiða — Ijóttaðselja Að selja — það er hlutur, sem hálfgert óbrað hefur verið að á öllum tímum, en aftur á móti hefur verið litið allt öðrum augum á þá, sem hafa framleitt. Sænski prófessorinn Hugo Hegeland ræðir hér um ástæðurnar til þess, að þannig hafi viðtekin venja orðið. Hann heldur því fram meðal annars, að mönnum hafi sézt yfir, að vörudreyfingin krefjist einnig mikilverðs framtaks. (Innan sviga eru skýringar . þýðanda). Griski heimspekingurinn Aristoteles, sem var uppi 384—322 fyrir Krist, kom fram með lævislega röksemdarfærslu til óvirðingar verzlunarstarfsemi. Hann greindi á milli sölu á vörum, sem menn höfðu sjálfir framleitt, og söiu á vörum, sem menn höfðu keypt til að selja aftur. Hið fyrra var álitið nauðsynlegt og virð- ingarvert, en hitt bæði óeðlilegt og ósæmilegt. Það var aðeins ein aðferðin til að auðgast á annarra kostnað. Sjónarmið guðspjallanna Alkunn er sagan um Jesús og vixlarana. (Og Jesús gekk inn I helgidóm Guðs og rak út alla, er seldu og keyptu i helgidóminum, og hratt um borðum víxlaranna og stólum dúfnasalanna og segir við þá: Ritað er: HÚs mitt á að nefnast bænahús, en þér gjörið það að ræningjabæli ). Þannig var kaup« mönnunum lýst sem auðvirðT legustu mönnum, en það var hægt vegna hins litla álits. sem verzlunarsféttin naut á þessum tima. En aftur á móti er erfitt að skilja, að i ummælum Jesús hafi falizt allsherjar fordæming á verzlunarstéttinni sem slikri. En i túlkunum sínum komust þó kirkju- feðurnir að þeirri niðurstöðu án þess að láta neinar röksemda- færslur freista sin. Jóhannes Chrysostomus (345—407 e.Kr., dýrlingur, yfirbiskup i Konstantin- opel, einn frægasti mælskusnill- ingur grisku kirkjunnar, en þvi hlaut hann nafnið Chrysostomur, sem þýðir gullinmunnur) hélt þvi fram, að engum væri vísað úr helgidóminum fyrir neitt annað en synd. Verzlunarmönnunum, sem kaupa i því skyni að selja með ágóða, hafi verið visað úr helgi- dóminum. Sem sagt þess vegna er verzlun syndsamleg! Að sjálfsögðu breyttist þessi skilningur með timanum og sér staklega eftir að utanrikisverzlun- in varð mikilvægari. Þá gátu menn ekki lengur dregið það í efa, að vöruflutningur væru nauðsynlegir og mikilsverðir, en það var aftur á móti hægt að neita þvi, að þeir sköpuðu verðmæti. Þvi varð held- ur ekki á móti mælt. hversu veiga- mikið það væri, að menn fengjust til að taka á sig áhættu. en þó vildu menn ekki viðurkenna, að á neinn hátt væri um skapani starfsemi að ræða, sem væri forsenda fyrir þvi, að þessir menn ættu hlutdeild i verðmætasköpun- inni. Á blómaskeiði merkantilismans (hagfræðistefnu, sem hafði mest áhrif frá 16. og fram á 18. öld, en kjarni hennar var að treysta efna- hagsgrundvöllinn með söfnun góðmálma með þvi að takmarka innflutning, en auka útflutning) breyttist afstaðan til verzlunar- stéttarinnar til mikilla muna, og kaupmaðurinn óx stöðugt að áliti innan þjóðfélagsins. En skoðun manna almennt á þvi, hvaða starf- semi væri framleiðin og hver ekki, breyttist ekki að marki. Fysiokratisminn (hagf ræðikenn- ing, sem kom fram á 18. öld) byggðist á gamalli skoðun þess efnis, að landbúnaðurinn væri grundvallar atvinnugreinin, sem skapaði verðmæti. Hún ein fram- leiddi meira en til hennar væri lagt. Og þegar hinir svonefndu klassisku þjóðhagfræðingar með Adam Smith i broddi fylkingar settu fram kenningar sinar um vinnuna sem hið eina, er skapaði verðmæti, tóku þeir einmitt mið af ritum fysiokratanna. Og þar með tóku þeir einnig að verulegu leyti við hinum neikvæðu skoðunum fysiókratanna á vörudreifingunni. Vanrækslusynd þjóðfélags- fræðinganna Ef á að tala um synd og verzlunarstétt í einhverju sam- hengi, verður að benda á þá VANRÆKSLUSYND, sem þjóð- félagsfræðingar hafa gert sig seka um, er þeir hafa útskýrt gildi vöru- dreifingarinnar fyrir þjóðarbúskap- inn. Skýringar þeirra hafa vægast sagt verið vesællegar, og ástæðan getur varla verið önnur en sú, að þeir hafi hreint og beint ekki skilið eðli málsins. Undantekningar eru þó til og meðal þeirra er einmitt Adam Smith. En annars er skiln ingurinn áberandi vegna fjarveru sinnar og alveg sérstaklega meðal brezkra hagfræðinga allt fram á vora daga. Þjóðfélagsfræðingunum til málsbóta má telja, að vörudreif- ingin skipti miklu minna máli fyrr á timum en í nútima þjóðfélögum, og að þess vegna töldu þeir sig hafa rétt til að sleppa henni, er hagfræðikenningar voru settar fram. Formlega var vandinn leyst- ur þannig, að við skilgreiningu á „framleiðslunni" var vörudreifing- in innifalin i henni, þannig að endursala varð að hreinu verð- lagsmáli. Síðari tima þjóðfélagsfræðing- um má telja það til tekna, að þeir hafa ráðizt gegn hinni klassisku verðgildiskenningu. Eins og kunn- ugt er dró Karl Marx beinar álykt- anir af vinau-verðgildiskenningu klassisku hagfræðinganna og byggði allsherjar þjóðfélagsskoðun á hinni röngu kenningu. Það var ekki fyrr en á áttunda tug fyrri aldar, að takmarka- verðgildishagf ræðingarnir Jevons, Menger og Walras komust að þeirri niðurstöðu, að það væri alls ekki hægt að segja, að framleiðsl- an ein skapaði verðmæti. Verðgildi vöru færi eftir þeim notum, sem neytandinn áliti sig hafa af henni. Gæti maður ekki selt vöru, hefði hún alls ekkert þjóðfélagslegt verðgildi, hversu mikil vinna, sem lögð hefði verið i framleiðslu hennar. Þar með opnuðust loks augu hagfræð- inganna fyrir gildi endursölunnar. Segja má, að takmarka- verðgildiskenningin hafi gefið endursölustarfinu nýja stærð. Enda var hún stöðugt áþreifan- legra. eftir þvi sem söluvandamál iðnaðarþjóðfélaganna urðu meira knýjandi. Fjölbreytni þarfanna Þegar menn höfðu nú loksins komizt að raun um, að vörudreif- ingin væri jafnmikilvæg og starf Framhald á bls. 11 Happdrætti Framkvæmdanefndar Félags heyrnarlausra og For- eldra- og styrktarfélags heyrnardaufra. 1. júli 1975 voru útdregin hjá Borgarfógetaembættinu í Reykjavik eftirtalin númerí ofangreindu happdrætti: 5518 _ 7058 — 9215 — 6672 — 3183 — 8392 — 1266 — 7236 — 7255 — 617. Handhafar framangreindra númera hafi samband við skrifstofu félag- anna i Hátúni 1 Oa, kl. 9 — 1 1 virka daga. Simi 30430. GISTIHÚSIÐ HVOLSVELLI Sími 99-5187 — 5134 Bjóðum góð herbergi og morgunverð. Opið allt árið. Sælgætisgerðin Freyja tilkynnir: Vegna sumarleyfa verður verksmiðjan og sölu- deildin lokuð frá 14. júlí til 11. ágúst. Kaupmenn gerið því pantanir yðar tímanlega. Sími 82482 — 82483. Sumarhótelið Nesjaskóla Hornafirði hefur opnað. Gisting — svefnpokapláss — morgunverður — smurt brauð o.fl. — á kvöldin RowenfA, Straujárn í mörgum gerðum og litum. Heildsolubirgðir Halldór Eiriksson & Co Simi 83422 a Frá menntaskólanum á ísafirði Skrifstofa Menntaskólans á ísafirði verður lok- uð frá 2. júlí til 1. ágúst n.k. Umsækjendur um starf hag- eða viðskiptafræð- ings hjá Menntaskólanum og Fjórðungssam- bandi Vestfirðinga, er vilja leita nánari upplýs- inga um starfsaðstöðu og kjör, snúi sér á umræddu tímabili til Karls M. Kristjánssonar, viðskiptafræðings hjá Fjórðungssambandi Vest- firðinga (s. 94-31 70). Skólameístari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.