Morgunblaðið - 05.07.1975, Side 12

Morgunblaðið - 05.07.1975, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLI 1975 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80 Áskriftargjald 700,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið Vafasamur heiður Eins og vikið var að i forustugrein Morgun- blaðsins í gær er ísland nú í hópi 7 landa í heiminum, sem býr við mesta verð- bólgu. Auk íslands eru í þessum flokki 4 Suður- Ameríkuríki, Chile, Argen- tína, Uruguay og Bolivía, eitt Afríkuríki, Tanzanía, og Kambodía. í þessum 7 ríkjum er verðbólgan allt frá 53,8% í febrúarmánuði s.l. á íslandi upp í 394% í Chile. Þannig hefur okkur íslendingum tekizt að kom- ast í flokk með þeim Suður- Ameríkuríkjum, sem mesta eftirtekt hafa vakið á undanförnum árum vegna gífurlegrar óðaverð- bólgu, sem hefur verið slík, aö með ólikindum er, að þessi ríki hafi yfirleitt stað- izt sem slík. Og er í því sambandi eftirminnilegt, að brezka blaðið Economist taldi fyrir nokkrum misser- um, að lýðræði gæti ckki staðizt, ef 50% verðbólga ríkti lengur en um tveggja ára skeið, enda mun þaó vera svo, að ísland er eina ríkið af þessum 7, sem býr við lýðræðislegt þjóðskipu- lag, sem mark er á takandi. Á sama tíma og staóa okkar í verðbólgumálum er þessi, er heldur farið aó draga úr verðbólgu í flest- um löndum heims. í febrúarmánuði s.l. var meðaltal verðbólgu í þeim 96 löndum, sem eiga aðild að Alþjóðargjaldeyris- sjóönum 14%, og var það lægsta tala frá því í febrúar 1974. Frá því í októbermánuói á s.l. ári hefur verðbólga í 24 ríkustu iðnríkjum veraldar verið minni en 1% á mánuði hverjum, þ.e. und- ir 12% á ári. 1 Japan var verðbólgan á ársgrundvelli 26%, í nóvember 1974, en hún var komin niður í 14% I aprílmánuði s.l. Eina landið í okkar heimshluta, sem hefur einhverja mögu- leika á að komast í nám- unda við verðbólguna á íslandi, er Bretland, en þar er verðbólgan nú á ári milli 25—30%, og miðað við verðbólguvöxtinn í mai- mánuði s.l. í Bretlandi sýnist verðbólgan þar stefna í milli 40 og 50% aukningu á ári. Þessi alvarlega staða okkar Islendinga í verð- bólgumálum hlýtur að verða okkur mikið um- hugsunarefni. Það er okk- ur til lítils sóma að vera komin i efsta flokk verð- bólgulanda í heiminum og augljóst er, að hér er að verulegu leyti um að ræða heimatilbúinn vanda, sem ekki verður skýróur ein- göngu meó hækkandi verð- lagi á innfluttum vörum, þar sem nágrannaríki okkar hafa einnig búið við slíkt hækkandi verðlag á innflutningsvarningi og komast þú hvergi í námunda við okkur í verð- bólguvexti. Lengi hefur það orð legið á hér á Islandi, að verðbólgan hefði ýmsa kosti og hefði meðal annars gert öllum almenningi kleift aö koma sér upp eigin húsnæði. ()g vera má, að sitthvað sé til í þeirri almennu og útbreiddu skoóun, Hitt er jafnvíst, að hvort sem verðbólgan stöðvast í rúmlega 50%, aukningu eða heldur áfram að vaxa upp í 70—80%, aukningu á ári hverju, geta atvinnuvegir þjóöarinnar meö engu móti staðið undir því. Atvinnuvegirnir geta ekki til lengdar staðið und- ir þeim gífurlegu verð- hækkunum, sem þeir verða að bera, og þótt einstaka þjónustugreinar geti það um skeið, er alveg ljóst, að sjávarútvegur og fisk- vinnsla, sem býr við veró- lag á erlendum mörkuðum, sem við íslendingar ráðum ekki, hlýtur að stöðvast nema gripið sé til enda- lausra gengisbreytinga, sem eru í raun og veru engin lausn á okkar vanda- málum. Þá má heldur ekki gleyma því, að svo mikil verðbólga veldur því, að allt verðmætamat almenn- ings brenglast og rang- hverfist. Það er t.d. gífur- lega þýðingarmikið fyrir okkar efnahagslíf að sparnaður almennings sé sem mestur. En hvaða bankastjóri gæti með góðri samvizku ráðlagt viðskipta- vinum sínum aö leggja 1 milljón króna inn í banka sinn til varðveizlu þar, þótt ekki væri nema í 12 mán- uði, eins og ástandið er nú? Ótrúlegt er, að nokkur íslenzkur bankastjóri mundi gefa viðskiptavini slíkt ráó, enda augljóst, að sú milljón verður aö litlu á örfáum mánuóum vegna verðbólgunnar. í kreppuástandi undan- farinna missera hefur okk- ur tekizt furðanlega aö halda fullri atvinnu í land- inu og þrátt fyrir þá erfið- leika sem á okkur hafa dunið undanfarna mánuði, sýnist enn vera ótrúlega mikill kraftur i atvinnulífi og framkvæmdum. Þess vegna hlýtur það aö verða eitt höfuðmarkmiö ríkis- stjórnarinnar á næstu mánuðum að halda verð- bólgunni í skefjum. Það hefur öðrufn þjóðum tekizt með býsna góöum árangri, og við íslendingar höfum einfaldlega ekki efni á því til lengdar að njóta þess vafasama heiðurs að vera í hópi 7 mestu veróbólgu- landa veraldar. ... -... ■////'/i mm Ratarmælingar eru undir smásjánni í Danmörku og víðar þar eð komið hefur í Ijós að þær geta reynst rangar. TIL UM- HUGSUNAR HVERS vegna eru drullu- sokkar á fólksbílum ekki bann- aóir? Ýmsir halda því fram að skaðsemi þeirra sé meiri en gagn, þ.e. að þeir kasti grjótinu eins og fjöður. — Hvaða vit er í því að skylda menn til að reyra sig niður í bila sína ef þeir kæra sig ekki um? Er það einungis fáfræði ökumanns og/eða farþega að vilja ekki nota öryggisbelti, eða eru rann- sóknir á slysum með og án belta svo óyggjandi að þær réttlæti lögleiðingu? — Hvers vegna er hámarkshraði á íslenzkum götum og vegum ekki hækk- aður þar eð hann virðist vart notaður til viðmiðunar af öku- mönnum, hvað þá að hann se haidinn? Breiðholtsbrautin er vafalítið mesta hraðbraut borgarinnar og menn hafa ekið hana á eftir Svörtu Maríu í venjulegum akstri á 90 km/klst... Svo er verið að liggja í leyni með ratarinn úti um allan bæ. — Skyldi ratarinn oft vera notaður á Vesturlands- veginum þar sem menn eru var- aðir við ratarmælingum? — Eru ratarmælingarnar stund- um rangar? Og þá hvenær? Ratarinn var á sínum tíma talinn óskeikull en svo er ekki lengur. I Danmörku m.a. hafa komið upp mörg mál að undan- förnu, sem benda til að ratar- inn mæli ekki alltaf réttan hraða. Menn hafa jafnvel verið stöðvaðir fyrir að aka hraðar en btlar þeirra geta ekið! Grein um þetta efni birtist í Politiken 18. júní s.l. og eru nú í gangi miklar athuganir á ratar- mælingum í Danmörku, Þýzka- landi og Svíþjóð. Hvenær skildu menn læra að nota akreinarnar hér í umferð- inni? Hversvegna aka kennslu- bifreiðar svo hægt? Stafar ekki meiri hætta frá akstri þeirra þar sem þær aka svo hægt að allir fara að rembast við að komast framúr heldur en ef þær héldU venjulegum umferðarhraða? Erekki tími til kominn að endurskoða öku- kennsluna í þessu landi? Sumir læra alls ekkert að aka í hálku og lausamöl og aðrir ekki í mik- illi umferð. — Tillitsleysi er e.t.v. helsta einkenni flestra íslenzkra ökumanna, alls ekki allra en margra, enda er verra að aka hér heldur en víða er- lendis þó hraði umferðar sé þar yfirlett miklu meiri. Hér gefa menn í eða víkja ekki þegar reynt er að komast framúr og hugsa sem svo: Hvað er maður- inn að flýta sér? Ekkert liggur á. Þá eru margir svo frekir að þeir byrja á að svína inn á aðalbraut t.d. og ef sá bíll, sem á var svínað gerist svo djarfur að flauta á hr. frek þá má búast við að hr. frekur stígi á brems- una og hinn ásvínaði má bremsa sem best hann getur til að lenda ekki aftan á hr. frek því við vitum öll hver er í rétti í aftaníakstri. — Það var ekki að ástæðulausu að komið var með spekina „Brosið svolítið í hægri umferðinni", því það er einmitt það sem vantar i umferðina hér. Þetta gleymdist bara allt offljótt og tillitssemin rauk úti veður og vind. — ★ MAÐUR nokkur var stöðvaður af lögreglunni fyrir skömmu og tjáð að komið væri fram yfir skoðunartima á bfl hans. Honum var gefinn kostur á að aka á eftir lögreglubílnum niður f Borgartún ella yrðu númerin klippt af á staðnum. Bfllinn, sem er tæplega tveggja ára gamall var sfðan skoðaður. Skoðunarmaður sagði hraða- mælinn ekki f lagi og bremsurnar tækju skakkt f. Hvort tveggja reyndist þó rangt við nánari athugun. Pappfrar voru skoðaðir. Ökuskírteini og kvittun fyrir trygginga- iðgjöldum. En kvittun fyrir bifreiðaskattinum, sem er um 2000 kr. var hann ekki með f vasanum. Manninum var til- kynnt að klippa yrði númerin af. Það var ekkert að bflnum og það virtist ekki trúlegt að hann væri búinn að borga skattinn þar eð hann var ekki með kvitt- unina! Það skal tekið fram að maðurinn hafði fyrir löngu borgað skattinn cn hins vegar ekki tekið eftir að bfllinn var kominn mánuð fram yfir skoðunartfma. En bfllinn var sem sagt tekin af honum á staðnum og hann varð að taka leigubíl heim eftir kvittuninni. Þegar hann svo birtist með kvittunina gekk snurðulaust að fá skoðun. En hvflfkt kerfi? Maður skyldi halda að ekki væru til mikil afbrot f þjóð- félagi þar sem löggæslan hefur ekki annað að gera en að eltast við nýja bíla, sem eru komnir mánuð fram yfir skoðun. Er ekki eitthvað bogið við öll þessi skriffinskukerfi f réttar- og lýð- ræðisþjóðfélagi þvf, sem reynt er að telja okkur trú um að við búum f? br.h. Öryggisbflar f sviðsljósinu. Vfða erlendis eru enn miklar tilraunir f gangi f sambandi við notkun öryggisbelta og hér sjást lifandi maður (t.v.) og brúða f einni slíkri tilraun þar sem sleða var rennt á um 27 km/klst. hraða á steinvegg. Viðbrögð brúðunnar og mannsins eru greinilega svip- uð. Manninn sakaði ekki. Eitt sem oft gleymist þegar ágæti öryggis- beltanna er hampað er að oft eru þau svo slök þó menn séu með þau spennt að ástæða er til að ætla að hættu stafi af.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.