Morgunblaðið - 05.07.1975, Side 23

Morgunblaðið - 05.07.1975, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JULl 1975 23 Páll Árnason Litlu- Reykjum — Minning Fæddur 27. 10 1890 Dáinn 24. 6. 1975. I dag fer fram útför Páls Árna- sonar bónda á Litlu-Reykjum í Flóa frá Hraungerðiskirkju. Páll Arnason var fæddur 27. október 1890 á Hurðarbaki 1 Flóa. Sonur hjónanna Guðrúnar Sig- urðardóttur og Árna Pálssonar hreppstjóra og bónda þar. Systkinin á Hurðarbaki voru 13 og komust 12 til manndómsára, og urðu orðlögð fyrir dugnað og margskonar atgervi. Að Páli á Litlu-Reykjum standa að mestu rangæskar ættir, kunnar og þekktar 1 sunnlenzkri sögu. Afi hans var Páll Guðmundsson frá Keldum á Rangárvöllum og kona hans. Þur- íður Þorgilsdóttir frá Rauðnefs- stöðum. Þau Þuríður og Páll dóu úr taugaveiki með skömmu milli- bili, og var börnum þeirra komið í fóstur til ættingja og vina. Árni komst út i Flóa til ættmanna sinna þar, en var bráðlega tekinn i fóstur af Magnúsi Gíslasyni hin- um ríka á Hurðarbaki. Hann varð honum mikil stoð á elliárum hans, og erfði eftir hann mannaforráð og jörðina Hurðarbak. Magnús ríki á Hurðarbaki var með þekkt- ari og ríkustu bændum í ofan- verðum Flóa um sína daga, harð- drægur og fastheldinn; glöggur til fjárins og mikill unnandi kaupýðgisstefnu 18. aldar. Arni á Hurðarbaki hefur orðið yngstur hreppstjóri i árneskum sveitum, og hefur verið í þeirri stöðu næst lengst, frændi hans Böðvar Magnússon á Laugarvatni hefur einn verið lengur hrepp- stjóri en hann. Árni varð snemma mikill fram- farasinni, skipaði sér við hlið framsýnustu forustumanna i Flóa. Hann var félagi Eggerts I Laugardælum, Halldórs í Hróars- holti og Þorvarðar í Sandvik. Hann var sjálfstæður í skoðunum og lét ekki mótast af tízkufyrir- bærum liðandi stundar. Glöggt dæmi um það var það er rang- æskir frændur hans fóru til Reykjavíkur um hásláttinn árið 1905 til að mótmæla símanum. Þá sendu þeir heim að Hurðarbaki til að fá Arna I lið með sér, og töldu hann alveg vísan til fararinnar. En hann harðneitaði og fór hvergi. Hann var ákveðinn fylgis- maður heimastjórnar, eins og flestir bændur í ofanverðum Flóa. Páll á Reykjum og systkini hans mótuðust snemma af hugsjónum og ætlunum foreldra sinna. Þau urðu ákveðin I skoðunum, létu aldrei berast á reka stjórnmála- manna né annarra áróðursskúma, tóku ákveðna stefnu í æsku, og urðu henni trú og holl. Þetta eru líka glögg einkenni ættmanna þeirra annarsstaðar við aðrar aðstæður og eins og líkt og greint er í vísu frænda þeirra Páls skálda: Rýrt cinbera raupiö er, þá raunin þver og brestur. Eitt er að gera orð af sér, og annað að vera mestur. Páll á Reykjum fór ungur til sjávar. Hann fór á skútur í Reykjavík, og varð fljótt frægur fyrir dugnað og mikinn feng af + Eiginmaður minn, MAGNÚS E. ÁRNASON, kennari lézt I Landspltalanum, fimmtudaginn 3. júll Lára Sigurðardóttir. Útför bróður okkar, JÓNS PÉTURS JÓNSSONAR, fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 7. júllkl. 1.30. Sólveig Jónsdóttir, Sigurður Jónsson. + ÁSGEIR GUÐMUNDSSON prentari Háaleitisbraut 43 R. verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 7. júll kl. 1.30. Þeir sem vildu minnast hins látna er bent á llknarsjóð Kvenfélagsins Eddu. Guðrlður Kristjánsdóttir, Ásgeir Heiðar Lillý Ásgeirsdóttir Árni Einarsson Danfrfður Ásgeirsdóttir Einar Ólafsson Páll Ásgeirsson Guðný Einarsdóttir, og barnabörn. + Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa. SÆMUNDAR TÓMASSONAR, trésmiðs. Spitalastfg 3. Sigrfður Sæmundsdóttir, Þórður Guðmundsson, Ásgeir Sæmundsson, Anna Jóhannsdóttir, Haraldur Sæmundsson Aðalheiður Jónsdóttir, Ása Sæmundsdóttir og barnabörn. + Þökkum af alhug auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns mins, föður okkar, sonar, tengdasonar og afa, SIGURJÓNS MELBERG SIGURJÓNSSONAR, Norðurbraut 9, Hafnarfirði. Heiga Kristjánsdóttir, Ólöf Melberg, Loftur Melberg. Gfslfna Gfsladóttir, Ólöf Loftsdóttir, barnabörn og systkini hins látna. drætti. Hann var sérstaklega glöggur á sjólag og kunni manna bezt að greina og skilja ferðir og aðfarir múkkans á miði og yfir báru, vekjandi athygli á sjálfum sér og fiski, leitandi að æti. Páll var frægur af skútuveru sinni meðal félaga sinna, og hafa margir gamlir félagar hans sagt mér frá honum. Eftir að togararnir komu til sög- unnar, réðst Páll fljótlega á þá. Hann var eftirsóttur til rúms á þeim, og var sannur félagi, jafnt háseta og annarra skipsfélaga sinna. Hann batzt þeim taustum böndum og var kunningi þeirra alla tíð. Hann varð einnig mikill vinur skipstjóra sinna, og hélt við þá mikilli vináttu alla tíð. Páll var afskaplega skemmtileg- ur maður, jafnt við vinnu og á góðri stund. Hann var ávallt hrókur alls fagnaðar. Hann var mikill spilamaður, svo ég hefi engan hitt né þekkt, sem var eins sannur í þeirri iþrótt. Hann spilaði vel og af mikilli' kunnáttu og leikni. Honum var sama hvað hann spilaði og við hvern hann spilaði. Anægjan af íþróttinni var honum fyrir öllu. Páll var einnig mikill skák- maður og kunni vel að beita kunn- áttu sinni og leikandi hugmynda- auðgi við þá íþrótt. Hann tefldi oft mikið, sérstaklega á yngri ár- Framhald á bls. 22 Hannes Guðmundsson Akranesi — Minning I dag er gerð frá Akraneskirkju útför Hannesar Guðmundssonar, Vesturgötu 88, Akranesi, en hann lést laugardaginn 28. júní sl. I sjúkrahúsi Akraness af völdum hjartaáfalls, tæplega 72ja ára að aldri. Hannes Guðmundsson var fæddur 10. júlí 1903 að Melaleiti á Akranesi. Foreldrar hans voru Þórunn Sigurðardóttir og Guð- mundur Ásgeirsson, sjómaður. Börn þeirra hjóna voru þrjú. Ursúla sem var elst, Asgeira sem var árinu yngri, og svo Hannes sem var 9—10 árum yngri. Nú við sviplegt fráfali Hannesar er Ursúla ein eftir á lifi af þeim systkinum. Sá, sem þessi minningarorð ritar, minnist Hannesar sem leik- bróður á hamingjudögum bernskuáranna. Hannes sem var 4 árum eldri hafði á þessum árum lag á því að finna verkefni er sköpuðu sanna leikgleði ekki síst hjá hinum yngri. Hann átti ýmis þeirra tíma leikföng, báta, fallega kuðunga og skeljar sem gaman var að leika sér að á Langasandi og heima á túnblettinum í Mela- leiti. A uppvaxtarárum okkar var knattspyrnan að byrja að ryðja sér til rúms meðal æskumanna á Skaganum enda þó ekki færu fram keppnir. Á unglingsárum Hannesar eða um 1920, var þrótt- mikið iþróttalff á Akranesi á vegum íþróttafélagsins Harðar Hólmverja, og fóru fþróttamót fram viðsvegar um skagann, en Hannes sem var 17 ára gamall tók þátt í hlaupum og glímu og vann þar til verðlauna. Hann gerðist félagi í knatt- spyrnufélaginu Kára er það var stofnað og keppti fyrir félagið á fyrstu árum. þess og reyndist traustur og góður liðsmaður. Ahugi Hannesar á íþróttastarfi æskunnar entist til hinsta dags. Hannes byrjaði ungur að stunda sjóinn og hafði sjó- mennsku að aðalstarfi til ársins 1949. Hann var I ’skiprúmum hjá mörgum mikilhæfum og aflasælum skipstjórum og má þar til nefna, Eyleif Isaksson, Guðmund Guðjónsson og Ragnar Friðriksson. Hannes var einn skipverja sem björguðust af Birni II frá Keflavík, sem sökk f aftaka- veðri norðvestur af Akranesi 12. febr. 1944, en skipverjum á Fylki frá Akranesi heppnaðist að bjarga allri áhöfninni. Skipstjóri á Fylki var Njáll Þórðarson. Eftir að Hannes hætti sjó- mennsku vann hann árum saman við frystihús Haralds Böðvars- sonar & CO á Akranesi, enda fékk hann meðal anriarra góðra starfsmanna þakkir og viður- kenningu fyrirtækisins fyrir mikil og góð störf. Hann kvæntist árið 1926 Elínu Ölafsdóttur frá Vindási f Kjós. Heimili þeirra var á Suðurgötu 20 á Akranesi. Sambúð Elínar og Hannesar varð ekki löng, dauðinn barði að dyrum hinna ungu hjóna. Elín dó af barnsförum 9. okt. 1927. Lítil stúlka hafði fæðst og var skirð við kistu móður sinnar og hlaut nafnið Elfn Hanna. Nokkru eftir andlát Elfnar fluttist systir hennar, Herdís Olafsdóttir, til Hannesar og annaðist um litlu stúlkuna. Þau gengu síðar í hjóna- band og eignuðust tvo syni, Ilelga sundkennara á Akranesi, sem kvæntur er Valdfsi Einarsdóttur, og Guðmund Þór, vélvirkja, sem er kvæntur Margréti Gunn- arsdóttur. Elín Hanna er gift Þorsteini Þorvaldssyni, Vélstjóra. Það átti fyrir okkur Hannesi að liggja að tengjast nánari samveru- böndum á lífsleiðinni heldur en í leikjum bernskuáranna, þvf við urðum svilar er ég kvæntist systur Herdisar, Sigríði Ölafs- dóttur, árið 1931. Arið 1941 keyptum við Hannes og konur okkar húseignina að Vesturgötu 88, og höfum búið saman i þessu húsi okkar í 34 ár. Nú þegar Hannes er kvaddur í hinsta sinn, streyma minning- arnar frarh i hugann, minningar um góða og heilladrjúga sam- vinnu og sambúð sem aldrei hefur fallið skuggi á, minningar um ótalmargar gleðistundir sem ylja manni um hjartarætur, Mér finnst að ég, kona mín og fjölskylda Hannesar og Ilerdfsar hafi haldist í hendur öll þessi mörgu samvistarár. Það verður tregt tungu að hræra þegar góður vinur fellur með snöggum hætti fyrir sigð dauðans. Um leið og ég og kona mín vottum fjölskyldu Hannesar Guðmundssonar innilega samúð við fráfall hans, biðjum við guð um að blessa oss minninguna um góðan vin og samferðamann. Guðmundur Kristinn Olafsson Útfaraskreytingar blómouol Groðurhusið v/Sigtun simi 36770 ímiiiiii ALLT MEÐ EIMSKIP Á næstunni ferma skip vor til íslands, sem hér segir: Antwerpen: Tungufoss 7. júlí Urriðafoss 14. júll Álafoss 1 6. júli Grundarfoss 21. júli Urriðafoss 28. júlí Rotterdam: Tungufoss 8. júlí rffj Urriðafoss 1 5. julí rpl Grundarfoss 22. júli W| Urriðafoss 29. júlí Qjj Felixtowe: [S Dettifoss 8 . júli i^i Mánafoss 1 5. júli þijij Dettifoss 22. júli Jíi, Mánafoss 29. júli [S Hamborg: LJj Dettifoss 10. júli [fe Mánafoss 1 7. júli rrÍJ Dettifoss 24. júlí UjJ Mánafoss 30. júli P Norfolk: [fcj Selfoss 8 . júli fírJ Goðafoss 25. júli l£ji Fjallfoss 8. ágúst [j7| Brúarfoss 1 2. ágúst [m. Weston Point: i4l!i Askja 1 7. júli Askja 31. júli [í| Kaupmannahöfn: [fci Múlafoss 8. júli Irafoss 1 5. júli |■Fj' Múlafoss 22. júli [>Ij (rafoss 29. júli [fe' Helsingborg: 1—1| Úðafoss 1 0. júli | J[j| Laxfoss 1 7. júli Ijjl Gautaborg: [3 Múlafoss 9. júli U| (rafoss 1 6. júli Múlafoss 23. júli írafoss 30. júli lJ! rpj Kristiansand: e-ij Úðafoss 1 2. júli [S Laxfóss 1 9. júli [Í7j Þrándheimur: rs Tungufoss 28. júli rp Gdynia/Gdansk: |_|) Bakkafoss 1 6. júli [íjjj Skógarfoss 4. ágúst W Valkom: [S Bakkafoss 14. júli Ml Skógarfoss 1. ágúst IjT ni Ventspils: [_J Lagarfoss 10. júli [jT Skógarfoss 3. ágúst. Bretland Minni vörusendingar í gámum frá Birming- ham, Leeds og Lond- on um Felixstowe. Upplýsingar á skrif- stofunni, sími 27100. Reglubundnar vikulegar 1 hraðferðir frá: ANTWERPEN, FELIXSTOWE, GAUTABORG, HAMBORG, KAUPMANNAHÖFN ROTTERDAM GEYMIÐ auglýsinguna ALLTMEÐ EIMSKIP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.