Morgunblaðið - 09.08.1975, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1975
3
Ibúðarhús eyðileggst
í bruna á Þórshöfn
ELDUR kviknaði í húsinu
Herðubreið á Þórshöfn á
Langanesi um kl. 1.30 í
fyrrinótt og brann húsið á
röskum klukkutíma. Veg-
farendur á Þórshöfn sáu
allt í einu loga brjótast út
um einn glugga á húsinu
og skipti engum togum,
eldurinn kom f gegnum 4
glugga til viðbótar, lfkt og
súrefnissprenging hefði
orðið f húsinu.
Enginn bjó í húsinu, er eldur-
inn kom upp, en eigandi þess var
nýbyrjaður að breyta því, og var
að rífa innviði úr því. Allir inn-
viðir og gólf voru úr tré en veggir
steyptir og brann allt sem
brunnið gat.
Kjartan Ölafsson lögreglu-
þjónn, á Þórshöfn sagði, er
Morgunblaðið hafði samband við
hann í gær, að slökkvilið staðarins
hefði komið mjög fljótlega á vett-
vang og greiðlega hefði gengið að
slökkva eldinn. Vindátt var hag-
stæð, þannig að vindur stóð af
húsinu út á óbyggt svæði. Ef
önnur vindátt hefði verið, er
sennilegt að næstu hús hefðu
verið í mikilli hættu.
Húsið Herðubreið var reist
1930.
Steingrímur Sigurðsson
sýnir að Kjarvalsstöðum
I DAG kl. 16.00 opnar Stein-
grfmur Sigurðsson listmáiari,
málverkasýningu að Kjarvals-
stöðum. Steigrímur heldur þessa
sýningu í tilefni af fimmtugs-
afmaeli sfnu, sem var 29. aprfl sl.
en þetta er 25. sýning hans. Á
þessari sýningu eru bæði ný og
gömul verk og eru flestar
málaðar á sfðastliðnu ári.
Nokkrar myndanna hafa ekki
áður verið sýndar f Reykjavík.
Steingrímur sýndi síðast í Sví-
þjóð og var það á útmánuðum i
vetur, sem hann hélt tvær sýning-
ar þar. Síðastliðið sumar sýndi
hann í Eden í Hveragerði en eftir
þá sýningu festi Steingrímur
kaup á lítilli sendibifreið. Síðan
hefur þessi sendibifreið verið
hans annað heimili og hefur hann
ferðast víða um landið. Hann fór
um Norðurland, kom við i Hrúta-
firði og Víðidal og sótti Akur-
eyringa heim. A ferðum sínum
dvaldi hann töluvert í Borgar-
firði. Þá var hann tfður gestur á
Þingvöllum og Laugarvatni. Á
þessum ferðum sínum hefur
Steingrímur málað fjölda mynda
en vegalengdin, sem hann hefur
ekið er um 6000 km.
Eins og áður sagði eru á sýning-
unni bæði gamlar og nýjar mynd-
ir. Steingrímur hefur á ferli
sínum málað töluvert af andlits-
myndum og á sýningunni gefur
að líta nokkrar þeirra. Suður-
nesin hafa lengi verið viðfangs-
efni hjá Steingrími en að sögn
hans hefur samspil sjávarins og
hinnar sérkennilegu náttúru
Suðurnesja haft mikil áhrif á
hann.
Sýning Steingríms að Kjarvals-
stöðum verður opin daglega kl. 15
— 22 nema helgina 16. — 17.
ágúst þá verður hún opin kl. 15 —
24. Þetta er fyrsta sýning Stein-
gríms Sigurðssonar að Kjarvals-
stöðum.
Steingrfmur Sigurðsson, listmálari, var f 6ða önn að undirbúa
sýningu sfna, þegar ljósmyndari Mbl. heimsótti hann að Kjarvais-
stöðum f gær. Og hér stendur hann við mynd af innsiglingunni f
Grindavfkurhöfn. Ljósm. Öl.K.M.
Norræn ráðstefna um að-
stoð við þróunarlöndin
NORRÆN ráðstefna um
aðstoð við þróunarlöndin
hefst á Hótel Sögu á mánu-
dag og stendur fram á
þriðjudag.
Ráðstefnan er tvíþætt, annars
vegar fundur formanna opin-
berra stofnana á Norðurlönd-
unum, sem sjá um aðstoð við þró-
unarlöndin, og hins vegar stjórn-
arfundur vegna samnorrænna
verkefna í Kenya og Tanzaníu í
Afríku, sem Island er aðili að og
allmargir Isléndingar starfa nú
við.
Þátttakendur verða um 30 frá
hinum Norðurlöndunum og fjórir
tslendingar, þeir Ölafur Björns-
son prófessor, Jón Kjartansson
forstjóri og Ólafur Einarsson
menntaskólakennari, sem eiga
sæti í stjórn Aðstoðar íslands við
þróunarlöndin, og Björn Þor-
steinsson cand. mag., sem er
starfsmaður stjórnarinnar. — Nú
munu ellefu Islendingar vera í
Kenya og Tanzaníu eða í þann
veginn að fara þangað til starfa á
vegum þeirrar alþjóðlegu stofn-
unar, sem sér um aðstoð við upp-
byggingu þar.
Geir Hallgrfmsson forsætisráðherra og Karl prins af Wales við
Stjórnarráðið f gær.
Karl prins
skoðaði
Reykjavík í gœr
Veiddi 28 laxa í Hofsá í Vopnafirði
KARL prins af Wales kom til
Reykjavfkur sfðdegis f gær frá
Vopnafirði, þar sem hann
hefur verið við laxveiði frá þvf
á sunnudag. Prinsinn gekk í
gær á fund Geirs Hallgríms-
sonar forsætisráðherra, ók um
Reykjavfkurborg, skoðaði þjóð-
minjasafnið og Árbæjarsafn og
sat f gærkvöldi kvöldverðarboð
forsætisráðherra f Ráðherra-
bústaðnum. Prinsinn heidur
utan til Bretlands árdegis f dag.
Karl prins var við laxveiði í
Hofsá í Vopnafirði fram til
klukkan eitt í gær. Á þeim 4!4
degi, sem hann stundaði veiði
þar, dró hann alls 28 laxa á
land, alla á flugu, og er þetta
ágæt veiði. Strax að veiðinni
lokinni í gær hélt hann út á
Vopnafjarðarflugvöll, þar sem
flugvél frá Vængjum beið hans
og flutti hann síðan til Reykja-
víkur. Ekki gaf Karl sér tíma til
að borða á Vopnafirði, heldur
tók með sér nesti í flugvélina
og borðaði það á leiðinni suður.
Prinsinn ságði áður en hann
fór frá Vopnafirði í gær, að
þessir dagar væru fyrstu frí-
dagar hans á þessu ári og hér
hefði hann haft algjört næði.
Þá lét hann þess getið, að hann
hefði áhuga á að koma aftur til
Islands í laxveiði.
Flugvél Vængja lenti á
Reykjavfkurflugvelli um kl.
16.20 og hélt Karl prins þaðan
beint í Stjórnarráðið við
Lækjartorg, þar sem hann gekk
á fund Geirs Hallgrímssonar
forsætisráðherra. Ræddust þeir
við f um hálfa klukkustund.
Síðan hélt Karl í Þjóðminja-
Framhald á bls. 31
Er Karl prins kom til Vopnaf jarðarflugvallar laust eftir hádegið f
gær, hafði safnázt saman þar talsverður fjöldi fólks tii að taka af
honum myndir og kveðja hann.
Afhenti
líkan
|
af prests-
setrinu
Vallanesi
um alda-
mót 1900
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
fréttatilkynning frá ríkisstjórn-
inni um helztu gjafir, sem af-
hentar hafa verið I tilefni 100 ára
afmælis Islendingabyggðar f
Vesturheimi og er hún svohljóð-
andi:
„Dr. Kristján Eldjárn forseti Is-
lands heldur í dag ásamt föru-
neyti sfnu frá Winnipeg til Van-
couver á Kyrrahafsströnd
Kanada. I kveðjumóttöku, sem
forseti efndi til í Winnipeg f gær,
afhenti hann Þjóðræknisfélagi Is-
landinga i Vesturheimi að gjöf frá
íslenzku þjóðinni, líkan af prests-
setrinu Vallanesi á Fljótsdals-
héraði með kirkju, bæjarhúsum
og útihúsum, eins og það var um
aldamótin 1900.
Líkanið er f hlutfallinu 1:65.
Það er gert eftir nákvæmum lýs-
ingum sr. Magnúsar Bl. Jóns-
sonar, sem var prestur í Vallanesi
1892—1925, og minni sonar hans
Páls Magnússonar i Reykjavík.
Sonur Páls, listamaðurinn
Magnús Pálsson, hefur gert líkan-
ið i nánu samráði við föður sinn.
Afsteýpur af líkaninu munu
verða varðveittar f Þjóðminja-
safni Islands og minjasafni Aust-
urlands.
I ræðu þeirri, er Einar Ágústs-
son, utanrikisráðherra, flutti á Is-
lendingadeginum að Gimli mánu-
daginn 4. ágúst skýrði hann frá
því, að rfkisstjórnin hefði ákveðið
eftirfarandi i tilefni af 100 ára
afmæli byggðar Islendinga f
Manitoba:
1. Að veita Sagnfræðistofnun
háskólans ákveðna fjárhæð til að
láta fullvinna og gefa út svo fljótt
Framhald á bls. 31
Sérfræðing-
ar settir
við Raunvís-
indastofnun
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur sett eftirtalda sérfræðinga
við Raunvfsindastofnun Háskól-
ans:
Dr. Reyni Axelsson f stærð-
fræðistofu, Guðrúnu Ólafsdóttur
cand. pharm. og Kristján Linnet
cand. pharm. í efnafræðistofu,
Helga Björnsson cand. real. i jarð-
fræðideild jarðvísindastofu og
Pál Einarsson M. Phil. i jarðeðlis-
fræðideild jarðfræðistofu.
Þá hefur ráðuneytið framlengt
setningu eftirtalinna sérfræðinga
við Raunvísindastofnunina: Dr.
Jónas K. Arasonar og dr. Ketils
Ingólfssonar við stærðfræðistofu,
dr. Rögnvalds Ólafssonar og dr.
Vésteins R. Eiríkssonar í eðlis-
fræðistofu og Sigrúnar Helga-
dóttur í reiknistofu.
Rannsókn
haldið áfram
RANN/SÓKNARLÖGREGLAN í
Kópavogi vinnur áfram að rann-
sókn á máli gamla mannsins sem
situr f gæzluvarðhaldi vegna
gruns um kynferðisafbrot gagn-
vart ungum piltum. Verður málið
æ umfangsmeira að sögn lög-
regluyfirvalda, en þau hafa að
öðru leyti ekki viljað tjá sig frek-
ar um málið.