Morgunblaðið - 09.08.1975, Blaðsíða 32
AUíiLÝSINíiASÍMINN ER:
22480
JW*r0vmbI«í)it>
AU(.I.VSIN(,ASIMI\N ER:
22480
LAUGARDAGUR 9. AGÚST 1975
Ljósmynd Brynjólfur.
Fæðingardeildin
1 notkun í haust
EF ALLT fer að vonum er gert
ráð fyrir að neðsta hæð nýbygg-
ingar Fæðingardeildar Land-
spftalans, þarsem kvensjúkdóma-
deildin verður, taki til starfa f
þessúm mánuði og þá á aðeins
eftir að taka f notkun
sængurkvennadeild, skurðstofu
og fæðingarganga, en gert er ráð
fyrir að það verði í haust. Þetta
kom fram f samtali, sem IWbl. átti
við Jón Þ. Hallgrímsson yfirlækni
f gær.
Jón sagði, að kvensjúkdóma-
deildin væri nú tilbúin til afnota
og væri fyrst og fremst verið að
biða eftir nægu starfsfólki en það
myndi koma að afloknum sumar-
fríum. Göngudeildin sjálf hafi
hinsvegar verið starfrækt síðan i
mai s.l.
Þá sagði Jón það rétt vera að
mjög langur biðlisti væri nú hjá
konum sem biðu eftir því að
komast i aðgerðir hjá kvensjúk-
dómalæknum. Hér væri við
ramman reip að draga, þar sem
legurými væri ekki fyrir hendi.
Þetta myndi batna verulega með
tilkomu nýja húsnæðisins og
læknar vonuðust ennfremur til.
að þegar nýja húsið yrði að fullu
tekið i notkun yrði eitthvað
Iappað upp á gamla húsið, þannig
að það yrði hægt að nota það líka.
Keyptu sér 3 millj.
krónu bifreiðar
ÁTT ÞU HEIMA í ÞESSU HUSI?“, sagði Karl Bretaprins við Hrafnhildi Schram, er
hann heilsaði henni fyrir utan Árbæjarsafnið i gær. — Sjá frásögn af Reykjavíkur-
heimsókn Karls á bls.3.
Afléttu innflutnings-
banninu á saltfisknum
SPÆNSK yfirvöld hafa nú af-
numið innflutningsbann það, er
þau settu á islenzkan saltfisk fyrr
á þessu ári. Hinsvegar hafa þau
ekki aflétt heldur þvert á móti
hækkað verndartolla þá, er þau
settu á saltfisk og eiga Islending-
ar nú orðið erfitt með að selja
saltfisk til Spánar vegna þessa
ástands, því að verð á saltfiski
hefur einnig lækkað mikið.
Loftur Baldvins-
son sviptur
síldveiðileyfi
EINS og Morgunblaðið skýrði frá
fyrr f vikunni, eru ísienzkir sfld-
veiðibátar f Norðursjó grunaðir
um að hafa stundað ólöglegar
sfldveiðar f Norðursjó. Sjávarút-
vegsráðuneytið hefur þegar
stöðvað veiðar Lofts Baldvins-
sonar frá Dalvfk og fékk skip-
stjóri bátsins boð um að hætta
sfldveiðum f Norðursjó f fyrra-
dag, en til þess þarf sérstakt leyfi.
Samkvæmt kvótum þeim, sem
ákveðnir voru í London fyrr á
þessu sumri, mega Islendingar að-
eins veiða 6300 lestir af síld í
Norðursjó austan 4. gr. v.l. frá 1.
júlí til áramóta. Umsóknir um
veiðar voru það margar, að hvert
skip fékk ekki úthlutað nema 135
tonnum. I byrjun þessar viku var
ljóst að Loftur Baldvinsson var
þegar kominn yfir þetta mark og
hefur skipið sfðan landað 96 tonn-
Framhald á bls. 31
Lesbók er komin úr
sumarleyfi og fylgir
blaðinu f dag.
Tómas Þorvaldsson stjórnarfor-
maður Sölusambands fslenzkra
fiskframleiðenda sagði þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í
gær, að upphaflega hefðu Spán-
verjar keypt 6500 lestir af salt-
fiski af Islendingum, en síðan
hefðu þeir sett verndartollana á.
Innflutningsleyfi Spánverja
hefðu einnig komið mjög hægt, og
enn hefðu ekki verið gefin leyfi
fyrir öllu þvf magni, sem um var
samið upphaflega. S.l.F. hefði
selt 400 tonn af saltfiski til Spán-
ar í fyrradag, sem enn hefði ekki
fengizt innflutningsleyfi fyrir. Þá
hefði ekki fengizt leyfi fyrir 500
tonnum i 6500 tonna samningn-
um, þannig að þeir ættu eftir að
fá leyfi fyrir tæplega 1000
tonnum.
Sagði Tómas að saltfiskur lækk-
aði nú f verði á öllum mörkuðum
og þar fyrir utan væru Spán-
verjar með gífurlega verndar-
tolla.
Verndartollar Spánverja hófust
með því í vor, að þeir settu á 1,5%
verðmætistoll, en slepptu þá
magngjaldi, að auki þurfti að
greiða 5000 peseta innfiutnings-
toll á hvert tonn. Síðan hækkuðu
þeir verðmætistollinn í 7% og
settu á 20 þús. peseta innflutn-
ingsgjald pr. tonn. Islenzkum
Kekkonen kem-
ur til laxveiða
URHO Kekkonen forseti Finn-
lands er væntanlegur til Islands
n.k. miðvikudag f einkaerindum,
en hann ætlar sér að stunda lax-
veiðar f Vfðidalsá í nokkra daga.
Allmargt fylgdarmanna kemur
með Kekkonen og heita þeir:
Onni Penttila, prófessor Pennti I.
Halonen, Kauko Rastas, Kerppo
Kankaanranta varahéraðs-
höfðingi, Kai Juuranto og Bo
Klenberg.
Kekkonen mun halda heim á
leið mánudaginn 18. ágúst. Hann
hefur þrisvar sinnum komið áður
til Islands, meðal annars til lax-
veiða í Víðidalsá.
yfirvöldum tókst sfðan að semja
við Spánverja um að þeir lækk-
uðu innflutningsgjaldið úr 20
þús. pesetum í 5000, en Iitlu síðar
lækkuðu Spánverjar innlenda
framleiðslu um 14—15%. Allt
hefur þetta breytzt einu sinni
enn, því að nú standa málin
þannig, að 7% verðmætistoll-
urinn og 5000 peseta gjaldið er
óbreytt, en ofan á 7% hefur verið
lagður 10% innflutningsskattur
og verði á innlendum saltfiski er
enn haldið lægra en á innfluttum.
Húsavík, 8. ágúst
frá fréttaritara Mbl.
FORSÆTISNEFND Norður-
landaráðs hefur haldið fundi á
Hótel Húsavfk f gær og f dag. Á
fundinum f dag samþykkti nefnd-
in að halda aukafund Norður-
landaráðs f Stokkhólmi 15.
nóvember næstkomandi. Leggur
nefndin til að aðalmál fundarins
verði tvö: Stofnun norræns fjár-
festinarbanka, en um það mál
' liggur fyrir ákveðin tillaga ráð-
herranefndar Norðurlandaráðs,
og samstarf á norrænum vinnu-
markaði. Gert er ráð fyrir að
næsta regluiegt þing Norður-
landaráðs verði I Kaupmanna-
höfn f febrúar 1976.
A fundi forsætisnefndarinnar í
dag var einnig fjallað um nýjar
reglur um kosningarétt til
sveitarstjórna á Norðurlöndum og
er rætt um að menn geti hlotið
kosningarétt til sveitarstjórna á
Norðurlöndum án tillits til lög-
heimilis eftir tveggja til þriggja
ára búsetu i viðkomandi sveitar-
félagi.
Þá var á fundinum fjallað um
að Norðurlandaráð hefði frum-
Ráðherrarnir fyrrver-
andi Magnús Kjartansson
og Magnús Torfi Ólafsson
hafa nú nýverið keypt sér
til afnota mjög glæsilega
einkabfla, sem kosta um 3
milljónir króna fyrir
venjulegt fólk, en þeir
fengu bifreiðarnar toll-
frjálsar. Magnús Kjartans-
son keypti sér bifreið af
gerðinni MercedesBenz, og
Magnús Torfi af gerðinni
Volvo 264, en þetta eru ein-
hverjar dýrustu bifreiðar,
sem fluttar eru til lands-
ins.
Ástæðan fyrir því, að þeir
nafnar gátu fengið bílana toll-
frjálsa, þrátt fyrir að þeir hafi
látið af ráðherradómi fyrir tæp-
lega einu ári, er sú, að eitt síðasta
verk vinstri stjórnarinnar var að
ákveða, að ráðherra gæti keypt
kvæði að athugun á stöðu þing-
ræðis og lýðræðis á Norðurlönd-
um og taldi fundurinn heppilegt
að á næsta ári yrði skipuð nefnd
stjórnmálamanna og fræðimanna
til að athuga þessi mál og gera um
þau tillögur. Stefnir nefndin að
því að halda sérstaka ráðstefnu á
næsta ári þar sem ýtarlega verður
um þennan málaflokk fjallað.
Einnig var á fundinum gerð
áætlun um frekari útbreiðslu-
starfsemi á vegum ráðsins og er
talið nauðsynlegt að ráðið verði
betur kynnt víða á Norðurlönd-
um.
Ragnhildur Helgadóttir forseti
Norðurlandaráðs sagði i dag i
stuttu samtali við Mbl. að nefndin
teldi nauðsynlegt að kveðja
saman aukaþing i haust og væri
miðað við að það tæki aðeins tvö
mál fyrir, en afgreiddi þau.
Annað þessara mála væri sam-
starf á norrænum vinnumarkaði
og sagði Ragnhildur að Norður-
lönd að Islandi undanskildu
hefðu haft méð sér samstarf um
vinnumarkað frá árinu 1954, en
nú á seinni árum hefði margt
breytzt og teldi nefndin að m.a.
sér tollfrjálsa bifreið í allt að eitt
ár eftir að hann léti af störfum.
Hins vegar halda þeir ráðherra-
launum í sex mánuði, eftir að þeir
hætta sem ráðherrar.
Ekki er Morgunblaðinu fylli-
lega kunnugt, hvað þeir nafnar
þurftu að borga fyrir þessar 3
millj. kr. bifreiðar, en það hefur
varla verið miklu meira en 1
millj. kr.
Búinn að fá
100 tunnur
BRÆLA hefur verið á þeim
slóðum, þar sem Reykjaröst GK
hefur verið að sfldveiðum með
reknet undanfarna daga. Skip-
verjar bátsins hafa þó lagt netin,
en aflinn ekki verið eins góður og
hann gæti orðið í góðu veðri.
Reykjaröst er nú búin að landa
þrisvar sinnum, alls rösklega 100
Framhald á bls. 31
bæri að fjalla um breyttar að-
stæður f atvinnulífi Norðurlanda,
nýjar hugmyndir um umhverfi og
aðbúnað á vinnustöðum og fleiri
tiltölulega ný vandamál. Islend-
ingar eru ekki aðilar að þessu
samstarfi um vinnumarkaðsmál.
Ragnhildur sagði einnig að
nefndin teldi heppilegt að meiri
kynning á störfum Norðurlanda-
ráðs færi fram meðal forsvars-
manna skóla, blaðamanna, og f
samtökum stjórnarflokka og því
hefði áðurnefnd áæltun verið
gerð.
Fundi forsætisnefndar Norður-
landaráðs Iýkur á morgun. Þá
fara fulltrúarnir í skoðunarferð
um Þingeyjarsýslu, skoða hin
5—7 milljón ára gömlu jarðlög i
Hallbjarnarstaðarkambi, Hvera-
velli, Mývatnssveit og e.t.v. Detti-
foss.
I nefndinni eiga sæti Knut Eng-
gaard þingmaður frá Danmörku
V.J. Sukselainen þingmaður frá
Fihnlandi, Odvar Nordli þingfor-
seti Noregi, Johannes Antonsson
þingmaður frá Sviþjóð, og Ragn-
hildur Helgadóttir alþingismaður
sem er formaður nefndarinnar.
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs:
Aukaþing í nóvember
um fjárfestingarbanka