Morgunblaðið - 09.08.1975, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.08.1975, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1975 Gvlíi Ægisson í nndárlepm búningi Fyrir það eitt, að vera sá sem hann er, fyrirgefst Gylfa Ægis- syni ýmislegt, sem öðrum músfköntum yrði að falli. Gylfi er svo sem ekki meiriháttar tónlistarmaður, en hann er samt sem áður einn sá sannasti og einlægasti, sem fram hefur komið hérlendis frá upphafi. Gylfi Ægisson er sjómaður og er stoltur af því. Hann semur lög og ljóð um líf sitt, gleði þess og sorgir, og nær undantekn- ingarlaust eru gleðin og sorgin blönduð brennivíni og lausum konum. Kryddið er sjávarselt an. Það er margt afar líkt með Gylfa og ýmsum bandarfsku trúbadúranna, sem flækjast úr einum stað í annan, syngja um þjóðvegi, járnbrautarlestir, horfnar ástir, dapra æsku og óslökkvandi þrá, sem þeir geta ekki skilið eða skilgreint. Stundum eru þeir svo glaðir, að þeir eiga allan heiminn og ham- ingjar blasir við þeim en þess á milli (í timburmönnunum) er ekkert framundan nema kol- svart hyldýpið. 1 laginu „Snemma á kvöldin" segir Gylfi: „Snemma á kvöldín dregin er fram flaska, og farið f huganum á rall. Hugsað um hvort eigi nú að braska f hinni eða þessari eftir ball. Þegar bokkan hálfnuð er,*skapið heldur hýrna fer, og hugurinn stækkar eftir því. Þá bindi hneppt er að, sfðan haldið er af stað á kvennafar og fyllirf.“ Þama leikur allt í lyndi; landlega, út- borgun yfirstaðin, gott ball í samkomuhús- inu. En ekki horfir alltaf jafn glæsilega, eins og hann lýsir í lagvfsunni „Drykkju- maðurinn": „Hér sit ég nú dapur og glápi ágler, já, galtóma hálfflösku glotta viðmér. Allt saman horfið, nú ekkert ég á og enginn mig þekkir, hvar á ég aðslá? Vinirnir horfnir og konan mfn kær kvaddi mig grátandi á gólfinu f gær. ó, guð minn á himnum, miskunna mér, meðheigulskap héðan af jörðinni fer.“ Gylfi syngur 9 af tólf lögum plötunnar sjálfur, eitt syngur Linda Gfsladóttir (sem er svo lík Shady Owens, að það er hálfpart- inn vandræðalegt) og tvöeru instrúment- ál. Hljóðfæraleikur er allur góður og radd- ir alltaf réttar, en hér er komið að megin- galla plötunnar: Hljóðfæraleikurinn og bakraddir Hljóma eiga í rauninni ekkert skylt við það, sem Gylfi er að syngja. Bakraddimar eru til dæmis svo afskap- lega eintóna og fábreyttar, að eftir tvö eða þrjú lög eru þær orðnar áberandi leiðin- legar. ÖIl lögin — utan eitt — eru eftir Gylfa og eru heldur keimlík — en eins og sagði i upphafi, þá líðst Gylfa ýmislegt, sem öðrum liðist ekki. Ég er sjálfur mikill aðdáandi Gylfa Ægissonar og er þess vegna alls ekki viss um, að þessi plata sé mjög góð hugmynd. Einhvern tfma á Þjóðhátíð i Vestmannaeyjum, þar sem Gylfi hefur dvalist í nokkur ár, heyrði ég upp úr hádeginu leikin nokkur lög eftir hann af segulbandi. Upptakan hafði ver- ið gerð I verbúð í Eyjum og Gylfi söng sjálfur við eigin gítarundirleik. Líklega var hann búinn með eins og hálfa. Þá þótti mér miklu sannara og líkara Gylfa Ægissyni. En Hljómar vita hvað þeir eru að gera og platan á örugglega eftir að rjúka út. — ó.vald. BJÖRGVIN GlSLA- SON, gítar- og hljóm- borðsleikari Pelican: k Lag hans, „Recall to Reality" kynnt um öll Norðurlönd. „Lítil flnga” Pelican í ntvarpi í M og Skandinávín Hin nýja hljómplata Peli- can, „Lítil fluga“, hefur að undanförnu ver- ið leikin töluvert í FM-útvarps- stöðvum á því svæði vestan- hafs, þar sem hljómsveitin fór um á þeim tíma er unnið var að gerð plötunnar. Samkvæmt þeim fregnum, sem piltunum hafa borist, hafa við- tökur verið góð- ar og fjöldi fólks spurst fyrir um plötuna. Minna hefur verið leik- ið af „Lítilli flugu“ í AM- útvarpsstöðvum, sem yfirleitt leika léttari tón- list. Þá gerðist það aðeins örfáum dögum eftir að platan kom út hérlendis, að hún var kynnt í útvarpsþættin- . um „Radio Sweden“, sem útvarpað er sam- tímis um Skandi- navíu alla. Var kynnt lagið „Recall to Real- ity“ eftir Björg- vin Gíslason. Ekki er þetta í fyrsta skipti, sem Pelican er kynnt í útvarpi á Norðurlöndum. „Uppteknir“ var kynnt í nokkrum útvarpsþáttum í Danmörku og Svíþjóð, eins og fram kom á þeim tíma, og „Á Sprengisandi" í búningi Pelican vakti töluverða athygli í Dan- mörku. Er Stuttsíðan spurðist fyrir um hvað liði samningagerð Pelican í Banda- ríkjunum feng- ust þau svör, að málið væri „á lokastigi“. Jakob seinn íyrir JAKOB MAGNUSSON — kemur nú með tvær negrapfur og Hvítárbakkatríóið. Myndin var tekin í Festi í Grindavík þegar Jakob stóð í sfðasta Islandsævintýri sfnu ásamt Long John Baldry og Riverbandinu. Gnnnar Þorðarson vinnnr að sólóplöto í London Gunnar Þórðarson, sem nú er búsettur f Lundúnum, vinnur um þessar mundir að langþráðri sðlóplötu sinni, sem gefin verður út á merki Hljóma, fyrirtækis- ins, sem hann á sjálf- ur ásamt Rúnari Júlfussyni og fleir- um. Að sögn kunningja Gunnars og vina, sem hafa samband við hann, hefur hon- um gengið vel þar ytra og hefur hann það ágætt ásamt f jöl- skyldu sinni. Mun hann vera eitthvað farinn að fást við stúdfóvinnu fyrir ýmsa aðila, en það var einn aðaltil- gangur farar Gunn- ars til Bretlands, ásamt þvf að reyna að koma sjálfum sér og lögum sfnum á framfæri við ýmis útgáfufyrirtæki. Stuttsfðan bfður nú nánari frétta af Gunnari Þórðarsyni, sem fslenskt popp á svo mikið og gott að þakka, og verður les- endum haldið við efnið. Gl’NNAR ÞORÐARSON: Hann ætiar sjálfur aó spila á gítar, ptanó og bassa á nýju piötunm sinní en tromraari er fyrrum trommuleikari Clíff Rich- ards. 1 ilLotus a aröahliomsveitin á leio suður A ferðalagi Stuttsíðunnar um Austfirði í síðustu viku urðu margir til að geta hljómsveitar- innar „Lótus“, sem starfar á Norðfirði og víðar um lands- fjórðunginn. Lótus, ásamt Eins- dæmi, er aðalhljómsveitin á Austfjörðum og hefur Ieikið vítt og breitt í allt sumar. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst Stuttsíðunni ekki að kom- ast í samband við Lótus og því er ekki hægt að staðfesta þá fullyrðingu austfirskra kunn- ingja Stuttsfðunnar, að Lótus hyggist koma til Reykjavíkur í haust og starfa í höfuðborginni f vetur. Væri það kærkomin viðbót við tónlistarlíf höfuð- borgarinnar, jafnvel þótt ekki væri nema um stutta heimsókn að ræða. Hljómsveitin Lótus er sögð á hard-rock lfnunni og standa sig með prýði. Hin svokallaða „Whitebach- man Trio“ Jakobs Magnússon- ar, sem átti að koma til landsins fyrir helgina, hefur orðið að fresta Islandsförinni vegna anna Jakobs í London, að þvf er umboðsmenn Jakobs hérlendis, Demant h/f, hafa tjáð Stuttsíð- unni. Jakob átti að skemmta í Loga- landi, Borgarfirði, og Hvamms- tanga nú um helgina en þar sem hann kemur ekki til lands- ins fyrr en á þriðjudaginn verð- ur að sjálfsögðu ekki af þeim skemmtunum. Byrjar Jakob því á Hofsósi á föstudaginn, síðan verður hann ásamt meðleikur- um sfnum í Skjólbrekku, Mý- vatnssveit, á laugardaginn og klykkir út helginni f Sjálfstæð- ishúsinu á Akureyri á sunnu- dagskvöldið. í tríói Jakobs eru auk hans þrír hljóðfæraleikarar (þannig að um kvartett er að ræða þrátt fyrir nafnið) og með þeim syngja tvær þeldökkar stúlkur, sem munu hafa lýst miklum áhuga sínum á að komast f kynni við íslenska karlmertn meðan á dvölinni stendur. Er þvf fyrirsjáanlegt, að heitasta ósk einhverra landa á eftir að rætast á næstunni. — Það hefur náttúrlega sín vandamál í för með sér að fá allt í einu boð um að hingað- komu Jakobs og trfósins seinki, sagði Helgi Steingrímsson hjá Demant í samtali við Stuttsið- una fyrir helgina, — en það er búið að gjörbreyta áætlun hans tvisvar áður, svo maður er ha:tt- ur að kippa sér upp við það.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.