Morgunblaðið - 09.08.1975, Page 5

Morgunblaðið - 09.08.1975, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGUST 1975 5 Amin: Neðaniarðar- hreyfing starfar í Uganda Nairobi Kenya 8. ág. AP IDI AMIN forseti Uganda viður- kenndi i dag i fyrsta skipti að neðanjarðarhreyfing, sem berðist gegn stjórn hans, væri starfandi f Uganda. Amin nefndi hreyfingu þessa ekki með nafni en hann sagði að fylgismenn hennar hefðu reynt að hleypa upp fundi Einingarsamtaka Afrfkurfkja, sem var haldinn nýlega f Kampala, en þar var Amin kosinn forseti þeirra. Þessar yfirlýsingar voru hafðar eftir Amin í Kampala skömmu áður en hann kvæntist Sarah Khyolaba í annað skipti á sjö dög- um. Amin mun hafa lýst ýmsum hermdarverkum, sem samtök þessi hefðu skipulagt og staðið fyrir, og meðal annars hefðu þau reynt fyrir nokkru að sprengja raflínur skammt fyrir utan Kampala. En allt slfkt hefði þó mistekizt sagði Amin, vegna tápmikillar framgöngu hermanna hans. Hefðu ódæðismennirnir verið teknir höndum og myndu verða leiddir fyrir rétt. Amin sagði að þýðingarlaust væri að reyna að gera byltingu sem beindist gegn sér, slfkt væri fyrir- fram dæmt til að misheppnast fullkomlega. Hornsteinn lagður að stöðvarhúsinu við Sigöldu HORNSTEINN að stöðvarhúsinu við Sigölduvirkjun verður lagður af forseta íslands, dr. Kristjáni Eldjárn, n.k. föstudag kl. 12.00. Hornsteinninn verður lagður á sinn stað með viðhöfn og hefst dagskráin kl. 12. með því, að dr. Jóhannes Nordal, formaður stjórnar Landsvirkjunar, flytur ávarp. Síðan leggur forseti Islands hörnstein að stöðvar- húsinu og flytur ávarp. Að því loknu vérður snæddur hádegis- verður, og að honum loknum flytur Eirikur Briem, fram- kvæmdarstjóri Landsvirkjunar, og dr. Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra ávörp. Að lokum verður virkjunarsvæðið við Sig- öldu skoðað. Hækkanir VERÐLAGSNEFND hefur heim- ilað fyrir nokkru hækkanir á unn- um kjötvörum og fiskibollum f dósum. Er hækkun kjötvaranna á bilinu 3—10% en fiskibollurnar hækka um 10,4%. Næsti fundur verðlagsnefndar verður væntan- Iega á miðvikudaginn. Krista í nýju húsnœði NÝLEGA var opnuð að Hótel Hofi á Rauðarárstíg 18 ný hárgreiðslu- og snyrtistofa. Það eru mæðgurnar Hanna Kristín Guðmundsdóttir og Ásta Hannesdóttir, sem reka stofuna og ber hún nafnið Krista. Þær mæðgur störfuðu áður á Grundarstíg 2a, en húsnæðið þar var fyrir löngu orðið of lítið. Á hinni nýju hárgreiðslu- og snyrtistofu vinna 7 stúlkur, 2 snyrtisérfræðingar og 5 hár- greiðslukonur. Asta er fyrrver- andi formaður félags snyrtisér- fræðinga, en Hanna er for- maður Hárgreiðslumeistara- félags Islands. Verður hún meðal íslenzkra keppenda á Norðurlandamótinu í hár- greiðslu, sem fram fer f nóvem- ber nk. Meðfylgjandi mynd er tekin f hinum nýju húsakynnum snyrtistofunnar, sem teiknistof- an Arko hannaði. Hanna Kristfn er til vinstri og Ásta til hægri. OKHAR LANDSFRÆGA HEFST satl irraföt frá kr. 5.900.00 Stakir jakkar frá 900.00 Nýjar terlin buxur 3.200.00 eysur frá kr. 950.00 Skyrtur frá kr. 690.00 íallabuxur kr 1 690.00. Kuldajakkar frá kr 1 950.00. Kvenblússur 1 .290 00 Bolir frá kr 490 00 Sértilboð okkar, úrvals flauelisbuxur kr. 2.690.00. Terlin bútar, góðir buxnalitir frábært verð. íslenzk alullarteppi kr. 1.700.00. Hljómplötuútsala Laugavegi 89 Á hljómplötu- útsölunni verður möguleiki á stórkostlegum plötukaupum, eða frá kr 490 00 LAUGAVEG 37-89 I286I I3008 :

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.