Morgunblaðið - 09.08.1975, Side 13

Morgunblaðið - 09.08.1975, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. AGÚST 1975 13 ÞOKKABOT: Gylfi Gunnarsson, Halldór Gunnarsson, Magnús Einarsson og Ingðlf ur Steinsson. eólf- IVj plata með Þokkabót í imiiirbúningi Þegar líður fram á haustið verður hafi^t handa í stúdíói Hljóðritunar I Hafnarfirði við upptöku á nýrri plötu með Þokkabót, sem á liðnu hausti sendi frá sér plötuna „Upphafið" Hlaut sú plata góða dóma og viðtök- ur og seldist i hartnær 5000 eintök- um Á þessari nýju plötu verða mest- megnis lög eftir þá félagana i Þokka- bót við texta eftir ýmis góðskáld meðal þjóðarinnar. ss. Stein Stein- arr, Hannes Pétursson, Jóhannes úr Kötlum, Davlð Stefánsson og fleiri. Stuttsíðan hitti félagana í Þokka- bót á Seyðisfirði skömmu fyrir versl- unarmannahelgi, þar sem þeir voru að æfa fyrir hljóðritunina^ en jafn- framt því að undirbúa nýja Þokka- bótarplötu leika þrir þeirra, þeir Magnús Einarsson, Ingólfur Steins- son og Halldór Gunnarsson, i dans- hljómsveitinni Einsdæmi, sem gerð er út frá heimabæ þeirra, Seyðis- firði. Með þeim Jeikur svo hornfirð- ingur nokkur á trommur (sem Stutt- síðan man ekki lengur nafnið á) og reykvískur flautu- og klarinettuleik- ari, Eggert Þorleifsson f spjalli, sem Stuttsíðan átti við þá Magnús og Halldór yfir kaffibplla á Hótel Firði, létu þeir þess m.a. getið. að væntanleg plata yrði töluvert frá- brugðin hinni fyrri, til dæmis yrði hún varla jafn beinskeitt í pólitískri afstöðu sinni auk þess sem flest lögin væru eftir þá sjálfa En af því sem Stuttsiðan heyrði síðar í bakherbergi samkomuhúss- ins á staðnum, þá fer ekkert á milli mála, að hér er án nokkurs efa um sjálfa Þokkabót að ræða. Þeir Magnús, Ingólfur og Halldór munu dvelja í Reykjavik i vetur en Gylfi er tónlistarkennari á Seyðisfirði og verður því þar Um það hefur verið rætt meðal þeirra félaga, að starfa eitthvað við opinberan söng í vetur, og þá jafnvel með Eggert blásara og Leif Haukssyni, gítarleik- ara, sem nú er dírektör á Hótel Firði. Enn hafa þeir þó að sögn ekkert ákveðið um hvort af sliku samstarfi verður Töluverður slagur mun hafa verið um útgáfuna á nýju Þokkabótarplöt- unni og börðust Demant h/f og útgáfufyrirtæki Ólafs Þórðarsonar og fleiri (Óli gaf út fyrri plötuna ásamt Gunnari Þórðarsyni og Rúnari Júlíussyni). Ólafur hafði betur og mun hann sjálfur stjórna upptöku plötunnar eins og þeirri fyrri. SOLUSTAÐIR GOOD^TEAR Reykjavík: Hjólbarða þjónusta Laugavegi 1 70—1 72, sími 21 245 21245 H jól ba rða ve rkstæði Sigurjóns Gíslasonar, Laugavegi 171, sími 15508 P. Stefánsson h.f. Hverfisgötu 103, sími 2691 1. ísafjörður: Vélsmiðja Þór h.f., slmi 3041 Húnavatnssýsla: Vélaverkst. Víðir, Víðidal Hofsós Bifreiðaverkstæði Páls Magnússonar. SauSárkrókur: Vélsmiðjan Logi, sími 5165 HJOLBARÐA Ólafsfjörður: Bílaverkstæðið Múla- tindur, sími 621 94 Dalvík: Bílaverkstæði Dalvíkur, sími 61122 Akureyri: Hjólbarðaþjónustan, Glerárgötu 34, sími 22840 Bílaverkstæðið Baug- ur, Norðurgötu 62, sími 22876 Neskaupsstaður: Bifreiðaþjónustan Nes- kaupsstað, sími 7447 Egilstaðir: Þráinn Jónsson, sími 1136 Hornafjörður: Bílaverkstæði Jóns Ágústssonar, sími 8392 Kirkjubæjarkl. Steinþór Jóhannes- son, sími 7025 Hella: Kaupfélagið Þór, sími 5831 Vestmannaeyjar: Hjólbarðastofa Guðna, v/Strandveq, sími 1414 Grindavík: Hjólbarðaverkstæði Grindavíkur s.f., sími 8397 Keflavík: Hjólbarðasalan, Skóla- vegi 16, c/o Hörður Valdimarsson, sími 1426 Hafnarfjörður: Hjólbarðaverkst., Reykjavíkurv. 56, simi 51538 Garðahreppur: Nýbarðinn Garða- hreppi, sími 50606. ORYGGI I AKSTRI Á GOO %

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.