Morgunblaðið - 09.08.1975, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGUST 1975
19
radauglýsingar
raðauglýsingar
raöauglýsingar
kaup - sala
j
Sumarbústaður
við Þingvallavatn
Óska eftir að kaupa sumarbústað eða
land við vestanvert Þingvallavatn.
Góðfúslega sendið blaðinu tilboð merkt:
2843 fyrir 15. þ.m.
þakkir
Af alhug og hrærðu hjarta þakka ég öllu mínu skyldfólki og
öðrum vinum mínum og kunningjum, hjartanlega fyrir
höfðinglegar gjafir, skeyti og hlý handtök á áttræðis afmæli
mínu 30. júli s.l.
Sérstaklega þakka ég Kvenfélaginu „Ósk", stjórn þess og
félagskonum, fyrir þá höfðinglegu veislu, sem haldin var mér
til heiðurs og gerir mér daginn ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
María Jónsdóttir frá Kirkjubæ,
Tangagötu 8, ísafirði.
nauöungaruppboö
Að kröfu Tollstjórans i Reykjavik, Gjaldheimtunnar i Reykjavik,
Innheimtu rikissjóðs, Hafnarfirði, verður haldið opinbert
uppboð að Lyngási 8 —10, Garðahreppi, i dag laugardaginn
9. ágúst kl. 14.00.
Seldar verða ýmsar trésmiðavélar t,d. hjólsög, plötusög,
pússivél, bandsög, bútsög, kantlimingarpressa, hulsuborvél,
gluggalistaskurðvél, afréttari, þykktarhefill, fræsari, töppunar-
vél auk þess handverkfæri, timbur, efni skrifstofuáhöld o.fl.
allt eign Öndvegis h.f.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
og Seltjarnarnesi.
Sýslumaður Kjósarsýslu.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
OP
Verzlið ódýrt
Sumarpeysur kr. 1000.- Sið-
buxur frá 1000- Denim
jakkar 1000.- Sumarkjólar
frá 2900- Sumarkápur
5100.- Verðlistinn,
Laugarnesvegi 82.
Hjólhýsi '74
Til sölu vandað hjólhýsi af
stærri gerð. Upplýsingar í
sima 81522.
Til sölu
prjónavél Passat Duomatco
með mótor. Uppl. í sima
52160.
Til sölu
Vigtar 15 og 1 kg. Uppl. i
sima 26015 — 84345.
Krani
Foco krani til sölu 3 tonn.
Uppl. i sima 40820.
Gólfteppi
Höfum fengið litið magn af
nylonteppum í nýjum litum.
Teppabúðin,
Hverfisgötu 49,
simi 1 9692.
Hjólhýsi til sölu
Sprite Alpine L. með isskáp
og tilheyrandi fylgihlutum.
Uppl. i sima 31 1 65.
Verkstjóra vantar
við holræsagerð á Hofsósi nú
þegar. Upplýsingar i 95-6320. síma
Trésmiðir óskast. Mikil vinna. 82923. Sími
Hárgreiðslustofur ,
Tvitug stúlka óskar eftir að
komast að sem hárgreiðslu-
nemi á stofu i haust eða
vetur.
Tilboð sendist Mbl. fyrir 15.
þ.m. merkt H — 5078.
Múrvinna
Maður vanur múrvinnu óskar
eftir vinnu. Simi 33749.
bílar
Cortina
árg. '74, 1600 til
Uppl. i síma 86264.
sölu.
Til sölu Fiat 128
station
Árg. 1974 i toppstandi ekinn
16 þús. km. Upplýsingar i
sima 99-3288.
Opið í dag
Opið alla virka daga kl. 9—7
laugardag kl. 9—4. Látið
skrá bilinn strax. Við höfum
14 ára reynslu i bilaviðskipt-
um.
Bílasalan Höfðatúni 10.
Símar 18881 — 18870.
Til sölu vörubifreið
Ford D 800, árg. "66 og
Datsun diesel órg. 71.
Uppl. i sima 93 — 6660.
þei
fti>«s'
d<lf
Kattaeigendur —
Kattaeigendur
Þið sem eigið fressketti, hálf-
stálpaða eða eldri og vilduð
láta gelda þá hafið samband
við Dýraverndunarfélag
Reykjavikur i sima 14594.
ein
Kona úti á landi
öskar eftir bréfavinum
40—60 ára. Tungumál:
islenska, danska, eða enska.
Bréf sendist Mbl. merkt:
Einmana 9836".
búsn
S0ÖÍ
Ungt barnlaust par
utan af landi óska eftir að
taka á leigu 2ja til 3ja herb.
ibúð sem fyrst. Reglusemi og
góðri umgengni heitið. Fyrir-
framgreiðsla.
Uppl. í sima 85872 i dag.
.taP^uS*
Tapað — Fundið
Kvenmanns gullhringur með
1 0 turkissteinum tapaðist s.l.
föstudag neðarlega á Skóla- ■
vörðustíg. Skilvis finnandi
vinsamlegast hringi í sima
3231 1. Góð fundarlaun.
Ken
ps'3
Píanókennsla
Tek að mér pianókennslu.
Vilhelmína Ólafsdóttir.
Simi 85593.
nnVnt
Minnispeningur
Jón Sigurðsson 1961 óskast
til kaups. Tilboð sendist Mbl.
fyrir miðvikudag merkt
„Minnispeningur"—2841.
té\aQs
Filadelfia
Safnaðarguðþjónusta kl. 14.
Almenn guðþjónusta kl. 20,
Ræðum. Einar Gislason og
Óli Ágústsson.
Fjölbreyttur söngur.
ÚTIVISTARFERÐIR
Laugardaginn 9.8. kl.
13
Geitafell. Verð 700 kr. Farar-
stjóri: Jón I. Bjarnason.
Sunnudaginn 10.8.
kl. 13
Geitahlið. Verð 700 kr.
Fararstjóri: Gisli Sigurðsson.
ÚTIVIST,
Lækjargötu 6,
simi 1 4606
SUNNUDAGUR 10.
ÁGÚST
Kl. 9.30. Gönguferð á
Reynivallaháls. Verð kr.
1000,—
Kl. 13.00. Gönguferð á
Meðalfell i Kjós. Verð kr.
700,—
Brottfararstaður Umferða-
miðstöðin. Farmiðar við bil-
MIÐVIKUDAGUR 13.
ÁGÚST.
Ferð i Þórsmörk
Farmiðar á skrifstofunni.
Ferðafélag íslands,
Öldugötu 3,
simar. 19533 — 1 1798
Minningargjafir til
Ingj aldshólskirkju
A þessu sumri hafa Ingjalds-
hólskirkju á Snæfellsnesi verið
færðar veglegar minningargjafir.
Við fjölmenna guðsþjónustu 22.
júní, var söfnuðinum afhent nýtt
og vandað kirkjuorgel, sem er
hinn glæstasti gripur. Er hljóð-
færið gjöf minningarsjóðs um
hjónin Kristínu Jensdóttur og
Vigfús Jónsson, Gimli, Hellis-
sandi, sem stofnaður var af börn-
um þeirra og barnabörnum. Vig-
fús heitinn söng í Ingjaldshóls-
kirkju í sex áratugi, en slíks
munu fá dæmi. Frú Jóhanna Vig-
fúsdóttir, elzt 13 barna þeirra
hjónanna, afhenti minningargjöf-
ina, en Jóhanna hefur verið org-
anisti Ingjaldshólskirkju um ára-
tugaskeið. Formaður sóknar-
nefndar og sóknarprestur þökk-
uðu þessa rausnarlegu gjöf.
Til eflingar áðurnefndum
minningarsjóði hélt Erlingur Vig-
fússon, sem er söngvari við óper-
una í Köln, nýverið glæsilega
söngskemmtun í Félagsheimilinu
Röst á Hellissandi við undirleik
Ragnars Björnssonar dómorgan-
ista. Var húsið þéttsetið áheyr-
endum, sem fögnuðu hinum á-
gæta listamanni og sveitunga að
miklum makleikum, en allur af-
rakstur tónleikanna rann til áður-
nefnds minningarsjóðs um for-
eldra söngvarans.
13. júlí vitjaði stór hópur af-
komenda hjónanna Sólveigar
Guðmundsdóttur og ögmundar
Andréssonar, sem lengst af
bjuggu að Hellu í Bervík á Snæ-
fellsnesi, átthaga sinna og við
guðsþjónustu í sóknarkirkju
þeirra hjónanna að Ingjaldshóli,
var henni færð Guðbrandsbiblía
og 200 þúsund krónur til minn-
ingar um þau hjónin og látin börn
þeirra. Karvel ögmundsson út-
gerðarmaður, einn sona þeirra
hjónanna7afhenti gjöfina við upp-
haf guðsþjónustannar, og sóknar-
prestur og formaður sóknar-
nefndar þökkuðu hana og þann
hlýhug í garð sóknarkirkjunnar
gömlu sem að baki henni býr.
Mun í ráði að láta gera vandaða
útihurð fyrir kirkjuna fyrir fé
þetta, en verulegar endurbætur
hafa verið gerðar á kirkjuhúsinu
síðasta ár og aðrar fyrirhugaðar.
Brottflutt sóknarbörn hafa eins
og framanrituð orð bera með sér,
sýnt kirkjunni ómetanlega rækt-
arsemi eins og raunar oft áður,
sem hefur reynst mikilvægur
stuðningur við að búa kirkjuhúsið
svo úr garði, sem áhugi og vonir
sóknarmanna standa til.
Guð blessi þá hugulsemi og
helgi þær vonir, sem hún ber
vitni um.
Arni Bergur Sigurbjörnsson.
ORÐ í EYRA r Ur vasabók húsbœnda
Gerast nú veður válynd hér, vondslegar skruggur drynja, gífurleg björg og einnig aur úr Ennisholunum hrynja, og ekkert lát er á úrfelli og ætið lægðir á sveimi, á meðan Einar og Árni Bé eru í Vesturheimi. Nú eru haldin hestamót, hrossunum drjúgum riðið. Glaðbeittir sýngja garpar hátt gjarnan við vallarhliðið. Virðist mörg hryssan hnýsileg og hófadýr ýmiss konar, og heldur er völlur á hestunum hans HarðarG. Albertssonar.
En allt er í blóma og uppgángi hjá Orkustofnun og víðar, þó fundasamþykktir eins og er séu orðnar déskoti tíðar. Spretta og þurrkur þolanleg þrátt fyrir skottur og móra. En bændum lætur að berja sér og búnaðarmálastjóra. Þegar allt gerist ömurlegt og ekkert sólskin að hafa leitar margur að meiri yl á Mæorka og Kosta-Brava. Og vlst er það munur á verðbólguöld að vera með sólskin að láni á lágum vöxtum frá víxlurum og veitingalýð á Spáni.
Kominn er híngað Kalli prins, kunnurvíða með bretum; innan landhelgi laumast hann að löxum þeim sem við étum — þæði nýja og reykta rétt — og reynast oft mikils virði, gengnir í ár og annað vatn austur í Vopnafirði.