Morgunblaðið - 10.08.1975, Qupperneq 1
48 SÍÐUR
179. tbl. 62. árg. SUNNUDAGUR 10. AGUST 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Loosmynd Mbl. Friðþjófur Helgason.
Hún er rennileg þessi glæsilega skeið við Klapparstíginn og ekki ber hún sig síður unga konan í forgrunni
myndarinnar með óreyndan borgara í ökuferð.
Frekari þ jóðnýting í Portúgal
Mótmœlaaðgerðir flóttamanna frá Angóla gegn stjórn
inni - Fjötmiðlar gerast djarfari í gagnrgni á sijórnvöld
Lissabon, 9. ágúst. Reuter.
Afmæli Fords í
embætti forseta
Washington, 9. ágúst. AP, Reuter.
FORD Bandarfkjaforseti sagði
f dag f viðtali f tiiefni þess að
eitt ár er iiðið frá þvf hann tók
við embætti að Watergate
hneykslið hefði verið svo
óþarft að hann ætti enn erfitt
með að skilja hvernig Nixon
og starfsmenn gátu látið það
koma fyrir. Ford sagðist ekki
hafa neitt samvizkubit af að
hafa náðað Nixon mánuði eftir
að hann sagði af sér og sagðist
enn vera fuilviss um að sú
ákvörðun hefði verið rétt og
hreinsað andrúmsloftið f
kringum þetta mál.
30 ár liðin frá
því Nagasaki
var sprengd
Nagasaki, Japan, 9. ágúst. Reuter.
I DAG var þess minnzt í Nagas-
aki í Japan að 30 ár eru liðin
frá því Bandaríkjamenn vörp-
ina í lok sfðari heimsstyrj-
aldar. Borgarstjórinn í
Nagasaki, Yoshitake Moro-
tani, flutti ræðu við minn-
ingarathöfnina þar sem hann
hét á stórveldin að hætta
kjarnorkuvopnaframleiðslu og
vinna í þess stað að varan-
legum friði í heiminum. Alls
er talið að um 73900 manns
hafi beðið bana þegar sprengj-
unni var kastað á Nagasaki.
Við minningarathöfnina i dag
voru um 12000 manns, þar á
meðal nokkrir sem komust af
og ættingjar þeirra sem fórust.
Daði Jónsson annar
á skákmóti í U.S.A
San Diego, Kaliforníu, 9. ágúst.
Einkaskeyti til Mbl. frá AP.
tSLENDINGURINN Daði
Jónsson varð annar á ungl-
ingameistaramóti Bandarfkj-
anna f skák, sem haldið hefur
verið f San Diego að undan-
förnu. Daði er tvftugur Reyk-
vfkingur. Sigurvegari á mót-
inu varð Donald Reents, en
hann hefur áður unnið skák-
titla í Bandarfkjunum.
Fanfani giftur
AMINTORE Fanfani fyrrum
forsætisráðherra ítalíu og
leiðtogi Kristilega demókrata-
flokkslins gekk nýlega í hjóna-
band í Róm. Fanfani er 67 ára
og hefur verið ekkjumaður s.l.
8 ár, en hin nýja kona hans,
Mariapia Tavazzani, er
fimmtug og hefur verið ekkja í
fjögur ár. Hún á einn son úr
hjónabandi sínu, en Fanfani á
sjö. Sem kunnugt er var Fan-
fani vikið úr leiðtogasæti
flokks sins nýlega en hann
hefur nú tekið að sér stjórn
heimilis Mariapiu Tavazzani.
NÝ rfkisstjórn f Portúgal
lét það verða sitt fyrsta
verk í dag að þjóðnýta
næststærstu skipasmfða-
stöð landsins, bjórfram-
leiðslufyrirtæki og nokkur
flutningafyrirtæki og fast-
eignamiðlun. Sömuleiðis
gaf rfkisstjórnin út yfirlýs-
ingu þar sem heitið er
aðstoð við flóttamenn frá
Angola, bæði í formi at-
vinnuleysisstyrkja og fjöl-
skyldubóta.
1 gærkvöldi söfnuðust
um eitt þúsund flóttamenn
frá Angola saman við
stjórnarsetrið f Lissabon
og hrakyrtu nýju ríkis-
stjórnina. Fólkið hrópaði
„lygarar og svikarar", „við
viljum réttlæti, við viljum
vinnu“ og „við erum
svöng“. Mjög öflugur her-
vörður var við bygginguna,
en til átaka kom ekki.
Þá söfnuðust um fimmtiu
portúgalskir blaðamenn saman
úti fyrir upplýsingamálaráðu-
neytinu I Lissabon I gærkvöldi og
lýstu andstöðu við ný ritskoðunar-
lög sem lögð hafa verið fram.
Samkvæmt þeim verður eftirlit
með blaðaútgáfu, bókaútgáfu,
starfsemi sjónvarps- og útvarps-
stöðva hert mjög og þeir aðilar
sem sýna „andbyltingarlegar til-
hneigingar“ má dæma I sektir allt
að 50 þús. eskútum, eða á fjórða
hundrað þúsund krónur. Þá
verður ef út af er brugðið bann
lagt á útgáfu viðkomandi blaðs I
allt að sex mánuði. Raul Regö,
fyrrv. ritstjóri Republica sagði I
dag að hin nýju lög um fjölmiðla
og ritskoðun væru miklu ósvlfn-
ari og hörkulegri en lög sem
hefðu gilt undir stjórn Caetanos
og Salazars og væri ekki unnt að
líta á þau á annan veg en sem
undanfara fullkomins einræðis.
Þá vakti það athygli I morgun
að blaðið Republica sem er undir
stjórn kommúnista birti I dag á
forsíðu forystugrein þar sem
lögin nýju eru fordæmd. Segir I
fréttum frá Lissabon að fjölmiðl-
ar hafi síðustu daga gerzt mun
djarfari en áður og haft I frammi
verulega gagnrýni á þrístirni það
sem stýrt hefur Portúgal að
undanförnu, svo og á stjórn MFA.
FORSÆTISRAÐHERRA Nova
Scotia í Kanada, Gerald Regan,.
sagði i gær að einhliða útfærslu
kanadfsku fiskveiðilögsögunnar i
200 milur væri engin „töfra-
Iausn“ á vanda kanadfska sjávar-
útvegsins. Hann sagði að hafa
yrði f huga að einhliða út-
færsla mundi ekki sjálfkrafa
Blaðamenn voru boðaðir til
fundar með talsmönnum upplýs-
ingamálaráðuneytisins til að ræða
lög þessi I gærkvöldi og kom þar
fram mjög hispurslaus gagnrýni á
þau. Enginn blaðamaður hefur
svo vitað sé til verið handtekinn I
Pörtúgal vegna neikvæðrar
afstöðu til stjórnvalda og er ekki
vitað til að blaðamenn hafi orðið
fyrir umtalsverðum óþægindum.
Anker Jörgensen, forsætisráð-
herra Dana, fór I dag flugleiðis til
Lissabon I einkaheimsókn og mun
hann ætla að kynna sér stjórn-
málaástandið I landinu. Hann fer
til Portúgal að boði Mario Soares,
formanns Sóslalistaflokksins.
Þegar Soares sat fund jafnaðar-
mannaflokka I Stokkhólmi fyrir
skömmu hvatti hann forystumenn
þeirra til að koma til Portúgal og
kynnast ástandinu af eigih raun.
stöðva veiðar erlendra skipa
á miðunum undan strönd
landsins ef aðrar þjóðir neit-
uðu að viðurkenna útfærsl-
una. Regan sagði að raun-
veruleg, virt 200 snllna lögsaga
sem hægt væri að gæta yrði mjög
hjálpleg, en jafnframt að það
væri ekki Kanadamönnum í hag
að efnt yrði til strfðs út af þessu
máli.
Anker Jörgensen er fyrstur til að
þiggja boð þetta. Danska stjórnin
hefur verið nokkuð reikul I af-
stöðu sinni til Portúgal og Jörgen-
sen var gætinn I orðum þegar
hann ræddi við fréttamenn. Sagði
hann að þess yrði að gæta að snúa
ekki baki við Portúgal i fljót-
færni; það gæti orðið til að stöðva
lýðræðisþróunina I landinu.
Sovét:
Myndlistar-
maður dæmdur
Moskvu, 9. ágúst. REUTER.
SOVÉSKUR myndlistar-
maður, Boris Mukhametshin,
hefur verið dæmdur f fimm
ára vist f þrælkunarbúðum
fyrir að selja nokkrar mynda
sinna fyrir 45 bandarfska doll-
ara, og skipta þeim f rúblur,
svo og fyrir að hafa á ólög-
mætan hátt sýnt andsovézkar
tilhneigingar, þar sem hann
áttí eintak af Gulageyjahafinu
og ræddi efni hennar við vini
sfna, svo og fyrir að sumar
myndir hans eru póiitfskar í
eðli sfnu. Var skýrt frá þessu f
Moskvu f dag og gerðu það
vinir myndlistarmannsins.
Þeir sögðu að eftir að hann
hefði afplánað fimm ár f nauð-
ungarbúðunum yrði hann að
fara f tveggja ára útlegð.
Mukhametshin er 32 ára.
Hann hafði háft hug á þvl að
ganga að eiga bandariska
stúlku, Charlotte Daigle, sem
býr I Kalifornlu, en þau kynnt-
ust fyrir sex árum, þegar hún
var I heimsókn I Leningrad.
200mílur leysa ekki
allan vanda okkar
- segir forsœtisráðherra Nova Scotia
Halifax, Nova Scotia, 9. ágúst. I
Einkaskeyti til Mbl. frá AP.