Morgunblaðið - 10.08.1975, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1975
7
Sr.BOLLI
GÚSTAFSSON
í Laufási:
Gosinu er lokið, eldarnir
slokknaðir, gnýr og drunur
þögnuð og allt er orðið hljótt.
Brátt sjáum við mosató í ill-
færu hrauninu og næstu kyn-
slóðir munu ganga þar á
mjúkum þembum. — Trú-
máladeilum má Ifkja við eld-
gos, þegar gígaröð, goskatlar
og sprengigígir spúa ösku og
eimyrju skamma og ásakana
eða úr þeim vellur hraun-
straumur sjálfsánægju og
sigurvissu. Fjölmiðlar reyna
að sjcjlfsögðu að gera sér
nokkurn mat úr þessum and-
legu hamförum eins og
þegar náttúran hamast.
Blaðamenn fara á stúfana og
spyrja þjóna kirkjunnar m.a.:
Hvoru megin standið þið?
Eruð þið í grautnum eða mið-
aldamyrkrinu? Því öllum er
skipað í flokka, eins og eld-
stöðvum í dyngjur, keilur,
eldborgir o.s.frv. Gosið
stendur um hríð og vekur
ýmsar kenndir: ugg, reiði,
hneykslun, kátínu, en
lognast síðan út af og einn
og einn gígur sendir lág-
fleyga gusu unz allt er hljótt.
Þá verður ýmsum á að
spyrja: Hvað leiddi af þessari
orrahríð? Varð hún til ein-
hvers gagns? Er ekki betra að
hvassir vindar blási, en
molluloft og stöðnun setji
svip sinn á trúarlífið? Ef þess-
ir vindar eða andlegu gos
hafa náð að feykja burt þeirri
þoku, er hefur byrgt
mönnum sýn, svo þeir hafa
ekki greint nógu vel, hvað er
kristindómur og hvað er
heiðni, þá hefurdeilan orðið
til nokkurs gagns. Ýmsir hafa
einnig fengið útrás fyrir inni-
byrgðan funa, getað létt á
hjarta sínu. Var þetta kannski
ein af slökunarleiðum vel-
ferðarþjóðfélagsins, eins og
þegar streitusjúklingur fer til
sálfræðings, leggst endi-
langur á bekk og leysir frá
skjóðunni, til þess að létta af
séráhyggjum og koma reglu
á hugsunina og öðlast
andlega ró fyrir næsta sprett?
Alvarlegri spurning er þó á
næsta leiti: Var þetta leikur
með trúarskoðanir, en ekki
barátta fyrir trúarhug-
sjónum? Þjóðin er í þörf fyrir
Leikur
eða
barátta
kristindóm, sem gerir kröfur
til hennar. Orð Jesú Krists
gerir kröfur til okkar um
sanna auðmýkt. Hroki og
sjálfumgleði hinnarvél-
væddu kynslóðar, hin geig-
vænlega orka efnisvísind-
anna, renna stoðum undir þá
trú mannsins að Guði sé of-
aukið í heiminum. Andlegur
þroski mannsins er ekki
lengra kominn á þróunar-
brautinni. Hannvogarsvo
freklega á holdsins styrk við
hraðfleygt gengi raunvís-
indanna og vegna oftrúar á
andlegum hæfileikum
sínum, að sambandið við
Guð rofnar og á sama hátt og
í lífi Faríseans (í guðspjalli
dagsins Lúk. 18, 9—14.)
verður hrokinn sem ókleifur
veggur milli Guðs og manns.
í stað trúar vilja margir
áþreifanlegar sannanir,
viðurkenna alls ekki þá stað-
reynd, að lifandi trú eyðir
dauðabeyg, og í skiptum fyr-
ir vernd og náðargjafir Drott-
ins, vilja þeirsetja manninn í
öndvegi og dekra við það,
sem þeir nefna ótrúlega
þroskamöguleika hans
báðum megin grafará ótal
tilverustigum. Kristin kirkja
byggir tilveru sína á trú, á trú
á eilíft samfélag við Guð
föður fyrir dauða og upprisu
Jesú Krists og trú á návist
heilags anda í samfélagi
kristinna manna. í samfélagi
kirkjunnar hefur tilbeiðslan
verið rækt í auðmýkt og
verður iðkuð í auðmýkt, þar
verður maðurinn að beygja
kné sín, því:
,,Sú von er bæði völt
og myrk
að voga freklega á
holdsins styrk.
Án Guðs náðar er allt
vort traust
óstöðugt, veikt og
hjálparlaust."
í trúmáladeilunum bað
enginn: ,,Guð, vertu mér
syndugum líknsamur,"
heldur þökkuðu flestir Guði
fyrir það, að þeir skyldu ekki
vera eins og aðrir menn, ef-
uðust ekkert um andlegt at-
gerfi sitt og rétt mat á
mönnum og málefnum; þeir
léku sér fremur með trúar-
skoðanir eins og fimustu
skylmingameistarar, en háðu
ekki baráttu fyrirtrúarhug-
sjónum. Það veldur von-
brigðum. —
Útvegsbændafélag Vestmannaeyja:
Fagnar útfærslunni—
en vill enga samninga
„FUNDUR f stjórn og trúnadar-
mannaráði Utvegsbændafélags
Vestmannaeyja, haldinn 28. júlf
1975, lýsir ánægju sinni og fyllsta
stuðningi við þá ákvörðun rfkis-
stjúrnar Islands að færa fiskveiði-
lögsögu Islendinga f 200 mílur.
Jafnframt telur fundurinn að
ekki komi til greina, að samið
verði við aðrar þjóðir um veiði-
heimildir innan fyrrgreindrar
fiskveiðilögsögu.“ A þessa leið
hefst ályktun sem samþykkt var á
fundi stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs Utvegsbændafélags Vest-
manneyinga. Ennfremur segir f
ályktuninni:
„Þá telur fundurinn að fyllsta
þörf sé á að skipuleggja fisk-
veiðar Islendinga innan væntan-
legrar fiskveiðilögsögu, með það
fyrir augum að nýta á sem skyn-
samlegastan hátt fiskimiðin, friða
uppeldisstöðvar nytjafiska og
banna með öllu smáfiskadráp
þeirra fisktegunda, sem fisk-
veiðar Islendinga byggjast á. Vill
fundurinn í þessu sambandi
benda á, hvort ekki sé nauðsyn-
legt að haft verði nánara eftirlit
með fiskveiðum og að ekki verði
látið líðast að bera að landi það
smáan fisk, að fiskstofnum stafi
hætta af, og að á þann hátt verði
kippt stoðunum undan framtiðar-
fiskveiðum Islendinga og þannig
dregið verulega úr þeim stóra
ávinningi, sem útfærslu landhelg-
innar er ætlað að gefa.
Fundurinn vill í framhaldi af
þessu benda á, að mikil aðgát er
nauðsynleg við nýtingu náttúru-
auðæfa sjávarins, og að miðin hér
við suðurströnd landsins eru of-
setin, með þeim afleiðingum að
afli fer hraðminnkandi frá ári til
árs, og útgerð báta, sérstaklega
þeirra minni, er stefnt í voða.“
Útsala — Útsala
Útsalan hefst á mánudag.
Bella
Laugavegi 99 sími 260 7 5.
Verktakar
athugið:
Getum útvegað strax liðstýrðar notaðar
vélskóflur 3ja rúmmetra I mjög góðu
ástandi á sérstaklega hagstæðum verð-
um. Einnig BROYT X-3 mjög góð vél.
Höfum á söluskrá notaðar graf- og mokstursvélar.
Leitið nánari upplýsinga.
Ragnar Bernburg — Vélasala
Laugaveg 22 — sími 27020 heimas. 82933.
Að sjálf sögóu vegna einstakra gæða
Reyplasteinangrunar.
1. Hitaleióni er mjög takmörkuó (iamdagM0,028 - 0,030)
2. Tekur nölega engan raka eóa vatn í sig
3. Sérlega létt og meófœrileg
Yfirburdir REYPLASTeinangrunar eru augljósir og ^jjp!
enn sem fyrr er REYPLAST í fararbroddi.
S.-30978
Armúla 44
Saumavélaborðin
eru komin aftur
verðið er enn hagstætt. Borðin eru fáanleg
úr álmi, tekk, eik og furu (nýtt).
Skápanir fyrir töskuvélarnar eru með þriggja
þrepa lyftibúnaði.
1. Neðsta staða: Vélin geymd.
2. Miðstaða: Fríarmurinn á vélinni er nú jafn
borðplötunni.
3. Efsta staða: Fríarmurinn fyrir ofan
Með smávægilegum breytingum er einnig
hægt að nota þessi borð fyrir flestar aðrar
saumavélar.