Morgunblaðið - 10.08.1975, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. AGUST 1975
BLOW! WAM! SPAF! CRUMP!
WWHOOOOSHH ... Þör dúndrar her-
mönnum Loka f allar áttir með hamrinum
Mjölni! THUDD! CRASSH! IIIYAAP!
IIIIYAAP! CRAKK! ... Sun Yang hinn ungi
gengur algerlega frá glfmukappanum Suto með
spörkum og kýlingum! ARRRHH! ROW
WOOOO! KRRRUMMMP CHONK CRRACKK
... Súperman virðist ekki hafa roð við Týbaltan-
um frá fjarlægri stjörnu ... SLAM ... Batman
kýlir flðttafangann f magann, fimmfaldan
morðingja, sem hafði m.a. drepið atvinnuboxara
með berum höndum !!!
ÞEGAR Slagsiðan var lítil, fór
hún „lundum í þrjúbíó á sunnu-
dögum! Og þá var bráðnauðsyn-
legt að mæta ekki seinna til
leiks en klukkan tvö, svo að
nægur tími gæfist til að eiga
viðskipti við Palla og Pésa og
Nonna og Gauja og alla hina,
sem roguðust með stóra bunka
af hasarblöðum, býttuðu og
seldu og böðuðu sig í þeim
ljóma, sem slíkur firnaauður
stafaði á þá. Þá var Andrés Önd
ekki hátt skrifaður, a.m.k. ekki
á stéttinni fyrir utan þau bíó
sem sýndu myndir með Tarzan,
Frumskóga-Jim, Bomba, Lone
Ranger, Roy Rogers og öllum
hinum. Nei, þar voru DELL-
blöðin gulls ígildi og skipti
engu máli þótt börnin á þeim
tíma skildu vart eitt einasta orð
í ensku. Og sá var maðurinn
mestur, sem átti hæstan stafl-
ann af DELL-blöðum (enda
þótt ýmsir reyndu að vinna sér
frægðarorð á fölskum forsend-
um með því að lauma Andrés-
blöðum inn í bunkann til að
hækka hann!) Svo sátu menn
niðursokknir í DELL-blöðin allt
þar til ljósin voru slökkt í bíó-
salnum og hetjur blaðanna
fengu nýtt líf á hvíta tjaldinu.
Og svo þegar allt var búið, fóru
menn heim með bunkana sxna
og skoðuðu nýju blöðin langt
fram á nótt.
En allt í einu var Slagsíðan
orðin alltof stór og merkileg
fyrir þrjúbíóin og DELL-blöðin.
Bítlahár og bítlaskór og bítla-
jakkar og bítlagreiður og bítla-
plötur og .. . — allt bítlastandið
heltók Slagsíðuna, vini hennar
og kunningja, og ekkert annað
komst að! Ekkert!
Víkur nú sögunni fram til
ársins 1975. Mikið vatn hefur
runnið til sjávar og margar
hetjur fallið í gleymsku frá þvf
að þrjúbíó og DELL-blöð voru
það, sem gaf sunnudögunum
gildi.
A búðarápi rekst Slagsíðan á
amerískt hasarblað og einhvers
staðar í samfélagi gráu heila-
sellanna kviknar á peru. DELL-
blað!!! Nei, svo gott var það nú
ekki, en athyglisvert engu að
síður: Hér var komið tölublað
nr. 233 um ásinn Þór og afreks-
verk hans í mannheimum. Á
forsfðunni var hádramatísk
mynd af Þór með hamarinn
Mjölni á lofti, þar sem hann
snerist gegn hálfbróður sfnum
Loka og herfylkingu hans. Og
með stóru letri var lesendum
blaðsins tilkynnt á forsíðunni,
að þarna væri um að ræða bar-
dagann, sem þeir hefðu beðið
eftir! Heimsstyrjöldina milli
Ásgarðs og jarðar, þar sem
þrumuguðinn lenti í miðjunni!
Er skemmst fra því að segja,
að blaðið var keypt og síðan
hófst könnun á innihaldi þess
og jafnframt könnun á öðrum
slíkum blöðum, sem á boð-
stólum eru í bókabúðum borg-
arinnar.
Langmesta úrvalið var að
finna i Bókaverzlun Sigurðar
Kristjánssonar i Bankastræti
og fjöldi tegunda með ólíkind-
um. Þar var að finna tugi mis-
munandi hasarblaða með frá-
sögnum af stórhetjum eins og
Súpermanni, Batmanni, Súper-
strák, ættingjum þeirra og vin-
um, fyrir utan alls konar hryll-
ingsfyrirbæri, drauga, múmíur
og annað slíkt, sem við ekki
kunnum deili á, að ógleymdum
hermönnum, bófum, vísinda-
mönnum á villigötum, geim-
förum og verum frá öðrum
hnöttum.
Afgreiðslustúlka í búðinni
tjáði Slagsíðunni að þessi blöð
seldust mjög vel og það væri
fólk á öllum aldri, sem keypti,
ungir sem gamlir. Hins vegar
seldist mun minna af Andrési
önd og það væru fyrst og
fremst börn, sem hann keyptu.
I öðrum bókaverzlunum sá
Slagsíðan einnig sitthvað af
þessari séramerísku gerð hasar-
blaða, en þó f minna mæli en f
Bókabúð Sigurðar.
DELL-blöðin virðast hafa
lotið í lægra haldi fyrir fram-
leiðslu annarra útgáfufyrir-
tækja upp á sfðkastið og virðast
MARVEL og D.C.-blöð einna
sterkust á markaðnum, en ýms-
ar aðrar tegundir eru líka at-
kvæðamiklar. D.C.-fyrirtækið
býður m.a. upp á Batman,
Superman, Shazam, alls kyns
drauga, leynilögreglumenn,
undrakonuna, Rúdólf-hrein-
dýrið með rauða nefið, Tarzan
hinn ódrepandi og meira að
segja krassandi hasarsögur úr
Biblíunni. MARVEL-fyrirtækið
er hrifnara af furðulegum
fyrirbærum, eins og köngulóar-
manninum, svarta pardusnum,
járnmanninum, silfurbrim-
kappanum, og fleiri slfkum, að
ógleymdum Þór, Óðni, Loka og
öðrum hetjum úr Ásatrú! Þá
má nefna CHARLTON-
fyrirtækið, sem býður m.a. upp
á kfnversku kappana Yang og
frænda hans Sun Yang, Skugga
kúrekahetjuna Billy the Kid,
ýmiss konar ástarsögur,
draugasögur, stríðssögur og
kunnar teiknimyndahetjur eins
og Steinaldarmennina, Stjána
bláa, Stínu og Stjána og fleiri.
Og alltaf eru þessi fyrirtæki að
finna upp nýja afreksmenn,
enda eru neytendur þeirra
sjálfsagt eins og fíkniefnaneyt-
endur, þurfa stöðugt sterkari
skammta til að ná réttum
áhrifum.
í grein um þessi hasarblöð í
bandarísku tímariti kom fram,
að talsverð breyting hefur orðið
á efnismeðferð blaðanna frá
því i gamla daga. Þá stóð
Superman stöðugt í stór-
ræðum, barði á óvin-
um Bandaríkjanna og blak-
aði frá sér ástsjúku konunni
Lois Lane, sem mátti vart
mæla, þegar hún sá hann. Þorp-
ararnir voru gersamlega gegn-
sýrðir af illsku og óþverraskap
og Superman var f fullu starfi
sjö daga í viku við að bjarga
heiminum úr klóm þeirra — og
að halda Lois Lane á mottunni.
Þá var lífið ekki flókið. En allt
breytist með tfmanum og nú er
líf stórhetjanna næsta ólfkt því
sem áður var. Meira að segja
Superman situr stundum á hús-
þökum nú til dags og heldur um
höfuð sér í angist sinni, farinn
á taugum vegna þess að hann er
furðuskrípi, ólíkur venjulegu
fólki, og meira að segja Lois vill
ekki sjá hann lengur af því að
hann er alltaf svo vondur við
ljótu kailana!
Sá maður, sem á sök á þessu
er Stan nokkur Lee, sem stýrir
Marvel-fyrirtækinu. Fyrir
12—13 árum fékk hann hug-
mynd, sem reyndist ákaflega
sigursæl. Hann var orðinn
hundleiður á að semja sögur
um ófreskjur og drauga og datt
þá í hug að skapa nýjar hetjur,
sem væru af holdi og blóði, eins
og venjulegir menn, með hnúta
og gloppur í sálarlffinu, rétt
eins og venjulégt fólk, gætu átt
það til að klúðra öllu og mistak-
ast, svona eins og við hinir, og
— það sem mestu máli skipti —
væru undir niðri, bak við alla
fallegu búningana, skíthræddir
vesalingar, þegar eitthvað bját-
aði á!
Stan fór að skapa nýjar hetj-
ur í þessari mynd. Einn sá
fyrsti var Hulk, grænn risi, ó-
trúlega sterkur, hoppar eins og
froskur og er álíka gáfaður og
froskur. Hann var áður vísinda-
maðurinn Bruce Banner, en
varð fyrir gammageislun og
breyttist. Hann hefur ekki hug-
mynd um af hverju allir menn-
irnir í einkennisbúningunum
eru að herja á hann með kjarn-
orkusprengjum. En stundum,
þegar hann er í góðu skapi,
breytist hann aftur f Bruce
Banner, en verður aftur að
Hulk strax og hann reiðist eða
æsist. Annar f hópi nýju hetj-
anna og jafnframt einn sá vin-
sælasti er Köngulóarmaðurinn.
Hann var venjulegur gagn-
fræðaskólastrákur áður fyrr, en
vegna mistaka í efnafræðistof-
unni breyttist hann og berst nú
ZONK! - Kýld’ann, Batman!
SLAM! - Áfram, Þór!
THUDDí-Superman slgrar!
við Kolkrabbamanninn og aðr-
ar ófreskjur. I seinni tfð hefur
allt gengið á afturfótunum f
einkalífi hans. Kærastan hans
dó, herbergisfélagi hans bilaði
á taugum og geðsjúklingur
rændi Maju gömlu frænku
hans! Þá má nefna Krafta-
manninn. Hann var bara ósköp
indæll náungi, þangað til hann
var dæmdur í fangelsi fyrir
fíkniefnabrot — saklaus að
sjálfsögðu — en við það breytt-
ist hann, varð reiður og súper-
sterkur og vinnur nú fyrir sér
með alls kyns björgunarstörf-
um, jafnframt því sem hann
reynir að hreinsa sjálfan sig af
sökinni. Hins vegar er löggan
alltaf á eftir honum, af því að
hann brauzt út úr fangelsinu!
Captain America er enn einn.
Hann var hermaður í sfðari
heimsstyrjöldinni, en dó ekki
eins og svo margir aðrir, heldur
lagðist hann til svefns á fsjaka
og fraus því fastur á tvítugs-
aldrinum! Hann er líka hálf-
taugaveiklaður vegna þess, að
honum finnst hann alls ekki
eiga heima í samfélaginu. Þótt
hann líti út eins og tvftugur, þá
barðist hann gegn herjum Hitl-
ers fyrir 30 árum!!
Allir þessir kappar og fjöl-
margir fleiri vinna stöðugt að
því að bjarga Bandaríkjunum.
Þeir þekkjast mæta vel, heim-
sækja stundum hver annan f
hasarblöðunum og eru stund-
um að berja hver annan að
auki! Til að þekkja þá alla
þurfa lesendur allþykka leik-
skrá og dygði vart til, þvf að
stöðugt nýir afreksmenn eru að
bætast f hópinn, jafnframt því
sem sumir hinna eldri heltast
úr lestinni vegna þverrandi
vinsælda eða uppþornaðra hug-
inyndabrunna hjá höfundun-
um. Þeir hafa lent í miklu
brasi, sumir skildu við eigin-
konur, sem kunnu ekki að meta
Framhald á bls. 47.