Morgunblaðið - 10.08.1975, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. AGUST 1975
39
Elínborg Jónsdótt
ir—Minning
Þegar ég hugsa til frú Elín-
borgar Jónsdóttur kemur sjálf-
krafa upp i huga mér hið dýrlega
kvæði sem Bjarni Thorarensen
orti í minningu Rannveigar
Filippusdóttur úr Hafnarfirði.
Þar kveður hann svo, að meyjar
Islands skuli ekki óttast háan
aldur, þvi að í stað þeirra „rósa-
vanga“ sem þær skörtuðu ungar
muni ellin, þegar hið innra lff er
fagurt, grafa á andlit þeirra nýjar
„skrúð-rósir“ sem eru „ungdóms
sléttleik æðri“, þ.e. göfugt hugar-
þel mótast I svipdráttunum æ þvi
betur sem árin líða, hinn innri
blómi þroskast þótt hinn yftri
fölni. Fram I háa elli var frú
Elinborg fríð kona og fríðleik
hennar göfguðu „skrúð-rósir"
sem stóðu rótum I hreinu og góðu
hjartalagi. Þvi er það, að kvæði
Bjarna nær til hennar.
Elínborg Jónsdóttir fæddist 23.
júlí 1886 og lézt í Landsspitalan-
um í Reykjavík á 89. afmælisdegi
sinum. Þriðjudaginn 5. ágúst sl.
var hún borin til moldar f Sauðár-
krókskirkjugarði, við hlið eigin-
manns sins Tómasar Gislasonar.
Fjölmenni kom að útför hennar,
og margir sem áttu þess ekki kost
að fylgja henni síðasta spölinn
signdu yfir gröf hennar í anda.
Foreldrar Elínborgar voru Jón
(f. 1843, d. 1938) bóndi i Brenni-
gerði I Borgarsveit, sonur
Guðmundar bónda þar Jónas-
sonar, og seinni kona hans, Guðný
Eggertsdóttir (f. 1842, d. 1930)
bónda á Skefilsstöðum Þorvalds-
sonar. Ættir þeirra beggja eru vel
kunnar í Skagafirði. Hér má geta
þess, að Jón í Brennigerði og dr.
Helgi Péturss voru að öðrum og
þriðja að frændsemi, og I föður-
kyn var Guðný af hinum stóra
ættgarði sem kenndur er við
Skiðastaði á Ytri-Laxárdal. Systir
hennar var Sigríður sem átti
Arna járnsmið Arnason, þau voru
frumbyggjar á Sauðárkróki,
reistu þar fyrsta íveruhúsið árið
1871. Jón Guðmundsson var
mikilhæfur maður, frjálslegur í
viðbrögðum og tilsvörum og mjög
minnisstæður þeim sem kynntust
honum. 1 elli hans var margt
skráð eftir honum um byggðar-
sögu Sauðárkróks og ugglaust
kunni hann frá ýmsu öðru að
segja ef eftir því hefði verið
leitað. Ég man Jón blindan og
silfurhvftan á hár og skegg, þar
sem hann bjó í skjóli Elínborgar
dóttur sinnar, og síðan er hann
mér imynd hins fróða öldungs.
Jón I Brennigerði og Guðný
kona hans fluttinst til Sauðár-
króks árið 1897. Þar gegndi Jón
hreppstjórastöðu 1907—20, en
var lengi áður bæði hrepps-
nefndarmaður og sýslunefndar-
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi
VICTOR STRANGE
fyrrverandi verkstjóri
Granaskjóli 28
verður jarðsunginn frá Frfkirkjunni í Reykjavtk mánudaginn 1 1. ágúst
kl. 3. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á líknarstofnanir
Hansfna Þ. Strange
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir
ANNA S. SCHEVING
Brekkustig 6,
verður jarðsungin mánudaginn 1 1. ágúst kl. 1 3.30 frá Fossvogskirkju.
Sigurjón Hansson,
Hans Sigurjónsson, Ingibjörg Guðbjörnsdóttir,
Anna Sigurjónsdóttir, Samúel GuSnason,
Þráinn S. Sigurjónsson, Ruth Fjelsted,
Sveinn Scheving Sigurjónsson, Kristin Björk Pálsdóttir.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föður okkar,
tengdaföður og afa
VALDIMARS AXELS GUNNARSSONAR
Hringbraut 52
Ingibjörg Axelsdóttir, Árni B. Jóhannsson,
Gunnar Axelsson, Hjördis Þorgeirsdóttir,
Unnur Axelsdóttir, Hjörtur Hjartarsson,
Axel St. Axelsson. Maria Jónsdóttir
og barnabörn.
+ Þökkum innilega samúð og hlýbug viðandlát og útför
ÞÓRÐAR EYJÓLFSSONAR,
hæstaréttardómara.
Halldóra Magnúsdóttir,
Magnús Þórðarson, Solveig Magnúsdóttir,
Áslaug Ragnars, Lára Magnúsdóttir,
Guðrún Magnúsdóttir, Þórður Magnússon,
Andrés Magnússon, Guðrún Þórðardóttir,
Kjartan Magnússon, Einar Þorláksson,
Ragnheiður Þórðardóttir, Guðný Þórarinsdóttir,
Magnús Hjálmarsson, Halldóra Þórarinsdóttir,
Halldóra Magnúsdóttir, Þórður Þórarinsson.
maður í Sauðárhreppi hinum
forna. Með fyrri konu sinni, Val-
gerði Guðmundsdóttur frá
Naustum á Höfðaströnd, átti Jón
tvö börn, en fullorðinsárum náði
annað þeirra, Guðmundur
búfræðingur og kennari, bóndi á
Sandeyri við Isafjarðardjúp. I
seinna hjónabandi eignaðist Jón
einnig tvö börn, auk Elinborgar
Eggert sjómann á Siglufirði.
Hann gat ennfremur dóttur
utan hjónabands, Ingibjörgu
(með Guðbjörgu Söldótt-
ur frá Skarði i Göngu-
skörðum. Hún giftist Birni
Magnússyni simstjóra á Borðeyri
og Isafirði og er nú á lífi eitt
barna Jóns Guðmundssonar.
Elinborg fluttist til Sauðár-
króks með foreldrum sinum
ellefu ára gömul og átti siðan
heima þar I bænum nokkuð á
sjötta áratug. Hún giftist 26. októ-
ber 1907 Tómasi Gislasyni (f.
1876) bókhaldara við Popps-
verzlun á Sauðárkróki. Hann var
þá nýkominn frá eins árs
verzlunarnámi I Kaupmannahöfn.
Tómas vann við Poppsverzlun til
ársins 1912, að eignir þess fyrir-
tækis voru seldar Höepfners-
verzlun og varð Tómas verzlunar-
stjóri hjávHöpfner. Hann hafði
það starf með höndum til 1928,
þegar hætt var rekstri Höpfners-
verzlunar á staðnum. Arið eftir
aflaði Tómas sér verzlunarleyfis
og rak úr því smásöluverzlun i
húsi sem hann keypti um sömu
mundir við Aðalgötu er nú heitir
svo, en þar í húsi var jafnframt
heimili þeirra hjóna ætið siðan.
Verzlunarrekstur Tómasar varð
aldrei umfangsmikill og þvi var
hann samhliða kaupmennsku
fastur starfsmaður (ritari) I
Sparisjóði Sauðárkróks frá þvi
skömmu eftir 1930 og allt til
æviloka. Hann lézt árið 1950.
Litlu síðar seldi frú Elinborg hús-
eign sína og fluttist alfarin til
Reykjavikur.
Tómas Gíslason var borinn og
barnfæddur Reykvikingur, en
fluttist norður til starfa hjá
Poppsverzlun árið 1904. Áður
hafði hann verið verzlunarmaður
syðra, bæði á Eyrarbakka og
Stokkseyri. Hann var bræðrungur
að frændsemi við Ólaf Þorsteins-
son lækni og Tómas Jónsson
borgarritara. Tómas Gislason var
stakur öðlingsmaður, hæglátur og
hlýr I umgengni, mjög óhlutdeil-
inn, gætinn og traustur i öllum
efnum. Nutu þau hjón allar
stundir hinnar mestu virðingar
samborgara sinna og vinsælda.
Tómasi og Elínborgu varð fimm
barna auðið. Elztur var Gisli, f.
-4908, d. 1927, þá við nám I
Menntaskólanum á Akureyri,
jaikill efnismaður. Hin börnin
eru öll á lifi og búsett I Reykja-
vík: Guðný, f. 1912, ógift, gjald-
keri hjá Agli Vilhjálmssyni h/f; á
heimili hennar að Álftamýri 10
dvaldist Elínborg slðustu ævi-
árin; Sigurðúr, f. 1914, stýri-
maður, nú starfsmaður hjá
Sindra, kvæntur Herborgu
Guðmundsdóttur og eiga þau
tvær dætur; Jón, f. 1924, fram-
kvæmdastjóri, kvæntur önnu
Árnadóttur og eiga þau fimm
börn; Gísli, f. 1927, framkvæmda-
stjóri, kvæntur Kristbjörgu
Sigurjónsdóttur og eru börn
þeirra þrjú.
Tómas Gislason var maður svo
hlédrægur að hann kom aldrei
fram opinberlega, eins og það er
kallað, hvorki á mannamótum né I
félagslífi sem mikið bar á, svo
sem leikstarfsemi. Elfnborgu var
að þessu leyti annan veg farið.
Hún var félagslynd og beitti sér
lengi ötullega I ýmsum samtökum
bæjarbúa. Árið 1948 varð hún til
að myndafyrstiheiðursfélagiLeik-
félags Sauðárkróks og hafði þá
komið við leiksögu bæjarins um
hálfrar aldar bil eða allt frá æsku-
um. Hún var einnig heiðurs-
félagi Kvenfélags Sauðárkróks,
og eru þessar viðurkenningar
báðar til marks um hlut hennar I
félagslífi staðarins og hversu
hann var metinn. En sízt skal þó
gleyma forgöngu hennar um
handíðir I bænum, þvi hún sat
einna lengst allra I stjórn heimilis-
iðnarfélags sem stofnað var 1919
og ekki lagt niður að fullu fyrr en
fjórum áratugum síðar, hið mesta
nytjafélag. Það gekkst fyrir iðn-
sýningu árið 1921, glæddi með
mörgum námsskeiðum kunnáttu
fólks I handiðnum, og á atvinnu-
leysisárunum fyrir stríð og
raunar lengur var ýmsum búbót I
þvl að félagið keypti heimaunnar
ullarvörur. Allir báru þann
varning sinn I hús til Elínborgar,
hún sendi hann áfram suður og
galt verkalaunin. Ég er þeirrar
trúar, að engum hafi þótt leitt að
drepa á dyr hjá Elínborgu með
pinkil sinn undir hendi, því hún
var jafnan hress i viðmóti, heimili
hennar hlýlegt og fallegt og bar
þvl vitni hvílík hún var I hús-
móðursæti.
Nú er þessi góða kona horfin til
lands lifenda, sem hún trúði fast-
lega að biði handan grafar. Mér er
ljúft að minnast hennar. Traust
vináttubönd tengdu hana fjöl-
skyldu minni þegar ég vissi til
mín fyrst og þau slitnuðu aldrei.
Fyrir þvl kynntist ég henni betur
en annars hefði verið. Hún var
hreinlynd og fastlynd, glöð á
góðu dægri, skýr I hugsun og búin
listgáfu sem birtist I leikhæfi-
leikum. Það er ávinningur að
hafa notið samvista við hana svo
lengi.
Hannes Pétursson
M 3 MS &
sw SW II
M3 SVf MY Aðals /ÍjO£\ augl V^J/TEIK NDAM ræti 6 simi M2 ÝSINGA- MISTOFA ÓTA 25810 B