Morgunblaðið - 15.08.1975, Page 5

Morgunblaðið - 15.08.1975, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGUST 1975 5 Frá sovézku Olympíukeppninni Þegar þetta er ritaó er sov- ézku Ölympíukeppninni það langt komið, að úrslit eru ljós. I A-úrsIitum sigraði sveit RSFSR með 19,5 v. Sveit Leningrad varð í 2. sæti, hafði 15,5 v. og 1 biðskák þegar síðast fréttist. Þá var staða annarra sveita sem hér segir: 3. Ukraína Í1 v. og 2 biðsk., 4. Grúsía 11 v. 5. Lett- Iand 10,5 v. og 3 biðsk., 6. Moskva 10,5. I B.-úrslitum sigr- aði Úzbekistan, en I C- úrslitum var staðan of óljós vegna fjölda biðskáka, til þess að hægt væri að fullyrða nokk- uð um, hverjum sigurinn félli i skaut. Sigur RSFSR þarf engum að koma á óvart. Sveitin var skip- uð mjög öflugum stórmeistur- um, eins og skýrt var frá í þætti hér um daginn. Sveit Lenin- grad var einnig skipuð mjög öflugum mönnum, en þar tefldu þeir Karpov, Kortsnoj og Taimanov á þrem efstu borðun- um. Hin slaka frammistaða stórmeistaranna frá Moskvu í úrslitakeppninni hlýtur hins vegar að vekja nokkra athygli. I 2. umferð úrslitakeppninnar mættust sveitir RSFSR og Moskvu og sigruðu hinir fyrr- nefndu með 8,5 v. gegn 0,5. Á tveim efstu borðunum voru eft- irfarandi skákir tefldar. 1. borð Hvftt: B. Spassky Svart: T. Petrosjan Nimzoindversk vörn 1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rc3 — Bb4, 4. e3 — c5, 5. Rf3 — d5, 6. Rf3 -0-0, 7.0-0 — dxc4, 8. Bxc4 — a6, 9. a4 — cxd4, 10. exd4 — Da5, 11. Bg5 — Rd5, 12. Re4 — Rd7, 13. De2 — He8, 14. Hfcl — Rf8, 15. Rc5 — Re7, 16. De4 — Rf5. 17. Bd3 — Db6, 18. Hc2 — a5, 19. Dg4 — Dd6, 20. Bb5 — Bd7, 21. Bf4 — De7, 22. Rxd7 — Rxd7, 23. Hc7 — Hed8, 24. d5 — Bd6, 25. Bg5 — Rf6, 26. Hxe7 — Rxg4, 27. Hxb7 — f6, 28. Bd2 — exd5, 29. Bd7 — Rgh6, 30. Be6+ — Kh8, 31. Hcl — Re7, 32. Rd4 — Ha6, 33. Bd7 — Rhg8, 34. Bb5 — Haa8, 35. Kfl — Be5, 36. Re6 — Hdb8, 37. Hxb8 — Hxb8, 38. b3 — Ha8, 39. f4 — Bd6, 40. Rc7 — Ha7, 41. Re6 og svartur gafst upp. 2. borð Hvftt: V. Smyslov ' Svart: L. Polugajevsky eftir JÓN Þ. ÞÓR Kóngsindversk vörn 1. d4 — Rf6, 2. c4 — c5, 3. d5 — d6, 4. Rc3 — g6, 5. e4 — Bg7, 6. Be2 — 0-0, 7. Rf3 — e6, 8. 0-0 — He8, 9. Rd2 — Ra6, 10. Hel — Rc7, 11. a4 — b6, 12. Hbl — Hb8, 13. b3 — a6, 14. Bb2 — exd5, 15. cxd5 — b5, 16. axb5 — axb5, 17. Bfl — Rg4, 18. Rf3 — f5, 19. h3 — Re5, 20. Rxe5 — Bxe5, 21. exf5 — Bxf5, 22. Bd3 Framhald á bls. 26 ORÐ I EYRA Bönn Að sjálfsögðu erum við Sverr- ir Hólmarsson og Kristensen á móti öllum bönnum. Þó það nú væri. Bönn eru nefnilega alltaf til ills. Eða haldiði kannski að fógetanum f Eyjum hefði ekki verið nær að hafa barinn opinn allan sólarhrínginn, meðan á þjóðhátíð stóð, og sömuleiðis vínbúðina? Þá hefði sko ekki verið eins mikið drukkið á Breiðabakka og ólýginn sagði mér að verið hefði. Bönn hafa alltaf þveröfug áhrif einsog all- ir vita. Það er tilaðmynda hrein vit- leysa að banna hass og herófn. Það mundi sko einginn líta við slfku ef ekki væri bannað að selja það. Eða þá Ellessdé. Hvur haldiði að kærði sig um það ef það feingist í hvurri sjoppu ásamt með sleiki- brjóssik og sigarettum? Það er líka alveg klárt mál að hundum fækkaði stórum ef afnumið væri bann við hunda- haldi. Og eitursnjallir sögumenn eins og við Sverrir og Kristen- sen erum ekki í minnsta vafa um að bann það við mannvig- um, sem gilt hefur á Islandi um aldir, hefur valdið miklu fleiri morðum en orðið hefðu ef menn hafðu haft sjálfdæmi um hvernig þeir kæmu leiðinlegum karaktérum fyrir kattarnef. Eða þetta heimskulega bann við að svíkja undan skatti. Ef einhvurjir landsfeður hefðu mannrænu f sér til að afnema það hyrfu öll skattsvik einsog dögg fyrir sólu. Að mér heilum og lifandi og Sverri og Kristen- sen líka. Það eru nefnilega ekki allir jafnklárir I kollinum og ég og hann Sverrir og hann Kristen- sen ritsnillíngur, að ógleymd- um þeim sem heingja tóbaks- auglýsingar upp í búðirnar. Ef yrði bannað að dreifa þeim um borg og bý, einsog Alþingi ku hafa ætlast til að gert yrði fyrir margt laungu, þá færðust sko reykíngar barna fyrst alvarlega i aukana. Og nú er ég bara að biða eftir því að aka með þeim kumpán- um, Sverri og Kristensen, yfir Miklubrautina á rauðu ljósi einhvurn eftirmiðdaginn þegar umferðin er hvað mest. Það hæfir nefnilega ekki víðsýnum og stórgáfuðum nútimamönn- um að Iáta banna sér eitt eða neitt. IÍZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS KARNABÆR AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155 LÆKJARGÖTU 2 SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.