Morgunblaðið - 15.08.1975, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1975
13
Norræn tónlistarhátíð
í Reykjavík í júní nk.
Fundi norrænna tónskálda lokið í Reykjavík
AÐ undanförnu hefur staðið yfir
f Reykjavfk fundur stjórnar
Norræna tónskáldaráðsins, fund-
ur dómnefndar sem velur tónverk
til flutnings á Norrænu tónlistar-
hátfðinni og jafnframt fundur
höfundaréttarfélaga Norður-
landa. Fundir f stjórn norræna
tónlistarráðsins eru haldnir tvisv-
ar á ári en norræn tónlistarhátfð
er haldin annað hvert ár og verð-
ur næsta hátfð f Reykjavfk f júní
1976.
I sjórn Norræna tónlistarráðs-
ins eiga sæti fyrir hönd Tón-
skáldafélags Islands Atli Heimir
Sveinsson, formaður félagsins og
Jónas Tómasson tónskáld á Isa-
firði. I dómnefnd Norrænu tón-
listarhátíðarinnar hefur átt
sæti fyrir hönd íslenzkra tón-
skálda Þorkell Sigurbjörnsson. A
fundi höfundaréttarfélaganna
sátu fyrir hönd STEF Skúli Hall-
dórsson formaður félagsins og
Sigurður Reynir Pétursson fram-
kvæmdastjóri.
I Tónskáldafélagi Islands eru
um 20 félagsmenn, en í
öðrum norrænum tónskálda-
félögum frá 50 til 90. Félagsmenn
geta þeir orðið sem leggja fram
tónverk sem dómnefndir félag-
anna meta hæf. I nokkrum land-
anna munu starfandi sérstök fé-
lög tónlistarmanna sem eingöngu
semja dægurlög, en slíkt félag er
sem kunnugt er ekki til hérlendis.
Atli Heimir Sveinsson tónskáld
sagði í samtali við Mbl. í gær að
stjórn Norræna tónskáldaráðsins
miðlaði upplýsingum innbyrðis á
fundum stjórnarinnar tivsvar á
ári og reyndu menn að fylgjast
vel með þvf sem gerðist í hinum
löndunum á sviði tónsmíða. Væri
mjög gagnlegt fyrir félagsmenn
að hittast með þessum hætti og
Iæra hverjir af öðrum bæði i tón-
list og beinum hagsmunamálum.
Atli sagði að tónskáldafélögin
reyndu að kynna sem mest starf-
semi og tónsmíðar félagsmanna
hinna norrænu félaganna á
hljómleikum og f fjölmiðlum.
Eins og áður sagði verður
haldin Norræn tónlistarhátfð í
Reykjavík dagana 19.—26. júní á
næsta ári. I fyrra var hátfðin
haldin í Kaupmannahöfn og voru
þá frumflutt verk tveggja
íslenzkra tónskálda, þeirra
Hafliða Hallgrímssonar og Jónas-
ar Tómassonar. Hvorugt verkið
hefur enn verið flutt hérlendis.
Dómnefndin sem velur verk á
næstu hátíð hefur að mestu lokið
störfum og meðal þess sem hún
mælir með að flutt verði eru verk
eftir Herbert H. Ágústsson, Leif
Þórarinsson og Hjálmar H.
Ragnarsson, tónlistarkennara á
Isafirði. Hann er aðeins 23 ára
gamall, sonur Ragnars H. Ragn-
ars, skólastjóra þar.
Þorkell Sigurbjörnsson tón-
skáld tjáði Mbl. í gær, að nefndin
hefði valið 35 verk til flutnings,
en ekki væri fullvist að aðstaða
yrði til að flytja þau öll á hátíð-
Framhald á bls. 26
Dómnefnd Norrænu tónlistarhátfðarinnar sem haldin verður f Reykja-
vfk á næsta ári: Aulis Sailinen, Finnlandi, Svend Nielsen, Danmörku,
Þorkeli Sigurbjörnsson, Isiandi, Miklos Maros, Svfþjóð og Egil Hov-
land. Noregi.
Stjórnarmenn f Norræna Tónlistarráðinu: Arne Nordheim, Noregi,
Jónas Tómasson, lslandi, Per Nörgaard, Danmörku, Eskil Hemberg,
Svfþjóð, Daniel Börtz, Svfþjóð, Atli Heimir Sveinsson, Isiandi, Paavo
Heininen, Finnlandi og Kjell Mörk Karlsen, Noregi.
Norræna hagfræðinga-
mótið sett í gær
22. mót norrænna hagfræð-
inga var sett að Hótel Loft-
leiðum f gærmorgun. Matthfas
Á Mathiesen fjármáiaráðherra
setti mótið og sagði hann m.a. f
ræðu sinni, að það væri merkis-
atburður, að nú væri þetta mót,
sem ætti að baki sér nfeira en
aldarhefð, haldið f fyrsta sinn á
Islandi. Þá vék ráðherrann að
efni þvf, sem hagfræðingarnir
fjalla um, þ.e. nýtingu auð-
linda, sem hann kvað ekki sfzt
hafa þýðingu fyrir Islendinga.
1 ræðunni minntist Matthfas
Á. Mathiesen einnig á hrakspár
ýmissa vfsindamanna og áhuga-
manna um umhverfismál, og
sagði hann, að ef það gagnstæða
álit, sem margir hagfræðingar
hafa látið i ljós á þessu máli,
reyndist á rökum reist, væri
mikils um vert, að stjórnmála-
menn og aðrir áttuðu sig á þvf.
Meðal fimm erinda, sem fiutt
voru á mótinu f dag, var erindi
Bjarna Braga Jónssonar? en
það nefndist „Auðlindanýting
og auðlindaskattur'*. Að sögn
Jónasar Haralz vakti erindið
mikla athygli. Tveir erlendir
hagfræðingar fjölluðu um efni
erindisins að flutningi ioknum,
og fóru þeir um það miklum
viðurkenn ingarorðum.
1 næstu viku fjailar Þráinn
Eggertsson um einstök erindi
og umræður á norræna hag-
fræðingamótinu hér f Morgun-
biaðinu.
Sadat Egyptalandsforseti.
(Teikning Halldór Pétursson).
Israel. Á fundi Einingarsam-
taka Afriku í Kampala fyrir
nokkru andmælti Egýptaland
áformum um brottrekstur
Israels úr SÞ og lenti af þeim
sökum i harðri andstöðu við
Lýbíu og Frelsishreyfingu
Palestínu (PLO)
Frá Gunnari Rytgaard
f Kaupmannahöfn:
K.B. Andersen utanríkisráð-
herra Dana telur að nokkuð
góðar líkur séu á því að ekki
verði reynt að reka Israel úr SÞ
á næsta alsherjarþingi samtak-
anna eins og nokkrar Araba-
þjóðir hafa lagt til. Andersen
hefur áður lýst þvi yfir að Dan-
ir séu algerlega mótfallnir öll-
um ráðagerðum i þá átt. Ander-
Sadat er andvígur brott-
rekstri ísraels úr SÞ
Beirut, Líbanon,
14. ágúst. Reuter.
ANWAR Sadat forseti Egypta-
lands lýsti þvi yfir í dag í viðtali
við timarit i Beirut að hann
væri andvigur áformum um að
reka ísrael úr Sameinuðu þjóð-
unum, þvi sú aðgerð mundi ein-
ungis verða til þess að auka
stuðning Bandarikjanna við
Israel. Sadat sagði að Israels-
riki væri nú þegar nær einangr-
að I alþjóðamálum og brott-
rekstur þess úr SÞ yrði til þess
að Bandaríkin mundu taka al-
gera og einhliða afstöðu með
sen byggir spá sína á samtölum
við stjórnmálamenn frá öðrum
löndum og skýrslum frá dönsk-
um sendiráðum og telur víst að
jafnvel þótt tillaga um brott-
rekstur komi fram muni hún
ekki ná fram að ganga. Ander-
sen segist halda að verði Israel
rekið úr samtökunum muni
mörg lönd draga úr framlögum
sinum til samtakanna sem geti
leitt til þess að samtökin verði
óstarfhæf. Hann sagði að Danir
gætu hugsað sér að draga úr
framlögum verði Israel vikið úr
SÞ.
Papadopolous segist
bera fulla ábyrgð
Aþenu, 14. ágúst. Reuter.
George Papadopoulos fyrrum
forsætisráðherra i grísku her-
foringjastjórninni sagði í dag
við réttarhöldin yfir honum og
19 öðrum herforingjum, að
hann bæri fulla ábyrgð á aðild
sinni að byltingunni á árinu
1967. Papadopoulos neitaði
ákærum, sem bornar voru fram
gegn honum um landráð og
vildi ekki segja neitt frekar við
réttarhöldin. Aðrir sakborn-
ingar sem kallaðir hafa verið til
vitnis hafa einnig neitað að
tala, og lögfræðingar þeirra
hafa kallað réttarhöldin skripa-
leik. Búizt er við að dómar
verði felldir á miðvikudag eða
fimmtudag í næstu viku.
Þrír menn bíða bana
í óeirðum á Tímor
Darwin, Astralíu.
14. ágúst. Reuter.
A.m.k. þrir menn biðu bana I
óeirðum í höfuðborg
portúgölsku nýlendunnar
Tímor á Kyrrahafi, skv. frá-
sögnum flóttamanna sem komu
frá eynni til Ástraliu. Sagt var
að unglingar vopnaðir rifflum
færu um götur höfuðborgarinn-
ar Dili. Skv. frásögnum flótta-
manna sló saman tveim póli-
tískum fylkingum, lýðræðis-
hreyfingu Tímor og hreyfingu
sem berst fyrir sjálfstæði Aust-
ur-Timor.
Indira Gandhi sakar
BBC um hlutdrœgni
London, 14. ágúst. AP.
Brezka fréttastofan BBC tók i
dag óstinna upp ásökun Indiru
Gandhi um að fréttaflutningur
stofnunarinnar væri einhliða
og i andstöðu við stjórn Indiru.
Talsmaður fréttastofunnar
sagði að henni bærust daglega
fréttir frá Indlandi frá ýmsum
heimildum sem síðan væru
metnar og skrifaðar af þeirri
hlutlægni sem alltaf hefði ein-
kennt fréttir BBC. frá Indlandi.
BBC kallaði fréttamann sinn
heim frá Nýju-Delhi fyrir
nokkru f mótmælaskyni við rit-
skoðun þá sem Indira Gandhi
hefur komið á í landinu. Indira
Gandhi lýsti því yfir í viðtali
við málgagn flokks síns að BBC
væri óheiðarleg fréttastofa sem
alltaf hefði haft slagsíðu í
fréttaflutningi sínum frá Ind-
landi. 41 þingmaður úr
Kongressflokki Indiru Gandhi
kröfðust þess í dag að BBC yrði
aldrei framar heimilað að
senda fréttir frá indverskri
grund.
Mustang og Cougar
með gölluð sœti
Washington, 14. ágúst.
Reuter.
Samgöngumálaráðuneytið i
Washington gerði Ford bila-
verksmiðjunum i dag að skyldu
að innkalla um 600000 bila af
gerðunum Mustang og Cougar
árgerð 1968 og 1969 og gera á
þeim vissar lagfæringar. Ráðu-
neytið segir að sætaumbúnaður
í bilunum sé gallaður og geti
framsæti í bílunum fallið aftur
og leitt til þess að ökumaður
missi stjórn á bílnum.