Morgunblaðið - 15.08.1975, Síða 16

Morgunblaðið - 15.08.1975, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGUST 1975 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna m Bifvélavirkjar vantar bifvélavirkja. upplýsingar hjá verkstjóra Davíð Sigurðsson h.f., Síðumúla 35, Reykjavík. Fóstrur Fóstra óskast að leikskólanum Árborg hálfan eða allan daginn. Upplýsingar hjá forstöðukonu í síma 84150. ‘ Tvítugur maður óskar eftir atvinnu með mikilli eftirvinnu. Upplýsingar í síma 32503 milli kl. 6 og 7. Skrifstofustúlka Heildverzlun óskar að ráða stúlku hálfan eða allan daginn. Þyrfti að geta byrjað strax eða fljótlega. Umsóknir sendist Mbl. fyrir 19. ágúst merktar: „Stundvís — 9847". Starf við götun Búnaðarfélag íslands óskar að ráða stúlku við tölvuritun hálfan daginn. Vinnutími frá kl. 8 — 1 2 f.h. Starfsreynsla æskileg. Umsóknir um starfið sendist Búnaðar- félagi íslands í pósthólf 7080 merkt „Starf við götun" fyrir 22. ágúst n.k. Búnaðarfélag íslands. Framkvæmdastjóri Atvinna Duglegur maður getur fengið fasta vinnu nú þegar í verksmiðju vorri. Frigg, Garðahreppi sími 5 1822. Starfsfólk óskast Óskum eftir að ráða frá næstkomandi mánaðarmótum lagermann, stúlku í bíti- búr og stúlku í eldhús. Upplýsingar þann 1 8. og 1 9. þ.m. frá kl. 14—17 á staðnum. L eikhúskjallarinn, (gengið inn frá Lindargötu). Lögmannsskrifstofa stúlka vön skrifstofustörfum óskast á lög- mannsskrifstofu hálfan daginn frá kl. 1—5 e.h. Góð íslenzku- og vélritunar- kunnátta nauðsynleg. Gott kaup fyrir rétta manneskju. Umsóknir sendist fyrir 20. þ.m. á afgreiðslu Morgunblaðsins merkt A- 9846. Hafnarfjörður Skrifstofumaður óskast. Verslunarskóla eða hliðstæð menntun æskileg. Reglu- semi áskilin. Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist blaðinu fyrir 20. ágúst merkt: Stundvís — 5121. Samtök sveitarfélaga í Suðurlandskjör- dæmi óska eftir að ráða framkvæmda- stjóra. Umsóknir ásamt upplýsingum sendist Ölvi Karlssyni, Þjórsártúni um Selfoss, fyrir 1. september n.k. Stjórn samtaka sveitarfélaga í Suðurlandskjördæmi. Hótel Esja óskar að ráða til starfa eftirtalið starfsfólk: Matsvein, smurbrauðsdömu og afgreiðslustúlku í veitingabúð. Upplýsingar gefur yfirmatsveinn í dag og næstu daga kl. 10—16. Hótel Esja, Suðurlandsbraut'2. raðauglýsingar — radauglýsingar — raðauglýsingar | veiöi Laxveiðileyfi til sölu í Laxá og Bæjará í Reykhólasveit. Uppl. í síma 35260 alla virka daga og 43154 á kvöldin frá kl. 7 —10. kennsla Námskeið í Húsmæðraskólanum að Staðarfelli fyrir áramót fyrir pilta og stúlkur verða sem hér segir. í matreiðslu frá 1. okt. — 1 5. des. í saumum frá 1 . okt. — 1. nóv. í vefnaði frá 1. nóv. — 1 5. des. Uppl. veittar í skólanum, sími um Staðar- fell. Hljómplötur Kaupum og seljum lítið notaðar og vel með farnar hljómplötur og kassettur, einnig vikublöð og tímaritshefti og pocketbækur. Safnarabúðin Laufásvegi 1 s/mi 27275. Til sölu My-MAC 580 beltagrafa. Upplýsingar gefur Jón Tryggvason, Dalvík sími 96- 61 226 eftir kl. 7 á kvöldin. __________húsnæði____________j Húsnæði 3 herbergi, stór og sólrík, hentug fyrir skrifstofur, hárgreiðslustofu, saumastofu, eða annan léttan iðnað eru til leigu nú þegar í steinhúsinu Klapparstíg 16. 2. hæð sími 2 Glæsilegt einbýlishús Hef til sölu 225 fm einbýlishús í Vestur- bæ Kópavogs ásamt bílgeymslu. Sigurður Helgason, Þingho/tsbraut 53, sími 42390. tilboö — útboö Tilboð óskast í nokkrar fólksbifreiðar er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðjudaginn 1 9. ágúst kl. 12—3. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5. Sa/a varnar/iðseigna. Útboð Tilboð óskast í að mála utan húsið Þing- holtsstræti 30. Útboðslýsing liggur frammi á skrifstofu vorri. H.F. Útboð og samningar, Sóleyjargötu 1 7. Tilboð óskast I að byggja og fullgera tvær bilskúralengjur (samtals 32 skúrar) upp frá plötu við götuna Hulduland i Fossvogshverfi. Tilboðsgögn verða afhent i Verkfræðistofunni Hnit h.f., Siðu- múla 34, R. gegn 5000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað mánudaginn 25. ágúst kl. 18. tilkynningar Frá bindindismótinu, Galtalæk Ósóttir vinningar í happdrætti bindindis- mótsins í Galtalæk: 857, 184, 387, 784, 1 1 7. Óskilamunir frá Galtalækjarmótinu eru í síma 22300 og 20010. Orðsending til eigenda festi- og tengivagna Hinn 1 5. ágúst n.k. rennur út áður auglýstur frestur til að setja ökumæli á festi- og tengivagna. Heimilað er þó fyrst um sinn, að greiða þungaskatt fyrir notkun festivagna skv. ökumælí viðkomandi dráttarbifreiðar i stað þess að setja sérstakan ökumæli á festivagn. Þeir eigendur festivagna sem skv. framansögðu ætla að greiða þungaskatt skv. ökumæli dráttarbifreiðar skulu snúa sér til Bifreiðaeftirlits ríkisins með beiðni þar að lútandi. Séu fleiri en einn festivagn notaðir jöfnum höndum ber að miða þungaskattsgreiðslu við þann vagn sem mesta hefur heildarþyr.gd. Óheimilt er síðan að nota þyngri festivagn án ökumælis aftan i dráttarbifreiðina en tilkynntur hefur verið til Bifreiðaeftirlitsins. Sérstök athygli er vakin á þvi, að þeir sem nota sér þessa heimild þurfa að greiða gjald af festivagni fyrir allan akstur dráttarbifreiðar hvort sem bifreiðin dregur vagn- eða ekki Þar sem notkun festivagna er gjaldskyld frá og með 1 5. ágúst n.k. þarf að láta lesa af ökumæli dráttarbifreiðar fyrir þann tima. Hafi álestur ekki átt sér stað fyrir þann tíma verður litið svo á, að allur gjaldskyldur akstur dráttarvagns hafi átt sér stað eftir 1 5. ágúst n.k. Fjármálaráðuneytið 12. 8. 75.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.