Morgunblaðið - 15.08.1975, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1975
Minning:
Guðlaugur Þórar-
insson, Hafnarfirði
Fæddur 20. júlf 1915.
Dáinn 8. ágúst 1975.
Laugardaginn var barst okkur
sú harmafregn, að Guðlaugur
Þórarinsson starfsmaður Raf-
veitu Hafnarfjarðar hefði látist
kvöldið áður.
Guðlaugur var fæddur í
Hafnarfirði 20. júlí 1915 og dvald-
ist þar öll sín manndómsár.
Framan af var Guðlaugur sjó-
maður, en árið 1947 réðst hann
línumaður til Rafveitu Hafnar-
fjaróar, eftir að hafa um skeið
starfað hjá Landsfmanum.
Síðustu árin vann hann á skrif-
stofu Rafveitu Hafnarfjarðar.
Guðlaugur Þórarinsson var
harðduglegur maður og hlffði sér
hvergi við þau störf, sem hann tók
að sér. Fór það heldur ekki fram
hjá þeim sem til þekktu, að hann
hafði um dagana slitið sér út með
vinnu, án þess að spyrja um
heislufarslegar afleiðingar fyrir
sjálfan sig. Þannig var kapp hans
og.atorka.
Hin síðari ár hlóðust á Guðlaug
trúnaðarstörf á félagsmálasviði.
Á árinu 1955 var hann kjörinn
formaður Starfsmannafélags
Hafnarfjarðar, og hafði hann
gegnt því trúnaðarstarfi sfðan, að
undanskildu einu ári, er hann
vegna veikinda gaf ekki kost á því
að vera í kjöri. Þegar Guðlaugur
tók við formennsku, hafði félagið
inni gott starf af hendi f kjaramál-
unum um 15 ára skeið. En barátt-
unni fyrir hagsmunum félags-
manna var haldið áfram, og þar
hefur í ríkum mæli notið við
kapps og samningslægni Guð-
laugs Þórarinssonar. Á þeim tíma,
sem Guðlaugur hefur verið for-
maður félagsins, hefur árangur af
starfi þess orðið mjög mikill.
Hér skal það nefnt, að á fyrsta
formannsári Guðlaugs náðist
fram viðurkenning bæjarstjórnar
á félaginu sem samningsaðila, og
á næsta ári var stofnaður eftir-
launasjóður starfsmanna bæjar-
ins. Framhaldið hefur verið í
góðu samræmi við fyrsta árangur
Guðlaugs í starfi formanns félags-
ins.
Guðlaugur átti sæti í stjórn
B.S.R.B. á árunum 1968 til 1970 og
1973 til dánardægurs. Hléið var
vegna veikinda hans um tíma.
Sfðasta verk hans fyrir samtökin
var að sitja stjórnarfund B.S.R.B.
daginn áður en hann féll frá.
Guðlaugur átti sæti í aðal-
samninganefnd B.S.R.B. og hafði
setið mörg þing bandalagsins og
fjölmargar ráðstefnur. Samtök
opinberra starfsmanna eiga Guð-
laugi Þórarinssyni mikla þökk að
gjalda fyrir störf hans að forustu
samtakanna um langt skeið. Ég
mun ávalt minnast Guðlaugs
Þórarinssonar sem heiðarlegs og
einlægs baráttumanns fyrir hug-
sjónum sfnum og þeim verk-
efnum, sem honum var trúað fyr-
ir af samferðamönnum sínum.
Guðlaugur var jafnan hress í
bragði, og við, sem með honum
störfuðum, munum minnast góðs
félaga, þar sem hann var, og
drengilegs og ánægjulegs sam-
starfs af hans hendi.
Guðlaugur Þórarinsson
kvæntist 1946 Dagbjörtu Sigur-
jónsdóttur, ágætri konu, og lifir
hún mann sinn. Börn Guðlaugs
eru fjórir synir, dóttir og fóstur-
dóttir.
Ég færi Dagbjörtu, börnunum
og barnabörnunum innilegar
samúðarkveðjur.
Kristján Torlacius
t
Eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir
ÓLAFUR R. GUÐMUNDSSON
Faxabraut 26, Keflavlk
andaðist I Sjúkrahúsi Keflavíkur 13. þ m.
Dagmar Pálsdóttir
böm, foreldrar og systkini.
t
Systir okkar,
GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR,
verður jarðsett frá Fossvogskirkju, laugardaginn 16 ágúst kl. 10 30
f.h
Ólafur Guðmundsson,
Soffla Guðmundsdóttir,
Ögn Q Guðmundsdóttir.
Eiginmaður minn og faðir okkar
ÓLAFUR BJARNASON
skipstjóri,
Túngötu 21, Keflavík
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju, laugardaginn 16 ágúst kl. 2.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Slysavarnafélagið
Severlna Högnadóttir
Eltn Ólafsdóttir
Marteinn Árnason.
t Faðir okkar, tengdafaðir og afi
BJARNIR ÁRNASON
Byggðarenda 13,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, laugardaginn 16. ágúst kl.
10 30 Jóhann E. Bjarnason Una Aradóttir
Árni Bjarnason Björg Jakohsdóttir
GunnarM. Bjarnason Anna Guðmundsdóttir
Sverrir Bjarnason og barnabörn. Þuríður Eggertsdóttir.
Helga Guðrún Helga■
dóttir — Minning
Kveðja frá Starfsmannafél.
Hafnarfjarðar.
I dag er til moldar borinn Guð-
laugur Þórarinsson starfsmaður
Rafveitu Hafnarfjarðar, en hann
lést 8. þ.m. eftir örstutta viðvörun
hins mikla vágests, hjartabilunar.
Guðlaugur var fæddur 20. júlí
1915 og hafði þvi fyrir nokkrum
dögum fagnað með vinum á
sextugs afmæli sinu. Þeim er
þekktu Guðlaug Þórarinsson
verður hann lengi minnisstæður
vegna afburða dugnaðar og áhuga
á öllu því er hann tók sér fyrir
hendur. Rafveita Hafnafjarðar
naut starfa hans i nær 30 ár, og
gegndi hann þar margvíslegum
störfum eftir því sem leið á
ævina, og munað hefur um störf
hans þar, þvf að eitt var það sem
Guðlaugur aldrei lærði í lifi sínu,
en þar var að hlífa sjálfum sér.
Það var því ekki fyrir neina til-
viljun að Guðlaugur var valinn til
forystu í Starfsmannafélagi
Hafnarfjarðarkaupstaðar fyrir
um það bil 20 árum og gegndi þar
formannsstörfum nær óslitið til
dauðadags.
Seint verður fullþökkuð elja
hans og góður vilji til að leysa
hvers manns vanda á þeim vett-
vangi, en það vita allir þeir, sem
til þekkja í samningsmálum um
kaup og kjör, að sýna verður
sanngirni og sáttfýsi, samfara
allri kröfugeð, en það er álit
þeirra er best þekktu til starfa
hans f félagi okkar bæjarstarfs-
manna i Hafnarfirði að ötulli
mann eða áhugasamari um
málefni okkar hefði ekki verið
hægt að finna.
Er við nú kvcðjum hinstu
kveðju vin okkar og forystumann,
Guðlaug Þórarinsson, vottum við
honum virðingu okkar og einlæga
þökk. Eftirlifandi eiginkonu hins
látna, svo og börnum hans og
öðrum aðstandendum, sendum
við innilegar samúðarkveðjur.
Fædd 20.7. 1892
Dáin 28.7. 1975.
Að kvöldi mánudagsins 28. júlí
s.l. lézt I Borgarspítalanum f
Reykjavfk Helga Guðrún Helga-
dóttir, 83 ára að aldri.
Helga var Reykvíkingur að upþ-
runa, fædd 20. júlí 1892 hér í bæ,
og voru foreldrar hennar þau
Helgi Helgason, trésmíðameistari
og tónskáld, og kona hans Guðrún
Sigurðardóttir. Helgi faðir
hennar var kunnur borgari og at-
hafnamaður f Reykjavík á sínum
tíma. Fékkst hann einkum við
húsasmíðar og standa enn nokkur
þeirra húsa sem hann reisti. Helgi
hafði mikinn áhuga á tónlist enda
gæddur góðum gáfum i þá veru og
var hann stofnandi og fyrsti
stjórnandi fyrstu lúðrasveitar-
innar sem tslendingar eignuðust,
Lúðraþeytarafélags Reykjavíkur,
sem síðar nefndist Lúðrasveit
Reykjavfkur. Setti Helgi og
flokkur hans svip á bæinn er þeir
skemmtu Reykvíkingum með
hornaleik sfnum á Lækjartorgi á
góðviðrisdögum. Helgi var einnig
gott tónskáld og lifa lög hans enn
á vörum þjóðarinnar; nægir þar
að nefna Öxar við ána sem hvert
mannsbarn þekkir. — Bróðir
Helga var Jónas Helgason, orgel-
leikari og tónskáld.
Þau hjónin, Helgi og Guðrún,
eignuðust sjö börn og var Helga
yngst þeirra. Eru þau systkini nú
öll látin.
Helga ólst upp i foreldrahúsum
og vándist þar við öll þau marg-
víslegu störf sem fylgja stóru
heimili. Árið 1902 ákvað
faðir hennar að flytjast vest-
ur um haf og þreifa fyrir sér á
nýjum slóðum. Seldi hann allar
eignir sínar í Reykjavík og fór
utan það sama ár. Guðrún, kona
hans, fór hins vegar ekki utan
fyrr en árið eftir og fylgdu henni
tvær yngstu dæturnar, þær Helga
og Soffía (síðar Jacobsen). Þær
mæðgur festu þó ekki yndi þar
vestra og dvöldu þar aðeins f tvö
ár. Sneru þær aftur heim til Is-
lands árið 1905 en Helgi varð eftir
ytra oog starfaði þar enn um
nokkurra ára skeið.
Eftir heimkomuna bjó Helga
með móður sinni og hóf brátt að
vinna utan heimilisins. Vann hún
m.a. við verzlunarstörf og einnig
starfaði hún um skeið í prent-
smiðjunni Gutenberg.
Helga giftist þ. 25. október 1913
Einari Hermannssyni prentara,
en Einar var einn af stofnendum
og fyrstu eigendum prentsmiðj-
unnar Gutenbergs. Foreldrar
t
Þakka hjartanlega alla vlnáttu og samúð, sem mér var sýnd við andlát
og útför systur minnar
KRISTJÖNU BLONDAL
Hringbraut 69
Sérstakar kveðjur sendi ég læknum og hjúkrunarfólki Borgarspltalans
fyrir góða hjúkrun og umhyggju I langvarandi veikindum hennar.
Sigríður Blöndal.
t
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför
móður okkar og tengdamóður,
SIGÞRÚÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR JESSEN,
frá fsafirði.
Helga C. Jessen
Viggó R. Jessen Hulda R. Jessen
Sigurjón G. Þórðarson Kristln Sigurðardóttir
Þór Birgir Þórðarson Erna Jóhannsdóttir
Jens Þórðarson HansFna GFsladóttir.
t
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
KRISTlNAR JACOBSEN,
Laugaveg 67.
Guðni Sveinsson, Guðrlður Jónsdóttir,
Wictor Jacobsen, Hildur Steingrímsdóttir,
Jóel B. Jacobsen, Málfrfður Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
hans voru þau hjónin f Brekku,
Hermann Einarsson og Sigríður
Jónsdóttir. Helga og Einar hófu
búskap sinn f hluta af húsi for-
eldra Einars að Brekkustig 3 og
þar bjuggu þau alla tíð sfðan.
Einar lézt 8. desember 1959.
Helga og Einar eignuðust fimm
börn:
Dr. Hermann fiskifræðing sem
dó af slysförum 25. desember
1966. Hann var þrígiftur. Fyrsta
kona hans var Ivy Dilling og áttu
þau einn son, Einar Axel, sem
búsettur er í Danmörku; þau
skildu. Önnur kona Hermanns
var Hulda Jónasdóttir, en hún
lézt eftir stutta sambúð. Þriðja
kona Hermanns var Alda
Snæhólm.
Baldvin prentara í rfkisprent-
smiðjunni Gutenberg. Fyrri kona
hans.var Ása Frímanns og áttu
þau einn son, Harald; þau skildu.
Seinni kona Baldvins er Gyða
Steinsdóttir og eiga þau þrjú
börn: Stein Agúst, Hönnu Maríu
og Katrínu.
Sigrfði ritara á Ferðaskrifstofu
ríkisins. Hún var gift Gunnari
Steindórssyni framkvæmdastjóra
sem lézt 23. nóvember 1966. Þau
eignuðust tvær dætur, Helgu og
Birnu Eybjörgu.
Kjartan skipasmið. Hann var
giftur Danhildi Enoksdóttur og
eignuðust þau tvo syni, Harald og
Sveinbjörn Jörgen, þau skildu.
Harald sem dó tíu mánaða
gamall, en hann var tvíburabróðir
Kjartans.
Hlutskipti Helgu í lffinu var,
eins og nær allra kvenna af
hennar kynslóð, að gæta bús og
barna og rækti hún þann starfa af
mikilli prýði. Hún var ákaflega
gestrisin kona og stóð heimili
hennar og Einars ávallt opið
öllum þeim sem þangað komu,
enda voru gestakonur tfðar til
þeirra hjóna. Var svo áfram eftir
að Einar féll frá að enginn hvarf á
braut frá Helgu í Brekku án þess
að hafa þegið þar einhvern beina.
Helga var snillingur f hannyrð-
um og eru þeir ótaldir dýrgripirn-
ir sem hún samdi með nál og
þræði og prýddi með heimili sitt.
Fékkst hún við fíngerðan útsaum
allt fram á síðustu ár.
Auk sinna mörgu skyldustarfa
tók Helga þátt í ýmiss konar
félagsstarfsemi utan heimilisins,
m.a. var hún einn af stofnendum
kvenfélagsins Eddu, félags
prentarakvenna, og sat um árabil
f stjórn þess; einnig var hún ötull
liðsmaður í starfi Hvítabandsins.
Yfir Helgu hvíldi ró og friður
t
SIGURÐUR
MARTEINN
EYJÓLFSSON
frá Húsatóttum,
Skeiðum,
Gautlandi 1 5
verður jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju 1 8 ágúst kl. 1 30.
Þirý Jónsdóttir
og aðrir vandamenn.