Morgunblaðið - 12.09.1975, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.09.1975, Blaðsíða 1
36 SÍÐUR 207. tbl. 62. árg. FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. r Enn versnar ástandið á N-Irlandi: SDLP hunzar viðræðufundi algjörrar s.vnjunar mótmælenda- flokkanna sem hafa meirihluta um að hafa vaidaskiptingu deilu- aðila í hugsanlegri stjórn f fram- tíðinni. Ráðstefnan hófst á ný f dag eftir langt sumarfrf, en SDLP hunzaði fundinn ásamt fulltrúum hins hægfara Sambandsflokks Norður-trlands, sem er undir forystu Brian Faulkners, fyrrum forsætisráðherra. Leiðtogar kaþólskra sögðu, að synjun Sambandsráðs sameinuðu Ulsters (UUUC) s.l. mánudag græfi verulega undan þýðingu ráðstefnunnar sem leiðar til að finna samkomulagsgrundvöll fyrir nýja stjórnskipan. Eina málið á dagskrá ráðstefnunnar í dag var tillaga frá UUUC um vft- ur á Merlyn Rees, trlandsmála- Belfast 11. september — Reuter STJÓRNMÁLAKREPPAN á Norður-írlandi varð enn alvar- legri f dag, er helzti stjórnmála- flokkur kaþólskra, Jafnaðar- og verkamannaflokkurinn (SDLP), sem um þriðjungur kaþólska minnihlutans fylgir að málum, hvatti til þess að stjórnarskrár- ráðstefnunni um framtfðarstjórn- skipun á Norður-lrlandi yrði hætt. „Áframhaldandi flokkarifr- ildi hefur enga þýðingu," segir f yfirlýsingu flokksins, vegna Framhald á bls. 20 Frá viðræðufundinum í Ráðherrabústaðnum f gær — Ljósmynd Ol.K.M. Karami, forsætisráðherra — herinn stillir til friðar. Krafa Breta: Samningurinn frá ’73 lagður til grundvallar verði Bjóst við mildari kröfum, sagði Einar Agústsson utanríkisráðherra FYRSTA viðræðufundi tslendinga og Breta um fiskveiðideiluna lauk í Ráðherrabústaðnum í gær með samkomulagi um að aðilar hittust á ný í byrjun Herinn í Líbanon mætti ekki andstöðu Beirut 11. september — AP — Reuter LÍBANSKAR hersveitir tóku sér f dag stöðu á þremur beltum milli hafnarborgarinnar Triþólf, þar sem einkum búa múhameðstrúar- menn, og Zagharta, þorps krist- inna manna, um 10 km austar, til þess að binda enda á vikulöng blóðug átök milli herskárra múhameðstrúarmanna og krist- inna á þessu svæði f Norður- Lfbanon, að þvf er forsætisráð- herra landsins, Rashid Karami, tilkynnti. Hersveitir voru einnig á ferli á götum Trfpólf, og einnig var sent lið til Akkarhéraðsins, þar sem a.m.k. tveir menn biðu bana og margir særðust f bardög- um milli fbúa tveggja þorpa. Um 2000 manna her gætir þess nú að hinum strfðandi fylkingum í norðurhluta landsins lendi ekki saman aftur, en ákvörðunin um að beita hervaldi mætti mikilli andspyrnu vinstri manna. Her- sveitirnar mættu engri mót- spyrnu er þær tóku sér stöðu á beltunum þremur, og aðeins heyrðist örfáum sinnum hleypt af byssu og einstaka sprengja sprakk á þessu svæði sem allt hafði logað í átökum f viku. októbermánaðar f London. Á fundunum í gær skiptust aðilar á skoðunum og brezka sendinefndin, sem er undir forsæti Roy Hattersley, aðstoðarutan- ríkisráðherra Breta, lagði til að bráðabirgða- samningurinn frá 13. nóvember 1973 yrði notaður sem vinnuplagg í viðræðunum, en fslenzka sendinefndin vildi ekki ræða um efnisatriði væntanlegs samkomulags að því er brezki ráð- herrann sagði. tslending- arnir höfðu vænzt tillagna frá Bretum, en þær komu engar fram. Fundirnir hófust i ráðherra- bústaðnum klukkan 11 í gær- morgun og um hádegisbil var gert hlé. Höfðu menn þá skipzt á skoðunum og kynnt viðhorf hvers annars og helztu sjónarmið. Deilur PPD og kommúnista tefja enn stjómarmyndunina Lissabon, 11. september, AP — Reuter — NTB. 0 UMBOÐ bráðabirgðastjórnar Vasco Goncalves rann út f kvöld án þess að tilkynnt væri um að tekizt hefði að mynda nýja rfkis- stjórn til að taka við af henni. Fréttamenn f Lissabon segja, að Jose Pinheiro de Azevedo, vara- aðmfráll og útnefndur forsætis- ráðherra, og Francisco da Costa Gomes, forseti, reyni nú allar leiðir til að fá fulltrúa úr þremur helztu stjórnmálaflokkum lands- ins, Jafnaðarmannafiokknum, AI- þýðudemókrötum og Kommún- istaflokknum, til þátttöku f stjórninni, en að þeim sækist verkið afar erfiðlega einkum vegna gagnkvæmrar óvildar sem blossað hefur upp milli kommún- ista og alþýðudemókrata, PPD. Costa Gomes er nú farinn að tala um „þjóðstjórn" f stað „sam- steypustjórnar" þar sem ráðherr- arnir munu eiga sæti sem ein- staklingar en ekki sem fulltrúar ákveðinna stjórnmálaflokka. Leiðtogar byltingarráðsins hittu forsetann f kvöld til viðræðna um leiðir út úr ógöngum þcssum. Þrátt fyrir meira og minna stanzlausar viðræður Azevedo og Costa Gomes við stjórnmála- leiðtogana i fimm daga, hefur enn ekki tekizt að fá Alvaro Cunhal, leiðtoga kommúnista, og Emidio Guerreiro, leiðtoga Alþýðu- demókrata, til að tala saman milli- liðalaust, og hefur Mario Soares, leiðtogi jafnaðarmanna, þjónað Framhald á bls. 20 Fundur hófst síðan aftur klukkan 15 og stóð í hálfa aðra klukku- stund. Voru þar rædd frekari efnisatriði — öll helztu atriði, er varða fiskveiðar Breta á miðun- um við landið, aflamagn, fjölda Byssunni er miðað” Sacramento 11. september—AP „ÞÉR hafið lögsögu yfir rauðvið- artrjám." Þetta var efni og inntak makalausrar ræðu sem Lynette „Squeaky“ Fromme, stúlkan, sem ákærð er fyrir morðtilræðið við Gerald Ford Bandarfkjaforseta s.l. föstudag, reyndi að halda er hún kom fyrir rétt f dag. Var ræða Fromme svo sundurlaus og furðuleg að mati dómarans, Thomas MacBride, að hann lét leiða hana úr réttarsalnum, er hún neitaði að hætta. Dómarinn hafði f upphafi varað Fromme við þvf að tala við réttarhöldin þar eð slfkt kynni að draga úr Ifkum á þvf að mál hennar fengi óhlut- læga meðferð fyrir dómnum og hvatt hana til að gefa ekki út pólitfskar yfirlýsingar. En Fromme vildi fá að tjá hug sinn. „Það er heill her ungs fólks og barna, sem vilja hreinsa þessa jörð, rauðviðartrén," hóf hún mál sitt, og fór fram á að dómarinn fyrirskipaði verkfræðingum ríkis- ins að kaupa skemmtigarða lands- ins upp. Dómarinn tjáði henni að þetta kæmi málinu ekkert við, en hún svaraði að bragði: „Þér hafið lögsögu yfir rauðviðartrjám. Vilj- ið þér hugsa málið?“ Dómarinn lofaði að gera það, en Fromme hélt áfram að ræða um trén og sagði svo: „Byssunni er miðað. Hvort af henni verður hleypt eða ekki er undir yður komið.“ Þá skipaði dómarinn að Fromme yrði leidd út. „Ég vona að ég hafi ekki verið dónaleg,“ sagði hún um leið Dómarinn kvað svo ekki vera. togara og svæðaskiptingu. Einar Ágústsson sagði, að Bretar hefðu verið mjög kröfuharðir og hann sagði x viðtali við Mbl., að viðhorf þeirra hefðu ekki breytzt frá fyrri viðræðum og þeir verið mjög ákveðnir í málflutningi sínum. Matthías Bjarnason lýsti í viðtali við Mbl. þeirri skoðun sinni, að ekki kæmi til mála að nýr samningur um fiskveiðiheimildir tæki gildi á meðan Islendingar væru beittir tollaþvingunum af Efnahagsbandalagslöndunum. Ljóst er að með þeirri kröfu Breta, að bráðabirgðasamkomu- lagið frá 13. nóvember 1973 yrði lagt til grundvallar viðræðunum sem vinnuplagg, fara þeir fram á veiðar innan 50 milna markanna. Hattersley, formaður brezku nefndarinnar, lýsti yfir því við blaðamenn eftir fundinn í gær, að hann væri nokkuð uggandi yfir þeim fresti viðræðna sem sam- komulag hefði orðið um, þ.e. fram Framhald á bls. 20 Engar njósnir -segja V-Þjóðverjar VESTUR-þýzka ríkisst jórnin vísaði f gær á bug ásökunum tslendinga um að vestur-þýzku eftirlitsskipin á tslandsmiðum njósnuðu um fslenzk varðskip, að þvf er segir f fréttaskeyti frá Reuterfréttastofunni f gær. Talsmaður utanrfkisráðu- neytisins f Bonn sagði að eftir- litsskipin hefðu ekki staðið fyrir „neinum ólöglegum að- gerðum", og benti jafnframt á, að vestur-þýzka ríkisstjórnin liti enn svo á að íslenzku fisk- veiðimörkin væru 12 mflur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.