Morgunblaðið - 12.09.1975, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 12.09.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1975 5 mmmm ■■ ■ - Kfe. mímÆm ■ mmm' kÉÚ£nvP,i Játar morð á v-þýzkum auðkýfingi Baden-Baden. 9. september. AP. Rúmlega sextugur bílasölumað- ur, Rudolf Fecht, hefur játað að hafa myrt þýzkan milljónamær- ing, plastvöruframleiðandann Alexander Schmiemann frá Bad- en-Baden, og Antoniu konu hans og fleygt líkum þeirra í Lugano- vatn á landamærum ítalíu og Sviss. Feeht hefur verið i haldi síðan 1. september og segir ástæðuna til verknaðarins hafa verið þá að Schmiemann hafi átt vingott við konu sína og hæðzt að sér í öku- ferð sem þau hjónin og Schmie- mann-hjónin fóru til Tessin. Líkin fundust 29. ágúst og bæði Schmiemann og kona hans höfðu verið skotin nokkrum sinnum. Kona Fechts var einnig handtek- in en látin laus þegar Fecht neit- aði þvi að hún væri viðriðin glæp- inn. Sækjandinn i málinu segist „frekar vantrúaður“ á frásögn Fechts. AUCLVSINCASÍMINN ER: 22480 |t)«r$un6Iabib Tilboð vikunnar gefast vel NÚ UM nokkurt skeið hafa nokkrar matvöruverzlanir í Reykjavfk auglýst hin svokölluðu „tilboð vikunnar“ en þá bjóða þær sérstakar vörutegundir á lægra verði en almennt gerist. Morgunblaðið hafði 1 gær sam- band við tvær af þessum verzi- unum og spurðist fyrir um hvort þessi söluaðferð hefði gefið góða raun. Sigurður Skúli Bárðarson hjá verzluninni Kjöt og fiskur sagði, að þessi söluaðferð hefði gefið það góða raun, að ákveðið væri að halda henni áfram. Hverju sinni væri gefinn 10—15% afsláttur á nokkrum vörutegundum. Lúðvík Lúðviksson i Hagkaup sagði, að sértilboðin hefðu gefið mjög góða raun þann tíma, sem þau hefðu verið í boði. Bæði væri gefinn afsláttur á matvöru og fatnaði og þeir reyndu að pína sig eins iangt niður og þeir frekast gætu. — Við höldum þessu áfram meðan hægt er, sagði hann. Fara til síldveiða í Norðursjó NOKKUÐ mörg íslenzk sfldveiði- skip munu á næstunni halda til sddveiða i Norðursjó, en þar er hverju skipi heimilt að veiða 130 Iestir samkvæmt kvóta þeim, sem Islendingum hefur verið úthlutað í Norðursjó. Þá sagði einn skip- stjóri, sem Mbl. ræddi við í gær, að sjómenn vonuðust til að (slenzka ríkisstjórnin myndi mót- mæla kvótafyrirkomulaginu. á svipaðan hátt og Danir, sérstak- lega þar sem (slenzk stjórnvöld hefðu jafnan verið á móti kvóta- fyrirkomulagi. Þá munu sfldveiðar í herpinót hefjast hér við land á næstu dög- um, en að þessu sinni verður leyft að veiða 7500 lestir. Ákveðið er að setja hámarksafla á hvert skip, þannig að aflanum verði deild niður á milli þeirra skipa, sem salta munu síldina um borð. Ekki hefur enn verið ákveðið, hve mikið hvert skip fær að veiða. Því má reikna með að sfldveiðiflot- inn, sem að mestu hefur legið bundinn við bryggju síðustu mánuðina, fái nokkur verkefni í haust. WjmW< ■ ■ •; ' ■ •Jv';’ '..□□■■ o ,-\w Stórkostlegt vöruúrval I Opið til kl. 12 á morgun p * mm * Nýkomið! ] Leðurjakkar L Herra- & dömupeysur □ Kápur — Kjólar L Flauelisdragtir c L Blússur □ Ný snið stakar terylene- & ullarbuxur dömu og herra □ Pils □ Flauelisföt herra L J Skór □ Hljómplötur TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG66 LAUGAVEG20a SIMI FÁ SKIPTIBOPÐI 28155

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.