Morgunblaðið - 12.09.1975, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 12.09.1975, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1975 17 Ný tillaga Sovétmanna: Bann við öllum kjam- orkuvopnatilraunum Sameinuðu þjóðunum 11. september — AP. SOVÉTRlKIN lögðu f dag til að gerður yrði alþjóðasáttmáli sem bannar tilraunir með kjarnorku- vopn, jafnt neðanjarðar sem annars staðar. Sifkur sáttmáli myndi styrkja og útvfkka Moskvusáttmálann frá árinu 1963 um bann við kjarnorkuvopnatii- raunum f andrúmsloftinu, geimn- um og neðansjávar, svo og samning Bandarfkjanna og Sovét- rfkjanna frá 1974 um takmörkun kjarnorkuvopnatiirauna neðan- jarðar. Andrei Gromyko, utan- rfkisráðherra Sovétrfkjanna, hvetur allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna til að taka þennan nýja sáttmála til meðferðar sem „mikilvægt og brýnt mál“ á 30. reglulega þingi sfnu sem hefst á þriðjudag. I bréfi til Kurt Waldheims, framkvæmdastjóra S.Þ., segir Gromyko, að slíkur sáttmáli „yrði meiri háttar framlag til takmörk- unar vígbúnaðarkapphlaupsins og þannig flýta og dýpka fram- vindu slökunarstefnunnar og treysta frið og öryggi í heimin- um“. Hann segir að ástæðan fyrir þessari tillögu sé, að þrátt fyrir aðgerðir til að hafa hemil á víg- búnaðarkapphlaupinu, sérstak- lega á síðustu árum, hafi ekki enn tekizt að stöðva það. I bréfinu kemur fram að sátt- málanum er þó ekki ætlað að ná til kjarnorkusprenginga neðan- jarðar „í friðsamlegum tilgangi". Sprengingar í Lissabon Úr fjölskyldualbúmi Mansonfjölskyldunnar, Sandra Good og Lynette Fromme, en sú síðarnefnda kemur einnig við sögu í frétt á forsíðu Morgunblaðsins í dag. Lissabon 11. sept. AP HEIMATILBÚNAR sprengjur skemmdu verulega bifreiða- geymslu spánska sendiráðsins í Lissabon, bakdyr Sheratons- gistihússins og skrifstofur flug- félags Marokkó þar f grennd. Blaðsnifsi, sem undirritað var Asbest bann- að í Svíþjóð Stokkhólmi, 11. sept. Reuter. SVtAR ætla að banna notkun asbests sem einangrunarefnis og takmarka aðra notkun þess f iðn- aði vegna frétta um að asbestryk geti valdið krabbameini. Sérstök nefnd sem vinnur að öryggis- og heilbrigðismálum innan iðnaðar í Svíþjóð skýrði frá því f dag, að þetta bann myndi ganga i gildi frá og með 1. október. „Einingarnefnd alþjóða- kommúnismans", og dreift var af óþekktum mönnum, gaf til kynna hverjir bæru ábyrgð á skemmdar- verkunum. Lögreglan kvaðst telja að skemmdarverkamennirnir hefðu í misgáningi komið sprengju fyrir hjá marókkanska flugfélaginu, sem er í næsta húsi við IBERIA, flugfélagið spánska. . Skömmu eftir sprengingarnar var lögreglumaður að rannsaka kyrr- stæðan bíl og varð þá fyrir skoti og er sagður alvarlega særður. Að öðru leyti urðu engin slys á fólki við þessa atburði. Mennirnir tveir, sem f bílnum voru, lögðu á flótta. Talið er að þeir hafi verið viðriðnir sprengjutilræðin. Ein úr Mansonfjölskyldunni: MORÐHERFERÐ GEGN 20« IÐJUHÖLDUM UNDIRBÚIN Atlanta 11. sept. Reuter. HERBERGISFÉLAGI Lynette Fromme, sem ákærð er fyrir að sýna Ford Bandarfkjaforseta banatilræði, Sandra Good að nafni, sagði f dag, að neðanjarðar- Boyle dæmdur í þre- falt lífstíðarfangelsi Karpov nær forystu Milanó, 11. sept. AP. HEIMSMEISTARI f skák, Anatoly Karpov, hefur nú forystu þegar dregur að lokum Mflanó- skákmótsins, en hann sigraði Portisch frá Ungverjalandi f skák þeirra sem stóð yfir f sjö klukku- stundir. Hefur Karpov þá 1.5 vinninga forskot í sex skáka keppninni. Flóð í Nicaragua Managua, 10. september. Reuter. UM 50 manns hafa slasazt og 1.000 misst heimili sín í flóðum á svæði sem er 80 km suður af Managua í Mið-Ameríkuríkinu Nicaragua. Media, Pennslylvania, 11. september — Reuter. W.A. BOYLE, fyrrverandi for- maður samtaka bandarfskra námamanna, var f dag dæmdur f þrefalt lffstfðarfangclsi fyrir að leggja á ráðin og fyrirskipa morð á keppinauti sfnum innan sam- takanna, svo og konu hans og dótt- ur. Boyle er sjötugur að aldri. Hann lýsti þvf yfir áður en dómur var upp kveðinn, að hann væri saklaus af ákærum. Talið var sannað, að Boyle hefði fyrirskipað morðin á J.A. Yablonski, sem hafði boðið sig fram á móti Boyle til formennsku samtakanna, eiginkonu hans, Margaretu, og einkadóttur þeirra. Þau voru skotin að heimili sínu í Clarksville í Pennsylvaníu þann 5. janúar 1970. Boyle hefur setið í fangelsi síðan í desember 1973, en átta aðrir hlutu einnig dóma fyrir að vera viðriðnir morðin þrjú á Yablonskifjölskyldunni. Þrír menn skutu fjölskylduna i rúmum sínum og þótti sannað að þeim hefðu verið greiddir 20 þúsund dollarar úr sjóðum sam- takanna fyrir vikið. Tveir synir Samdráttur hjá olíu- framleiðsluríkjum OLÍUFRAMLEIÐSLA í Mið- austurlöndum dróst saman, sem svarar 14% fyrstu sex mánuðina 1975, og ekki sfzt f olfurfkum löndum eins og Saudi-Arabfu, Kuwait og Iran, að þvf er segir f éfnahags- skýrslu landanna. Aðalfram- leiðslulandið sem er Saudi- Arabfa framleiddi 6.6 millj. olfufata á dag fyrstu sex mánuði ársins miðað við 8.1 milljón olfufata á sama tfma árið 1974 og minnkaði fram- leiðslan þannig um 19% f Saudi-Arabfu. 1 tran var samdrátturinn 12%, úr 6.2 milljónum olfufata daglega f 5.4 millj. og Kuwait framlciddi 1.9 millj. f stað 2.6 millj. árið áður, og er munur- inn 27%. Mestur var þó samdrátturinn f Líbýu eða 41% miðað við sama árstfma árið 1974. Þá seg- ir f skýrslunni, að Irakar, sem hafa lagt gffurlega áherzlu á að þróa olfuframleiðslu sfna, hafi verið athyglisvcrð undan- tekning f þessari þróun. Fram- leiðsla jókst um 14% þar f landi. Þvf er spáð að þessi fram- leiðsluminnkun kunni að hafa áhrif á væntanlegar viðræður um hækkun á olfuverði, þegar fulltrúar OPEC-landanna koma saman til fundar í Vfnarborg 24. september n.k. til að fjalla um kröfur um olíuverðshækk- un. Yablonskis sem báðir eru lög- fræðingar sögðu að morðin hefðu verið framin af atvinnumönnum. Þúsundir námamanna söfnuðust saman til mótmæla skömmu eftir atburðinn. Þremur vikum áður en morðin voru framin hafði Yablonski tapað f formanns kosningum fyrir Boyle og hafði hin mesta harka verið í þeirri baráttu. Síðar voru niðurstöður kosninganna dæmdar úrskurðað- ar ólöglegar og nýjar boðaðar og tapaði þá Boyle. hópur ýmissa aðila iðjuhölda „fyrir að menga heiminn“. Sandra Good sagði þetta f sfma- viðtali á heimili sfnu f Sacra- mento í Kalifornfu og hefðu tvö hundruð viðskiptafrömuðir verið valdir úr til að byrja með. „Timinn er orðinn naumur og stundin nálgast óðum,“ sagði frökenin. Báðar voru konur þess- ar í Charles Manson fjölskyldunni og Good gaf í skyn í viðtalinu, að Manson væri viðriðin morðtilræð- ið á Ford vegna þess að hann hefði til að bera yfirnáttúrulega hæfileika til að hafa áhrif á gang atburðanna. Hún sagði að hópur- inn, sem kallar sig „Dómstól refs- ingarinnar", hefði haft eftirlit með væntanlegum fórnarlömbum og eiginkonum þeirra um nokkra hríð. Hún var beðin að skýra frá nöfnum þeirra og skýrði hún frá nöfnum sex manna, sem búa í Suðurrikjunum. Var þeim sagt frá yfirlýsingum ungfrúarinnar og var haft fyrir satt að þeir ætl- uðu ekki að gera sérstakar varúð- arráðstafanir vegna þessa á næst- unni. HILLIR UNDIR LAUSN Á TIMOR? Jakarta 11. sept. Reuter. SÉRSTAKUR fulltrúi Portúgals f málefnum Timor, Antonio de Mikil reiði ítala vegna vínskattsins Paris, Róm 11. september — Reuter VIÐSKIPTASTRlÐ er nú hafið innan Efnahagsbandalags Evrópu eftir að franska rfkisstjórnin skýrði I dag frá nýjum inn- flutningsskatti á ódýrar ftalskar vfntegundir sem stofnað hafa f hættu hagsinunum franskra bænda sem framleiða vfn f sam- svarandi gæðaflokki. Skattur þessi nemur 11—12%. Skatt- iagningin kemur í kjölfar mis- heppnaðra maraþonviðræðna f Briissel fyrr f vikunni um mál þetta, en hún er talin grafa mjög undan gildi landbúnaðarstefnu EBE, og telja ftölsk stjórnvöld hana raunar hreint brot á samningum bandalagsins. ltalir hafa harðlega fordæmt ákvörðun Frakka, en ftölsk hagsmunasam- tök tóku ekki f dag undir þá kröfu ítölsku landbúnaðarsamtak- anna, að gripið yrði til hefndarað- gerða, sem beint yrði gegn inn- flutningi á kjöti og mjólkurvör- um frá Frakklandi. Jacques Chirac, forsætisráð- herra Frakklands, sem tilkynnti um skattlagninguna i dag, sagði, að hann ætti ekki von á hefndar- ráðstöfunum af hálfu Itala. Skatt- urinn tekur gildi frá og með morgundeginum. Forsætisráð- herrann sagði, að hann væri ekki Framhald á bls. 20 Almeida Santos, lét f ljós þá trú sfna f dag, að stjórnmálaleg lausn myndi nást til að binda enda á hinar illvfgu óeirðir á eynni vegna sjálfstæðisbaráttu hennar. Hafa hundruð manna látið lffið og margir slasazt. Santos ræddi við fréttamenn eftir að hann hafði hitt að máli embættismenn f utanrfkisráðuneyti Indónesíu til að ræða ástandið á Timor, en helmingur eyjaklasans er undir stjórn Indónesa. Portúgalir segja að Fretilin- hreyfingin, sem er vinstri sinnuð og krefst sjálfstæðis til handa Timor, hafi yfirhöndina og virðist hafa öll ráð í sínum höndum eftir baráttu við aðra sjálfstæðirhreyf- ingu á eyjunum, UDT, en sú er talin meira hægfara i afstöðu sinni. UDT náði á sitt vald ýmsum stöðvum á Timor f fyrra mánuði og var það undanfari átakanna, sem leiddu til þess, að stjórnin varð að flýja til smáeyjarinnar Atauro og þúsundir manna af portúgölsku bergi brotin flúðu til Ástralfu. Aðgerðir gegn erlend- um blaðamönnum 1 Chile ritað greinar um mannréttinda- skerðingu sem hefur verið gerð i Chile undir stjórn her- foringjanna, og skýrt frá pynd- ingum og Ifflátum sem gerð hafa verið að undirlagi og með blessun stjórnarinnar. Santiago 11. sept. AP. HERSTJÓRNIN f Chile hefur bannað tveimur fréttamönnum frá bandarfskum blöðum að koma til Chile, að þvf er opinberar heimildir staðfestu f dag. Frétta- mennirnir eru Johanne Omang frá Washington Post og James Pringle frá Newsweek. Þau eru bæði búsett f Buenos Aires og senda fréttir frá Suður-Amerfku þaðan. Pringle var í Santiago nokkra daga í fyrri viku og Johanne Omang var sögð vera á leiðinni til Chile til þess að skrifa grein um hátíðahöld sem fara fram til að minnast tveggja ára valdatöku hersins, þann 11. september 1973. Báðir þessir fréttamenn hafa Erlendar fréttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.