Morgunblaðið - 12.09.1975, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.09.1975, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1975 23 Þjóðmálin og pólitísk- ur rangsnúningur ÞAÐ ER skuggalegt og bágborið hugarfar stjórnarandstöðu nú sem og oft áður. Það ber vott um mikinn málefnaskort, þegar stað- reyndum er snúið við til að reyna að slá ryki í augu almennings. Vissulega ber oss að vera á verði gegn slfkum eyðileggingaröflum, til að geta varizt þeim og staðið saman um þjóðmál okkar, því sundraðir föllum við en sameinað- ir stöndum við. Af þessu tilefni vil ég hér svara skuggalegum klausum og aðdróttunum, sem birtust nýlega í einu málgagni vinstri aflanna í forustugreinum. Þar er sagt um Framsóknar- flokkinn að hann finni alltaf upp ágreiningsefni fyrir kosningar til eyðileggingar áframhaldandi samstarfi í stjórn. Ég skal bara benda á hvað þetta er mikil fjarstæða, t.d. um vinstri stjórnina síðustu. Staðreyndin er sú að það voru framsóknarmenn, sem björguðu því sem bjargað varð varðandi þjóðmálin þegar vinstri hreyfingin brást. Það var ekki Framsóknarflokkurinn, sem fann upp á ágreiningsefninu, heldur þvert á móti, reyndi allt sem verða mátti til sátta. Aftur á móti var það Alþýðubandalag og fleiri sem eyðilögðu eða splundruðu samstarfinu með hinum furðulegasta skrlpaleik sem þeir sjálfir fundu upp. Þeir töldu allt I stakasta lagi og engan vanda framundan, vegna þess að þeir höfðu ekki manndóm í sér til að vera ábyrgir eins og samstarfs- flokkurinn og koma hreint fram með þvi að segja hið sanna, í stað þess að skjótast undan ábyrgð og merkjum. Greinilega hefur stjórnarandstaðan áhyggjur af þvf að núverandi stjórnarsam- starf verði haldbetra en hið fyrra. Tala t.d. niðrandi um okkar bless- aða forsætisráðherra og fram- sóknarmenn taldir auðsveipir Sjálfstæðisflokknum. EjE]E]E]E)E]E]E]ElElElE]E]EiElE]ElElB]g]gl 1 SiglM 1 „ B1 B1 OPIÐ I KVOLDTILKL. 1. Bl ® PÓNIK OG EINAR g Bl Bl E]E]E]E]E]E1E1E1E]E1E1E1E]E1E1E]E]E1E1E1E1 ÞORSCAFE Þrumudansleikur í kvöld LAUFIÐ leikur frá kl. 9 — 1. Ég svara því hér til skýrt og ákveðið að sjálfstæðismenn eru að vísu ánægðir að mörgu leyti með samstarfið við Framsókn, en ekki fyrir það að hún sé auðsveip, heldur hafa forystumenn þess flokks þá kosti sem allir stjórn- málamenn þurfa að hafa, ábyrgðartilfinningu, sómatil- finningu og heiðarleik. Þetta eru tveir sterkir og sjálf- stæðir flokkar og því er mjög vit- laust að vera að tala um auð- sveipni hjá þeim. Það er því meiri líkur á löngu stjórnarsamstarfi nú en áður, því meira og fleira er það sem sameinar núverandi stjórnarflokka heldur en sem sundrað gæti. Sem betur fer. Svo eru það skrif varðandi forsætis- ráðherra okkar ágæta, að hann hafi ekki bein í nefinu. Ég hef nú ekki betur séð en hann hafi allt það bezta sem til þarf til að geta staðið í sinni stöðu, og geri það lfka fyllilega. En ég held að full fáir geri sér vel grein fyrir því hvað sú staða er erfitt og vanda- samt hlutverk, sérstaklega hve mikla þolinmæði það hlýtur að útheimta. Nei, menn eru oft dóm- hvatir, það er ekki hægt að búast við að árangur af þvl starfi birtist með leifturhraða á erfiðum tímum heldur smám saman. Þá er það útfærsla landhelginnar, það verður vandasamt að semja. Auð- velt þó tiltölulega við Rússa þar sem þeir hafa ekki verið fyrir innan 50 mflurnar til þessa. Aftur á móti þurfum við að fá hina alveg út fyrir 50 mflur en fviln- anir fyrir innan 200 til 50 milna. Þá kemur og þröskuldur sem við verðum að yfirstíga, það er að fá afnumda tolla hjá EBE og löndunarbann afnumið hjá Þjóð- verjum, þetta hvort tveggja verður að reyna að setja sem skil- yrði fyrir að samið verði. Að lok- um vil ég óska stjórninni vel- gengni og blessunar f komandi samningum. Einar Mýrkjartansson. Amin á fund Páls páfa Castelgandolfo, 10. september. AP. IDI Amin, forseti Uganda, gekk í | dag á fund Páls páfa á sveitasetri hans f Castelgandolfo ásamt fjöl- mennri sendinefnd. Páfi sagði þegar hann ávarpaði gestina að hann væri þakklátur Amin fyrir fullvissanir um að erlendir trúboðar væru velkomn- ir í Uganda. Ibúar Uganda eru 9,5 milljónir og þar af erú um 4 millj- ónir kaþólskir. Sjálfur er Amin múhameðstrúar. Munið nafnskírteinin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.