Morgunblaðið - 12.09.1975, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1975
Haustar að
Það fer ekki fram hjá
neinum, að haustið er
komið i hlaðvarpan. Það
kemur jafnan eins og
kóngssonur I gömlu ævin-
týri á hvltum hesti. Og
það kemur á sama hátt og
vorið. ( fögru kvæði Þor-
steins Glslasonar segir:
„Vorið tánum tyllir tind-
ana á." Fjallatindar eru og
áningarstaðir haustsins I
hingaðkomu. Hvltkrýndar
fjallsbrúnir eru haustboð-
ar. Siðan gránar I rót. Og
loks hylur fjallkonan sig
hvltum möttli, frá fjalls-
brún að fjöruborði.
Haustið á slna fegurð,
ekki slður en vor og sum-
ar. Haustlitir I náttúrunn-
ar rlki gæla við fegurðar-
skyn okkar. Og veðráttan
undanfama daga, að vlsu
svalviðri, en sól á heiðum
himni, mætir betur vonum
okkar en sumarið, sem
Genginn eiriræðisherra
gægist upp á yfirborðið
aldrei kom. Og þó vetur-
inn sá harður húsbóndi,
að vlsu misharður eftir
landshlutum, er snjórinn
vel þeginn af sumum,
bæði yngstu borgurunum
og sklðafólki.
Og margháttuð menn-
ingarstarfsemi fer á
kreik með haustskuggun-
um. Þar ber máske hæst
leikhúsin I borginni, sem
eru ómetanlegir gleðigjaf-
ar I skammdeginu. En
mestu máli skiptir að að-
laða sig aðstæðum og fá
það bezta út úr þeim
kringumstæðum, sem
ekki verða umflúnar.
Gamansaga frá
Júgóslavíu
I slðari heimsstyrjöld-
inni börðust Þjóðverjar
Dubcek I fangelsi án
veggja
fyrir landvinningum undir
kjörorðinu „Itfsrými", þ.e.
nýjum svæðum til um-
svifa fyrir hinn „hreina"
kynstofn. Eftirhreytur
þessarar baráttu virðast
nú þær einar, sem koma
fram I rányrkju á islands-
miðum I þvl að skera land
fátæka mannsins. Og þó.
Hin júgóslavneska kýmni
er á öðru máli. Sam-1
kvæmt henni fékk ein-
valdur þriðja rlkisins að
gægjast upp á yfirborð
Evrópu I dag og var heldur
betur skemmt við útsýnið.
Baráttan fyrir llfsrými var
máske ekki til einskis.
Júgóslavarnir unnu sem
sé I verksmiðjum Vestur-
Þýzkalands, en Þjóð-
verjarnir böðuðu sig á
ströndum Adrlahafs! —
Og öllu gamni fylgir
nokkur alvara.
Fangelsi
án veggja
Franskir blaðamenn
hittu nýverið að máli
Alexander Oubecek, fyrr-
um ráðamann I
Tekkóslóvaklu. Þrlr
vopnaðir hermenn vóru á
verði fyrir utan heimili
hans. „Ég bý I fangelsi án
veggja," sagði þessi
hrjáði stjórnmálamaður.
„Ég er ekki frjáls maður
og ég vil að þið vitið
það." Dubcek bað blaða-
mennina að fara hið skjót-
asta, þvl að lögreglan
fylgdist með þeim. „Þið
verðið að fara, ég hef
tekið mikla áhættu... ég
hef aldrei séð ykkur,"
sagði hann.
Þessir blaðamenn vóru
slðan teknir til yfirheyrslu
I fangelsi skammt frá
Bratislava, áður en þeim
var sleppt út úr landinu
yfir til Austurrlkis.
Þannig er hlutskipti
þeirra, sem leyfa sér þann
munað að hafa sjálf-
stæðar skoðanir I rtkjum
kommúnismans. Hetju-
saga Dubceks fékk rauna-
legan endi. En hún hafði
heimssögulegt gildi. Hún
kostaði innrás rauða hers-
ins I Tékkóslóvakfu. Og
hún er lýsandi dæmi, sem
draga þarf réttar ályktanir
af.
spurt &
Hringið i síma 10100
milli kl. 10.30 og 11.30
frá mánudegi til
föstudags og spyrjið um
Lesendaþjónustu Morg-
unblaðsins.
NÚMERIÐ VANTAÐI
A HAPP-
DRÆTTISMIÐANN
Oktavfa Thorarensen, Álfta-
mýri 6, Reykjavík spyr:
„Síðast liðinn sunnudag var
mér boðið á Vörusýninguna,
sem þá stóð yfir í Laugardals-
höllinni. Við innganginn var
mér afhentur miði og var á hon-
um áletrun um gestahapp-
drætti sýningarinnar, en þegar
ég fór að skoða miðgnn betur
síðar kom f ljós að númer happ-
drættismiðans vantaði. Þegar
ég sneri mér til skrifstofu
sýningarinnar, fékk ég þau
svör að þetta gæti ekki hafa
gerzt. Ég vil þvi spyrja
forsvarsmenn sýningarinnar,
hvort þeir hafi ekki gert ein-
hverjar ráðstafanir til að koma
í veg fyrir að númer féllu niður
á happdrættismiðunum, svo
mjög sem þeir auglýstu þetta
gestahappdrætti ? “
Bjarni Ólafsson fram-
kvæmdastjóri Kaupstefnunnar
svarar:
„Sé í umferð gestahapp-
drættismiði án númers, hafa
augljóslega orðið leið mistök í
prentun, sem beðizt er velvirð-
ingar á. Þeir aðilar sem kunna
að hafa slíka miða undir hönd-
um, eru vinsamlega beðnir um
að gera skrifstofu Kaupstefn-
unnar, Hafnarstræti 5, aðvart
og mun andvirði aðgöngumiða
þá fúslega endurgreitt.
Hinsvegar þykir okkur
leiðara að heyra að konunni
hafi ekki verið sýnd full
kurteisi í síma sýningarinnar.
Álagið var að vísu oft mikið og
starfsmenn iðulega þreyttir.
Það réttlætir þó undir engum
kringumstæðum ónærgætna
framkomu. Því biðjum við kon-
una enn á ný velvirðingar og til
staðfestingar biðjum við hana
um að þiggja sérstakt boðskort
sem gerir hana að heiðursgesti
á öllum sýningum Kaupstefn-
unnar f framtíðinni. Er það von
okkar, að þar eigi hún eftir að
kynnast þeim anda kurteisi og
greiðvikni sem yfirleitt er
ríkjandi meðal starfsfólks okk-
ar og lögð er áherzla á af hálfu
Kaupstefnunnar."
ER ATVINNU-
REKANDI
SKAÐABÓTA-
SKYLDUR?
Ragnheiður Einarsdóttir,
Njálsgötu 47, Reykjavík spyr:
„Ef ég hef í vinnu hjá mér
mann, karl eða konu, og hann
kemur til vinnu undir áhrifum
áfengis og slasast við vinnu
sína, er ég þá» sem atvinnu-
rekandi, skaðabótaskyldur f
þessu tilfelli ?“
Baldur Guðlaugsson lög-
fræðingur hjá Vinnuveitenda-
sambandi Islands svarar:
„Álitaefnið er tvíþætt:
annars vegar skylda vinnu-
veitanda til kaupgreiðslu í slík-
um tilvikum og hins vegar
skylda hans til greiðslu skaða-
bóta vegna hugsanlegs líkams-
tjóns launþega.
Samkvæmt kjarasamningum
og landslögum eiga launþegar
rétt til að halda launum f
veikinda og slysatilfellum; þó í
mismunandi langan tíma eftir
starfsaldri og starfsgreinum.
Hins vegar hefur ávallt verið
litið svo á, að þessi réttur
tapaðist, ef launþegi getur
engu öðru um slysið kennt en
óeðlilegu háttalagi sjálfs sín.
Megi rekja slysið til áfengis-
áhrifa yrði tvímælalaust talið,
að réttur til kaupgreiðslna félli
niður.
Varðandi skaðabótarétt laun-
þega vegna hugsanlegs líkams-
tjóns koma i raun hliðstæðar
reglur til greina. í skaðabóta-
málum er jafnan metið, að hve
miklu leyti megi rekja óhapp
eða slys til vanrækslu eða mis-
taka tjónþola sjálfs. Verður
hann þá að bera Ijón sitt sjálfur
að þvf marki, sem hann er tal-
inn eiga sök á því. Slík sjónar-
mið kæmu vafalitið til greina
varðandi flest slys af völdum
áfengis.“
NÚ ER m
ÚTSOLU o o . m
I :i fw
Í NÝJU HÚSNÆÐI
AÐ
LAUGAVEGI 66
l sama húsivlð
hllðlna á verzlun
okkar
Látið ekki
happ
úr hendi
sleppa
Ótrúlegt
vöruúrval
á frábærlega góðu
verði!!!!
0 o
Q Terelyne & ullarbuxur í miklu úrvali
Q Föt me8 vesti Pils og kjólar
□ Bolir Q Stakir kvenjakkar
Q UFO flauelisbuxur.
Nú er hægt að
gera reyfarakaup
Laugavegi 66, sími 28155
Ferðaskrifstofan
ÚTSÝN
UTSÝNARKVOLD,
Ítalíuhátíð
Súlnasal Hótel Sögu
sunnudagskvöldið
14. sept.
+ Kl. 1 9.00 Húsið opnað.
h Kl. 1 9.30 ítalskur hátíðarréttur. Verð kr. 950 -
Magnús Jónsson óperusöngvari syngur ítölsk
lög.
Ferðabingó — Vinningar 3 glassilegar
Útsýnarferðir til sólarlanda á næsta ári.
Hljómsveit Hauks Morthens leikur fyrir
dansi.
V.
Ath. Þetta er fyrsta Útsýnarkvöldið á þessu hausti.
Missið ekki af óvenju glæsilegri og spennandi en
ódýrri skemmtun.
Hátiðin hefst stundvíslega og borðum verður ekki
haldið eftir kl. 19.30.
Tryggið ykkur borð hjá yfirþjóni á föstudag frá
kl. 15.00 isíma 20221.
Verið velkomin — Góða skemmtun.
Ferðaskrifstofan ÚTSÝN