Morgunblaðið - 12.09.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1975
13
Þorlákshöfn:
Bugður og
beygjur á
nýja veginum
Þorlákshöfn 10. sept.
í AGUSTMANUÐI og það sem af
er september hafa aflabrögð Þor-
lákshafnarbáta verlð heldur léleg
enda slæm tíð og lftið um næði.
Flestir bátar eru með troll og
hafa lítið í það. Þrfr bátar eru
farnir á spærlingsveiðar og fleiri
munu fara bráðlega. Þeir hafa
fengið sæmilega veiði þegar gefið
hefur. Næg vinna hefur verið f
frystihúsinu og það er afli togar-
ans Jóns Vfdalfn sem þar gerir
gæfumuninn.
Nýi vegurinn hingað frá
Þrengslavegamótum var opnaður
fyrir umferð s.l. laugardag og þá
með maiarlagi. Það vekur undrun
manna hér hvað hefur tekizt að
ná mörgum bugðum og beygjum á
þennan veg fram sandinn. Það er
iíkast þvf að leið manns liggi fyrir
annes. Ef til vill er þetta sparn-
aðarráðstöfun eins og það að slit-
lagið varanlega ver látið bfða.
A safnaðarfundi sem haldinn
var fimmtudaginn 4/september í
barnaskólanum í Þorlákshöfn var
kosin byggingarnefnd kirkju I
Þorlákshöfn. Nefndina skipa
Benedikt Thorareníen, Guð-
mundur Friðriksson, Gunnar
Markússon, Sverrir Sigurjónsson
og Ragnheiður Ólafsdóttir. Góðar
gjafir hafa borizt til fyrirhugaðr-
ar kirkjubyggingar svo sem áður
hefur verið skýrt frá f blaðinu og
taldi fundurinn að þvi fé væri
bezt borgið með því að sem fyrst
yrði hafizt handa um undirbún-
ingsstarf að verkinu með tilliti til
hins ótrygga ástands sem rfkir í
peningamálum þjóðarinnar.
—Ragnheiður.
Rakspírinn:
Ekkert eftirlit
með innflutningi
INNFLUTNINGUR á rakspfra
hefur verið frjáls nokkur undan-
farin ár og ekkert sérstakt eftirlit
hefur verið með innflutningnum
sfðan Afengis- og tóbaksverzlunin
hafði einkasölu á rakspfra með
höndum.
Ragnar Jónsson skrifstofustjóri
ATVR sagði við Mbl. í gær, að
þær tegundir sem stofnunin fram-
leiddi og setti á markað undir
sfnu vörumerki væru framleiddar
úr hreinum spíritus og í þeirra
framleiðslu væru engin eiturefni.
Hins vegar væri rækilega merkt á
flöskurnar, að rakspírinn væri
óhæfur til drykkjar.
Misjafn afli
reknetabáta
AFLI reknetabáta frá Hornafirði
hefur verið mjög misjafn undan-
farna daga. Einstaka báíur hefur
fengið mjög góðan afla, en aðrir
lítið sem ekki neitt. Minnst hafa
bátarnir fengið um 3 tunnur eftir
nóttina en mest komizt í nokkuð á
annað hundrað tunnur.
Sfldin, sem bátarnir koma með,
fer ýmist f frystingu eða er söltuð.
Loðnuleit geng-
ur erfiðlega
RANNSÓKNASKIPIÐ Arni Frið-
riksson er sem kunnugt er við
loðnuleit fyrfr Norðurlandi.
Vegna veðurs hefur lftið orðið úr
leit sfðustu daga og f fyrradag lá
skipið t.d. undir Grænuhlfð vegna
veðurs.
AUtíI.VSINGASÍMINN ER:
22480
JHorfltmblobtb
Takið vel eftiri
Verzlanir við
Laugaveginn
verða opnar á
laugardögum
til kl.12.
rsr
Fjölmennur fundur
kaupmanna við
Laugaveg,
hefur samþykkt,
að hafa verzlanir
sínar opnar
til kl. 12
á laugardögum
og til kl. 7 e.h.
á föstudögum.