Morgunblaðið - 12.09.1975, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1975
Bændur á Suðurlandi
ljúlm heyönnum
— ef þurrkur helzt fram að helgi
HEYSKAPUR hefur f sumar
gengið mjög stirðlega vfða um
land, þó einkum á Suðurlandi
vegna ótfðar eins og kunnugt er. 1
gær var þurrkur á Suðurlandi og
voru bændur þar í óða önn að
sinna heyskap. Björn Erlendsson
í Skálholti sagðist gera ráð fyrir
að bændur í Arnessýslu myndu
ná að mestu inn sfnum heyjum ef
þurrkurinn héldist fram að helgi.
Gfsli Kristjánsson hjá Búnaðar-
félagi Islands sagði, að bændur í
Borgarfirði væru nokkuð vel sett-
ír, þó að ástandið væri misjafnt
eftir bæjum. I Dölum, á Vest-
fjörðum og í Húnavatnssýslu
væru bændur yfirleitt komnir vel
á veg með heyskap og vfða væri
honum að ljúka. Frá Skagafirði
austur um allt til Breiðdals hafa
bændur lokið heyönnum og er
— Afgreiðslu-
bann
Framhald af bls. 36
skeyti samgönguráðuneytisins
orðrétt á þessa leið:
„Ráðuneytið mælist til þess
við hafnarstjórnina að ef eftir-
litsskip eða fiskiskip frá þeim
þjóðum, sem ekki virða 50
mflna fiskveiðilögsögu Islands,
leita hafnar, verði þeim ekki
látnar f té neinar vistir, við-
gerðarþjónusta né rekstrar-
vörur, en fyrirgreiðsla aðeins
veitt vegna sjúkra manna eða
slasaðra.
Samgönguráðuneytið“
Sagði Ólafur Steinar að lok-
um að þessi tilkynning hefði
ekki verið afturkölluð, og
kvaðst hann ekki vita annað en
eftir henni hefði verið farið.
Morgunblaðinu barst í gær
eftirfarandi fréttatiikynning
frá Reykjavíkurhöfn:
Á fundi hafnarstjórnar
Reykjavfkur f dag, fimmtudag-
inn 11. september, var gerð eft-
irfarandi bókun:
„Rætt um afgreiðslu v-
þýzkra eftirlitsskipa f
Reykjavfkurhöfn.
Á fundi hafnarstjórnar 24.
október 1972 var ákveðið að
skip þessi fengju enga fyrir-
greiðslu í Reykjavíkurhöfn,
aðra en vegna sjúkra manna og
slasaðra. Lögð var fram yfirlýs-
ing yfirhafnsögumanns, dags.
9. september sl., þar sem
staðfest er að ákvörðun þessi
hafi verið framkvæmd síðan.“
Hér fer á eftir yfirlýsingyfir-
hafnsögumanns:
Að gefnu tilefni skal tekið
fram, að v-þýzku eftirlitsskipin
hafa enga fyrirgreiðslu fengið
hér f Reykjavfkurhöfn sfðan
landhelgisdeilan hófst við V-
Þjóðverja, aðra en þá, að láta í
land slasaða eða veika menn og
taka aftur menn, sem hafa
dvalið hér á sjúkrahúsum.
t þau skipti sem beðið hefur
verið um vatn, eða aðra fyrir-
greiðslu frá Reykjavíkurhöfn,
hefur þvf algjörlega verið
neitað.
Einar Thoroddsen,
yfirhafnsögumaður.“
Loks ræddi Morgunblaðið við
Björn Jónsson forseta ASl og
spurði hann hvort miðstjórn
ASl hefði ekki verið kunnugt
um afgreiðslubannið sem verið
hefur í gildi þegar hún gerði
samþykkt sína um að setja á
afgreiðslubann nú í vikunni.
Björn sagði að hvorki honum
né öðrum miðstjórnarmönnum
hefði verið kunnugt um þetta
bann. Enda breytti það að sínu
mati ekki eðli málsins því
bannið hefði verið sett við allt
aðrar aðstæður en nú ríktu.
heyfangur þeirra í meðallagi að
magni en Gísli taldi að heyin
væru vafalaust yfir meðallagi að
gæðum á þessu svæði. Frá Breið-
dal og á Suðurlandsundirlendinu
og sérstaklega f Árnessýslu eiga
bændur enn töluverð hey úti. Hjá
Gísla kom fram að staðan væri
mjög misjöfn eftir bæjum og virt-
ist að þar sem til væri góður véla-
kostur og fyrir hendi væri áræðni
hefði heyskapur gengið furðan-
lega miðað við þá vondu tíð, sem
verið hefur í sumar um hluta
landsins. Hann sagði, að menn
hefðu hirt nokkuð djarft, því ekki
hefði gefizt tóm til að fullþurrka
heyið og hefði því verið afar áríð-
andi að hafa súgþurrkun í hlöðun-
um og blása nógu mikið.
LEYFI til slátrunar í Sláturhúsi
Kaupfélags Hvammsfjarðar í
Búðardal hefur verið afturkallað,
en slátrun þar var að hefjast.
Samkvæmt upplýsingum Sigurð-
ar Arnar Hanssonar, dýralæknis í
Búðardal, var leyfið afturkallað
vegna þess, að ekki var búið að
ljúka ýmsum lagfæringum, sem
settar höfðu verið sem skilyrði
fyrir sláturleyfi og eru það eink-
um atriði, sem lúta að hreinlæti
en einnig átti eftir að ganga frá
svokallaðri loftbyssu. Þá var einn-
ig talið nauðsynlegt að ljúka frá-
gangi holræsa í nágrenni slátur-
hússins og er nú unnið að því
verki en Sigurður sagðist ekki
gera ráð fyrir að þvf verki lyki
r
— N-Irland
Framhald af bls. 1
ráðherra brezku stjórnarinnar,
fyrir að hafa tekið ástandið of
lausum tökum. Ásaka mótmæl-
endurRees fyrir að reyna að ná
sættum við hinn kaþólska Irska
lýðveldisher, IRA, og vilja að
hann aflétti vopnahléinu milli
IRA og hersins til þess að unnt
verði að hefja herferð gegn
hermdarverkasamtökunum.
— GNÁ
Framhald af bls. 36
ekki ínn í hana. Hálfri klukku-
stund seinna eða liðlega það lenti
Flugfélagsvél í Hornafirði og tók
hún sjúklinginn til Reykjavíkur.
Skömmu áður hafði ég haft sam-
band við Slysavarnafélag íslands
um þetta mál en þeir höfðu
ekkert heyrt um það þar. Þetta er
dæmigert neyðartilfelli en ein-
hvers staðar virðist sambands-
leysi vera í kerfinu og því munaði
nokkrum klukkustundum að hinn
slasaði maður kæmist á skurðar-
borðið,“ sagði Friðjón.
Ferð þyrlunnar Gnár út að
togaranum og flutningur manns-
ins yfir í þyrluna tókst í alla staði
mjög vel og má segja að þarna
hafi verið unnið björgunarafrek
þvf sjógangur var mikill og
hífandi rok, eða 8 vindstig, og
mikil ókyrrð. Flugmaður var
Björn Jónsson og Bjarni Helgason
var skipherra.
— Árni Johnsen.
1 AÐGERÐ — Morgunblaðið
hafði samband við Borgarsjúkra-
húsið klukkan 23 I gærkvöldi og
spurðist fyrir um brezka
sjómanninn. Var blaðinu tjáð að
honum liði eftir atvikum og var
hann þá rétt ófarinn f aðgerð á
skurðdeild stofnunarinnar.
Hjá þeim bændum, sem blaðið
hafði tal af, kom fram að þurrk-
dagarnir tveir í síðustu viku
hjálpuðu mörgum en f uppsveit-
um á Suðurlandi nýttist þurrkur-
inn mjög illa því þar tók að rigna
strax á föstudag. Eins og áður
sagði var þurrkur á Suðurlandi f
gær og samkvæmt upplýsingum
Páls Bergþórssonar, veðurfræð-
ings, er gert ráð fyrir að þurrkur-
inn haldist á morgun og hann
bætti því við, að sér litist ekki illa
á veðurhorfur á laugardag. Björn
Erlendsson f Skálholti sagði, að
þar hefði verið ágætur þurrkur f
gær með kulda og strekkingi.
Hann sagði, að það ylli nokkrum
erfiðleikum hversu túnin væru
blaut eftir allar rigningarnar f
sumar og erfitt væri að fara með
vélar um þau. „Ef hann verður
þurr fram að helgi þá ættu bænd-
ur á Suðurlandi að ljúka sínum
heyönnum að mestu,“ sagði Björn
í Skálholti að lokum, þegar Mbl.
ræddi við hann síðdegis í gær.
fyrr en eftir helgi en slátrun hefst
ekki fyrr en þeim er lokið. Slátur-
húsið í Búðardal er nýlegt og enn
á eftir að Ijúka fyllilega frágangi
á ýmsu í byggingunni og sagðist
Sigurður hafa óskað eftir að sum
þessara atriða yrðu lagfærð í
fyrrahaust en slíkt hefði ekki ver-
ið gert, þannig að nú hefði orðið
að grípa til þess ráðs að svipta
húsið leyfinu. Ekki tókst í gær-
kvöldi að ná tali af kaupfélags-
stjóra Kaupfélags Hvammsfjarð-
ar, en eins og áður sagði rekur
það sláturhúsið.
Skóladagheimili
í austurbænum:
Beðið eftir
ákvörðun
húseigenda
RÁÐGERT hefur verið, að í haust
tæki til starfa skóladagheimili f
gamla austurbænum. Félagsmála-
stofnun Reykjavíkurborgar hefur
gert tilboð í húseign við Egils-
götu, en kaupin hafa ekki verið
gerð enn.
Mbl. hafði f gær samband við
Svein Ragnarsson hjá Félags-
málastofnuninni og spurði hvað
liði stofnun skóladagheimilisins.
Hann sagði m.a.: „Við gerðum
ákveðið verðtilboð f þessa hús-
eign og rann frestur til að taka
því eða hafna út s.l. þriðjudag.
Eigandinn hefur hvorki tekið því
eða hafnað, en tilboðið stendur
enn. Eigandinn mun sjálfur vera
að leita se'r að húsnæði og getur
ekki tekið ákvörðun fyrr en hann
hefur fundið eitthvað við sitt
hæfi.“
— Deilur
Framhald af bls. 1
hlutverki sáttasemjara, að því er
heimildir herma.
Azevedo og Costa Gomes eru
sagðir leggja mikla áherzlu á að fá
alla þrjá stærstu flokkana með I
stjórnina til þess að þeir skipti
ábyrgðinni á því að takast á við
hin erfiðu efnahagslegu og félags-
legu vandamál Portúgals á milli
sfn.
Þótt löngum hafi verið grunnt á
því góða á milli Alþýðudemókrata
og kommúnista sauð upp úr nú í
vikunni er Guerreiro kvaðst vera
reiðubúinn til að vopna 50.000 af
stuðningsmönnum sínum ef þörf
krefði til að koma í veg fyrir
kommúníska valdbeitingu og
einræði. Kommúnistar svöruðu
með því að saka alþýðudemókrata
um að skipuleggja samsæri með
Antonio de Spinola, hinum land-
flótta fyrrum forseta.
— Viðræður
við Belga
Framhald af bls. 36
herra Belga á Islandi, Hartford,
en hann hefur aðsetur f Ósló.
Ekki hefur enn verið ákveðið
hverjir verða í íslenzku nefnd-
inni, en Tómas Tómasson, sendi-
herra Islands f Briissel, mun
væntanlegur til landsins til þess
að taka þátt í viðræðunum.
Fleiri þjóðir hafa óskað eftir
viðræðum, en dagsetning hefur
enn ekki verið ákveðin. Meðal
þjóða, sem óskað hafa viðræðna,
eru Pólverjar, Sovétmenn, Aust-
ur-Þjóðverjar, Norðmenn og
Færeyingar, þótt formíeg beiðni
hafi enn ekki komið fram frá
þeim síðastnefndu.
— íþróttir
Framhald af bls. 34
nú má hins vegar búast við þvf að
Reykvíkingar séu sigurstrang-
legri. Þannig ættu þeir að eiga
nokkurn veginn vfsan þrefaldan
sigur í spretthlaupunum og milli-
vegalengdahlaupunum, þótt
reyndar möguleiki sé á því að
landsbyggðarmenn komi á óvart.
Verður t.d. fróðlegt að fylgjast
með frammistöðu sigurvegarans í
100 metra hlaupi á landsmóti
UMFÍ, Magnúsar Jónassonar, en
hann hefur Iftið gert af því að
keppa á Laugardalsvellinum.
Valur Fannar gullsmiður hefur
gefið vandaðan verðlaunagrip
sem keppt verður um, en aðrar
viðurkenningar verða oddveifur
sem allir keppendur og starfs-
menn mótsins fá.
— Strætisvagn
Framhald af bls. 36
á Benzinn og sfðan til vinstri en
Benzinn flaug upp á gángstétt
hægra megin. Strætisvagninn
hélt hins vegar yfir á rauðu ljósi
og fór nokkurn spöl áður en hann
stöðvaðist.
Við yfirheyrslur kvaðst strætis-
vagnastjórinn kunna þá einu
skýringu á árekstrinum að hann
hefði sofnað við stýrið og vaknað
við þann vonda draum að sjá
bílana þeytast frá strætisvagnin-
um. Litlar skemmdir urðu á
vagninum, enda Volvo af stærstu
gerð.
— Krafa Breta
Framhald af bls. 1
f októberbyrjun, en kvaðst þess
þó fullviss að ná mætti samkomu-
lagi, ef aðilar hefðu til þess góðan
vilja. Þó sagði hann að erfiðara
yrði að ná samkomulagi þeim
mun nær er drægi 13. nóvember,
en þá fellur bráðabirgðasam-
komulagið milli landanna úr
gildi, sem forsætisráðherrarnir
náðu fyrir tveimur árum.
— Mikil reiði
Framhald af bls. 17
brot á samningum EBE, vegna
þess að ítalir hefðu sett sam-
svarandi takmarkanir á inn-
flutning á frönsku kjöti f fyrra.
Talsmenn frönsku vínbændanna
sögðust ekki vera alls kostar
ánægðir með að skatturinn væri
ekki hærri en raun ber vitni, —
þeir hefðu krafizt 20%, — en þó
lýsti ákvörðun stjórnarinnar
skilningi á vandamáli bændanna.
— Stikur
Framhald af bls. 18
hann er. Folkhammer er algjör
bindindismaður, en hefur einu
sinni brotið þá reglu. Það
gerðist á Islandi í fyrra, Folk-
hammer var gestur Gunnars
Gunnarssonar á heimili hans
við Dyngjuveg. Gunnar tók svo
vel á móti Folkhammer að hann
treysti sér ekki til að hafna
sérríinu, sem borið var fram, af
ótta við að móðga gestgjafann.
Þannig var hið langa bindindi
Folkhammers rofið.
Enginn skyldi halda að al-
þjóðleg rithöfundamót ein-
skorðist við hátíðlegar um-
ræður og yfirlýsingar. Á slíkum
mótum er oft brugðið á leik.
Skáldið Rolfrafael Schröer (f.
1928) frá Dússeldorf spilaði á
gítar á kvöldin og söng ljóð
eftir Brecht og sjálfan sig.
Enska skáldið Gordon Phillips
söng eigin lög ásamt kunnum
lögum eftir Bítlana. Jörgen
Nash sagði frá happenings eða
uppákomum sem hann og
félagar hans hafa efnt til í því
skyni að ganga fram af fólki og
vekja með þeim hætti athygli á
skoðunum sfnum. Þorvarður
kvað Mansöng úr Hlíðar-Jóns
rímum Steins.
Sláturhúsinu í
Búðardal lokað